Morgunblaðið - 14.01.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 11
FRÉTTIR
Stórt útboðsverk
á hringveginum
Lægsta
boð 61,8%
af kostnað-
aráætlun
ALLS bárust átta tilboð í út-
boði Vegagerðarinnar í gerð
8,6 km vegarkafla á hringvegi
eitt norðan Egilsstaða, frá
Skóghlíð að Urriðavatni. Voru
öll tilboð sem bárust undir
kostnaðaráætlun verkkaupa,
en hún hljóðaði upp á rúmlega
101 milljón kr. A verkinu að
vera að fullu lokið 10. júlí árið
1998.
Tilboð í verkið voru opnuð
hjá Vegagerðinni í gær. Niður-
stöður útboðsins urðu þær að
Stefán Gunnarsson á Djúpa-
vogi átti lægsta boð að upphæð
um 62,7 millj. kr., sem er
61,8% af kostnaðaráætlun.
Næstlægsta boð var frá Myll-
unni ehf. á Egilsstöðum sem
hljóðaði upp á rúmar 68,3 millj.
kr.
Aðrir sem buðu í verkið voru
Ólafur Hjaltason, Djúpavogi
(tilboðsupphæð um 69,8 millj.),
Vélaleiga Sigga Þór hf. (um
77,7 millj.), Njörður sf., Borg-
arfirði eystra (um 78,7 millj.),
Sigurður H. Jónsson o.fl.,
Mælivöllum (um 84,8 millj.),
Héraðsverk hf., Egilsstöðum
(um 87,7 millj.), og Rögnvaldur
Arnason, Sauðárkróki (um
97,3 millj.).
Hafísinn
hopar
HAFÍSINN sem kominn var
að landi í síðustu viku hefur
nú hopað. í ískönnunarflugi
Landhelgisgæslunnar í gær
sást ísjaðarinn 25 sjómílur
norðvestur af Kögri, en þar var
hann landfastur þegar flogið
var síðastliðinn föstudag.
Haraldur Eiríksson, veður-
fræðingur á Veðurstofunni,
segir að næstu daga sé búist
við norðaustlægri vindátt. ís-
inn muni því ekki færast nær
landi og hugsanlegt er að hann
muni hopa enn frekar.
Fíkniefni í
hús og bíl
TVÖ fíkniefnamál komu upp í
Reykjavík um helgina.
Hið fyrra var í húsi við
Laugaveg, en við leit þar fannst
talsvert magn. Einn maður var
handtekinn vegna málsins.
Síðara málið kom upp að-
faranótt mánudags, þegar öku-
maður á stolinni bifreið var
stöðvaður á Laufásvegi. í bif-
reiðinni fundust meint fíkni-
efni.
Falsaðir
5.000 króna
seðlar
STARFSFÓLK veitingastaðar
í Reykjavík tilkynnti lögregl-
unni á laugardagsvkvöld að
afgreiðslufólk staðarins hefði
tekið við tveimur fölsuðum
5.000 króna seðlum.
Að sögn Rannsóknarlög-
reglu ríkisins voru seðlarnir
léleg ljósrit og óvíst hver not-
aði þá til greiðslu á staðnum.
Morgunblaðið/Golli
Jólatré í ruslinu
NÚ ER rétti tíminn til að losa sig við jólatréð
frá liðnum jólum. Starfsmenn hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar sjá um að hirða jólatrén séu
þau sett út við götu, við lóðamörk. Hins vegar
er kannski ekki gert ráð fyrir að menn noti
sorpílát borgarinnar með þeim hætti, sem sjá
mátti á Hringbrautinni í gær. Að sögn Inga
Arasonar, deildarstjóra hreinsunardeildar, átti
söfnun jólatrjáa að vera lokið, en reynslan sýnir
að menn eru oft lengi að losa sig við trén. Ingi
segir að talsvert sé um að trén séu sett út á
svalir, en þar nái starfsmenn hreinsunardeildar
ekki í þau. Á síðasta ári hafi síðasta jólatréð frá
jólunum 1995 verið hirt á Þorláksmessu, en þá
fyrst hafi eigandinn komið því í verk að skutla
því fram af svölunum! Ingi hvetur fólk til að
setja trén við lóðamörk sem fyrst og gerir ráð
fyrir að borgarstarfsmenn hirði tré fram eftir
vikunni.
/
A CCORD lsí
sameinar glœsilegt útlit, yfirburða aksturs-
eiginleika, kraftmikla vél, vandaðan frágang
ríkulegan staðalbúnað og mikið öryggi.
i
Bjáönm öll heföbmuUn bíUiUíii lii allt «ó 72 mánaöa og tökuni notaöa bíla tfppf
Umboösaöilar: Áku feyri: HöUlur iif. • Egilsstaöir: Bíta- og, Búrélasalart ■ Akraués: Bílver sf.
w
Staðalbúnaður Accord LSi
ABS - bremsukerfi, tveir loftpúðar
4 gíra sjálfskipting
og margt fleirra fyrir
kr. 2.185.000,-
G e r i a ð r i r b e t u r !