Morgunblaðið - 09.01.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rætt um
stækkun á
Grundartanga
ÓFORMLEGUR fundur innlendra
og erlendra eigenda Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga
var haldinn í gær. Stjórnarfundur
verður haldinn eftir hádegi í dag.
Að sögn Jóns Sveinssonar, for-
manns stjórnar Járnblendifélagsins,
verður þá rætt um hugsanlega
stækkun verksmiðjunnar og ýmis
önnur mál. Hann segir þó ekki víst
að endanleg ákvörðun verði tekin á
fundinum.
♦ ♦ ♦-----
*
Arekstur á
brúnni yfir
Skjálfanda
TVEIR bílar, fólksbíll og sendiferða-
bíll, skullu saman á brúnni yfir
Skjálfandafljót um kl. 4 í gær. Öku-
maður fólksbílsins var fluttur á
sjúkrahús.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
er fólksbíllinn talinn ónýtur. Brúin á
Skjálfanda er einbreið. Ökumaður
fólksbílsins var einn á ferð en sjö
farþegar ásamt ökumanni voru í
sendiferðabílnum.
Reglur um innfhitnings-
gjöld bifreiða skoðaðar
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ vinnur nú að end-
urskoðun á innflutningsgjöldum af bílum. Með-
al hugmynda sem verið er að skoða er svokall-
að norskt kerfi. í Noregi eru innflutningsgjöld
reiknuð út frá þyngd bíls, stærð vélar og afli
og verðmæti. Hér á landi eru innflutningsgjöld
reiknuð út eftir vélarstærð bíla og innkaups-
verði.
Indriði Þorláksson, skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu, segir að ef norska leiðin yrði
farin yrði ekki um að ræða þá fjóra flokka
eftir vélarstærð sem nú er stuðst við. Lagt
yrði sjálfstætt gjald á bíla eftir þyngd, annað
gjald eftir stærð sprengirýmis vélarinnar og
þriðja gjaldið eftir afli vélarinnar mældu í kíló-
vöttum. Það yrði því einkum eftir þessum þrem-
ur þáttum sem innflutningsgjaldið yrði ákvarð-
að.
Verðið réði litlu um innflutningsgjaldið á
meginþorra þeirra bíla sem fluttir eru inn hing-
að til lands því í norska kerfinu er það ekki
fyrr en bíllinn kostar 170 þúsund norskar krón-
ur, eða um 1,7 milljónir ÍSK, sem verðið fer
að hafa áhrif á innflutningsgjaldið. Sá þáttur
hefði því áhrif á innflutningsgjöld af jeppum
og dýrari gerðum fólksbíla.
„Nálgunin er sú að ef breyting er gerð séu
tvö markmið höfð að leiðarljósi. Annars vegar
að tekjur ríkisins verði óbreyttar og hins vegar
að röskun verði ekki á innbyrðis verðhlutföll-
um. Með því að afnema þrepaskiptinguna með
þessum hætti hækkuðu einhveijir bílar í verði
og aðrir myndu lækka,“ sagði Indriði.
Ótrúverðugir reikningar
Vilji er fyrir því innan stjórnkerfisins að
breyta núverandi kerfi á innflutningsgjöldum
bíla. Indriði segir að í núverandi kerfi séu
mörg vandamál á ferð. Þrepaskipting í gjald-
töku sé ekki æskileg en auk þess séu uppi
vandamál sem tengjast innflutningi á notuðum
bílum og nýjum bílum sem fluttir eru inn af
einstaklingum. Með því að taka upp norska
kerfið skiptir kaupverðið erlendis ekki máli
þegar verið er að flytja inn bíla.
„Það er talið, og ég held að það sé ekki vafi
á því, að það er verulegt um það að menn
framvísi reikningum sem eru ekki mjög trú-
verðugir. Fluttir eru inn tjónabílar, eins og
menn vita og nokkuð er um að bílar eru keypt-
ir inn og þeim breytt og þá á að leggja gjaldið
á aðvinnsluna hér á landi, samkvæmt núgild-
andi reglum. Það er langt frá því að vera ein-
falt mál og erfitt er að framkvæma það. Það
eru því mörg vandamál sem eru tengd núver-
andi kerfi sem við viljum gjarnan losna út
úr. Við erum að leita að leið sem hentar og
hefur ekki þessa galla í för með sér,“ sagði
Indriði.
Hann sagði að ætlunin væri að taka ekki
alltof langan tíma í það að móta nýjar hug-
myndir í þessa veru. „Það er áhugi fyrir því
hjá flestum sem að þessum málum koma að
eyða þeim annmörkum sem hafa sýnt sig að
vera á núverandi kerfi því þeir eru ekki til
hagsbóta. Það er ekki eftirsóknarvert að menn
séu að flytja inn gallaða bíla eða tjónabíla eða
gera aðrar ráðstafanir sem gera bílaflotann
verri en efni standa til. Það er greinilegt af
innflutningstölunum að innflutningur notaðra
bíla hefur aukist mjög mikið og er orðinn mjög
stór hluti af innflutningnum,“ sagði Indriði.
Samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasam-
bandinu voru fluttir inn 10.600 bílar á síðasta
ári, þar af 1.670 notaðir bílar eða um tæp
16%. í desember síðastliðnum var innflutning-
ur notaðra bíla um 27% af heildarinnflutningn-
um.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Malbikað í blíðunni
VIÐ Grafarvogskirkju í Grafarvogi
var verið að malbika í góða veðrinu
í gær enda einmuna tíð miðað við
árstíma. Að sögn Sigurðar Skarp-
héðinssonar gatnamálastjóra, var
búið að vinna undirlag fýrir malbik
í haust þegar frysti í nóvember en
í þíðunni undanfarið þótti ráðlegt
að malbika til að koma í veg fýrir
skemmdir á undirlaginu. „Það er
afar óvenjulegt að malbikað sé í
janúar," sagði Sigurður.
Heitur lækur finnst í Kálfafellsdal í Suðursveit
Tengt jarðskjálft-
um í Esiufiöllum
Kálfafellsstað. Morgunblaðið.
HEITT vatn hefur fundist í Kálfa-
felisdal í Suðursveit, en þar mun
ekki hafa orðið vart jarðhita áður.
Pjórir göngumenn voru á ferð í daln-
um síðastliðinn sunnudag. Sá yngsti
þeirra, Ragnar Ægir Fjölnisson frá
Hala, sex ára gamall, gerðist göngu-
móður og þyrstur. Bjarni bóndi á
Kálfafelli benti honum þá á læk nokk-
um sem Brókarlækur nefnist, við
svonefndar Laufatungur, en sá dreg-
ur nafn sitt af Brókaijökli innst í
dalbotninum.
Snáði fann lækinn, lagðist á mag-
ann og hugðist svala þorsta sínum.
En honum brá við, hann kallaði til
hinna og sagði að vatnið væri allt of
heitt. Göngumenn lögðu ekki mikinn
trúnað á það í fyrstu, enda frost allm-
ikið. Við nánari athugun kom í ljós
að drengurinn hafði rétt fyrir sér,
vatnið var svo heitt að ekki reyndist
hægt að halda hendi niðri í læknum.
Við mælingu næsta dag kom í
ljós að yfirborðshitinn var 56 gráð-
ur. Þetta þóttu talsverð tíðindi og
margir tengdu þetta strax jarðhrær-
ingum í Vatnajökli að undanförnu.
Um 47 km eru frá læknum norður
í Kverkfjöll og aðeins um 14 km I
Esjufjöll, en þau hafa nötrað nokkuð
á síðustu dögum.
Tengsl við gosið ólíkleg
Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur segir ólíklegt að jarð-
hitinn tengist beint eldgosinu í
Vatnajökli, til þess sé fjarlægðin of
mikil. „Þetta gæti hins vegar á ein-
hvern hátt tengst jarðskjálftum í
Esjufjöllum. Það er vel þekkt að
breytingar á hverum og heitum laug-
um verði við slíkar hræringar."
Ómar Bjarki Smárason jarðfræð-
ingur á Jarðfræðistofunni Stapa
hefur kannað möguleika á nýtingu
jarðhita í Suðursveit. „Það er mjög 1
hátt hitastig í jörðu við Hala, Breiða-
bólsstað og við Kálfafell og Hrol-
laugsstaði. Ég skoðaði þetta árið
1992 og hef síðan haft trú á að
þama séu miklir jarðhitamöguleikar.
I sjálfu sér kemur mér ekki á óvart
að jarðhiti finnist þarna í Kálfa-
fellsdal, en hitastigið er hugsanlega
hærra en ég hafði gert ráð fyrir.
Þetta hlýtur að ýta við mönnum, þó
að þessi lækur sem nú fannst sé
sennilega of langt í burtu til að hann |
verði nýttur til upphitunar.“
Flutti út átta hundruð
hesta
AFKASTAMESTI útflytjandi reið-
hesta á síðasta ári var Gnar Arnar-
son í Reykjavík. Af alls tæplega 3
þúsund reiðhestum sem fluttir
voru út var hlutur Gunnars 800
hestar. Gunnar segir að horfur á
reiðhestasölu til Evrópulanda á
þessu ári séu góðar en þó geti
slæm veðrátta þar um þessar
mundir tafið fyrir sölu og sömu-
leiðis gætu verkföll hér heima
sett strik í reikninginn.
Gunnar hefur flutt út hesta í
um einn áratug og rekur hann
ásamt eiginkonu sinni fyrirtækið
Gunnar Arnarson og Kristbjörg
Einarsdóttir, hestasala og útflutn-
ingur. Fyrirtækið er til húsa í
Víðidal.
„Við önnumst sölu ogþjálfun á
hrossum og einnig útflutning á
hrossum fyrir erlenda hestakaup-
endur sem koma hingað til lands
til þess að kaupa hesta. Hestarnir
sem fóru í gegnum okkur komu
alls staðar að af landinu en stærsti
hlutinn af Suðurlandi. Flest eru
hrossin á bilinu fimm til níu vetra
fyrra
gömul og flest eru þau tamin.
Þetta er blandaður hópur og innan
um eru mjög góð hross, bæði kyn-
bótahross, graðhestar, góð reið-
hross og allt niður í nothæfa reið-
skólahesta,“ sagði Gunnar.
Mest selt
til Svíþjóðar
Gunnar sagði að Þýskaland og
Svíþjóð væru stærstu markaðirnir
fyrir íslenska reiðhesta. Sjálfur
flutti hann út um 400 hesta til
Svíþjóðar, um 200 til Þýskalands
og afganginn til annarra Evrópu-
landa.
„Við byrjuðum fyrir tíu árum
að flytja út hesta og það ár voru
fluttir út um 270 hestar en núna
er þetta komið upp yfir 2 þúsund
hesta.“
Gunnar segir að verð á reiðhest-
um til útflutnings sé allt frá 50
þúsund krónum, fyrir ótamda
hesta, og upp í nokkrar milljónir
króna fyrir úrvalskynbótahesta.
Flestir hestanna kosta þó á bilinu
50-200 þúsund krónur.
1
Morgunblaðið/Þorkell
GUNNAR Arnarson við tvo af hestum sínum í Víðidal,