Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 E 25
VISA
Seðlalaust
þjóðfélag
PLASTKORT eru allráðandfdi í
daglegum viðskiptum og margur
gengur varla með lausafé á sér; það
er svo þægilegt að grípa til korts-
ins. Auk þægindanna gefa kortin
öryggiskennd, því eðlis þeirra vegna
er óhægara um vik að svíkja fé út
af korti en að koma í lóg öðrum
verðmætum. Framtíðin ber eflaust
í skauti sér enn frekari þróun í átt
að seðlalausum viðskiptum og í
sumar gerði Visa Island tilraun með
sérstök myntkort, sem eru vísbend-
ing um viðskipti framtíðarinnar.
Myntkort Visa byggjast á tækni
sem víða er notuð, en á myntkort-
inu er hún útfærð enn frekar og
öryggisþátturinn aukinn. Allvíða í
Evrópu er hægt að kaupa símakort
með ákveðinni upphæð, þau síðan
notuð eins og þörf krefur og síðan
hent. Einnig hafa menn víða, til að
mynda í Bandaríkjunum og Japan,
notað kortin sem greiðslumiðil í
lestum og langferðabílum og fjöl-
mennir háskólar hafa gripið til álíka
kerfis til notkunar á háskólalóð-
inni. Fyrir vikið er minna af reiðufé
í umferð og því minna stolið, aukin-
heldur sem viðskiptavinir þurfa ekki
að hafa áhyggjur af því að hafa
ekki skiptimynt í vasanum. Eini
verulegi ókosturinn er að yfirleitt
þurfa menn að bera á sér margar
gerðir korta, til að mynda eitt fyrir
hvern þjónustuaðila. Því stefnir í
opin kortakerfi, þar sem hvert kort
dugir fyrir alla.
Bankamenn eru vitanlega áfram
um að slíkt kerfi verði tekið upp
því víða er kostnaður við talningu,
geymslu og flutninga á lausafé
verulegur hluti af rekstrarkostnaði
bankanna. Áður er getið um minni
þjófnaði, en einnig skiptir miklu að
öll viðskipti ganga hraðar fyrir sig
en hingað til. Segja má að ísland sé
í kjörinni aðstöðu til að taka upp
slíkt myntkort, því hvergi hafa
menn tekið eins vel við plastkortum
í viðskipum og daglegu amstri og
hér á landi.
Fjórar gerðir eru hugsanlegar og
verða líklega allar notaðar jafnt.
Fyrst er að telja sérstakt kort sem
hent er eftir notkun, þá kort sem
hlaðið er aftur og aftur, einnig má
bæta hleðslumöguleika við hefð-
bundið bankakort og loks má bæta
þessum möguleika við venjulegt
greiðslukort. Á kortunum verður
kísilflaga, eða örgjörvi, sem geymir
upphæðina, en engin þörf er á leyni-
númeri, banka- og reikningsnúm-
eri, því notandin er aldrei krafinn
um PIN-númer, eða þarf að rita
nafn sitt undir eitt eða neitt, né
heldur þarf sá sem tekur við greiðsl-
unni að leita eftir heimildarnúmeri
eða gefa sérstaka kvittun aðra en
kassakvittun. Hugmyndin er að
víða megi renna kortinu í gegnum
þar til gerðan lesara til að kanna
hve mikið er eftir á því og ef aurarn-
ir eru búnir má hlaða viðkomandi
kort, ekki einnotakort, í hvaða hrað-
banka sem er svo framarlega sem
innstæða er til þess. Kortin byggj-
ast á nýrri tækni eins og áður seg-
ir, því ekki stendur til að hafa á
þeim segulrönd; sú tækni er löngu
orðin úrelt. í stað segulrandarinnar
verður örgjörvi, eins og getið er,
en eitt af því sem þurfti að yfirstíga
var að slíkt kort er mun dýrara í
framleiðslu en segulrandarkort.
Islensku keppendurnir á Olymp-
íuleikunum í Atlanta fengu Visa-
myntkort gefins frá Visa ísland
með 50 dala hleðslu til að reyna
kortin og að sögn yfirmanns tækni-
sviðs Visa ísiands, Júlíusar G. Ósk-
arssonar, gekk þeim vonum framar
að nota kortin, þó enn sé nokkuð
í land að þau ná almennri dreifing.
Ekki vill hann spá því hvenær mynt-
kort verða almennt í notkun hér á
landi, en segist telja að sú stund
sé ekki langt undan, kostirnir liggi
í augum uppi og þar sem íslending-
ar hafi tekið plastkortunum eins vel
og raun ber vitni er eins víst að
ísland verði fyrsta seðlalausa þjóð-
félagið.
■MICROSOFT kynnti fyrir
tveimur vikum væntanlega út-
gáfu á sérstöku stýrikerfi fyrir
lófatölvur, en áður hefur fyrir-
tækið gert árangurslausar at-
rennur að slíku stýrikerfi, nieðal
annars með PenWindows og
Winpad. Að sögn markaðsstjóra
Microsoft hyggjast ýmis fyrir-
tæki hefja framleiðslu á tölvum
sem nota munu stýrikerfið nýja,
sem kallast Windows CE. Með
stýrikerfinu nýja fylgir dagbók-
arforrit, tölvupóstforrit og ráp-
forrit, en að sögn fróðra er þetta
fyrsta skref Microsoft „út af
borðinu", því fyrirtækið hefur
áður lýst þeirri ætlun sinni að
miða framleiðslu sína einungis
við borðtölvur. Windows CE
verður keyrt á RISC örgjörvum
til að byrja með.
■MEÐAL þess sem tölvunotend-
ur sjá ofsjónum yfir er að með
þvi að skipta um tölvugerð, þ.e.
örgjörva, í miðjum klíðum verður
allur gamli hugbúnaðurinn úrelt-
ur, því ekki er hægt með góðu
móti að keyra forrit gerð fyrir
CISC örgjörva, eins og til að
mynda Pentium, á RISC ör-
gjörva, til að mynda PowerPC.
Fyrir skemmstu kynnti Microsoft
aftur á móti nýja kerfisútfærslu
fyrir Windows NT sem keyrir 16
bita Windows foirit á RISC ör-
gjörvum. Reyndar selur Microsoft
RISC útgáfu af Windows NT sem
keyi-a má á Alpha örgjörvum eða
PowerPC en þar sem Intel-
örgjörvar hafa verið aðalundir-
staða stýrikerfisins er þorri alls
hugbúnaðar fyrir það skrifaður
fyrir ClSC-örgjörva. Samkvæmt
upplýsingum frá Microsoft nær
hermirinn að keyra forritin á
sambærilegum hraða við 486 ör-
gjörva, en fram að þessu hafði
Microsoft þráast við að þróa slík-
an hermi meðal annars vegna
þess að það taldi ekki ástæðu til
fyrir svo lítinn hluta markaðarins.
Norskur
margmiðlunarpakki
MARGMIÐLUN; samþætting
texta, mynda, hreyfimynda, hljóðs
og tónlistar, sækir sífellt í sig veðr-
ið eftir því sem tölvur verða öflugri.
Til að búa til margmiðlun þarf
hugbúnað og þar eru margir um
hituna, þar á meðal Scala MM100
frá norska fyrirtækinu Scala.
Scala er margmiðlunarpakki
fyrir PC samhæfðar tölvur og tók
þrjú ár að smíða pakkann sem er
að hluta byggður á forriti sem
Scala framleiddi fyrir Amiga tölv-
ur. Með forritinu fylgir geisladisk-
ur með 300 Mb af bakgrunnum,
rissmyndum, hljóðskrám, stafræn-
um hreyfimyndum, allt höfundar-
réttarlaust og til fijálsra afnota
fyrir kaupanda forritsins, en einn-
ig er á disknum gagnvirkar teikni-
myndir, margmiðlunarleikir og
skipanaskrár, sem allt er ætlað til
að kenna notanda betur á forritið
og gefa hugmyndir um notkunar-
möguleika. Forritið sjálft gefur
ýmsa möguleika, meðal annars er
unnt að vinna allar myndir í fullri
stærð, Double Buffering tryggir
að allar hreyfimyndir verða jafn-
ari, sérstakur hljóðblandari fylgir,
250 mögulegar myndskiptingar,
hnappar, sem hægt er að forrita
á ýmsan máta og sérstakur spila-
stokkur sem er til þess fallinn að
auðvelda niðurröðun skjámynda,
sem hægt er að skoða sem smá-
myndir í röð á skjánum. Fjölmarg-
ar leturgerðir fylgja og hefur
umboðsaðili Scala á íslandi, Elnet,
snúið leturgerðum á íslensku.
Höfundar Scala segjast hafa
endurskrifað forritið með reynslu
sína af margmiðlun í huga, en
Amiga-forrit Scala eru mjög vin-
sæl meðal Amiga-notenda um
heim allan. Niðurstaða vinnu
þeirra var svokallað Scala Baek-
Bone, sem tryggir að þeirra sögn
samhæfingu mynda, hljóða og
hreyfimynda. Önnur tækni sem
hönnuð var sérstaklega fyrir Scala
MM100 er serstakt hlutbundið
stýrikerfi, MMOS, sem vinnur
jafnt með MS-DOS, Windows 3.x,
Windows 95, Windows NT eða
OS/2. Forritunarmál er innbyggt
í Scala MM100, svonefnt Scala-
Script, sem svipar mjög til venju-
legrar ensku, en það er fyrir þá
sem vilja fara lengra í stýringu á
forritinu en hægt er á hefðbundinn
hátt.
Scala MM100 krefst 33 MHz
486 örgjörva eða betri, SVGA
skjákorts með 1 Mb skjáminni, 16
eða 32 bita Windows, eða MS-DOS
5.0 eða nýrra, 8 Mb innra minni,
geisladrifs og harðs disks með að
minnsta kosti 10 Mb laus. Elnet
í Kópavogi er umboðsaðili fyrir
Scala á íslandi.
>
msm*
Bestu kaupin núna
DAEWOO D5320
Intel pentium 120 Mhz org]orvi
16MB innra minni
1090MB IDE diskur
256 KB skyndiminni
14" skjár
Windows 95 lyklaborð
2 PCI og 3 ISAtengiraufar lausar
míro
n v v
miroVideo 22SD skjákort með 2MB EDO
8x geisladrif
SoundBlaster Vibra 16 hljóökort
Hátalarar
Vinnsluminni, mest 256MB
Skyndiminni. 16KB inma og 256KB ytia. mest 1MB
Uppfæranleg með framtíðar Pentíum Overdrive örgjörva
Enhanced IDE dual channel á PCI og ISA braut
miroVIDEO 22SD PCI skjákort meó S3 Trio64V+hraáli
2MB EDO myndminni 1280x1024x256litir 75Hz
2xPCI Local Bus. 3xlSA. IxPCl/ISA
Tvö radtengi (UART 16550), hliðartengi (ECP og EPP)
og PS/2 músatengi
Kassi rúmar þrjú dril (CO-Rom oll.)
Windows 95 lyklalrnrð með íbrenndum táknum
Fylgibúnaður- Windows 95 og mús
Plug'n Play, EPA Energy Star, hljóílát vifta
MPEG og AVI afsnilun í fullri stærí
134.900
stgr. m. vsk.
Með:
Intel Pentium 133 Mhz örgjörva
15 skja
8x geisladrifi
155.900
stgr. m. vsk
Hafðu samband við sölumenn okkar eða komdu
í verslunina. Viö setjum saman með þér pakka
sem hæfir óskum og verðhugmyndum þínum.
; 1SA
RAÐGREIÐSIUR