Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Yfirburðir Jóhanns o g Hannesar í hraðskák SKAK Verslunarmiöstöðin í Mjódd, Brciðhol ti MINNINGARMÓT UM ARNOLD EIKREM Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson gerðu jafntefli sín á milli en náðu að sigra aðra andstæðinga sina á hraðskákmótinu. MINNIN G ARMÓTIÐ um Norð- manninn Arnold J. Eikrem fór fram í göngugötunni í Mjódd á laugardaginn var. 47 skákmenntóku þátt í mótinu, þar á meðal voru fjórir stór- meistarar auk ýmissa frammámanna í ís- lensku skáklífi. Fjöl- margir áhorfendur fylgdust líka með. Taflfélagið Bellir sá um framkvæmdina en VISA og Skákprent gáfu verðlaunin. Aður en mótið hófst ->var Arnolds J. Eikrem minnst af þeim Guð- mundi G. Þórarinssyni, forseta Skáksambands íslands, og Einari S. Einarssyni, forstjóra VISA á íslandi og svæðisforseta FIDE á Norður- löndum. í máli þeirra kom frain að íslenskir skákmenn eiga Eikrem mikið að þakka, enda hafa nær all- ir sterkustu skákmenn íslands sótt mótin sem Eikrem stóð fyrir í Gausdal. Margir áfangar að alþjóð- , jegum og stórmeistaratitlum náðust þar og er þess skemmst að minnast að 1995 náði nýjasti stórmeistari okkar, Þröstur Þórhallsson, loka áfanganum að þessum eftirsótta titli í Gausdal. Þátttökugjöldin runnu öll í Minningarsjóð um Arn- old J. Eikrem, en hann verður m.a. notaður til að styrkja skáksamstarf Noregs og íslands. Á mótinu í dag voru tefldar níu umferðir með 7 mínútna umhugs- unartíma. Röð efstu manna varð þessi: 1. Jóhann Hjartarson 8'/z v. (43,5 stig) 2. Hannes Hlífar Stefánsson 8Vi v. (43 stig) 3. -4. Margeir Pétursson og Sævar Bjarnason 6'/a v. ^ 5.-7. Ögmundur Kristinsson, Björn Þor- finnsson og Andri Áss Grétarsson 6 v. 8.-17. Jón Viktor Gunnarsson, Benedikt Jónassgn, Bragi Þorfinnsson, Magnús Örn Ulfarsson, Arnar Þorsteinsson, Gunnar Bjömsson, Stefán Kristjánsson, Bergsteinn Einarsson, Jón Garðar Við- arsson og Jón L. Ámason 5 'A v. 18.-22. Einar Hjalti Jensson, Sigurður Áss Grétarsson, Vigfús Óðinn Vigfússon, Úlfhéðinn Sigurmundsson og Sæbjöm Guðfinnsson 5 v. Eftirtaldir fengu aukaverðlaun í sínum flokki: 2.000 stig: Ögmundur Kristinsson og Björn Þorfinnsson 6 v. Undir 2.000 stig: Stefán Kristjánsson 5'A v. Undir 1.800 stig: Úlfhéðinn Sigur- mundsson 5 v. Undir 1.600 stig: Davíð JJuðnason 4'Av. f”Undir 1.400 og stigalaus- ir: Sæmundur Kjartans- son, Guðmundur G. Þórar- insson og Guðfinnur R. Kjartansson 4 v. Helgi Áss í Gautaborg Helgi Áss Grét- arsson hélt beinustu leið til Gautaborgar frá Rilton mótinu í Stokkhólmi. Helgi átti við lasleika að stríða ,,°g byijaði ekki vel, en hefur nú unnið tvær skákir í röð og er til alls líklegur þegar þremur umferðum er ólokið. Staðan er þessi: 1. Evgení Gleizerov, Rússlandi 4'Á v. af 6 mögulegum 2. Mikhail Rytsjagov, Lettlandi 4 '/« v. 3. -7. Jacep Gdanski, Póllandi, Helgi Áss —-Grétarsson, Johnny Hector, Svíþjóð, Tig- er Hillarp Persson, Svíþjóð og Ari Zieg- ler, Svíþjóð 3Ví v. 8. Mats Sjöberg, Svíþjóð 2 v. 9. Karl Johan Moberg, Svíþjóð 1 v. 10. Johan Hultin, Svíþjóð 'A v. Staðan í VISA bikarkeppninni Stigin i norrænu VISA bikar- keppninni hafa nú verið reiknuð út eftir fjórða mótið í Stokkhólmi. Jó- hann Hjartarson hefur unnið sér inn flest stig allra, en þar sem aðeins eru notuð þijú bestu mót hvers keppanda telst Curt Hansen vera efstur: 1. Curt Hansen, Danmörku 53,79 2. Jóhann Hjartarson 50,17 3. Hillarp-Persson, Svíþj. 43 4. Margeir Pétursson 42,5 5. S. Agdestein, Noregi 35,5 6. Gausel, Noregi 35,46 7. Djurhuus, Noregi 33,29 8. Tisdall, Noregi 29,46 9. Hector, Svíþjóð 24,63 10. Helgi Áss Grétarsson 23,46 11. Helgi Ólafsson 22 12. Hannes Hlífar Stefánsson 21,96 13. Þröstur Þórhallsson 19 14. Borge, Danmörku 17 15. Degerman, Svíþjóð 16,29 16. Heine-Nielsen, Danmörku 15,67 17. Hellers, Svíþjóð 14,29 18. Wedberg, Sviþjóð 13,29 19. Elsness, Noregi 13,29 20. Mortensen, Danmörku 13,17 21. Ákesson, Svíþjóð 12,5 22. Lars Bo Hansen, Danm. 12,17 23. Furhoff, Svíþjóð 9,5 24. Westerinen, Finnlandi 7 25. Schandorff, Danmörku 6,46 19 aðrir skákmenn hafa hlotið stig, þar á meðal eru þeir Magnús Öm Úlfarsson og Bragi Halldórsson sem báðir hafa eitt og hálft stig. Það má ætla að 13 efstu hreppi sæti í úrslitum og þar á meðal gætu orðið a.m.k. sex Islendingar, sem virðist nokkurn veginn í samræmi við stöðu Islands í norrænu skák- samstarfi. Þá gæti nýr maður kom- ist inn með sigri á síðasta bikarmót- inu í Færeyjum í febrúar. Þröstur nýr formaður TR Á félagsfundi í Taflfélagi Reykjavíkur sl. fimmtudagskvöld gerðust þau tíðindi að Olafur H. Olafsson sagði af sér formennsku í félaginu og gekk úr stjóminni. Þröstur Þórhallsson, varaformaður, tók þá að sér formennsku í félaginu. Þetta er í fyrsta skipti sem stórmeistari í skák tekur að sér forystu í taflfélagi. Skákþing Reykjavík- ur hófst á sunnudaginn var í félagsheimili TR Faxafeni 12. Stiga- hæstu keppendurnir eru þeir Þröstur Þór- hallsson, Jón Garðar Viðarsson, Jón Viktor Gunnarsson, Sævar Bjarnason og Björgvin Víglundsson. Þátttak- endur eru 64 að tölu. Núverandi skákmeist- ari Reykjavíkur, Torfí Leósson, freistar þess að verja titil- inn. Teflt er á skákþinginu á miðviku- dags- og föstudagskvöldum og á sunnudögum kl. 14. Margeir Pétursson Jóhann Hannes Hlífar Hjartarson Stefánsson Þröstur Þórhallsson IDAG SKÁK Umsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á alþjóð- legu móti í Pamplona á Spáni um áramótin í viður- eign tveggja spánskra al- þjóðameistara. Juan Mario Gomez Esteban (2.495) var með hvítt, en Jesus De la Villa Garcia (2.495) hafði svart og átti leik. 25. - Hxd2+! 26. Kxd2 - Rc4+ 27. Kd3 - 28. Bxh6 (Síðasta vonin, en svartur á sterkt svar) 28. — Rxbl! 29. Bxg7 - Rc3! 30. Bxc3 bl=D+ og hvítur gafst upp. Úrslitin í Pampl- ona urðu: 1,—3. Almasi, Ungveija- landi, Speelman, Englandi, Azmajparashvili, Georgíu 6 v., 4. Gulko, Bandaríkj- unum 5 v., 5.-6. Magem Badals, Spáni og Pia Cramling, Svíþjóð 4'A v., 7. Ponomariev, Úkraínu 4 v., 8. De la Villa, Spáni 3 ‘A v., 9. Gomez Esteban 3 v., 10. Garcia Ilundain, Spáni 2 Vt v. Með morgunkaffinu LÁTTU mig endilega vita hvort þetta virkar, ég á nefnilega sjálfur við sama vandamál að stríða. ÞÚ ert allt of góður fyrir mig. Þú verður að finna þér annan félaga til að spila með. Ó, NEI, mig klæjar í nefið. ÉG lærði þessa sveiflu þegar ég vann á barnum um árið. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Pantur í leignbíl LEIGUBÍLSTJÓRI sem ók konu að Hverfisgötu í Reykjavík, aðfaranótt nýársdags og tók í pant dökkbláan og svartan bakpoka með snyrtidóti og fleiru í, er vinsamlega beðinn um að hafa sam- band í síma 552-3842. Tapað/fundið Gleraugu töpuðust KVENMANNS gleraup töpuðust í miðbæ Reykja- víkur rétt fyrir jól. Glerin eru ávöl í silfurlitaðri umgjörð, með brúnu plasti á spöngum. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í Önnu í síma 588-8500 eða 562-2382. Kvenmannsúr fannst FERKANTAÐ og nett kvenmannsgullúr, fannst á Óðinstorgi þann 7. jan- úar. Eigandinn er beðinn að hringja í síma 552- 4043. Gullúr fannst GULL kvenmannsúr, með gylltri keðju, fannst á planinu hjá Hagkaup í Breiðholti. Eigandinn er beðinn að hringja í síma 587-2892. Gleraugu töpuðust GYLLT kvenmannsgler- augu, með brúnum spöngum, töpuðust 4. janúar annað hvort við Bónus í Skútuvogi eða við Ármúla 42. Skilvís finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 553- 8575. Gullhringur tapaðist GULLHRINGUR með mynt á tapaðist á Hótel Sögu 13. desember sl. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 568-2453 eða 552-3735. HÖGNIHREKKVÍSI Víkveiji skrifar... VÍKVERJA hefur borizt eftirfar- andi frá Áma Brynjólfssyni vegna umfjöllunar í þessum dálki sl. þriðjudag: „I pistli þínum í dag getur þú þess réttilega að miklar framfarir hafí orðið hjá matvöruverslun í landinu með tilkomu stórmarkaða, - en kvartar yfir skorti á hliðstæðu í fata- sölu. Ný skýrsla frá forsætisráðu- neytinu, þess efnis að matarverð sé a,m.k. helmingi hærra hér en í ná- lægum löndum, vekur upp þá spum- ingu hvar við væram stödd ef við byggjum við sama verslunarmáta og fyrir stórmarkaði. Engu að síður er vömverðið með ólíkindum hátt, sem að mestu má rekja til átrúnaðar á inniendan búsmala. Það vill oft gleymast að við erum mjög fá í óþægilega stóru og lítt gjöfulu landi, sem er gert enn óhag- kvæmara með langvinnri þegn- skylduvinnu og einangmn mikils hluta þjóðarinnar í óhagkvæmum byggðarlögum og bjargarlitlum bæ- jarkrílum, til að tryggja á fölskum forsendum sterka tilvem og völd stjórnmálaflokka, og setu ákveðinna manna á Alþingi. Við þessar aðstæður verðum við að búa á meðan þjóðin sættir sig við misvægi atkvæða og ólíklegt er að óbreyttu að byggð þéttist hér svo mjög að samkeppni stórmarkaða verði möguleg. Málpípur kvótavæddu atvinnuveganna tveggja, sjávarút- vegs og landbúnaðar, sjá um að halda í skefjum eðlilegri þróun og framför- um í öðmm atvinnugreinum. Vegna upprifjunar Víkveija á meira en áratugargömlum áformum Sambands íslenskra samvinnufélaga (ekki samvinnumanna) um að ná fjórðungi verslunar á höfuðborgar- svæðinu, má rifja upp fleira eins og t.d. það að frá seinni heimsstyrjöld og fram undir þann tima sem SÍS setti sér þetta háleita markmið var versluninni þannig fyrir komið, að SÍS fékk helming leyfa fyrir innflutn- ingi - og útvaldir heildsalar með „kvóta“ fengu afganginn. Menn sem gættu hagsmuna SIS höfðu trygg ítök í innflutningsnefndinni og trygg- ir bankastjórar sáu um ótakmarkað- an aðgang þess að sparifé lands- manna, - á neikvæðum vöxtum. Tækjum við aftur upp þessa stjóm- sýslusnilld myndi ekki aðeins Kaupfé- lag Ámesinga ná rúmlega áratug- argömlu markmiði SIS, heldur væri þeim - og „viðurkenndum" heildsöl- um í lófa lagið að gera stór innkaup og fá lágt verð erlendis, en óvíst er að stórmörkuðum fjölgaði, vöruverð lækkaði eða að vöruúrval yrði meira, t.d. í fatnaði. Óvíst er því að eftir- sóknarvert sé að vekja upp gamla drauga. Kveðja, Árni Brynjólfsson." VÍKVERJI varpaði fram þeirri spurningu sl. þriðjudag, hvort Hagkaup í Kringlunni væri að draga úr þjónustu við viðskipta- vini með því að stytta afgreiðslu- tíma verzlunarinnar. Var það sagt af því tilefni, að verzluninni, sem áður var opin til kl. 18.00 á sunnu- dögum, var lokað kl. 17.00. Nú er ljóst, að það er ekki bara á sunnu- dögum, sem þessi verzlun Hag- kaups er að stytta afgreiðslutíma. Verzlunin hefur verið opin til kl. 21.00 á kvöldin, en þegar Víkverji ætlaði að notfæra sér þá þjónustu um daginn kom í ljós, að nýr af- greiðslutími var kominn til sögunn- ar og verzluninni var lokað kl. 20.00. Getur verið að þessi versnandi þjónusta standi í einhverjum tengslum við það, að önnur matvö- rubúð er ekki lengur í Kringlunni? Eins og menn muna rak 10-11 myndarlega verzlun í Borgar- kringlunni en mun hafa fengið til- boð, sem ekki var hægt að hafna um að loka þeirri búð, þegar verzl- unarhúsin tvö voru tengd betur saman. Þetta þýðir auðvitað minni samkeppni á þessu verzlunarsvæði og það kemur bersýnilega umsvifa- laust fram í verri þjónustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.