Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 30

Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Dramatískur rómantáker Ólafur Ámi Bjarnason tenórsöngvari efnir til einsöngstónleika í Hafnarborg á morgnn, miðvikudag, kl. 20.30. Orri Páll Ormars- son kom að máli við söngvarann sem lét móðan mása um fortíð, nútíð og framtíð. „ÞAÐ tekur tíma að koma sér á framfæri á Ítalíu enda eru ítalir mjög gagnrýnir, ekki síst á söngvara sem syngja ítalska fagið,“ segir Ólafur Árni Bjarnason. ÞAÐ GUSTAR af Ólafi Árna Bjarnasyni, hann er eiginlega eins og stormsveipur. Maður lyftir því ekki brúnum þegar hann lýsir sér sem sveimhuga, sem viti vart hvort hann sé að koma eða fara. Þá á hann til að hneyksla fólk, einkum á íslandi, enda þykir honum „nauð- synlegt að hrista upp í landanum" annað veifið. Allt er það þó gert í góðri trú enda dugar skammt að læðast með veggjum i faginu sem hann hefur kosið að gera að ævi- starfi, óperusöng. Og kappinn er á uppleið og stefnir hærra og hærra. Ólafur Árni mun syngja sitt af hveiju tagi á tónleikunum í Hafnar- borg. Hyggst hann byija á nokkrum lögum eftir Sigvalda Kaldalóns, meðal annars Ave Maria sem söngvarinn tileinkar minningu Brí- etar Héðinsdóttur leikkonu, sem lést á nýliðnu ári, en hún leiðbeindi honum mikið varðandi leik og sviðs- framkomu. Uppistaðan á tónleikun- um verða síðan ítalskar óperuaríur, sem hann hefur verið að æfa undan- farið eitt og hálft ár undir hand- leiðslu hins gamalkunna ítalska óperusöngvara Giannis Raimondis. Má þar nefna aríuna Fontainebleu úr Don Carlos eftir Verdi, sem er ein „erfiðasta aría, bæði hvað varð- ar innihaid og söng,“ sem Ólafur Árni hefur sungið, og E lucevan le Stelle úr Tosca eftir Puccini, sem hann syngur nú í fyrsta sinn opin- berlega. „Ég býð eftir að fá tæki- færi til að spreyta mig á þeirri óperu.“ Ennfremur hefur Ólafur Árni í hyggju að bera ofurlitla Vínartón- list á borð fyrir gesti, einkum þá sem urðu af þeim kræsingum _ á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís- lands á dögunum. „Tónleikarnir í Hafnarborg komu eiginlega til vegna þess að uppselt var á alla Vínartónleikana en gamlir kunn- ingjar voru farnir að hringja í mig með grátstafinn í kverkunum," seg- ir Ólafur Árni og skellir upp úr, hátt og snjallt, svo sem tenórsöngv- ara er siður. Anda inn sama loftinu „Ólafur Vignir Albertsson leikur með á píanó,“ er setning sem oftar en ekki hefur heyrst eða sést í ís- lenskum fjölmiðlum og enn er við hæfi að grípa til hennar. „Það lá beint við að leita til Ólafs Vignis, ekki síst þar sem fyrirvarinn var stuttur, en við þekkjumst mjög vel og öndum inn sama loftinu." Ólafur Árni stundaði framhalds- nám í söng í Bandaríkjunum en framan af ferli var hann fastráðinn við óperuhús í Regensburg og Gels- enkirchen í Þýskalandi. Fyrir tveim- ur árum ákvað söngvarinn hins vegar að venda sínu kvæði í kross og snúa sér að lausamennskunni en hann býr nú, ásamt eiginkonu sinni, Margréti Ponzi, í nágrenni Bologna á Italíu. „Þar er mjög gott að búa, „la dolce vita“, enda er ein- lægara fólk en ítalir vandfundið — þegar þeir reiðast verða þeir reiðir og þegar þeir gleðjast verða þeir glaðir. Þá er konan min hálf-ítölsk og því loksins komin til fyrirheitna landsins." Þrátt _ fyrir búferlaflutningana starfar Ólafur Árni að mestu við óperuhús í Þýskalandi ennþá. „Það tekur tíma að koma sér á framfæri á Ítalíu enda eru ítalir mjög gagn- rýnir, ekki síst á söngvara sem syngja ítalska fagið,“ segir hann. „Ég er hins vegar í góðum höndum hjá Raimondi og hef án efa bætt mig verulega sem söngvari undan- farið eitt og hálft ár. Þetta er það sem ég þarf á þessu stigi ferilsins, tími til að slípa hljóðfærið." Hægt og sígandi er Ólafur Árni þó farinn að prufusyngja á Ítalíu, einkum fyrir tilstilli píanóleikarans Enza Ferrari, meðal annars í Bol- ogna, þar sem hann segir að óperu- stjórinn hafi hrifist af sér. „Næsta skref er að syngja fyrir nýja hljóm- sveitarstjórann þar á bæ, sem er að taka við að Tielemann." Þá hef- ur söngvaranum verið boðið að taka þátt í óperuhátíð í Bari á sumri komanda. _ Ólafur Árni hefur sérhæft sig í ítalska faginu, enda er hann „dramatískur rómantíker“, og hyggst halda ótrauður áfram á sömu braut — Rossini, Puccini, Donizetti og jéttari Verdi eru hans ær og kýr. „Ég hef gaman af ýmsu öðru, til dæmis að syngja Vínartón- list, en það er hins vegar ekki upp- byggjandi fyrir röddina að syngja mikla samtímatónlist á þessu stigi, þó ég njóti þess að hlusta á hana.“ Reykjavík - Gelsenkirchen - Riga En hvað tekur við þegar hann heldur utan á ný? „Næstu verkefni eru Don Carlos í Wuppertal og Lucia di Lammermoor eftir Doniz- etti í Gelsenkirchen og sama ópera í Riga í Lettlandi. Þangað var ég fyrst beðinn um að koma á síðasta ári, í gegnum lettneskan píanóleik- ara sem ég þekki í Köln, og hlaupa í skarðið fyrir annan tenórsöngvara í La traviata eftir Verdi. Óperustjór- inn varð svo ánægður með mig að hann bauð mér að koma og syngja í Luciu í vor.“ Sitthvað hefur á daga Ólafs Árna drifið í starfi hans sem óperusöngv- ara, sumt spaugilegra en annað. Nærtækasta dæmið er ugglaust nýjársfagnaður íslensku óperunnar á Hótel íslandi. „Tengiflugið var langt og leiðinlegt og ég lenti ekki á Keflavíkurflugvelli fyrr en klukk- an tíu um kvöldið. Þá var ekki um annað að ræða en hendast beint á Hótel ísland, þar sem ég átti að syngja nokkur atriði. Fyrir vikið þurfti ég að klæða mig í smóking- inn í leigubílnum, konunni sem renndi upp að hlið okkar á ljósum til mikillar undrunar, enda var ég þá flæktur í axlaböndunum. Auk þess þurfti ég vitaskuld að hita mig upp í bílnum, sem kom ekki að sök, því bílstjórinn var gamall söng- nemi, og lét sér því hvergi bregða.“ Ólafur Árni er svo sem alvanur að hita sig upp á framandi stöðum. í annað skipti sem hann söng fyrir umboðsskrifstofu í Þýskalandi, nán- ar tiltekið í Frankfurt, nýkominn úr námi, átti hann einskis annars úrkosti en að hita sig upp á almenn- ingssalerni. „Fólk, sem leið átti hjá, rak víst upp stór augu en þetta var í fyrsta sinn sem ég fékk viðbrögð við prufusöng og var upp frá því ráðinn til óperunnar í Regensburg." Hlutirnir gerast oft hratt í óperu- heiminum og þótt Ólafur Árni sætti sig við að sígandi lukka sé ef til vill farsælust, gæti stóra tækifærið skyndilega knúið dyra. Þá er áríð- andi að vera reiðubúinn að stökkva — og einhvern veginn efast maður ekki um að Ólafur Árni sé það. Rósblómstrandi túlkun Morgunblaðið/Jón Svavarsson I heild voru þetta eftirtektarverðir tónleikar, einkum fyrir frá- bæra túlkun í Brahms og Webern, bæði hjá Sigurbirni og Howsmon. Skrýtnir dagar enn á ný TONLIST IsIcnska ópcran SAMLEIKUR Á FIÐLU OG PÍANÓ Sigurbjöm Bemharðsson og James Howsmon fluttu verk eftir Brahms, Paganini, Webem, Þorkel Sigur- björasson og Ravel. Laugardagurinn ll.janúar, 1997. TÓNLEIKARNIR hófust á G-dúr fiðlusónötunni, op. 78, eftir Brahms en þessi fagra sónata er stundum nefnd „Regn-sónatan“ og það af tveimur ástæðum. Sú fyrri er vegna tilvitnunar í sönglagið „Regenlied" op. 59. nr. 3. en það hefst á stefi sem í heild er notað í verkinu, en auk þess eru upphafstónar stefsins, endurteknir þrír tónar, eins konar „motto“ fyrir tónverkið í heild og heyrast þeir ekki aðeins í 1. þætti, heldur og víðar, t.d.í sex síðustu töktum verksins, en þá í lengdum nótnagildum. Seinni ástæðan er, að í píanóundirspilinu má heyra streymandi tónferli sextánduparts- nótna, sem þykir minna á regn. Það sem þó er mikilvægast, er að verk- ið í heild er sérlega rómantískt og fínlegt að gerð og í flutningi Sigur- björns og Howsmons var lögð áherlsa á það fínlega og viðkvæma. í heild var flutningur þeirra einstak- lega fallega mótaður, sérlega tón- fagur og auðheyrt að Sigurbjörn er mikill listamaður. Á efnisskránni voru tvenns konar verk, sem flokka mætti annars veg- ar sem skáldverk og hins vegar sem tækniverk, eins og G-strengs til- brigðin eftir Paganini, sem var í raun ótrúlegt tækniverk á sínum tíma og er það jafnvel enn í dag. Sigurbjörn gerði margt vel, þó ein- staka sinnum vantaði „punktinn yfir i-ið“, ef svo mætti segja, sér- staklega á hásviði g-strengsins, þar sem þumalfingur heftir í raun fijálsræði handarinnar. Þriðja verk- ið er þá í flokki skáldverka, nefni- lega fjórir þættir fyrir fiðlu og píanó, eftir Anton Webern. Þetta „fárnála" verk var glæsilega flutt og ásamt næsta verki, fjórum fal- legum næturljóðum, eftir Þorkel Sigurbjörnsson, sýndu flytjendur fágæta músíktúlkun. Lokaverkið Tzigane er leiktækni- verk fyrir „virtúósa" og eins og í G-strengs verki Paganinis, vantaði stundum herslumuninn, er rýrir ánægjuna af því að hlýða á leik- tæknileikinn. Sigurbjörn er leikinn fiðluleikari en þó er mest um vert, að skáldskapurinn í tónlistinni kem- ur fram í leik hans og rósblómstr- aði túlkun hans í sónötunni eftir Brahms og einnig í smáu en þó stóru lögunum eftir Webern. James Howsmon er einnig góður tónlistar- maður, er átti ekki lítinn þátt í frá- bærri túlkun á verkunum eftir þá Brahms og Webern, með stílhrein- um og öguðum leik tónlistarmanns- ins. Næturijóðin eftir Þorkel eru fallegar vornæturstemmningar, sérstaklega sú fyrsta, ljóðræn og fínleg, og síðasta, átakamest og á köflum hressileg. í heild voru þetta eftirtektarverð- ir tónleikar, einkum fyrir frábæra túlkun í Brahms og Webern, bæði hjá Sigurbirni og Howsmon, þar sem tónmýkt og falleg mótun tón- hendinga, ofinna úr fögru tónmáli, „ríkti ofar hverri hverri kröfu“, óskilgreinanleg í orðum og verður aðeins lifuð af þeim sem eiga sér óm-viðkvæman streng í hjarta. Jón Ásgeirsson KVIKMYNÐIR Sagabíó ÓGLEYMANLEGT „UNFORGETTABLE" ★ 'h Leikstjóri: John Dahl. Handrit: Bill Geddie. Aðalhlutverk: Ray Liotta, Linda Fiorentino, Peter Coyote. Metro Goldwyn Meyer. 1996. FYRRA samstarf leikstjórans John Dahls og leikkonunnar Lindu Fiorentino gat af sér eina bestu sakamálamynd síðustu ára, „The Last Seduction“. Ef þau hafa ætlað að endurtaka leikinn með Ógleymanlegt eða „Unfor- gettable" hefur það tekist mjög miður. Fyrir það fyrsta er Linda ekki svipur hjá sjón miðað við leiksigur hennar í fyrri myndinni enda hlutverk hennar nú hvorki fugl né fiskur og í annan stað er sagan sem Dahl er að reyna að segja, eins og áður undir áhrifum frá meistara Hitchcock, furðuleg og einkar langsótt samsuða vís- indatryllis og fiim noir stílsins. Myndin verður hvorki spennandi né áhugaverð og fremur fyrirsjá- anleg í þokkabót. Hún heitir Ógleymanlegt en hefði eins getað heitið Auðgleymd. Ray Liotta leikur réttarlækni sem grunaður var um hrottalegt morð á eiginkonu sinni en slapp vegna tæknigalla í málarekstrin- um. Nú vill hann komast að því hver raunverulegi morðinginn er og fréttir af vísindakonu sem tek- ist hefur að einangra einhvern minnisvökva þannig að ef þú sprautar honum í þig upplifir þú minningar þess sem vökvann átti. Hann sprautar í sig vökva úr konu sinni og upplifir síðustu andartök hennar, sem verður til þess að hann kemst á slóð morð- ingjans. Framtíðartryllirinn Skrýtnir dagar fjallaði um eitthvað svipað. Þar voru minningar annarra seld- ar hæstbjóðanda. Þótt hún væri gölluð var þó púður í frásögninm en það vantar í Ógleymanlegt. í höndum John Dahls verður vís- indaskáldskapurinn ansi ótrú- verðugur og langdreginn og mað- ur undrar sig fyrst og fremst á því hversu ótrúlega miklar króka- leiðir handritið eftir Bill Geddie fer að því að segja mjög, mjög einfalda sögu. Liotta er ágætlega ráðvilltur en líka dauflegur þar sem hann rifjar upp minningar annarra en aðrir eiga í mesta basli með hálfs- amdar persónur. Fiorentino hefur ekkert af þokkanum og áræðinu sem hún sýndi í „The Last Seduction“ og er eins og gufa alla myndina og Peter Coyote getur lítið athafnað sig með loðið hlutverk. Dahl sýnir stundum í Ógleymanlegt að hann getur gert hinar bestu sakamálamyndir en í heildina missir hann marks hér. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.