Morgunblaðið - 01.10.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR1. OKTÓBER1996 B 9
KNATTSPYRNA
Meistari Guðjón Þórðarson
Guðjón Þórðarson hefur náð einstökum árangri sem leikmaður
og síðan þjálfari, og alls unnið til 23 meistaratitla í mótum KSÍ.
|l| 9sinnum íslandsmeistari
II 9 sinnum Bikarmeistari
1 sinni Deildarbikarmeistari
1 sinni 2. deildarmeistari
3 sinnum Meistarakeppni KSÍ
B 0
1974 197
5 1977 1978
1982 1983 1984 19861987
198919901991 19921993 19941995
„Þessar kjaftasögur og þetta
bull og blaður sem hefur tröllriðið
nánast öllu var sett á svið til að
reyna að bijóta okkur niður inn-
anfrá, því ekki gátu þeir það á
fótboltavellinum. Söguburðurinn
var með slíkum eindæmum að það
hálfa hefði verið meira en nóg. Það
var einu sinni í sumar sem manni
rann í skap eftir leik og ef þjálfari
hefur ekki heimild til að vera reið-
ur þá er illa komið fyrir íþróttinni.
Það er ekki fyrir skaplausa menn
að standa í þjálfun. Ég held að það
sé gáfulegra fyrir menn að velta
því fyrir sér hvað vel er gert en
að reyna að fínna eitthvað sem
miður fer.
Allur þessi kjaftagangur gerði
eitt að lokum sem menn hafa ekki
áttað sig á. Gerði það sem þurfti
- þjappaði okkur enn meira sam-
an. Við vorum ákveðnir í að láta
þetta ekki verða til þess að slá
okkur út af laginu. Öfund er því
miður of mikil í hugskotum margra.
Ég held að þeir ættu að vinna vinn-
una sína og einbeita sér að sínum
verkum og gagnrýna aðra ekki of
hart.“
Búa til grýlur
Það hefur verið talað um sam-
skiplaörðugleika milli þín og Ólafs
Þórðarsonar, fyrirliða. Er eitthvað
til í því?
„Við Óli erum búnir að þekkjast
í lj'ölda ára og við vitum alveg hvað
til þarf. Okkar samstarf hefur ver-
ið í góðu lagi. Þetta er eitt af því
sem menn hafa verið að tala um
til að reyna að búa til grýlur. En
það er ekkert svo gott að ekki
mætti gera betur og það á kannski
við um samskipti okkar Ólafs. Við
Óli höfum talað saman og skipst á
skoðunum um það sem þarf að
gera og unnið okkar vinnu báðir
tveir. Niðurstaðan liggur fyrir;
tveir titlar, bikar og deild. Ef menn
telja sig geta gert betur bið ég þá
að stíga fram.“
Verð áfram hji ÍA
Hvað með framhaldið hjá þér?
„Það er alveg á hreinu að ég
verð áfram með Skagaliðið. Ég er
samningsbundinn, gerði fjögurra
ára samning í fyrra með endur-
skoðunarákvæði eftir tvö ár, eða
haustið 1997. Við byijum strax á
morgun að huga að næsta ári og
gera samninga við þá leikmenn sem
eru með lausa samninga. Það hefur
enginn leikmaður lýst því yfir að
hann væri að fara.“
Hafa önnur félög haft samband
við þig?
„ísland er lítið land og það eru
margir sem tala við marga. Ég er
ættstór maður og þekki marga.“
Er hægt að biðja um meira
Þú hefur verið með son þinn
Bjarna í liðinu í allt sumar, er ekki
erfitt stundum fyrir þjálfara að
velja soninn í liðið?
„Ég þekki þetta frá fyrri reynslu
því Þórður var einnig hjá mér á
sínum tíma. Bjarni hefur staðið
sig mjög vel og skorar 13 mörk,
er hægt að biðja um meira. Það
getur oft verið erfitt að vera með
son sinn, ekki fyrir mig heldur
frekar fyrir þá. Oft á tíðum er ég
kröfuharðari við þá. En það er nú
einu sinni svo að lífið er erfitt og
það þarf að takast á við það og
ég hef ekki séð að það færi þeim
að vera með silfurskeið í munni.
Menn þurfa að takast á við lífið
og það þarf að gera það snemma.
Það hjálpar bara síðar á lífsleið-
inni. Hins vegar er það þannig að
sú vinna sem maður vinnur með
sonum sínum verður oft djúpstæð-
ari og sterkari. Ég hef meiri tíma
til að koma einhveiju til skila við
þá.“
Erfftt aö vera sonur Guðjóns
„Það fengu allir ungu strákamir
tækifæri til að spreyta sig í vor.
Mér fannst hann hafa hæfileika
sem ég_ taldi að gætu skilað liðinu
góðu. Ég hef aldrei valið menn í
liðið, hvorki syni mína eða aðra,
öðruvísi en að hafa það jið leiðar-
ljósi að liðið nyti góðs af. Það sem
Bjarni gerði var að hann notaði
tækifærið sem hann fékk. Hann
er metnaðargjarn, skapmikill og
það hjálpaði honum mikið. En hann
hefur ekki alltaf átt auðvelda daga
á Akranesi. Það er stundum erfitt
að vera sonur Guðjóns Þórðarson-
ar.“
Ef þú berð synina saman sem
leikmenn, eru þeir ólíkir?
„Það er mjög erfitt fyrir mig að
bera þá saman. Þeir hafa eiginleika
sem eru mikilvægir, eru báðir fljót-
ir, vinnusamir og samviskusamir.
Báðir reyna þeir að gera sem fyrir
þá er lagt. Þetta eru kostir sem
hver knattspyrnumaður getur verið
stoltur af.“
Það er væntanlega talað mikið
um fótbolta á heimilinu?
„Já, það er óhætt að fullyrða
það. Samt hef ég reynt að draga
úr því en það er ekki auðvelt. Það
vilja flestir sem heimsækja heimilið
spjalla um fótbolta. Það er bara
hluti af þessu. Þetta er eins og
með sjómennina þegar þeir hittast,
þá er talað um sjómennskuna."
Gera betur en í gær
Guðjón segir að knattspyrnufor-
ustan í landinu þurfi að standa
meira saman um sína hagsmuni.
„Fótboltinn hefur forskot á aðrar
íþróttagreinar og er og verður vin-
sælasta greinin. Við eigum að
keyra á fullu, ef við gerum það
ekki verður ekki um framfarir að
ræða. Það er ekki hægt að reka
fótbolta sem félagsmálapakka. Við
verðum alltaf að leita eftir því í
öllum okkar störfum að gera betur
en í gær. Ef menn eru ekki tilbún-
ir til þess þá er komið að endalok-
unum og stöðnun mun blasa við.“
Sæti formannsins
Morgunblaðið/Halldór
GUNNAR SigurAsson, formaður ÍA hefur lengl veriA viA stjórnvölinn. Gunnar ð sltt fasta sætl
vlA hornlA á (þróttamlðstöAinni. Hann er hjátrúarfullur og fer helst ekki f stúkuna.
Góður tími til að
hætta sem formaður
GUNNAR Sigurðsson, formaður
ÍA, segir að nú sé kominn tími
til að hætta. Hann hefur verið
formaður í samtals15 ár og þar
af sex síðustu ár. „Ég held að það
sé kominn tími til að hætta núna.
Þetta er góður tími til að breyta
til. Aðalfundur félagsins er í jan-
úar og þá reikna ég með að hætta
sem formaður. Þetta er búinn að
vera góður tími, en þetta ár hefur
verið það erfiðasta þjá mér sem
formaður. Það hefur ýmislegt
gengið á hjá okkur, utanvallar
sem innan. Mikið um lgaftasögur
og flestar þeirra eru lognar. Við
sýndum það í þessum leik að þeg-
ar við stöndum allir saman er
ekkert sem fær okkur stöðvað,"
sagði Gunnar eftir leikinn á Akra-
nesi á sunnudaginn.
„Leikurinn var rosalega góður
þjá okkar mönnum og sigurinn
sanngjarn. KR er með gott lið og
það voru ýmis teikn á lofti um
að KR færi nú Ioks að vinna ís-
landsbikarinn. Það hlýtur að
koma að því innan nokkurra ára.
Það er ótrúlegt afrek l\já í A að
vinna fimmta árið í röð þó svo
að liðið hafl misst þijá landsliðs-
menn frá því í fyrra og þar á
meðal markahæsta leikmann
mótsins. Það eru gömlu brýnin í
liðinu; Ólamir, Alexander, Har-
aldur, Þórður og Sigursteinn sem
báru liðið uppi í sumar. Ungu
strákarnir komu líka mjög á óvart
og stóðu sig framar vonum.“
Gunnar sagði lítinn tima til að
slappa af þótt íslandsmótið væri
búið. Núna yrði farið á fullu í
það að ganga frá samningum við
leikmenn og undirbúa næsta ár.
„Það er alltaf að verða erflðara
og erfiðara að standa í þessu.
Eftir að leikmenn fóru að fá
peninga fyrir að leika hefur
þetta breyst mikið. Andrúmsloft-
ið er ekki það sama og var hér
áður fyrr.“
Formaðurinn sagði líka mjög
aðkallandi að fá innanhússvöll
og nú væru menn á Skaganum
að skoða hvort hægt væri að
byggja yfir sandþró Sements-
verksmiðjunnar. Ef það reynist
hægt með góðu móti mundi það
bæta aðstöðuna til muna og jafn-
framt brúa bilið yfir vetrarmán-
uðina. „Þó svo að knattspyrnuað-
staðan á Skaganum sé sú besta
á íslandi er hægt að gera betur.
Við megum ekki sofna á verðin-
um ef við ætlum að bæta knatt-
spyrnuna hér á íslandi."