Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNí'ÍUDAGlJR 29. SEPTEMBER 1996 E 27
Ný myndvinnslutækni
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
AÐSTANDENDUR PMS og Hans Petersen fagna nýrri Photo
CD vinnslustöð.
PRENTMYNDASTOFAN, PMS, og
Hans Petersen hf. kynntu fyrir
skemmstu Kodak Photo CD, sem er
ný tækni við skönnun, vinnslu og
geymslu mynda á geisladiskum.
Geisladiskar hafa reyndar lengi ver-
ið notaðir til geymslu mynda, en
Photo CD kerfið býður upp á meiri
möguleika en hefðbundin geymsla
mynda á diskum, því nota má alla
Photo CD diska í flestallar tölvur
sem á annað borð eru búnar geisla-
drifi.
Þjónusta PMS felst í því að þeir
sem skila filmu til fyrirtækisins,
pósitífri eða nekatífri, fá hana til
baka, jafnvel innan klukkustundar,
litgreinda á geisladisk í sex mögu-
legum gerðum upplausnar og
CMYK. PMS skannar filmuna í há-
gæðaskönnum beint á disk á mjög
hraðvirkan hátt. Notandinn velur þá
upplausn sem hentar honum og get-
ur síðan sett filmuna í geymslu, því
ekki þarf að vinna hana frekar,
myndin er komin á geisladisk í staf-
rænu formi. Hægt er að velja á
milli sex mismunandi upplausna og
CMYK, eins og áður er getið, velja
má á milli fjögurra gerða af Photo
CD diskum, sem hver um sig miðast
við fyrirhugaða notkun disksins.
Hægt er að geyma allt að 700 mynd-
ir í skjá- og sjónvarpsupplausn á
einum disk og 100 myndir í hágæð-
aupplausn, en til viðbótar við það
að Photo CD gengur í nærfellt allar
tölvur sem búnar eru geisladrifi, má
einnig sýna myndir af honum í sjón-
varpi með þar til gerðum spilara.
PMS hefur sérhæft sig í filmu-
gerð, litgreiningu, skeytingu, tölvu-
setningu og útkeyrslu á gögnum af
Macintosh og PC tölvum, en einnig
framleiðir PMS klisjur úr zinki,
næloni og strikamerki með full-
komnum tölvubúnaði, en að sögn
eigandans hefur PMS yfir að ráða
fullkomnustu útprentunarstöð
landsins. Þorkell S. Árnason, for-
stjóri PMS, segir að kerfi það sem
sett var upp á dögunum fyrir Photo
CD þjónustu PMS byggist á Sun
SparcStation, nýrri gerð af Kodak
skanna, 4050, sem tekið getur 4x5
tommur, en skanninn er svo nýr að
þetta er fyrsta eintak sem fer í al-
menna notkun, 35 mm skanna af
gerðinni 2000, sérstaklega hraðvirk-
an, og tveimur tækjum til að skrifa
myndirnar á geisladiska, eða brenna
þær inn eins og fagmenn kalla það.
Kerfið kostaði 14 milljónir króna upp
komið, en Þorkell segir að þó það
sé vissulega drjúgur peningur sé það
alls ekki of mikið miðað við nota-
gildi þess. „Þegar ég keypti fyrsta
skannann hingað inn spáðu allir því
að við yrðum farnir á hausinn innan
árs, en annað kom á daginn," segir
Þorkell. „Þó prentsmiðjur séu marg-
ar að fá sér ódýrari tæki í dag til
að bregðast við harðnandi sam-
keppni fannst okkur rétt að fara
heldur dýrari leið og byggja um leið
upp tækni sem nýtist okkur á nýju
sviði, í margmiðlun. í dag getum við
litgreint beint í tilbúinni upplausn
fyrir alnetið, ekki síður en fyrir
margmiðlunarpakkann, sjónvarps-
skjáinn eða kynningu í skjávarpa og
svo mætti lengi telja. Þetta er fyrst
og fremst spurning um að svara
kalli tímans.“
Spurður um notagildi Photo CD
tækninnar segir hann að möguleik-
arnir séu nánast óþijótandi. Til að
mynda geti ljósmyndari sett inn á
disk myndasafn og síðan selt það
til notkunar, ýmist allt eða aðeins
hluta þess, því á einfaldan hátt sé
hægt að læsa þeim myndum sem
menn vilja og kaupandinn hefur
ekki aðgang að þeim nema hafa
aðgangsorð, þó hann geti skoðað
þær í takmarkaðri upplausn. Hann
nefnir og að einnig sé hægt að setja
vatnsmerki inn á myndir sem geri
að verkum að ekki er hægt að nota
þær nema til að skoða, og þá' þarf
einnig aðgangsorð til að iosna við
vatnsmerkið. Annað dæmi um nota-
gildi segir hann að geyma ljósmynd-
ir sem annars væri hætta á að glat-
ist eða skemmist og nefnir að þann-
ig hafi hann tekið þátt í að setja inn
á geisladisk myndir fyrir Árbæjarsa-
safn sem væru ómetanleg heimild
fyrir safnið og sögu Reykjavíkur,
en ein þeirra hafi til að mynda að-
eins verið til í einu eintaki og það
löskuðu. Fyrst myndin sé nú til á
Photo CD sé ljóst að hún eigi eftir
að varðveitast næstu 100 ár að
minnsta kosti, en gullhúðin á diskn-
um geri þá að einni öruggustu
geymsluaðferð sem um getur, auk-
inheldur sem ekki þurfi að snerta á
filmunni eða myndinni framvegis því
hún er þegar til í tölvutæku formi
fyrir prentun eða afrit. Einnig nefn-
ir hann að myndasafn á Photo CD
disk henti einkar vel til að skeyta
myndum inn í skjöl, hvort sem er
fyrir alnetsútgáfu eða skjöl sem
nota á í prentmiðil, en með á diskn-
um fylgir forritið Photo Insert, sem
er sérstaklega ætlað fyrir skjáborðs-
útgáfu og auðveldi mjög að skjóta
myndum inn í texta hvort sem er í
ritvinnsluforriti eða umbrotsforriti.
Netscape - Lycos -Yahoo
AltaVista - íslandsbanki
og ótal fleiri reiða sig á
öfluga Internet vefþjóna fró
d i g i t a
Hvað með þig?
Digital á Islandi
Vatnagarðar 14-104 Reykjavík
Sími 533-5050 - Fax 533-5060
Internet á Suðurlandi
wtviv -Veraldarvefurinn
Alþjóðlegt póstfang
$pja(irásir
O.ÍL
’yj* Homist í
-c snmbnnd við
umheiminn og gfir
70.000.000 notendo...
Þnð er sinnum dýrnrn nð hringn til
Rejjkjnvíkur en n innbmjnrtnxtn til Ejjjn/
Tölvun ® 4811122
Samstarfsaðilar á Suðurlandi
TRS á Selfossi <S 482 3184
Offsetþjónustan kynnir nýjung í stafrænni
Ijósmyndaþjónustu á nPrentmessu" í
Laugardalshöllinni dagana 4,- 6. október.
- Viö verðum meö stúdíóiö á staönum!
OFFSETi
I axaleni li)
108 I leykjavik
Suni: UOB 0808
I ax: ÍSS3 8400
ISDN: 588 0808
PaÓNusmN
Prentmessa '96
-H=ID=LB-R<y-
Hr. Oppermann frá Heidelberg flytur fyrirlestra um
QM46, GT0.52 og Speedmaster 52 laugardaginn
5. okt. kl. 10.30 og kl. 14.00.
_L.\L
■kaMl