Morgunblaðið - 29.09.1996, Page 18

Morgunblaðið - 29.09.1996, Page 18
18 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ HUGBUNRÐBRGERÐ fjármagnsmarkaðnum, því er minna um að keyra þurfi fyrirtæk- ið á yfirdráttarvöxtum eins og tíðk- aðist oft áður fyrr.“ Pétur segir að alnetið skipti Marel miklu máli nú þegar „og mun gera það í stórauknum mæli á næstunni. Nú þegar eru dótturfyr- irtækin erlendis tengd móðurfyrir- tækinu gegnum alnetið og eru sam- skipti við flesta umboðsmenn og fjölda viðskiptavina einnig gegnum það. Það er bylting að sinna hug- búnaðarþjónustu gegnum netið og verður alnetið ein af mikilvægustu samskiptaleiðum Marels við sölu og þjónustu í náinni framtíð. Það er lykilatriði að fyrirtæki geti haft öfluga bandbreidd á net- inu. Varðandi sölustarfsemi og þjónustu verður nauðsynlegt að geta sent myndir og video-mynd- skeið yfír netið og er þá mikilvægt að geta haft mikla bandbreidd. Einnig fara video-fundir að verða fýsilegir og munu geta styrkt tengsl t.d. við dótturfyrirtæki og umboðs- menn og eflt þannig sölu.“ Pétur segir að helsta framlag stjómvalda til að auðvelda fram- leiðslu hugbúnaðar sé að stuðla að góðri menntun. „Menntunin þarf að vera eins öflug og hægt er á öllum stigum menntakerfisins. ís- lensk böm og unglingar sem em að alast upp í dag eiga að líta á tölvu sem jafn eðlilegan hlut og sjónvarpið. Einnig þarf að skapa góð ytri skilyrði, s.s. ódýra alnets- þjónustu út úr landinu, styrkja Utflutningsráð til að leiðbeina hug- búnaðarframleiðendum við útflutn- ing, veita áhættulán og styrki við efnileg verkefni í auknum mæli, t.d. gegnum Iðnlánasjóð. Flestar þjóðir bjóða út hugbúnað fyrir opinber fyrirtæki þar sem það mun efla einkafyrirtækin, sem munu stefna að að gera afurð úr hugbúnaðinum og selja hann víða og flytja út, en slíkt er auðvitað ekki tilgangurinn með hugbúnaðar- deild opinbers fyrirtækis. Hugbún- aðarframleiðsla hins opinbera er því algjör tímaskekkja." Að mati Péturs er menntun ís- lendinga á háu stigi, vitund um það sem er að gerast i kringum okkur er góð, tölvueign og alnetsnotkun er með því hæsta í heiminum. Hug- búnaðargerð er næst því að vera óháð landamærum af allri fram- leiðslu. Framtíðin á því að vera björt fyrir íslenska hugbúnaðarframleið- endur. „Alþjóða viðskiptaheimurinn er allur að skreppa saman og eina leiðin til að halda forriturum hér er að íslenskir hugbúnaðarframleið- endur reyni að vera samkeppnis- færir við erlenda keppinauta. Því er nauðsynlegt að hafa útflutning í huga frá byrjun framleiðslu afurð- anna til að vera á svipuðum báti og þjóðir með stóran heimamarkað sem þar af leiðandi geta e.t.v. borg- að hærri laun. íslendingar eru mjög sjálfstæðir að eðlisfari og lítt bældir og því eru mjög miklar líkur á að hér geti skapast margar frumlegar hug- myndir. Framtíðin ætti því að vera mjög björt ef við getum komið nógu mörgu hæfu fólki í gegnum kerfis- fræði- og forritunamám á næstu árum.“ Hugvit - Ólafur Daðason Hugvit er þriggja ára gamalt fyrirtæki og þar starfa ellefu manns. Ólafur Daðason segir að STÓLPI fyrir Windows er samhæfður Word og Excel. Sveigjanleiki í fyrirrúmi. SIKERFISÞRÖUNHF. 01 Fákafeni 11 - Sími 568 8055 hingað til hafi gengið vel að ráða forritara til starfa, „en framleiðsla HÍ og TVÍ er of lítil og skortur er á endurmenntun á háskólafólki sem vill bæta við sig tölvukunnáttu." Fyrirtækið byggir alfarið á framhaldsskóla- menntuðu fólki og undirstaða þess er mjög góð að sögn Ólafs, en helsti söluvam- ingur fyrirtækisins er hópvinnu- hugbúnaður byggður á Lotus Notes sem seldur er jafnt hérlendis sem erlendis, en Ólafur áætlar að um 50% tekna komi að utan og fari ört vaxandi. Ólafur segir að starfsskilyrði íslenskra hugbúnaðarframleið- enda séu bæði góð og slæm; góð með tilliti til nýjungagimi og þekkingar á markaðnum, en slæm með tilliti til lítilla fjárfest- inga iðnaðar og ríkis og erfíðs fjárfestinga- og lánamarkaðar. Að hans mati geta stjómvöld lagt íslenskum hugbúnaðarfyr- irtækjum lið til að auðvelda framleiðslu hugbúnaðar með því að bjóða út hugbúnaðarsmíði og skapað almennt rekstrarlegt umhverfi með aðgang að áhættufé því bankamir sinni ekki því hlutverki. Ólafur segir að hugbúnaðarsmið opinberra fyrirtækja og stofnana byggist á skammtímasjónarmiðum. „Slíkt skapar þjóðarbúinu takmörk- uð verðmæti og ieiðir ekki til verð- mætasköpunar vegna sölu hugbún- aðar á erlendum markaði. Það er einnig slæmt að þegar ríkisstofnan- ir em að meta hagkvæmni þess að kaupa þjónustu á móti því að gera hlutina sjálfar virðist of oft litið fram hjá öllum kostnaði öðrum en launakostnaði, atriði eins og lífeyr- issjóður, fasteignakostnaður, sími, skattar og almennur rekstrarkostn- aður er oft á tímum ekki inni í því dæmi.“ Ólafur segir að íslendingar geti náð árangri erlendis með hug- búnaðarframleiðsiu sína. „Hér er um gríðarlega stóran markað að ræða sem engin þjóð getur ráðið yfir og við íslendingar þurfum svo lítið til að það skipti miklu máli fyrir okkur. Spurningin er um hvaða starfa við viljum afla fyrir börn okkar í framtíðinni - í hugbúnaðariðnaði eru spennandi og vel launuð störf sem við ættum að sækjast eftir að fá inn í landið en því miður virðist stuðningur við markvissa uppbygg- ingu lítill enn sem komið er að minnsta kosti.“ Softis - Sigurður Björnsson Softis hf. er stofnað 1990 til þess að þróa og hrinda í fram- kvæmd hugmyndinni um LOUIS. Við fyrirtækið starfa um tíu manns og Sigurður segir að það hafi geng- ið nokkuð vel að ráða forritara. „Það er þó skort- ur á hæfum for- riturum og fyrir- sjáanlegt að erf- itt verður að bæta við forritur- um eins og stefnt er að. Það má fuliyrða að íslenskir forritarar standa mjög framarlega þannig að menntun þeirra er greinilega í ágætu Iagi. Við notum eingöngu forritara menntaða frá HÍ. Helsta markaðsvara Softis heitir LOUIS (Louis Open User Interface Systems) og er eingöngu markaðs- sett ytra. Islenskir tölvunotendur eru frægir fyrir það að „fá að prófa“ forrit og greiða síðan aldrei fyrir afnotin. Meðal annars vegna eðlis hugbúnaðarins segir Sigurður að ekki hafi reynt á það en fyrirtækið geri þó ráð fyrir að allt að 25% notenda muni ekki greiða afnota- gjöld. Aðspurður um starfsskilyrði ís- lenskra hugbúnaðarframleiðenda svarar Sigurður því til að stuðning- ur sé heldur lítill við þá sem stunda þróunarstarf og eru nánast tekju- lausir á meðan. „Þetta tefur fyrir allri þróun í iðnaði þar sem framtíð- armöguleikar okkar eru mikiir, en skilningur er frekar að aukast, þó hægt fari. Sigurður segir að alnetið auð- veldi fyrirtækinu til muna að kynna sig og selja vörur en hann er ekki á því að bandbreiddin sé helsta vandamálið sem glímt er við; það sé frekar há bilanatíðni og ekki sé alltaf að sakast við Intís eða Póst og síma. Aðspurður hvað stjómvöld geti gert til að auðvelda framleiðslu hugbúnaðar svarar Sigurður því til að hlutverk þeirra ætti að vera að Framtíðin er björt styðja þá sem eru að þróa athyglis- verðan hugbúnað svo þeim takist að koma vömnni á markað. „Það gleymist stundum að hluti af þróun- arkostnaði er markaðssetningin, sem getur numið allt að helmingi kostnaðarins." Hann segir að um- deild hugbúnaðarvinna opinberra fyrirtælqa, sem oft er seld vægu verði eða jafnvel gefin, snerti Soft- is ekki, en eigi auðvitað ekki að viðgangast nema í algjömm undan- tekningartilfellum. Sigurður segir Islendingar geta staðið ímm á sporði í hugbúnaðar- gerð: „Með velmenntuðu fólki (sem við eigum) og stuðning við þróunar- starf em möguleikarnir mjög mikl- ir.“ Straumur íslenskra forritara út er að mati Sigurðar óumflýjanleg þróun eins og staðan er í dag. „Langflestir forritarar, sem starfa hér í dag, em að vinna í nokkurs konar þjónustustörfum. Með auk- inni áherslu á þróun skapast áhuga- verð störf fyrir þá sem skara fram úr, og þeir munu koma hér til starfa. Við fylgjumst vel með, en enn og aftur; aukin áhersla á þróun er gmndvöllur þess að fmmkvæði komi frá okkur. Framtíð hugbúnaðariðnaðar á íslandi er björt og hann á eftir að skipta vemlegu máli í þjóðarbúskap okkar íslendinga. Við emm hins vegar seinna á ferðinni vegna þess hversu lítinn stuðning iðnaðurinn hefur fengið. Opinberir aðilar eru greinilega allt of uppteknir af því að gera ekki sömu mistökin í þess- um iðnaði og urðu í fiskeldi og loð- dýrarækt, svo tekin séu klassísk dæmi um stuðning sem fór í va- skinn." íslensk forritaþróun - Vilhjálmur Þorsteinsson íslensk forritaþróun ehf. var stofnuð 1983, fyrst sem sameignar- félag Vilhjálms Þorsteinssonar og Amar Karlssonar, en með tilkomu Hálfdans Karls- sonar fram- kvæmdastjóra í eigendahópinn 1988 varð það að hlutafélagi. Það hefur allan tím- ann þróað eigin hugbúnað, eða í 13 ár. 32 stöðu- gildi em við fyrirtækið, þar af eitt á Akureyri. Systurfyrirtæki í Skot- landi, Atlantic Information Systems Ltd., er ekki innifalið í þeirri tölu. Vilhjálmur segir íslenskri for- ritaþróun hafi sem betur fer alltaf haldist vel á fólki. „Við höfum orð- ið varir við umframeftirspum á markaðnum síðustu misseri. Ég tel að besta fólkið leiti þangað sem frumleg og spennandi verkefni em í boði. Við eram að vinna að slíkum verkefnum, og stöndum því betur að vígi en þeir sem em að ráða í verkefni á borð við aðlögun erlends hugbúnaðar eða rekstur og viðhald gagnagmnnskerfa. Það er ljóst að markaður er fyrir mun fleira tölvu- fólk. Sjálfur er ég að mestu sjálf- menntaður í faginu, en annars emm við með fólk með ýmiskon- ar bakgrann. Endurmenntunar- stofnun Háskóla íslands hefur unnið gott starf við að bjóða námskeið á upplýsingatækni- sviðinu, og við höfum nýtt okkur það og önnur námskeið fyrir starfsfólk. Aðalatriðið í þessu fagi er að kunna að læra og að geta klárað hlutina 100%. Það er mikið framboð af fólki sem klárar 95%, en aðeins örfáir sem klára 100%. Hvað forritara varðar, höfum við nokkum samanburð milli landa, einkum milli Bretlands og ísiands, og hann er íslend- ingum síst í óhag. Það er að mínu mati ágæt blanda að hafa aðgang að hvom tveggja, fræði- legra námi í Háskóla Islands og „praktískara" námi í Tölvuháskóla Verslunarskólans. Helsta söluvara íslenskrar for- ritaþróunar er viðskiptahugbúnað- urinn ÓpusAllt. „Hann er notaður í yfir 1.300 íslenskum fyrirtækjum, allt frá hinum smæstu til þeirra stærstu, t.d. íslandsbanka, VISA íslandi, Flugleiðum og Vífilfelli. Við emm jafnframt með upplýsinga- kerfi fyrir stjómendur, ÓpusAllt stjómandann, og Upplýsingaheima, sem er upplýsingabanki á alnetinu. Markaður íslenskrar forrita- þróunar ehf. er að langmestu leyti innanlands, en til að víkka markað- inn stofnuðum við systurfyrirtækið Atlantic Information Systems árið 1994. Það hefur starfað á skoska markaðnum með ágætum árangri. Skotar eru afar hrifnir af hug- búnaðinum og finnst hann sveigjan- legri, svalari og hraðvirkari en ann- ar sambærilegur búnaður sem þar býðst. Sem stendur er sala erlendis innan við fjórðungur af heildarsölu ÍF, reiknað á heildsöluverði, en fer ört vaxandi. Vilhjálmur segir að menn hafi lítillega orðið varir við hugbúnað- arstuld, „en það hefur ekki skaðað okkur að ráði, eftir því sem við komumst næst. Eðli viðskiptahug- búnaðar í fyrirtækjum er að alvöm notendur þurfa þjónustu og viðbæt- ur á hugbúnað sinn reglulega, t.d. vegna breytinga á viðskiptaum- hverfinu. Það er því varla hægt til lengdar að reka fyrirtæki með stolnum hugbúnaði og án góðrar þjónustu hugbúnaðarfyrirtækis. Vilhjálmur segir að ekki sé und- an miklu að kvarta almennt talað þegar starfsskilyrði íslensks hug- búnaðariðnaðar ber á góma. „Sjálf- ur er ég fremur á móti beinum styrkjum til einstakra atvinnu- greina, en tel að fremur eigi að nota peninga skattgreiðenda til al- mennrar uppbyggingar atvinnulífs, t.d. með endurbótum á gmnngerð þjóðfélagsins. Góður almennur al- netsaðgangur er dæmi um það. Helst er hægt að kvarta yfír því að vegna þess hvemig skattareglur em framkvæmdar sjá ríkisstofnan- ir, fjármálastofnanir og trygging- arfélög sér hag í að reka eigin tölvudeildir og smíða eigin hugbún- að í stað þess að kaupa staðlaðar lausnir eða forritunarvinnu á fijáls- um markaði. Þetta kemur þessum aðilum vel í skammtíma en sjálf- stæðum hugbúnaðariðnaði afar illa, sérstaklega til lengri tíma litið. Þama er ákveðin innbyggð skekkja í skattareglunum. Lækkun tryggingargjalds á hug- búnaðarfyrirtæki var jákvætt skref sem stigið var í tíð Sighvats Bjöig- vinssonar sem iðnaðarráðherra í síðustu ríkisstjóm. Ég verð að vona að umræðan leiði til þess að tekið verði á tölvudeildaskekkjunni." Vilhjálmur segir að út um allan heim séu menn ennþá að þreifa fyrir sér um notkun alnetsins. Við emm með heimasíðu á alnetinu og bjóðum margvíslega þjónustu sem því tengist, t.d. svokallaða Upplýs- ingaheima í samvinnu við Skýrr, þar sem unnt er að nálgast þjóð- skrá, bifreiðaskrá, skipaskrá, út- boð, veðbókarvottorð o.m.fl. Einnig býður viðskiptahugbúnaður okkar ýmsa möguleika sem tengjast net- inu, svo sem sjálfvirkar sendingar á tölvupósti. Ég held að netið verði mjög þýðingarmikið í framtíðinni fyrir viðskipti og að viðskiptahug- búnaðarframleiðendur sem ekki gera ráð fyrir því í hönnun forrita sinna séu á hraðleið til úreldingar. Frá okkar bæjardymm séð er bandbreiddin til útlanda nægileg eins og er. Ég hef meiri áhyggjur af hraðvirkum samböndum innan- lands, sem em of dýr enn sem kom- ið er. Með því er ég ekki að segja að þau séu dýrari en annars stað- ar. Hins vegar gætu íslendingar tekið visst frumkvæði i smíði lausna fyrir alnetið ef hér bjóðast ódýr og hraðvirk stafræn samskipti milli fyrirtækja og heimila. Nokkurra mánaða forskot skilur milli feigs og ófeigs á hinum alþjóðlega mark- aði fyrir alnetshugbúnað.“ Aðspurður hvað stjómvöld geti gert til að auðvelda hugbúnaðar- fyrirtækjum rekstur sinn svarar Vilhjálmur svo: 1) Þau geta gert það að stefnu sinni að auka kaup á hugbúnaði frá fyrirtækjum, í stað þess að reka eigin tölvudeildir í ríkisstofnun- um. 2) Fjölgað opinbemm útboðum á þessu sviði og vandað til þeirra. 3) Séð til þess að gmnngerð sé í lagi, t.d. varðandi samskipti og menntun. 4) Stuðlað að virkum, opnum fjár- magnsmarkaði með einföldum skattareglum þar sem fjárfest- ing í áhætturekstri er auðvelduð. Vilhjálmur segir að sá háttur margra opinberra fyrirtækja og stofnana að láta vinna hugbúnað innanhúss sem síðan er seldur vægu verði eða gefinn sé auðvitað jafnvit- laus á þessu sviði eins og öðmm. „Nefni sem dæmi að Bændasamtök íslands framleiða, með tilstyrk Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, bókhaldskerfi fyrir bændur, sem okkur sýnist skv. ársreikningum samtakanna að hafi kostað þau a.m.k. 14 milljónir á áranum 1993-5, og er þá ótalinn kostnaður bændanna sjálfra. Síðan þarf að hafa forritara og þjónustufólk á launum við að halda þessu sérstaka kerfi við. Ég hefði talið ráðlegra að semja við einhvern þeirra sem fyrir vom á markaðnum um viðbæt- ur við stöðluð kerfi sem henta bændum, fremur en að leggja í rik- isstyrkta samkeppni við fyrirtækin. Þá hefði kannski orðið til vara sem ætti erindi víðar en hér.“ Að mati Vilhjálms geta íslending- ar aðeins staðið öðmm þjóðum á sporði í hugbúnaðargerð með því að Ieggja áherslu á frumlegan hug- búnað í fararbroddi tækniþróunar hveiju sinni. „Við komumst ekki iangt meðan stór hluti af okkar for- ritunarkrafti fer í að aðlaga erlend- an hugbúnað þörfum einstakra inn- lendra notenda. Sala á tímavinnu mun aldrei gefa stóra vinningjnn; það getur hins vegar sala á stöðluð- um hugbúnaði og innpakkaðri tækniþekkingu gert. Við fylgjumst vel með en emm stundum of elskir að því sem útlent er. Það kemur t.d. fram þegar það er notað sem sjálfstæð röksemd fyr- ir hugbúnaðarkaupum að búnaður- inn sé erlendur fremur en íslenskur. Framtið hugbúnaðargerðar á ís- landi er björt, en það sem helst gæti staðið í vegi okkar er of lítið framboð af menntuðu og metnaðar- fullu fólki. Menntunin er ekki nóg ein og sér; metnaðurinn verður líka að vera fyrir hendi."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.