Morgunblaðið - 29.12.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1996 B 25
ALLIR fara á kostum í einni fyndnustu mynd allra tíma; hér eru tveir
stórieikarar, George C. Scott og Peter Sellers, /Dr. Strang elove.
Síðan hefur lítið kvisast út,
Kubrick og samstarfsmenn hans
hjá Warner-bræðrum þöglir sem
gröfin. Það sem vitað er með vissu
þegar þessar línur eu skrifaðar er
að tökurnar eni hafnar af fullum
krafti í Elstree, utan við London.
Myndin er byggð á handriti eftir
Frederic Raphael (fékk Ósk-
arsverðlaunin 1965 fyrir Darling)
auk þess sem leikstjórinn leggur að
venju hönd á pennann. Það eina
sem hægt er að toga uppúr tals-
mönnum Warner-bræðra um sögu-
þráðinn er að þetta sé nútímasaga
um afbrýði og kynferðislega þrá-
hyggju. Þá höfum við það. Lítið, en
lofar góðu. í uppsiglingu enn eitt
ferðalagið um tíma, rúm og mann-
leg örlög. Með aðalhlutverkin fara
hjónakornin Tom Cruise og Nicole
Kidman. Cruise er ekki allur þar
sem hann er séður og Kidman sýndi
með frammistöðu sinni í To Die For
að hún getur leikið, meira en hægt
er að segja um flestöll nýstirni og
glanspíur Hollywood-borgar þessa
stundina. Aukahlutverk eru ekki
síður vel mönnuð, þar koma við
sögu Harvey Keitel, Jennifer Jason
Leigh og Robin Wright, sem sann-
aði sig í Forrest Gump. Don
Milsome stjórnar tökum, hann er
elsti samstarfsmaður Kinricks í
dag, vann fyrst með honum við gerð
2001. Þá lýsti Warner því yfir fyrir
skömmu að næsti stórviðburður
kvikmyndasögunnar mun eiga sér
stað jólin 1997 þá á að frumsýna
Eyes Wide Shut, hvað sem tautar
TRYLLINGSLEGT smettið á Jack Nicholson /The Shining;
Hjónin Tom Cruise og Nicole Kidman leika saman
íþriðja sinn í „Eyes Wide Shut“.
hrikalegu, listilega gerðu ofbeldi að
það tekur á taugakerfið að sitja
undir sýningunni. Hefur verið líkt
við slæma „ferð“ á LSD. Hér er
deilt á úrkynjun mannkyns og
brotnar margar bannhelgar á sviði
kynlífs, ofbeldis og munnbrúks í
kvikmyndum. Barry Lyndon er
sísta mynd Kubricks að flestra áliti.
Þessi sjónræna búningamynd um
írskan ævintýramann á 17. öld er
veisla fyrir augu og eyru en löng og
ekki vel leikin af Ryan “Neal og
Marisu Berenson í aðalhlutverkum.
1980 kveður við nýjan tón, Shining
er fyrsta draugasaga Kubricks N
og slær í gegn. Myndin er byggð á
góðri sögu eftir Stephen King, sem
leikstjórinn lagaði eftir sínu höfði
við mikla óánægju höfundar. Hvað
sem þeim deilum leið var útkoman
sígild hryllingsmynd, ekki síst fyrir
geðveikislega leiktakta Jacks
Nicholsons.
Síðasta mynd leikstjórans, Full
Metal Jacket, fi-umsýnd 1987, var
uppgjör Kubricks við Yíetnamstríð-
ið. Markviss stríðsádeila með
ógleymanlegum inngangskafla.
A þeim tæpa áratug sem liðinn er
frá síðustu Kubrick-mynd hafa ótal
sögusagnir verið í gangi um vænt-
anleg verkefni meistarans. Ilmur-
inn var lífseigur orðrómur sem ekk-
ert varð úr. Vorið 1993 tilkynnti
Warner Bros að tökur væru að hefj-
ast á Wavtime Lies, sem síðar fékk
vinnuheitið Aryan Papers Myndin
átti að byggjast á skáldsögu Louis
Begley um gyðingadreng (Kubrick
er af gyðingaættum) á flótta ásamt
frænku sinni undan Helförinni í
Póllandi á tímum síðari heimsstyi-j-
aldar. Joseph
Mazzello (Jurassic
Park) tók þátt í tökun-
um og það spurðist út
að meistarinn væri
með þrjár leikkonur í
huga til að fara með
hlutverk frænkunnar;
Juliu Roberts, Umu
Thui-man og Jodie Fost-
er. Ayrian Papers átti að
verða aðaljólamynd kvik-
myndaversins 1994, leik-
stjórinn var búin að ákveða
tökustaði í Póllandi og víð-
ar í Austur-Evrópu með
höfuðstöðvar í Bratislava.
Þetta breyttist. Undir árs-
lok 1993 gi-eindi LA Times
frá því að Kubrick hefði
ákveðið að næsta verkefni
yrði AI, (stendur fyrir
„artificial intelligence"
gervigreind), stórmynd á
vísindaskáldsögulegum
grunni. Kunrick hafði lagt
þetta verkefni á hilluna
1991 þar sem hann sá ekki
fyrir sér að það væri á
mannlegu færi að fást við
þær ótrúlegu tæknibrellur
sem efnið bauð uppá. Sagan
segir að leikstjórinn hafi end-
urskoðað hug sinn eftir að hafa
séð Júragarðinn. Það kom því á
óvart (ef eitthvað kemur á
óvart þegar Kubrick er annars
vegar) þegar Warner Bros lét
þau boð út ganga i janúar síð-
astliðnum að meistarinn væri
að undirbúa gerð Eyes Wide
Shut, hún yrði afdráttarlaust
hans næsta verk.
og raular.
Þá er komið
að rúsínunni í
pylsuendanum.
Kubrick hefur
ákveðið að halda
áfram gerð Alog
ljúka við hana á hæia
Eyes Wide Shut. Við
eigum sumsé von á tveim
myndum frá hinum sér-
vitra snillingi fyrir alda-
mót! Það hefur fengist
staðfest að myndin er
byggð á smásögunni
Super Toys Last All
Summer Long N Ofur-
leikfóng endast sumar-
langt, en margar getgát-
ur hafa verið á lofti um
hvert meistarinn sækir
hugmyndina í þessa vís-
indaskáldsögulegu mynd
sem segir frá atburðum
sem gerast í náinni fram-
tíð. Vélmenni ráða yfír
jarðarbúum N sem eru
illa á sig komnir sökum
gróðurhúsaáhrífa. Það
er greinilega ekki bjart
yfír 21. öldinni hjá
meistara Kubrick.
Heimildir The Guardian,
AMC, IMDb, Los Angeles
Timesofl.
jSBí/jjjjjjjjj-
skeii
TÓLVUGRUNNUR
WINDOWS
WINDOWS FRAMHALD W95
WORD1
WORD2
EXCEL 1
EXCEL2
GAGNAGRUNNURACCESS1
GAGNAGRUNNURACCESS2
POWER POINT
INTERNET - GRUNNUR
INTERNET - FRAMHALD
ÚTGÁFA OG UMBROT - MS PUBLISHER
SAMSTEYPA - WORD / EXCEL
Hvert námskeið er 20 kennslustundir og henta
þau þeim sem er í atvinnuleit og/eða þeim sem
vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum og
vilja öðlast hagnýta tölvuþekkingu.
Boðið er upp á morgun-, miðdegis- og
kvöldtíma, einnig er boðið upp á
helgarnámskeið.
Morguntímar: kl. 08:30 - 12.00.
Mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur.
Miðdegistímar: kl. 13:00 - 16:30.
Mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur.
Kvöldtímar: kl. 17:30 - 21:00.
Mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur.
Helgarnámskeið : kl. 8:30 -16:30
Föstudagur og laugardagur.
Verð pr. námskeið
kr. 12000,-
Námsgögn innifalin
Félagsmenn stéttarfélaga fá afslátt
af heildarverði.
Verð kr. 8000,-
/oaaogoo aau\
OOQQOQO QQQ)
f(aau □□□□ qqq
i\
RAFIÐNAÐARSKÓLINN
Skeifunni 11 b -108 Reykjavík