Morgunblaðið - 29.09.1996, Qupperneq 14
14 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
PJONUSTfl
WMM fréttir
Áttum náð í
upplýsinga-
væðingunni
Einkatölvur fyrirtækjg hgfg yfirieitt verið notaðar til að
safna upplýsingum og vista þær, en nú líta æ fleiri til
þess hvernig megi dreifa upplýsingunum og gera þær
aðgengilegri. Ásgrímur Skarphéðinsson, for-
stöðumaður nýrrar deildar innan EJS, MSF lausna, segir
að mörg fyrirtæki séu ekki búin að átta sig á muninum
ó innraneti og hópvinnukerfi.
STARFSMENN MSF lausna hjá EJS hf., f.v.: Jóhann Vilhjálms-
son, Magnús Guðmundsson, Ásgrímur Skarphéðinsson, Þrándur
Arnórsson og Finnur Breki Þórarinsson.
RJS ER samstarfsaðili Microsoft á
Islandi og fékk fyrir skemmstu
viðurkenningu sem Microsoft Sol-
ution Provider, en fjölmargir
starfsmenn EJS hafa gengist und-
ir fagpróf Microsoft og öðlast
ýmis réttindi. EJS hefur haslað sér
völl á innlendum og erlendum
mörkuðum í sérhæfðum upplýs-
ingakerfum, m.a. fyrir banka og
verslunarkeðjur, og hefur byggt
upp hugbúnaðarsvið með nær þijá-
tíu sérfræðingum. Hugbúnaðar-
sviðið setti nýlega á laggirnar nýja
þjónustudeild, MSF lausnir, en
MSF er skammstöfun á Microsoft
Solution Framework og byggist á
leiðbeinandi heildarsýn og stefnu
Microsoft fyrir framsýn fyrirtæki
varðandi upplýsingatækni. Deiidin
veitir þjónustu í formi ráðgjafar,
hönnunar og smíði, sem felst í því
að nýta grunnhugbúnað frá Mic-
rosoft í þágu upplýsingakerfa við-
skiptavina. Deildin starfar í náinni
samvinnu við þjónustusvið vegna
þróunar og uppsetninga og sölu-
og markaðssvið vegna þróunar og
markaðssetningar. Helstu verk-
efnasvið eru innranets/alnets-
lausnir, hópvinnukerfi í Exchange,
og sérlausnir í Visual Basic, Visuaí
C++, Visual J++ og gagnagrunn-
um.
Ásgrímur Skarphéðinsson,
deildarstjóri MSF iausna, segir að
deildin hafi verið stofnuð í maí síð-
astliðnum og í henni séu sex manns
og segist telja að þar muni starfa
tíu manns um áramótin. Deildin
vinnur hins vegar þvert á sviðin
innan EJS. „Við vinnum til að
mynda með netdeildinni sem er
skipuð sérfræðingum í uppsetning-
um, þannig að þetta er fimmtán
manna hópur sem vinnur saman
og leitar til þeirra deilda þar sem
aðstoð er að fá, við tökum málin
frá upphafi til enda.“
Ásgrímur segir að deildin sé
byrjuð í ýmsum verkefnum og
nefnir að hún sé tekin að skipu-
leggja hópvinnukerfi fyrir Póst og
síma, „og erum að fara af stað
með mörg verkefni önnur“. Ás-
grímur segir að þeir vinni aðeins
út frá lausnum frá Microsoft; „við
byggjum allt á Windows NT 4.0
og BackOffice Exchange. Við horf-
um á þetta alit eftir grunngerð
fyrirtækja og leggjum áherslu á
að það skipti höfuðmáli fyrir fyrir-
tæki að byggja upp grunngerð sína
og hitt komi svo ofan á . Hópvinnu-
kerfi byggjum við á Exchange
Server. Við viljum ekki byggja
lausnir á kerfi sem keyrir ofan á
stýrikerfínu, heldur velja lausn sem
vinnur með stýrikerfínu,“ segir
Ásgrímur og vísar þá í Lotus Not-
es annars vegar og Microsoft Exc-
hange hins vegar, en það fyrr-
nefnda er dæmi um kerfi sem keyr-
ir ofan á stýrikerfinu.
„Lotus Notes er mjög gott kerfi
á sinn hátt, en við erum að fara
allt aðra leið, við erum hættir að
horfa bara á eitt kerfi, heldur erum
við farnir að horfa á alla upplýs-
ingavæðingu fyrirtækisins, þá
Windows NT 4 sem grunnþátt og
BackOffiee sem einingar í bygg-
inguna.“
Mest þörf á að ná áttum í
upplýsingavæðingunni
Ásgrímur segir að að sínu mati
sé fyrirtækjum mest þörf á að ná
áttum í upplýsingavæðingunni.
„Mörg fyrirtæki eru ekki búin að
átta sig á muninum á innraneti
og hópvinnukerfi. Þar er mikið
verk óunnið og um leið mikilvægt
að fyrirtæki doki við og átti sig á
þessu því framtíðin er meira og
minna innranetvædd. Hópvinnu-
kerfi og innranet eru tvennt ólíkt
og þó lokaniðurstaðan sé samvinna
milli þessara kerfa er útgangs-
punkturinn fyrst og fremst innra-
netshlutinn; það er alveg ljóst að
upplýsingatengingarnar verða of-
aná.“
Nauðsynlegur
búnaður fylgir
Ásgrímur segir að með Windows
NT 4.0 fylgi nauðsynlegur búnaður
til þess að koma upp slíkri miðlun
á Innraneti, það er Internet In-
formation Server, Index Server og
FrontPage. „Microsoft BackOffice
er samofin heild eininga sem hann-
aðar eru fyrir Windows NT net-
stýrikerfið, en innifalin í Back-
Office eru Microsoft Exchange
Server, SQL Server, System Mana-
gement Server, SNA Server, Inter-
net Information Server og Micros-
oft Index Server," segir Ásgrímur
og bætir við að þessar einingar
sameinist Windows NT, Systems
Management Server og SNA Ser-
ver.
„Upplýsingamiðlunin getur ver-
ið allt frá því að vera einfaldur
leiðbeiningatexti upp í að vera full-
komin handbók fyrir gæðastjórnun
fyrirtækisins. Einnig er hægt að
miðla skjölum (Office skjölum) sem
þegar eru til í fyrirtækjum á mjög
fljótvirkan hátt með aðstoð rápfor-
rits eins og Explorer 3.0. Með teng-
ingum innranets við gagnagrunn
er síðan hægt að bjóða uppá að-
gang að „lifandi" upplýsingum á
svipstundu í gegnum vefrápar-
ann,“ segir Ásgrímur og bætir við
að þetta tryggi að miðlun upplýs-
inga sem oft eru þegar fyrir hendi
í fyrirtækjum verður bæði örugg
og fljótvirk. „Sérforritun er lítil þar
sem allir starfsmenn sem hafa
aðgang að vefrápara hafa sjálf-
virkt aðgang að öllum upplýsing-
um sem settar eru inn á innranetið.
Allar upplýsingar sem hægt er
að nálgast á innraneti er einnig
hægt að nálgast á alneti. Munurinn
er sá að notandi á alnetinu getur
verið hver sem er í veröldinni ef
hann hefur aðgang að alnetinu og
vefrápara en innranetið er einung-
is aðgengilegt fyrir starfsmenn
fyrirtækisins.“
Deildin tekur að sér að setja upp
innranet/alnetskerfi fyrir fyrirtæki
allt frá stöðugum vefsíðum í lif-
andi upplýsingakerfi. Boðið er upp
á sérþjónustur eftir ISAPI staðli
fyrir IIS vefþjón og lifandi hluti
fyrir vefrápara, bæði ActiveX og
Java Applet, og beintengingu við
ODBC gagnagrunna með aðstoð í
gegnum IDC og ISAPI eftir þörf-
um.
Hópvinnukerfi
í Exchange
Ásgrímur segir að Microsoft
Exchange sé sérhannað póstkerfi
fyrir innanhússpóst jafnt og alnets-
póst. „Einnig er boðið upp á mikla
hópvinnumöguleika. Þannig er
hægt að nota Exchange til að halda
utan um hverskonar flæði beiðna
og annarra forma sem nauðsynlegt
er að margir starfsmenn eða deild-
ir þurfi að meðhöndla og því hægt
að útfæra ýmsa vinnuferla á mjög
skilvirkan hátt með aðstoð Exch-
ange. Exchange bætir því við
innranetsupplýsingamiðlun þeim
þáttum sem ekki er eins auðvelt
að útfæra þar.“
Að sögn Ásgríms tekur deildin
að sér skipulagningu hópvinnu-
kerfa fyrir fyrirtæki með aðstoð
Exchange Server. Um er að ræða
form og sýnir ásamt þeirri sér-
vinnslu sem nauðsynleg er. Sér-
vinnslan er unnin í VB og er OLE
Messaging og MAPI staðli fylgt.
Að lokum segir Ásgrímur að
deildin taki að sér hverskonar for-
ritun undir Windows 95 og NT,
heildarkerfi jafnt og sérstaka hluti,
ActiveX og Java Applet. „Einnig
bjóðum við upp á forritun á OLE
þjónum og sérvinnslulögum fyrir
NT Server og sérforritun í Access
og SQL Server."
■IBM gerði ítrekaðar tilraunir
til að ná tökum á PC-bylting-
unni sem fyrirtækið hrinti óvart
af stað á sínum tíma. Nú eru
breyttir tímar og höfuðáhersla
lögð á að fylgja opnum stöðlum.
Þannig kynnti IBM fyrir
skemmstu tvo hugbúnaðar-
pakka, Web Object Manager,
eða WOB, sem ætlaður er innra-
netsumsjón, og Lotus Domino,
sem er ætlað fyrir alnets- og
vefþróunarvinnu. Við það tæki-
færi flutti yfirmaður alnets-
deildar IBM stutta tölu og sagði
að þeir dagar þegar tekist var
á um staðla væru liðnir.
■NOVELL hefur átt undir högg
að sækja á undanförnum
misserum og mat margra að það
hafi nánast lognast útaf fyrir
snarpri sókn Microsoft inn á
netstýrikerfamarkaðinn með
Windows NT. Fyrir skemmstu
var þó skipt um menn í brúnni
hjá Novell og meðal sóknarfæra
sem þeir sjá er alnetið og innra-
net. Fyrir stuttu kom síðan út
netstýrikerfi sem kallast Itra-
netWare og ætlað er að vinna
með NetWare og auðvelda upp-
setningu og viðhald á innraneti
fyrirtækis meðal annars. I
pakkanum er útgáfa 4.11 af
Novell NetWare, sem kallast
Green River, NDS, eða Novell
Directory Services, Novell Web
Server, Netscape 2.x og vefstól-
ar frá Netscape og Internet
Access Server sem veitir gátt
inn á alnetið með TCP/IP og
IPX. Þessu til viðbótar má nefna
að Java VM er væntanlegt á
næsta ári. Ekki hafa allir tekið
þessari sókn Novell inn á innra-
net/alnetsmarkaðinn vel því
enn á Novell eftir að taka upp
alnetsstaðla eins og TCP/IP
fyrir fullt og fast.
■MARGUR sér í hillingum fjöl-
skylduna saman komna inni í
stofu að rápa um alnetið í sjón-
varpi heimilisins. Ýmsir tækja-
framleiðendur hafa framleitt
sjónvörp með slíkri tækni, því
það er hvorki flókið né dýrt
þegar upp er staðið. í síðasta
mánuði kynnti Bandaríkjadeild
Phillips Magnavox netsjónvarp.
Vestur í Bandaríkjunum kostar
slíkt tæki um 20.000 krónur, en
með því er einnig hægt að senda
tölvupóst og taka við slíkum
pósti, svo framarlega sem við-
komandi hafi keypt aðgang að
netinu hjá alnetsþjónustu. Áður
eru komin á markað Diam-
ondWeb sjónvarp frá Mitsub-
ishi, Internet TV frá Samsung
og annað samnefnt frá Zenith,
en engum sögum fer af sölu.
Því er svo við að bæta að leikja-
tölvuframleiðendur sitja ekki
auðum höndum því Sega hyggst
kynna í októberlok viðbót við
Saturn leikjatölvur sínar sem
breytir þeim í nettölvu.
&
i
f
Nýiasta frá Microsoft
Windows
NT4.0
Fullkomnara stýrikerfi
4 Windows 95 notendaviðmót
Fullkomið 32 bita fjölverka stýrikerfi
' Mikil afkastaaukning
Innbyggður internet- og intranetþjónn
4 Enn auðveldari kerfisstjórnun
4 Fjöldi kerfa innbyggð
Fyrir netkerfi og öflugari vinnustöðvar
Einsleitt viðmót Microsoft hugbúnaðar tryggir
notendum auðveldari aðgang, lækkar
þjálfunarkostnað og eykur framleiðni.
EINAR J. SKÚLASON HF
Grensásvegi 10, sími 563 3000
http://www.ejs.is/NT4