Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Gamall leðurstóll sem er hvorki g-amall né úr leðri Sýndarveruleiki er ekki nýtt fyrirbrigði. í tilefni af hundrað ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur stendur nú yfir í kjallara Borg- arleikhússins sýning á leikmunum, leikbún- ingum, hárkollum, húsgögnum, sviðslíkön- um, leikmyndateikningum og öðru sem not- að hefur verið til að endurskapa liðna tíð, aðra menningarheima, nútímann eða hugar- heim leikritahöfunda. Helgi Þorsteinsson fór á sýninguna í gær. Morgunblaðið/Þorkell LEIKMYNDIN úr Tobacco Road í tveimur útgáfum, á ljósmynd og sem sviðslíkan. í BARNAHORNINU eru mörg furðugervi. Sigurður Karlsson, leikari og formaður Leikfélags Reykjavíkur, bendir á sjálfan sig í svampbúningi sem hann klæddist á sýningunni Snjókarlinn okkar. Slökkvilið ætlaði að banna sýninguna vegna þess hversu búningarnir voru eldfimir en það varð að samkomulagi að leyfa hana ef þeir væru notaðir blautir. LEIKSVIÐIÐ þarf ekki að vera eins og fyrirmyndin, það þarf bara að sýnast vera það. Sumir leikmun- imir sýnast glæsilegir úr þeirri ijarlægð sem áhorfandinn sér þá, til dæmis gamli leðurstóllinn, sem þegar nær kemur reynist hvorki gamall né leðurklæddur, útskoma rússneska íkonið úr pappa og lími eða Kjarvalsmálverkið sem er í raun eftir einn leikmyndamálara Borgarleikhússins. Sígildar ölkrúsir og sláturkeppir Falsanirnar á sýningunni, ef svo mætti nefna þær, em sumar jafngamlar leikhúsinu. Reynt hef- ur verið að geyma sem mest af leikmunum, enda em þeir oft not- aðir aftur og aftur. Þar má til dæmis nefna ölkrúsir, sláturkeppi og húsgögn sem notuð hafa verið hvað eftir annað í sígildum ís- lenskum leikritum á borð við Fjalla-Eyvind og Mann og konu. Steinþór Sigurðsson leik- myndateiknari á mestan heiður af sýningunni en honum til aðstoð- ar hafa verið starfsbróðir hans, Jón Þórisson, Hlín Agnarsdóttir leikstjóri, Ögmundur Jóhansson ljósahönnuður og fleiri starfsmenn leikhússins. Steinþór segir að sýn- ingin reki ekki samfellt sögu leik- félagsins, heldur sýni hún úrval af þeim munum sem era í vörslu þess. „Það er mikið til af sýningar- efni í einkaeigu en við tókum þá stefnu að hafa eingöngu muni sem eru í geymslu leikfélagsins. Miðað við það hversu lítið geymslupláss leikfélagið hafði er samt ótrúlegt hversu mikið hefur varðveist hér. Á síðustu árum hefur ástandið batnað, því geymslurými er orðið mun meira.“ Meðan leikfélagið var í Iðnó voru hlutirnir geymdar í ýmsum afkimum og hornum hússins og í húsi í Súðarvogi, þar sem einnig var verkstæði leik- hússins, og í gamla iðnskólahús- inu á horni Vonarstrætis og Lækj- argötu. Síðastnefnda geymslan brann fyrir um tíu árum og glötuð- ust þá margir af elstu leikbúning- unum. Eins konar inngangur að sýn- ingunni er í anddyri leikhússins, en þar eru meðal annars til sýnis munir úr dánarbúi Árna Eiríks- sonar leikara sem var einn af stofnendum Leikfélags Reykjavík- ur. Meginhluti sýningarinnar er í kjallara og er gengið þangað niður úr miðasöluanddyrinu. Brot af viðtækja- og koppasöfnum Sýningin skiptist í nokkra hluta sem tengjast einstökum þáttum leikhússtarfsins. Þeir eru ekki í tímaröð, en þó eru í fyrsta hluta munir frá fyrstu árum leikhúss- ins. Aðrir flokkar sem nefna má eru brot af viðtækjasafni leikfé- lagsins, en að sögn Steinþórs er það mjög stórt. Við hlið þess er annað safn, ekki ómerkara, en það eru koppar frá ýmsum tímum. Ekki er nema eitt klósett á sýning- unni, en það er þeim mun glæsi- legra. Það var notað í sýningunni Evu Lúnu og var mikil vinna lögð í gerð þess, enda sat ein persónan þar löngum stundum. Svo fór að sýningin var stytt og klósettatrið- unum kippt út. Nú bíður það þess að önnur sýning kalli á glæsikló- sett. Annað íburðarminna sæti og þó virðulegra er stóll forseta Is- lands úr Iðnó. Forsetinn átti að sjálfsögðu fast sæti á svölum. Skápurinn lagður saman milli sýninga Skápur einn á sýningunni er vitnisburður um eitt helsta vanda- mál leikfélagsins meðan það var til húsa í Iðnó. Hann er þannig hannaður að með nokkrum hand- tökum er hægt að fella hann sam- an þannig að lítið fari fyrir honum milli sýninga. Steinþór segir að vegna plássleysis hafi fleiri hlutir verið þannig hannaðir að þeir tækju sem minnst af takmörkuðu geymslurými. Lengi hægt að uppgötva skemmtilega hluti Sýningin er skemmtilega skipu- lögð, því hún minnir um margt á tilviljunarkennt og þétt samsafn ólíkra muna í geymslu, en við nánari athugun sést að töluverð hugsun liggur að baki uppröðun- inni. Það er lengi hægt að ganga um og uppgötva skemmtilega hluti. Víða hanga leikskrár með mununum sem auðvelda sýningar- gestum að setja þá í samhengi og einnig eru margar ljósmyndir þar sem þeir sjást í notkun á leik- sýningum. Loks má finna þá suma, ef vel er gáð, á litlum sviðs- líkönum. STEINÞÓR Sigurðsson Ieikmyndateiknari, sem skipulagði sýn- inguna, virðir fyrir sér muni úr eldhúsi Iðnó. Þeir voru í eigu Kristínar í Iðnó, en hún var jafngömul leikfélaginu og starfaði þar í eldhúsinu árum saman. ír Brian Fríel 1982, Leikmynd 0 W .;5r i'" ' |§ -•fC" ■ w i i LÍKAN af leikmynd Steinþórs Sigurðssonar við írlandsbréf Brian Friel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.