Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Landvinnsla á góða framtíð þótt erfiðleikar steðji að nú
Vöruþróun, betri afköst
og nýting lykilatriði
Morgunblaðið/Kristján
FJÖLMENNI sótti hádegisverðarfund um framtíð landvinnsl-
unnar og komu sumir langt að. A myndinni eru frá vinstri
Tryggvi Aðalsteinsson, umdæmisstjóri RARIK á Norðurlandi
eystra, Jóhann Ingólfsson, Grenivík og Hálfdán Kristjánsson
bæjarstjóri í Ólafsfirði.
AF ÁTTA klukkustunda vinnutíma
fiskverkafólks í Danmörku eru 7,25
stundir virkar, en 9,4% af greiddum
vinnutíma fara í pásur og kaffihlé.
Hjá fiskvinnslufólki á íslandi er 6,8
stundir af 8 alls virkar, en 15,4%
af greiddum vinnutíma fara í pásur
og kaffihlé. Þetta kom fram í er-
indi Guðbrands Sigurðssonar fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags Ak-
ureyrar á hádegisverðarfundi sem
efnt var til í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri í gær um framtíð landvinnsl-
unnar.
Sagðist Guðbrandur ekki hafa
trú á öðru en verkalýðshreyfingin
á íslandi væri tilbúin að fara í saum-
ana á þessu með það fyrir augum
að ná fram auknum afköstum. „Ég
get ekki ímyndað mér að verkalýðs-
hreyfingin standi í vegi fyrir nauð-
synlegum breytingum, að hún vinni
ekki með okkur í að finna hagstæð-
ustu lausnina í þessu máli. Nefndi
hann einnig að búa þyrfti vel að
starfsfólki fiskvinnslunnar til að
unnt væri að ná hámarksafköstum.
Framtíðarverkefni í Asíu
Guðbrandur sagði engar patent-
lausnir til á þeim vanda sem land-
vinnslan stæði frammi fyrir um
þessar mundir. Fór hann yfir stöð-
una og gat þess m.a. að það væri
áhyggjuefni hve mjög útflutningur
á landfrystum afurðum til Asíu
hefði dregist saman á undanförnum
misserum. Þar væri gróska, hag-
vöxtur mikill og á því svæði væru
framtíðarverkefni fyrir íslenskan
sjávarútveg.
Þó svo að landvinnslan stæði nú
frammi fyrir miklum erfíðleikum
taldi Guðbrandur að hún ætti góða
framtíð fyrir sér. Mikilvægt væri að
fá betra hráefni og nýta það betur
en nú væri gert og þá sé ekki síður
mikilvægt hversu vel tækist til að
vinna úr því hráefni sem vinnslan
hefði yfir að ráða. Megináherslu
þyrfti í framtíðinni að leggja á fram-
leiðslu í dýrari pakkningar. Einnig
nefndi Guðbrandur í þessu sambandi
að afköst í vinnslunni þyrftu að
aukast og ná yrði fram betri nýtingu
ijárfestingarinnar, frystihúsin væru
nú keyrð fimm daga vikunnar yfír
daginn, en mun betri nýting væri á
frystitogurum.
Vöruþróun er lykilatriði
Landvinnsluna taldi Guðbrandur
hafa mikla yfírburði yfír sjófryst-
inguna varðandi vöruþróun, sem
væri lykilatriði varðandi framtíð
hennar. Með öflugu vöruþróunar-
starfi væri hægt að styrkja land-
vinnsluna mikið. Kröfur markaðar-
ins væru mikið að breytast og
stefndi allt í átt til bitavinnslu.
Breyttar neysluvenjur skiptu einnig
máli, en til að mynda í Bandaríkjun-
um væru mun fleiri máltíðir snædd-
ar utan heimilis en innan. Heim-
sendingaþjónusta ykist sífellt og
einnig væru verslanir farnar að
selja tilbúinn mat.
Útgerðarfélag Akureyringa setur
á næstunni upp vöruþróunardeild
innan fyrirtækisins og hefur ráðið
starfsmann úr kjötiðnaði til að veita
henni forstöðu, en fram kom í máli
framkvæmdastjórans að fiskvinnsl-
an gæti mikið af kjötiðnaði lært.
Jón Helgi kveður
Upsasöfnuð
SÉRA Jón Helgi Þórarinsson kvaddi Upsasöfn-
uð á Dalvík síðastliðinn sunnudag, en hann
hefur þjónað Dalvíkurprestakalli um tólf ára
skeið og sem kunnugt er hefur hann tekið við
starfi sóknarprests í Langholtskirkju.
Barnamessa var kl. 11 um morgunin og
messa kl. 14. Að messu lokinni var efri hæð
safnaðarheimilisins formlega tekin í notkun
og séra Birgir Snæbjörnsson prófastur bless-
aði húsið sem nú er að fullu lokið. Kaffiveiting-
ar voru að athöfn lokinni en þar mátti m.a.
líta veglegar áritaðar tertur með eftirfarandi
visum eftir Björn Þórleifsson:
Jón á brott úr bænum fer
bytjar hryggðarsöngur.
Verst mun þetta þykja mér
um þorrablót og göngur.
Mörgum svíður sárt það tjón
að sjá þig burtu ganga.
Sittu í friði séra Jón
í sókn við holtið langa.
Prestshjónunum voru færðar gjafir á þessum
tímamótum, m.a. ljósmynd af Dalvíkurbæ sem
formaður sóknarnefndar, Friðþjófur Þórarins-
son, afhenti fyrir hönd sóknarbarna.
Sérstakar kveðjumessur munu einnig verða
í Svarfaðardal og á Dalbæ, heimili aldraðra.
Þá mun Jón Helgi einnig ferma í prestakallinu
í vor.
Morgunblaðið/Hermína
30 tonna réttindanámskeið
Sjófarendur athugið! 30 tonna réttindanámskeið verður haldið
við Útvegssvið VMA á Dalvík.
Þátttaka skráist í síma 4661083 fyrir föstudaginn 17. janúar nk.
Þátttökugjald kr. 30.000.
Allar almennar upplýsingar veittar á skrifstofu skólans
alla virka daga frá kl. 8.00-12.00.
Kennslustjóri.
Fimm innbrot
FIMM innbrot hafa verið tilkynnt til
lögreglu og var í þremur þeirra farið
inn í húsnæði gæsluvalla Akureyrar-
bæjar.
Þtjú rúðubrot voru tilkynnt til lög-
reglu um helgina, en þó var mjög
fátt fólk í miðbænum. Afskipti voru
höfð af fímm unglingum sem ekki
höfðu aldur til að vera úti eftir mið-
nætti aðfaranótt laugardags.
Nokkur óhöpp hafa orðið í umferð-
inni síðstu daga, lítill drengur var
fluttur á sjúkrahús í Reykjavík eftir
eitt þeirra, úr tveimur öðrum umferð-
arslysum voru þrír fluttir á slysadeild,
en um minniháttar meiðsl var að
ræða. Ekki urðu slys á fólki í fjórum
árekstrum. í tvö skipti rákust speglar
tveggja bifreiða sem voru að mætast
saman svo að tjón hlaust af. í bæði
skiptin hélt annar ökumaðurinn áfram
eins og ekkert hefði í skorist.
Fimm hafa verið teknir fyrir of
hraðan akstur síðustu daga, fjórir
kærðir fyrir að nota ekki bflbelti, þrír
gátu ekki framvísað ökuskírteini,
tvær skýrslur voru gerðar fyrir að
virða ekki stöðvunarskyldu, ein vegna
aksturs á móti einstefnu og þrjár fýr-
ir óleyfílegan akstur um göngugötu.
Skýrsla um útköll
og eldsvoða
Brunaút-
köllum
fjölgaði
ÚTKÖLL hjá Slökkviliði Akur-
eyrar urðu alls 100 á síðasta
ári, þar af fimm utanbæjar, á
svæði Brunavama Eyjafjarðar
og tvisvar aðstoðaði Slökkvilið
Akureyrar nágrannaslökkvil-
ið. Árið 1995 vom brunaút-
köllin 60 talsins og þar af 8
utanbæjar.
Stærstu brunatjónin á ár-
inu voru þegar samkomustað-
urinn 1929 skemmdist í eldi
í september og þegar útihús
á Staðarhóli í Eyjafjarðarsveit
eyðilögðust í október. Ekki
varð manntjón í bruna á árinu
1996 á svæði Slökkviliðs Ak-
ureyrar.
Sjúkraútköll urðu 1091 á
árinu 1996 og þar af 175
utanbæjar. Árið áður voru
sjúkraútköllin 1137 og þar af
176 utanbæjar. Bráðatilfelli
voru 262 á síðasta ári. Rúm-
lega 50 sjúkratúrar voru yfir
40 km langir, þar af 24 yfir
90 km langir.
Skiptum
lokið eftir
tæp 11 ár
SKIPTUM er lokið í þrotabúi
Kaupfélags Svalbarðseyrar á
Svalbarðseyri en kaupfélagið
varð gjaldþrota sumarið 1986.
Mikil málaferli urðu í kjölfar
gjaldþrotsins, m.a. fyrir
Hæstarétti en þau skýra þann
drátt sem orðið hefur á skipta-
lokum.
Forgangskröfur, sem námu
11,2 milljónum króna, greidd-
ust upp að fullu. Almennar
kröfur námu tæpum 277 millj-
ónum króna og greiddust
6,17% af þeim eða rúmar 17
milljónir króna. Að auki
greiddust um 70 milljónir
króna upp í veðkröfur sem
fengust með eignasölu á upp-
boðum.
Ekki með
réttindi
LÖGREGLA hefur þurft að
hafa afskipti af akstri vélsleða
í þrígang að undanförnu.
í tvö skipti höfðu ökumenn
ekki réttindi til aksturs vél-
sleða, þeim var ekið uppá
gangstétt og tveir voru ekki
með númeraspjöld.
Sú breyting gekk í gildi um
nýliðin áramót að ökumenn
þurfa nú að hafa bifhjólapróf
eða bílpróf til að mega aka
vélsleðum. Vélsleðar eru nú
skráningarskyld ökutæki sem
eiga að bera skráningarnúmer
sem festa þarf á sýnilegum
stað á ökutækinu, en ekki
geyma í geymsluhólfi sætisins.
Klippt af
33 bílum
SÍÐUSTU daga hafa lögreglu-
menn á Akureyri verið á ferð-
inni og tekið 33 númer af bif-
reiðum sem ekki höfðu verið
færðar til skoðunar.
Áfram verður klippt af þeim
bifreiðum sem ekki hafa verið
færðar til skoðunar á síðasta
ári, en allir eiga nú að vera
búnir að láta skoða bíla sína
fyrir liðið ár.