Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 51
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglunnar
Ofbeldi og ófrið-
ur á heimilum
10.-13. januar.
Yfirlit
ÞRÁTT fyrir 353 bókanir í dag-
bók var helgin fremur tíðindalítil.
Á tímabilinu var þó tilkynnt um
24 innbrot og 10 þjófnaði á starfs-
svæði lögreglunnar í Reykjavík.
Þá var tilkynnt um 5 líkamsmeið-
ingar, 17 eignarspjöll, 21 umferð-
aróhapp og 6 slys. Afskipti voru
höfð af 30 manns vegna ölvunar
á almannafæri og 37 þurfti að
vista í fangageymslunum á tíma-
bilinu. Kvartanir vegna hávaða
innan dyra voru 20 og aðrar til-
kynningar vegna hávaða og
ónæðis voru 5 talsins.
Lögreglumenn voru sex sinnum
kvaddir til vegna ófriðar á heimil-
um. í tveimur tilvikum hafði of-
beldi verið beitt. Tuttugu og níu
ökumenn voru kærðir fyrir of
hraðan akstur. Níu sinnum var
tilkynnt um bruna og 21 tilvik
er bókað þar sem lögreglumenn
þurftu að aðstoða fólk af ýmsum
tilefnum. Tilkynntur var stuldur
á 6 ökutækjum og afskipti voru
höfð af tveimur málum þar sem
fíkniefni komu við sögu. Þrír öku-
menn, sem stöðvaðir voru í akstri
um helgina, eru grunaðir um ölv-
unarakstur. Auk þeirra er grunur
um að ökumaður, _sem ók bifreið
sinni inní garð á Ártúnsholti að-
faranótt laugardags, hafi verið
undir áhrifum áfengis svo og öku-
maður bifreiðar er reyndi að
stinga af frá árekstri á Hverfis-
götu aðfaranótt mánudags. Hann
náðist í Árbæjarhverfi skömmu
síðar.
Slys, óhöpp og árásir
Á föstudag datt kona í strætis-
vagni og meiddist lítilsháttar.
Hún var þó flutt með sjúkrabif-
reið á slysadeild. Þá féll ungur
drengur í Árbæ. Talið var að
hann hefði handleggsbrotnað.
Hann var fluttur á slysadeild.
Síðdegis varð ungur piltur fyrir
bifreið á Fylkisvegi við Rofabæ.
Faðir hans flutti hann á slysa-
deild. Tilkynnt var um eld í húsi
við Hörðaland. í ljós kom að
þvottavél hafði brunnið yfir.
Aðfaranótt laugardags veittust
fjórir menn að einum á Ingólfs-
torgi. Þeir voru handteknir og
færðir í fangageymslu, en síðan
leyft að fara að loknum viðræð-
um. Sá, sem veist var að, taldi
ekki ástæðu til sérstakra ráðstaf-
ana af hálfu lögreglu vegna
þessa. Um hálffimmleytið á laug-
ardagsmorgun mætti kona
ókunnum manni í eldhúsinu hjá
sér. Maðurinn varð hræddur og
lagði á flótta. Hann mun hafa
komist inn um kjallaraglugga
íbúðarinnar.
Á laugardag meiddist maður á
baki eftir að hafa skíðað á staur
í Bláfjöllum. Hann var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild.
Kona kom á lögreglustöðina og
kvaðst hafa verið rænd veski sínu
við Ingólfstorg um nóttina.
Kveikt var í jólatré við undirgang
skóla í Vesturbænum. Brunakerfi
skólans fór í gang. Slökkviliðið
slökkti eldinn. Engar skemmdir
urðu vegna þessa tiltækis.
Slógu til manns
með keðju
Ölvuð stúlka sparkaði í þrjár
bifreiðir utan við veitingastað í
miðborginni. Hún var vistuð í
fangageymslu. Kveikt var í jól-
atrjám við verslun á Snorra-
braut. Eldurinn var slökktur áður
en skemmdir hiutust af. Aðfara-
nótt sunnudags voru þrír drengir
handteknir eftir að hafa reynt
að bijótast inn í söluturn við
Langholtsveg. Eldri maður datt
á milli hæða í húsi í Sundunum.
Hann var fluttur með sjúkrabif-
reið á slysadeild. Annar var flutt-
ur á slysadeild eftir slagsmál í
Austurstræti. Snemma á sunnu-
dagsmorgun var tilkynnt að þrír
menn hefðu slegið til eldri manns
með keðju á Laugavegi. Haft var
upp á mönnunum og hald lagt á
keðjuna. Þá var maður handtek-
inn eftir að hafa brotist inn í
verslun við Lækjargötu og stolið
þar úr peningakassa.
Á sunnudag var ökumaður
fluttur á slysadeild með sjúkrabif-
reið eftir árekstur tveggja bifreiða
á gatnamótum Flókagötu og
Lönguhlíðar. Aðfaranótt mánu-
dags voru þrír menn handteknir
eftir að hafa brotið nokkrar rúður
í húsi við Laugaveg.
Númer af bílum
Lögreglumenn hafa undan-
farna daga tekið skráningarnúm-
er af bifreiðum vegna vanrækslu
á aðalskoðun, aukaskoðun, van-
greiddra bifreiðagjalda og lögboð-
inna vátryggingagjalda. Það er
von lögreglunnar að sem flestir
gangi nú þegar frá sínum málum
svo ekki þurfi að koma til þessara
óþægilegu aðgerða.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
FRÁ undirritun samnings. Sitjandi f.v.: Sveinn Árnason, spari-
sjóðssljóri og Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri. Fyrir aftan f.v.:
Magnús Brandsson, skrifstofusljóri sparisjóðsins, Reynir Zoega,
sljórnarformaður sparisjóðsins og Magnús Jóhannsson, fjármála-
stjóri Neskaupstaðar.
Samningur um innheimtu
fasteignagjalda
Neskaupstað. Morgunblaðið.
SPARISJÓÐUR Norðfjarðar og
bæjarsjóður Neskaupstaðar undir-
rituðu nýlega samning um inn-
heimtu fasteignagjalda þessa árs.
Samningurinn felur í sér að spari-
sjóðurinn greiðir bæjarsjóði fast-
eignagjöldin, sem eru um 50 millj-
ónir, strax og sér síðan um inn-
heimtu þeirra hjá gjaldendum
næstu 7 mánuði.
Þetta fyrirkomulag felur í sér
ávinning fyrir bæjarsjóð en
breytir engu fyrir gjaldendurna.
Þetta er í annað sinn sem þessi
háttur er hafður á í innheimtu
fasteignagjalda, en á síðasta ári
var iimheimtan hjá Landsbankan-
um. í ár var hún boðin út og var
tilboð sparisjóðsins mun hagstæð-
■ ÚT ER komið nýtt veggdagatal
Olíufélagsins ESSO fyrir árið 1997.
Dagatalið prýða að þessu sinni ljós-
myndir frá nýafstöðnu eldgosi og
umbrotum í Vatnajökli, Skeiðarár-
hlaupi og afleiðingum þess á mann-
virki á Skeiðarársandi. Ljósmyndirn-
ar tóku þeir Ragnar Axelsson,
Kjartan Þorbjörnsson og Þorkell
Þorkelsson.
Andlegt líf
og kyrrðar-
dagar
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
ANDLEGT líf á grundvelli krist-
innar trúar er inntak Alfa-nám-
skeiða sem haldin eru víða um heim.
Eitt slíkt hefur verið í gangi hjá
Biblíuskólanum á Eyjólfsstöðum og
annað að fara af stað í byrjun febr-
úar. „Markmið með námskeiðunum
er að varpa fram hinni hlið kristn-
innar, þ.e. að sýna fram á það að
kristnin getur falið í sér spennandi
lífsstefnu auk þess sem það er
skemmtilegt að vera trúaður," segir
Guðmundur Sigurðsson, starfsmað-
ur skólans.
Alfa-námskeið eiga upphaf sitt í
ensku þjóðkirkjunni fyrir um 10
árum. Þau höfða til nútímafólks sem
fer ekki mikið í kirkju. Fluttir eru
fyrirlestrar og kristnin skoðuð bæði
á vitsmunalegu sviði og eins á sviði
upplifunarinnar. Námskeiðið er einu
sinni í viku í 10 vikur.
Að sögn Olafs Engsbraten, skóla-
stjóra Biblíuskóians, hafa þessi
námskeið farið víða og breiðst hratt
út um heiminn og reiknað er með
að þátttakendur á Alfa-námskeiðum
nú í dag séu um 250.000 manns í
fjölmörgum löndum. Auk þessara
námskeiða hyggst skólinn halda
kyrrðardaga, fyrst í byrjun mars og
síðar í maí. Þessir kyrrðardagar
verða eins uppbyggðir og þeir dagar
sem haldnir hafa verið í Skálholti
og verður skipuleggjandi þeirra sr.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir en hún
hefur séð um skipulagningu á kyrrð-
ardögum í Skálholti.
-----♦ ♦ ♦-----
LEIÐRÉTT
Rangt höfundarnafn
RANGT höfundarnafn var undir
minningargrein um Hólmfríði
Mekkínósdóttur á blaðsíðu 45 í
Morgunblaðinu á laugardag, 11.
janúar. Höfundur greinarinnar er
Vigdís Pálsdóttir. Hlutaðeigendur
eru innilega beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
Athugasemd frá Háskóiabíói
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Friðbert
Pálssyni, framkvæmdastjóra Há-
skólabíós:
„í viðtali við Árna Samúelsson í
Morgunblaðinu nýlega, koma fram
nokkrar rangar fullyrðingar sem ég
tel mig knúinn til að leiðrétta.
Þar segir hann að ekki hafi verið
reist nýtt kvikmyndahús í Reykjavík
í 15 ár. Það vita allir sem sækja
bíó, að Laugarásbíó byggði 2 bíó-
sali fyrir rúmum 10 árum með um
200 sætum. Þá reisti Háskólabíó
mikla fjölnota byggingu og tók hana
í notkun 1990 og eru í henm 4 bro-
salir með meira en 800 sætum.
Athyglisvert verður að telja ef hann
hefur ekki tekið eftir þessu.
Á öðrum stað í sama viðtali vík-
ur hann að sköttum af bíómiðum
og fullyrðir þar að bæði Háskóla-
bíó og Laugarásbíó hafi sloppið við
að greiða skemmtanaskatt og
skerði það samkeppnisstöðu aðila.
Hér er á ferðinni gömul fullyrðing
Árna. Þótt búið sé að leiðrétta
hana margsinnis við hann og einn-
ig við erlenda viðskiptavini okkar
sem hafa fengið þessar röngu upp-
lýsingar hans, hefur hún verið end-
urtekin.
í febrúar 1996 kærði síðan Árni
Háskólabíó og Laugarásbíó til Sam-
keppnisstofnunar vegna meintrar
mismununar á innheimtu á skemmt:
anaskatti hjá kvikmyndahúsum. í
áliti Samkeppnisráðs í september
1996 er staðfest að Háskólabíó
greiði að fullu umræddan skemmt-
anaskatt. Það er því ljóst að skemmt-
anaskattur er að fullu greiddur af
Háskólabíói til samræmis við önnur
kvikmyndahús í Reykjavík, þrátt
fyrir fullyrðingar um annað.“
Heilsuvernd á
vinnustöðum
OPIÐ hús verður hjá Styrk, Skógar-
hlíð 8, Reykjavík, 4. hæð, í dag,
þriðjudaginn 4. janúar, kl. 20.30.
Gestur kvöldsins verður Hólmfríð-
ur Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðing-
ur hjá Vinnueftirliti ríkisins. Hún
ræðir um heilsuvernd á vinnustöðum.
Félagsmönnum er velkomið að
taka með sér gesti. Kaffiveitingar.
-----------♦ ♦ ♦-----
Jazz á Sólon
Islandus
TRIO Þóru leikur í kvöld, þriðjudags-
kvöld, léttan og þægilegan jazz á
Sólon Islandus. Á efnisskránni eru
þekkt lög eftir eldri og yngri tón-
skáld jazzins.
Þeir sem leika með Þóru í kvöld
eru þeir Óskar Einarsson á píanó og
Páll Pálsson á bassa. Aðgangur er
ókeypis.
Seljum í dag og næstu daga
útlitsgallaða kæliskápa, uppþvottavélar,
þvottavélar og þurrkara með
VERULEGUM AFSLÆTTI
Ath.: Margar gerðir én takmarkað magn.
GREI&SLUKJÍR.
///-' 1 1 Einar Farestveit&Co.
Borgartúni 28^562 2901