Morgunblaðið - 09.01.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 25
Albright heitir
öflugri utan-
ríkisstefnu
Washington. Reuter.
MADELEINE Albright, sem til-
nefnd hefur verið næsti utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, greindi
utanríkismálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings í gær frá áformum
sinum í embætti og kvaðst ætla að
reka öfluga utanríkisstefnu með
það að markmiði að gera Bandarík-
in að „þungamiðju efnahagslífs
heimsins“.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti til-
nefndi Albright til að verða eftir-
maður Warrens Christophers, nú-
verandi utanríkisráðherra, og yrði
hún fyrsta konan til að gegna því
embætti. Þingið þarf að staðfesta
tilnefninguna áður en hún getur
tekið við.
Albright sagði að hún mundi
leggja aukna áherslu á að draga
úr spennu á Kýpur, milli Indverja
og Pakistana og í Nagorno-Kara-
bak. Einnig mundi hún sjá til þess
að Bandaríkjamenn veittu friðar-
umleitunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs áfram forgang.
Boðar hreinskilni í
mannréttindamálum
Hún kvaðst ekki mundu „hika
við að taka á mannréttindamálum
af hreinskilni", þar á meðal í Kína,
þótt stefna Bandaríkjamanna
mundi vera aukin samskipti við
Kínverja, en ekki einangrun þeirra.
Christopher
kynnti Albright,
sem fæddist í
Tékkóslóvakíu og
flúði þaðan í
heimsstyrjöldinni
síðari, og sagði að
hún væri „glæsi-
legur kostur“ í
starfið.
Repúblikaninn Jesse Helms, for-
maður utanríkismálanefndarinnar,
og Joseph Biden, sem er helsti
fulltrúi demókrata í henni, tóku
báðir hlýlega á móti Albright og
þykir það renna stoðum undir spár
um að tilnefning hennar verði auð-
sótt.
Albright sagði að vald gæti verið
öflugt tæki, en væri oft gagns-
laust. Skortur á fjármagni mætti
ekki standa utanríkisstefnu Banda-
ríkjamanna fyrir þrifum.
„Við verðum að móta sögu okkar
tíma,“ sagði Albright og bætti við:
„Okkar forysta verður að vera stöð-
ug ef gæta á hagsmuna okkar um
allan heim ... Það fæst ekki með
ódýrum hætti.“ Hún sagði að
Bandaríkjamenn væru „ríkasta,
öflugasta og virtasta" þjóð í heimi:
„Þó veitum við minna hlutfalli af
auði okkar til þess að styðja lýð-
ræði og hagvöxt í þróunarríkjum
en nokkur önnur iðnvædd þjóð.“
Albright
ERLENT
Viðræðurnar um Hebron
Palestmumenn segja
mikið bera á milli
Jerúsalem. Reuter.
BANDARÍKJAMENN reyndu í gær
árangurslaust að knýja fram sam-
komulag í viðræðum ísraela og
Palestínumanna um Hebron. Sögðu
Palestínumenn að „mikil spenna“
ríkti í viðræðunum og „mjög mikið“
bæri á milli.
Dennis Ross, sérlegur erindreki
Bandaríkjamanna í Mið-Austur-
löndum, átti í fyrrinótt fimm
klukkustunda viðræður við Yasser
Arafat, forseta Palestínumanna, en
tókst ekki að brúa bilið. í tvær vik-
ur hafa samningsaðilar sagt að við-
ræður væru á lokastigi og aðeins
formsatriði að skrifa undir sam-
komulag. Nú virðist hins vegar vera
að draga sundur í viðræðum um
brotthvarf ísraela frá mestum hluta
borgarinnar Hebron, sem sam-
kvæmt friðarsamkomulaginu frá
1995 hefði átt að eiga sér stað fyr-
ir tíu mánuðum.
„Það ber enn mjög mikið á milli,"
sagði Nabil Abu Rdainah, aðstoðar-
maður Arafats, í gær. „Takmarkinu
er enn ekki náð,“ sagði Ross.
David Bar-Illan, ráðgjafi Benja-
mins Netanyahus, forsætisráðherra
ísraels, sagði að viðræðurnar um
Hebron væru smámál miðað við það
sem í vændum væri þegar semja
ætti um framtíð þeirra 130 þúsund
gyðinga, sem búa innan um tvær
milljónir araba á Vesturbakkanum
og Gaza.
Reiði vegna lottóhneykslis
Róm. Reuter.
MIKIL reiði ríkir nú á Ítalíu vegna
mistaka í ítalska lottóinu sem
urðu til þess að maður sem hlaut
hæsta vinning, varð af honum.
„Lottó - ólukkuhjólið" stóð í fyrir-
sögn dagblaðsins II Messaggero.
Þykir mörgum málið vera dæmi
um það að hið opinbera, sem hvert
hneykslis- og spillingarmálið á
öðru hefur dunið á, sé ekki einu
sinni fært um að reka lottó. Hef-
ur þess verði krafist að fyrir-
komulag útdráttarins verði end-
urskoðað.
I La Stampa var sigurvegarinn
óheppni nefndur „Mr. Felice
Perpoco (Hr. Heppinn um stund)
en nafn hans hefur ekki verið
gert opinbert. Dregið var í beinni
útsendingu á mánudagskvöld og
komu 200 milljón lírur, um 8,6
milljónir ísl. kr., í hlut mannsins.
Ekki var hins vegar liðinn sólar-
hringur er yfirvöld tilkynntu að
vinningurinn væri ógildur þar eð
bilun í lottóvélinni hefði orðið til
þess að fjórar af tíu lottókúlum
hefðu sogast upp í eitt rörið. Þá
þegar höfðu tölurnar verið aug-
lýstar um allt landið.
„Þetta er farsi um ríki sem get-
ur ekki einu sinni skipulagt lottó,“
sagði Gian Mario Fara, formaður
Eurispes, stofnunar sem vinnur
að félagsfræðirannsóknum. „Ég
ætla ekkert að skafa utan af því.
Eftir að hugmyndafræðin og gildin
hrundu, var nýárslottóið síðasti
möguleiki ítala... möguleiki á að
breyta samfélaginu. Nú er hann
einnig horfinn."
í lottóinu voru dregnir út fimm
miðar og átti fyrsti miðinn sem
dreginn var út að hljóta fimmta
vinninginn en fimmti og síðasti
miðinn þann hæsta. Yfirvöld
ákváðu hins vegar að snúa þessu
við en ekki var laust við að ítalski
fjármálaráðherrann, Vincenzo
Visco, þætti skömmustulegur er
hann tilkynnti þetta.
Reuter
Viðræður
í Haag
STRAUMUR stj ór nmálamanna
frá ríkjum, sem eiga mikil
samskipti við Evrópusam-
bandið, liggur nú til Haag eftir
að Holland tók við forsæti í
ráðherraráði sambandsins um
áramótin. Hér ræðast þeir við
fyrr í vikunni, Bjorn Tore
Godal, utanríkisráðherra
Noregs, og Hans van Mierloo,
utanríkisráðherra Hollands.
Major og Kok ræða málefni ríkjaráðstefnunnar
„Tveggja hraða Evrópau
hugsanleg lausn
Haag. Reuter, The Daily Telegraph.
JOHN Major og Wim Kok, forsætis-
ráðherrar Bretlands og Hollands,
ræddu málefni ríkjaráðstefnu Evr-
ópusambandsins á fundi í Haag á
þriðjudagskvöld. Að fundinum lokn-
um sögðu báðir leiðtogarnir að
„sveigjanlegur samruni" eða
„tveggja hraða Evrópa" gæti hugs-
anlega leyst deilur Bretlands og
annarra aðildarríkja ESB um það
hversu hratt bæri að fara á braut
áframhaldandi samruna. Þannig
gætu sum ríki farið hraðar en önnur.
„Sveigjanleiki mun auðvelda Evr-
ópusambandinu að komast að sam-
komulagi um mál, sem nú virðast
afar torleyst. Við ræddum um
sveigjanleikahugtakið í kvöld. Mik-
illar vinnu er þörf í framhaldi af
samræðum okkar,“ sagði Major að
fundinum loknum. Hann sagði að
viðræðurnar við Kok hefðu verið
mjög „uppörvandi".
Kok sagði eftir fundinn með
Major að hann væri „innblásinn"
eftir viðræðurnar og myndi nú láta
kanna ýtarlega hvernig útfæra
mætti sveigjanlegan samruna innan
Evrópusambandsins.
Forsætisráðherrarnir munu með-
al annars hafa rætt nýja tillögu, sem
Portúgal hefur lagt fram á ríkjaráð-
stefnunni, en hún felur í sér að
hópur ríkja geti ákveðið að fara
hraðar á samrunabrautinni, en að-
eins með samhljóða samþykki allra
hinna.
Major sagði að þrátt fyrir að þeir
Kok hefðu náð árangri varðandi
sveigjanleikahugtakið væri enn al-
varlegur ágreiningur milli Bretlands
og annarra ESB-ríkja, til dæmis um
tillögur um að draga úr neitunar-
valdi einstakra ríkja í ráðherraráði
ESB og um að bæta sérstökum at-
vinnumálakafla við stofnsáttmála
sambandsins.
Kemur ekki til greina að ganga
úr Evrópusambandinu
Major sagði að Evrópusambandið
hefði gott af „skammti af brezku
kredduleysi". Hann sagði hins vegar
að hugmyndir um að Bretland segði
sig úr ESB væru „fáránlegar".
Ríkisstjórn Hollands fer nú með
forsætið í ráðherraráði ESB. Hol-
lendingar hafa áhyggjur af að Evr-
ópumálin verði kosningamál í Bret-
landi fyrir þingkosningarnar, sem
fara verða fram eigi síðar en 22.
maí, og að bæði íhaldsflokkur Maj-
ors og Verkamannaflokkur Tonys
Blair muni gefa svo stórar yfirlýs-
ingar um Evrópustefnuna að það
muni gera hvorum þeirra, sem vinn-
ur kosningarnar, erfitt um vik að
semja um breytingar á ESB á leið-
togafundinum í Amsterdam, þar
sem reyna á að ljúka ríkjaráðstefn-
unni.
Stílhrein hönnun - hagsttett verð
Júpíter blöndunartækin frá
Damixa eru glæsileg og vönduð.
Mjúkar línur einkenna alla hönnun
á Júpíter sem auðvelda mjög þrif
og vegna sérstakrar áferðar á hand-
fangi nær notandi alltaf góðu taki
við að skrúfa frá vatni eða fyrir.
Firnm ára ábyrgd cr á öllnm
Júpítcr tœkjum og varahlutum
í þau.
Kynntu þér stílhrein blöndunartæki
á sérlega hagstæðu verði.
damixa
m
« 11 ii in li c 1 s t u bv
avör u vcrs 111 n n 111