Morgunblaðið - 09.01.1997, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
LIÐSMENN sérsveita lögreglunnar í Perú standa vörð fyrir
utan japanska sendiherrabústaðinn í Líma. Japönskum frétta-
manni og túlki hans tókst að komast fram hjá lögregluverðinum
til að eiga fund með skæruliðunum.
Gíslatökumálið í Perú
Framferði frétta-
manna fordæmt
RÍKISSTJÓRNIR Perú og Japans
hafa sakað fréttamenn um að
stofna með athöfnum sínum lausn
gíslatökunnar { japanska sendi-
herrabústaðnum í Líma í hættu, en
í dag eru liðnir 23 dagar frá því
hún hófst. Enn eru 74 gíslar í haldi
vinstrisinnaðra skæruliða í bygg-
ingunni.
Ryutaro Hashimoto, forsætisráð-
herra Japans, sem nú er á ferðalagi
um lönd SA-Asíu, gagnrýndi í gær
japanskan fréttamann fyrir að fara
inn í bygginguna, sem er umsetin
lögreglu. Hann sagði fréttamanninn
hafa með þessu skaðað umleitanir
sem í gangi séu til að finna lausn
á málinu.
Fréttamaður japönsku sjónvarps-
stöðvarinnar TV Asahi, Tsuyoshi
Hitomi, og túlkur hans Victor Borja
komust inn í bygginguna á þriðju-
dag með því að fara i gegn um
nágrannahús, en skæruliðar Tupac
Amaru byltingarhreyfingarinnar
höfðu boðið fréttamanninum.
Lögregluliðið, sem situr um bygg-
inguna, urðu tvímenninganna ekki
varir fyrr en þeir yfírgáfu sendi-
herrabústaðinn eftir u.þ.b. tveggja
klst. langa heimsókn. Þeir voru
handteknir á staðnum og færðir til
höfuðstöðva sérsveita lögreglunnar
í Líma, þar sem minnisbækur og
myndavél þeirra voru gerðar upp-
tækar. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni má búast við að menn-
irnir verði í haldi í a.m.k. fimm daga.
Innganga tvímenninganna sem
og annarra fréttamanna, sem tókst
að komast inn í sendiráðið á gaml-
árskvöld, var einnig fordæmd af
forsætisráðherra Perú, Alberto
Pandolfi, sem sagði hana vera „al-
varleika og gangi viðræðna til
skaða.“
Olíuleki úr sokknu skipi við Japansstrendur
Ottast að allt að
19.000 tonn fari í sjó
Mikuni. Reuter.
SJÁLFBOÐALIÐAR og opinberir
starfsmenn unnu í gær hörðum
höndum að því að draga úr því
tjóni sem olíuleki við Japans-
strendur veldur. Lekinn berst úr
rússneska olíuskipinu Nakhodka,
sem brotnaði í tvennt í óveðri um
5 km undan landi 2. janúar sl.
Búist er við að hreinsa þurfi um
100 km strandlengju en ekki er
enn ljóst hversu mikil olía mun
berast úr skipinu. Óttast er að það
verði allt að 19.000 tonn.
Veður var gott í gær og auð-
veldaði hreinsunarstarf. Notuðust
sjálfboðaliðar við það sem hendi
var næst, ausur og plastfötur, til
að hreinsa olíuna úr fjörunni, þrátt
fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um
að slíkt hefði lítið að segja þar sem
enn læki úr skipinu. Fjórtán skip,
tvær flugvélar og fjórar þyrlur
leita að olíuflekkjum á hafsvæðinu
undan strönd Japans, dreifa
hreinsiefni á þá og fjarlægja eins
og mögulegt er.
Fimm flekkir á reki til lands
Að sögn yfirvalda berast fimm
stórir flekkir í átt til lands en enn
er óvíst um hversu mikla olíu er
að ræða. Fyrst var talið að um
3.700 tonn hefðu borist frá skipinu
en nú er talið að það sé mun
meira. Alls voru um 19.000 tonn
um borð. Rússnesk stjórnvöld í
Vladivostok hafa staðfest að nú
leki olía úr báðum hlutum hins
sokkna skips.
Olíumengunin ógnar sjávarút-
vegi og ferðaþjónustu á vestur-
strönd Japans en á sama svæði
og olíuskipið fórst eru gjöful
fiskimið, auk þess sem þangupp-
skera á svæðinu hefur eyðilagst.
Reuter
SJÁLFBOÐALIÐAR nota ausur, potta og pönnur til að hreinsa upp
olíu sem lekið hefur úr rússnesku olíuskipi við vesturströnd Japans.
OLÍULEKI ÓGNAR LÍFRÍKI
Óttast er að olía sem lekur úr rússnesku olíuskipi sem fórst undan
ströndum Japans í síðustu viku, muni valda miklum skaða á lífríki sjávar.
Olfuskipið Nakhodka, 13.157 tonn
Olía hefur borist á land á 30 km strand-
línu en óttast er að hún berist á allt að
100 km svæði á vesturströnd Japans.
Olían heiur skipst upp í fimm stóra
flekki og fjölmarga minni og enn lekur
úr tönkum skipsins.
REUTERS
Noto-skaqi: Ströndin er rómuð
fyrir náttúrufegurð. Þangtínsla
og skelfiskveiðar undan ströndinni
eru í mikilli hættu vegna olíulekans.
Japanshaf
® Kanazawa
'ÍÆ® '
É8r Mikuni
® Echizen
ISHIKAWA
■' 4\
Sanin Kaigan '
þjóðgaröurinn
FUKUI
50 km
Ovæginni og ómálefnalegri kosningabaráttu spáð í Bretlandi
Tony Blair hæðist að ráð-
leysi forsætisráðherrans
London. Reuter.
TONY Blair á fréttamannafundinum í gær.
Reuter
Tudjman
líklega
áförum
Sagöur helsjúkur
af krabbameini
Zagreb. Reuter.
FRANJO Tudjman, forseti Króatíu,
hefur ekki komið fram opinberlega
í viku og hefur það kynt undir orð-
róm um, að hann sé svo illa haldinn
af krabbameini, að hann muni brátt
láta af embætti. Er það haft eftir
erlendum stjórnarerindrekum.
Tudjman, sem er 74 ára gamall,
sást síðast þegar hann fagnaði nýju
ári ásamt fjölskyldu sinni og ráð-
herrum á kaffihúsi í miðborg
Zagreb. Var hann mjög fölur og
tekinn og ekki að sjá, að aðgerðin,
sem hann gekkst undir á bandarísku
sjúkrahúsi nýlega, hafi borið mikinn
árangur.
Meðan á sjúkrahúsdvölinni stóð
var það haft eftir ónefndum, banda-
rískum embættismönnum, að hann
væri með ólæknandi krabbamein í
maga og ætti kannski eitt ár ólifað.
Vestrænir stjórnarerindrekar í Kró-
atíu telja, að Tudjman muni hafa
sagt af sér eða verði jafnvel látinn
eftir nokkra mánuði.
Fréttaskýrendur koma ekki auga
á neinn augljósan eftirmann Tudj-
mans en forsetakosningar eiga að
réttu lagi að verða á þessu ári. Þó
er ekki víst, að af þeim verði því
hugsanlegt er talið, að flokkur Tudj-
mans breyti stjórnarskránni til að
koma í veg fyrir þær.
TONY Blair, leiðtogi breska
Verkamannaflokksins, sagði í
gær, að flokkurinn væri nú betur
undir það búinn en um áratuga-
skeið að taka við völdum í Bret-
landi. Breskir kosningasérfræð-
ingar spá því, að Verkamanna-
flokkurinn beri sigur úr býtum í
þingkosningunum í maí og fái 43
sæta meirihluta á þingi.
Segja má, að kosningahríðin í
Bretlandi sé hafin og í sinni fyrstu
ræðu á nýja árinu sagði Blair, að
John Major forsætisráðherra vissi
ekki í hvorn fótinn hann ætti að
stíga og ætti æ erfíðara með að
stýra sinni sundurlausu hjörð. Ekk-
ert nýtt kom þó fram í máli Blairs,
ekki fremur en í ræðu Majors á
þriðjudag, og telja sumir það benda
til, að kosningabaráttan muni
fremur einkennast af skítkasti en
málefnalegri umræðu.
Ætlar að halda
sig á miðjunni
Blair sagði, að Verkamanna-
flokkurinn, sem hefur að mörgu
leyti losað sig við sitt sósíalíska
yfirbragð, væri nú í miðjunni í
breskum stjórnmálum og myndi
verða það áfram. „íhaldsmenn
vildu gjarna hafa Verkamanna-
flokkinn á áttunda og í upphafi
niunda áratugarins sem andstæð-
ing en svo er ekki,“ sagði hann og
beindi máli sínu sérstaklega til
millistéttarinnar þegar hann sagði,
að skattar á henni yrðu ekki hækk-
aðir og ekki stofnað til nýrra út-
gjalda án þess að gera grein fyrir
fjármögnun. Blair og Gordon
Brown, talsmaður flokksins í fjár-
málum, vildu þó ekki sverja fyrir,
að hæsta skattþrepið, sem er 40%,
yrði hækkað.
Blair hæddist að Major fyrir
sundurlyndið innan íhaldsflokksins
og sérstaklega í Evrópumálunum.
„Á óvissum tímum getum við ekki
leyft okkur að vera með tvístígandi
forsætisráðherra. Við höfum ekki
efni á ríkisstjórn stjómlauss
flokks,“ sagði Blair og ítrekaði, að
eitt meginviðfangsefni næstu ríkis-
stjórnar Verkamannaflokksins yrði
menntamálin, forsenda þess upp-
lýsta vinnuafls, sem landið þarfnað-
ist á næstu öld.
Evrópumálin ekki
þungvæg
19 af 20 kosningasérfræðingum,
sem jReuíere-fréttastofan leitaði til,
spá sigri Verkamannaflokksins í
kosningunum í maí og að meðal-
tali telja þeir, að meirihlutinn verði
43 þingsæti. Hefur hann aukist um
sjö þingsæti á einum mánuði.
Sérfræðingarnir segja, að þrátt
fyrir mikla umræðu um Evrópu-
málin vegi þau ekki þungt hjá kjós-
endum almennt þótt búast megi
við einhverri breytingu þar á þegar
nær dregur. Þau muni þó aldrei
komast í hálfkvisti við helstu mál-
in, heilbrigðismál, menntamál, lög
og reglu og atvinnumál.