Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 20
20 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Útgáfa á sviði
laga og réttar
Lagasafn íslonds er til í stafrænum búningi til mikils
hagræðis fyrir alla þá sem í lagaskræðum þurfa að blaða.
Utgefandi er útgáfu- og hugbúnaðarfyrirtækið
Úrlausn-Aðgengi samkvæmt samningi við dóms-
málaráðuneytið. Lagasafninu er dreift á disklingum, og
væntanlegt á geisladiski, og er sett upp á staðarnet
eða einkatölvu notanda. Lagasafnið kemur út tvisvar á
ári og búið er að selja á annað hundrað eintök.
AÐGENG\
li
Tölvuvætt lagasafn
Lagasafn Islands AG
fyrir Mierosoft VVindows
' £uð\/elt í nottm I
Clnnur lön onuM
Uppfært rogluMH
m
1
ÚRLAUSN-Aðgengi rekur ættir
sínar aftur til ársins 1987 þegar
Úrlausn sf. var stofnuð. Úrlausn
hannaði Innheimtukerfí lögmanna
IL+ sem er í notkun á um 120
lögfræðistofum á íslandi. Auk þess
hannaði Úrlausn fasteignasölu-
kerfið Húsið, sem er í notkun hjá
vel á þriðja tug fasteignasala.
Aðgengi h/f var stofnað 1994
til að annast um rafræna útgáfu
á sviði laga og réttar. Fyrsta verk-
efni félagsins var að fá útgáfurétt
á Lagasafni íslands í því skyni að
gefa það út á aðgengilegan hátt.
Lagasafnið hefur náð góðri út-
breiðslu og skiptir fjöldi notenda
hundruðum.
Samstarf hafði verið á milli
þessara tveggja félaga og við-
skiptamannahópurinn að miklu
leyti sá sami. Menn töldu því marg-
víslegt hagræði að því að sameina
félögin og mynda þannig einn
öflugan aðila til að þjóna viðskipta-
mönnunum. Auk þess yrði auðveld-
ara að stunda nýsköpun. Á síðasta
ári var því ákveðið að sameina
félögin tvö og til varð Úrlausn-
Aðgengi. Eigendur félagsins eru
að mestu leyti lögmenn. Segja má
að starfsemi Úrlausnar-Aðgengis
snúist um tvennt:
■ Að auðvelda lögfræðingum og
fasteignasölum störf þeirra með
hagnýtingu tölvutækni. Það er
gert með útgáfu/dreifingu á ýms-
um opinberum gögnum og skrám
annars vegar og sölu sérhæfðra
og mjög fullkominna vinnsluforrita
hins vegar, auk þjónustu sem teng-
ist þeim.
■ Áð sinna nýsköpun með hagnýt-
ingu þeirrar reynslu og tækni sem
fyrirtækið býr yfir.
Rekstur félagsins í dag snýst
annars vegar um sölu og þjónustu
á þegar gerðum kerfum, þ.e. Inn-
heimtukerfínu, lagasafninu og
fasteignasölukerfinu. Hins vegar
um þróun á þessum kerfum og
nýsköpun.
Að sögn framkvæmdastjóra fé-
lagsins, Hafdísar Hafsteinsdóttur,
stendur það ágætlega að vígi. Það
býr að því að njóta sérstöðu á
markaðnum og afurðir þess hafa
mjög góða markaðshlutdeild. Einn-
ig er það mikils virði að viðskipta-
mannahópurinn er mjög traustur.
„Aðalvandinn sem rekstur af
þessu tagi hefur í för með sér er
að íslenski markaðurinn er svo lít-
ill. Af því leiðir að erfitt er að sinna
rannsóknum, þróun og nýsköpun.
Að vísu hafa opnast nýir möguleik-
ar á að sækja um ýmsa styrki
bæði hérlendis og erlendis, en það
kostar tíma, fé og fyrirhöfn," seg-
ir Hafdís.
Að hennar sögn er ný uppfærsia
af Innheimtukerfinu á döfinni, þar
sem gert er ráð fyrir að unnt sé
að setja skrá um árangurslaus
fjámám inn í kerfið. Þá verður út-
reikningi á jafngreiðslulánum bætt
inn í kerfið. Við upptöku skatts á
fjármagnstekjur verður kerfinu
breytt til samræmis við það.
Gagnabankinn Réttarríkið
Félagið hefur nýverið hafið
rekstur gagnabankans Réttarríkis-
ins. Þar er veittur aðgangur að
nýjum dómum Hæstaréttar, reglu-
gerðasaftii íslands og opinberum
skrám og gögnum, sem nauðsyn-
legar em fyrir Iögfræðinga og fast-
eignasala. Á síðasta ári fékk félag-
ið síðan styrk úr Leonardo-áætlun
Evrópusambandsins til að þróa
hugbúnað til tungumálakennslu.
Verkefnið nefnist „Multimedia in
Language Learning“, skammstaf-
að MultiMill, og er unnið í sam-
starfi þriggja annarra fyrirtækja í
Evrópu, AMEC í írlandi, ComVis
f Þýskalandi og VarTec í Belgíu.
Yfirstjóm verkefnisins er í höndum
Úrlausnar-Aðgengis. Þá er BIKIT,
sem er stofnun í eigu Háskólans í
Ghent, Belgíu, aðili að samstarfinu
og sömuleiðis Stofnun í erlendum
tungumálum við Háskóla íslands.
Gmnnhugmynd verkefnisins er
að nýta margmiðlunartæknina til
að auðvelda fólki að læra tungu-
mál. Hafdís segir að ekki sé unnt
að skýra frá útfærslu hugmyndar-
innar í smáatriðum, „en ljóst er
að markaður getur verið gríðarlega
stór þar sem allir skólar og/eða
nemendur em hugsanlegir kaup-
endur. Þá er vel hægt að þróa
hugmyndina yfír í t.d. fyrirtækja-
búning fyrir fyrirtæki sem þurfa
að senda starfsfólk til starfa er-
lendis".
Huglist ehf., sem er þjónustuaðili fyrir
Úrlausn-Aðgengi, var stofnuð í janúar
1994 af þremur kerfisfræðingum úr
Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands,
Ólafi Valssyni, Sigurði Gauta Haukssyni
og Kára Bergssyni. Félagið skiptist jafnt
á milli stofnendanna og engar breytingar
á eignarhlut hafa orðið frá stofnun þess.
Markmið félagsins er framleiðsla á hug-
búnaði fyrir Microsoft Windows, þjónusta
við notendur og sala tölvutengdra vara.
I janúar 1994 hóf félagið starfsemi við
þröngan húsakost í Knarrarvogi 4 og var
ætlunin að vera þar á meðan rekstrinum
yrði komið á skrið. Strax var hafist handa
við að afla viðskiptavina sem vantaði al-
menna tölvuþjónustu. Að sögn aðstand-
enda fyrirtækisins var ætlunin að lifa á
því á meðan fyrstu hugbúnaðarpakkarnir
væru að fæðast. Gekk það vonum framar
og unnið var við að forrita hlutaskrár-
kerfi fyrir hlutafélög, Hlutvís, samhliða
þjónustunni. Hlutvis var settur i almenna
sölu í ársbyijun 1995. Ýmis önnnur kerfi
Huglist
hafa einnig litið dagsins ljós, þ.á m. síma-
skrá, viðverukerfi, skjalavörslukerfi,
akstursbók og skjávari. Oll þessi kerfi eru
forrituð í Microsoft Visual C++ MFC.
Samstarfssamningur
í byijun árs 1996 var gerður samstarfs-
samningur við Úrlausn-Aðgengi ehf. um
þjónustu á Innheimtukerfi lögmanna, IL+,
og uppsetningar á hugbúnaði. Einnig hef-
ur verið unnin þróunarvinna á IL+.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa áralanga
reynslu af þjónustu við lögmenn vegna
notkunar á IL+. Þá var svo komið að
skrifstofan rúmaði ekki þann tölvubúnað
sem rekstrinum fylgdi, hvað þá að hægt
væri að taka á móti viðskiptavinum með
þeim hætti sem hæfir, þannig að hafist
var handa við að leita að hentugra hús-
næði. Það fannst eftir nokkra leit, i Skeif-
unni 7, og þangað var reksturinn fluttur
í júní 1996.
Eftir flutningana opnaði Huglist vef á
Internetinu og er hann í þróun nú, ætiun-
in er að hafa þar fjölbreyttar upplýs-
ingar, auk þess að fyrirtælqum og ein-
staklingum er boðið að skrá tengingar á
sínar heimasíður á vefinn. Slóðin á hann
er http://www.huglist.is/
Hugbúnaðurinn
Huglist selur hlutaskrárkerfi Hlutvís
sem er hugbúnaður til að halda utan um
hlutaskrá hlutafélaga. Kerfið heldur utan
um alla hluthafa, hluti, hlutabréf og breyt-
ingar á þeim. Með kerfinu er hægt að
undirbúa hluthafafundi, þ.e. prenta út
fundarboð, aðgöngumiða og atkvæða-
seðla. Einnig er hægt að hafa umsjón og
eftirlit með hlutafjárútboðum og öllum
eignatilfærslum á hlutafé félagsins og
reiknar kerfið skiptingu hlutafjár á milli
hluthafa i hlutafjáraukningu. Hlutabréf
er hægt að prenta beint út úr kerfinu
hvort sem er á forprentuð blöð eða auð.
Kerfið notar öflugt útprentunarkerfi þar
sem notandinn getur breytt útliti útprent-
ana. Gerð kerfislýsingar og grófun fór
fram í samvinnu við Guðjón Ármann Jóns-
son hdl. og Pétur Guðmundarson hrl.
Bella er hugbúnaður sem heldur utan
um heimilisföng og símanúmer. Notandi
skráir í kerfið upplýsingar um þá sem
hann vill geta flett upp á fljótlegan hátt.
Hægt er að leita eftir nafni, heimilis-
fangi, hóp ogathugasemd. Ef mótald er
tengt við tölvuna getur Bella hringt í
valið númer.
Af öðrum hugbúnaði Huglistar má nefna
skjalavörslukerfið Skjalvís, viðverukerfíð
Varða og skjávarann Bitamyndina, sem
er skjávari fyrir Windows 3.1.
% t
Ráðstefna
Scandic Hótel Loftleiðir
30. september 1996, kl. 13:00
Skráning er hafin í síma 561-8 131
Aðgangur er öllum opin og er ókeypis.
sun
ULTRA Enterprise Server
TEYMI
Upphaf nýrra tíma í upplýsingatækni
Borgartúni 24, 105 Reykjavík
Sím i: 56 1-81 3 1
http://www.oracle.is
Meðhöndlun upplýsinga
án takmarkana
13:00 Skráning
13:15 Hvað er Oracle Universal Server?
- Almennt yfirlit um eiginleika og möguleika
14:10 Hefur þú stjórn á þínum upplýsingum?
- Oracle Enterprise Manager DEMO
14:30 Hver er þróunin í upplýsingamálum?
- Oracle Universal Server Strategy
14:55 Kaffiveitingar
15:30 Hefur þú þörf á Intranet í þínu fyrirtæki?
- Oracle Webserver DEMO
16:00 Hefur þú leitað að upplýsingum nýlega?
- Oracle InterOffice DEMO
1 6:25 Hvernig þú getur notað þínar upplýsingar til ákvarðanatöku?
- Oracle OLAP (OnLine Analytical Processing) DEMO
16:40 Samantekt
17:00 Kynningu lokið