Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 33

Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 33
32 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ + 4- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 33 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. GÆFA EÐA GJÖRVILEIKI ÞAÐ GETUR verið sitthvað, gæfa og gjörvileiki, eins og glöggt kemur fram í umfjöllun í Morgunblaðinu í fyrradag, þar sem spurt er: „Eru hæfileikaríku börnin hornrekur?" Þar er fjallað um börn sem mælst hafa af- burðagreind og upp á hvaða úrræði grunnskólakerfið hér á landi býður slíkum börnum, en þau virðast vera sorg- lega fá. Þegar svo háttar til, að börn eru afburðagreind, verða heimili barnanna og skólinn að leggjast á eitt og búa þannig um hnútana, að börnin verði ekki afskipt í skóla- kerfinu og þjóðfélaginu. Það ætti að vera foreldrum og skólayfirvöldum kappsmál að búa þannig í haginn fyrir afburðagreind börn, að þau njóti sín innan veggja skólans sem utan og fái viðfangsefni við sitt hæfi. Skólakerfið virðist hafa brugðist rétt við þörfum þeirra nemenda sem mælst hafa með minna en meðalgreind og í boði er stuðningskennsla, sérkennsla og ýmiss konar námsaðstoð til þeirra, sem ekki ná meðalárangri í hefð- bundnu skólastarfi. En það má ekki verða til þess, að þeir sem búa yfir afburðagreind, verði hornrekur í skóla og sjái meira og minna um grunnskólanám sitt sjálfir. Auðvitað þurfa af- burðagreind börn að fá viðfangsefni í skólanum, sem eru í samræmi við greind þeirra. Gera á auknar kröfur til þessara barna og leggja vinnu í einstaklingsbundnar nám- skrár, allt eftir getu og þörfum hvers og eins. Slíkt gerir að sjálfsögðu auknar kröfur til skólans og kennaranna, en hafa ber hugfast, að með því að rísa undir þeim auknu kröfum eru skólinn og kennarinn í hverju tilfelli að sá til framtíðar og tryggja að sá einstaklingur, sem í hlut á, þroskist og dafni en koðni ekki niður í deyfð og skólaleiða. Það er fagnaðarefni, að fræðsluráð Reykjavíkur skuli hafa samþykkt að fela fræðslustjóra að gera áætlun um hvernig koma megi til móts við þarfir barna með sérstaka hæfileika á einhveiju sviði. Jafnframt hefur Björn Bjarna- son menntamálaráðherra gefið til kynna að sérstaklega þurfi að gefa gaum að þörfum hæfileikaríkra og afburða- greindra barna. Ekki er síst nauðsynlegt að búa kennara grunnskólans undir það, að þeir geti ræktað þann efnivið sem þeir fá í hendur, þar sem eru afburðagreind börn. Ljóst er af viðbrögðum fræðsluyfirvalda, sem rætt var við í áður- nefndri umfjöllun Morgunblaðsins, að mál þetta er komið á dagskrá, þótt jafnljóst sé, að mikil vinna er óunnin. GJALDEYRIR í HRAÐBANKA ÞAÐ ER til marks um þær miklu brejAingar, sem orðið hafa síðustu árin í gjaldeyrisverzlun landsmanna, að íslandsbanki hefur opnað gjaldeyrishraðbanka í Kringl- unni. Þar er hægt að kaupa dollara, pund, þýzk mörk og danskar krónur með sama hætti og íslenzkir peningar eru teknir út á debet- eða kreditkort. Engin eyðublöð þarf að fylla út eða gera grein fyrir fyrirhugaðri notkun gjald- eyrisins, hvað þá að sækja um gjaldeyrinn til sérstakrar úthlutunarnefndar eins og var á árum áður. Og sæta reynd- ar opinberri skömmtun. Gjaldeyririnn fékkst ekki afhentur í bönkunum nema með því að sýna flugfarseðil til útlanda. Sé horft lengra aftur í tímann þá varð að fá stimpil skattyfirvalda á ferðaskjölin til staðfestingar á því, að skattaskuld hindraði ekki utanlandsför. Samkvæmt regl- unum varð að skila gjaldeyri aftur að ferð lokinni, ef eitt- hvað var eftir, þar sem óheimilt var að hafa gjaldeyri í fórum sínum. Botninn í gjaldeyrismálum var þó á tíma vinstristjórnarinnar 1956-1958, því þá þurfti að sækja um gjaldeyri til sérstakrar úthlutunarskrifstofu og gengið var mismunandi eftir því hver sótti um. Sérstakt gengi var fyrir ferðamenn, annað fyrir námsmenn, svo og fyrir sjómenn og útgerðarmenn og loks fyrir innflytjendur. Að sjálfsögðu var þetta gróðrarstía svartamarkaðar og brasks með gjaldeyri. Það var ekki fyrr en með Viðreisnarstjórn- inni að þessu kerfi var kollvarpað, þótt aldarfjórðung tæki að ná því frelsi í gjaldeyrisverzlun sem nýjung Is- landsbanka nú er til marks um. Hátíðardagskrá í tilefni aldarafmælis Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu FJÖLMARGIR gestir voru viðstaddir hátíðardagskrá í Borgarleikhúsinu á sunnudagskvöld í tilefni af aldarafmæli Leikfélags Reykja- víkur. Vigdís Finnbogadóttir, for- maður afmælisnefndar, stýrði dag- skránni en á henni fluttu vinir fé- lagsins því kveðju sína með ræðu- höldum og skemmtiatriðum. Leikfé- lagið var að vísu ekki eitt um að fá kveðjur því að ræðumenn keppt- ust við að senda borgaryfirvöldum skeyti vegna slæmrar fjárhagsstöðu félagsins og fyrir að styðja ekki nægilega vel við bak íslenskrar leik- listar. Ríkissjónvarpið varð einnig fyrir töluverðri ágjöf. Ræðumenn töldu það hafa lagt litla áherslu á gerð leikins íslensks efnis undanfar- in ár og hafa staðið að niðurrifs- starfsemi á íslensku leikhúsi með leiklistargagnrýni sinni. Allir voru þó sammála um að hægt væri að horfa björtum augum til framtíðar á þessum tímamótum í íslenskri leiklistarsögu. Þórhildur Þorleifsdóttir, leikhús- stjóri Leikfélags Reykjavíkur, setti hátíðardagskrána og sagði að með því að snúa eilítið út úr sálmaskáld- inu Matthíasi Jochumssyni gæti leik- félagið ef til vill sagt á þessum tíma- mótum að fyrir sér væri einn dagur sem hundrað ár og hundrað ár dag- ur, ei meir. Þórhildur sagði að leikfé- lagið væri aðeins að hefja göngu sína þótt það hefði nú náð hundrað ára aldri og að það mætti verða áminning um hversu ungt íslenskt listalíf er í raun að Leikfélagið er elsta listafélag landsins. Taldi hún með ólíkindum hvað íslensk sviðslist hefði náð miklum þroska á svo skömmum tíma og að hún væri í örri framþróun í flestum greinum, nema ef vera skyldi í sjónvarpi þar sem ekki hefði verið stuðlað nægi- lega að framgangi hennar. Sagðist Þórhildur vona að úr því rættist. Enginn vaður, ekkert sig, engin egg Sigurður Karlsson, formaður Leikfélags Reykjavíkur, tók því næst til máls og sagði að í sögu leikfélagsins sæi yfír mörg fjöll og dali en á tímamótum sem þessum væri það efst í minni þegar hæstu tindarnir hefðu verið klifnir. Hann sagði að oft hefði verið deilt í sögu félagsins en gleðistundirnar stæðu samt sem áður upp úr. Sigurður vék þó í stuttu máli að þeim deilum sem staðið hafa um félagið og hið nýja Borgarleikhús undanfarin misseri. Minnti hann á að það hefði fyrst og fremst vakað fyrir ráðamönnum Reykjavíkurborgar á sínum tíma að reisa hús yfir starfsemi leikfélagsins en ekki yfir starfsemi annarra fé- laga. Sigurður sagði að leikfélagið hefði legið undir ámæli fyrir að hafa ekki nýtt húsið til fullnustu, fyrir að vera ekki nógu stórt inn í þetta stóra hús. Ástæðan fyrir því að húsið væri vannýtt af félaginu væri hins vegar ekki sú að félagið væri of lítið heldur sú að fjárveiting- ar til þess hefðu ekki aukist eins og væntingar stóðu til þegar flutt var inn í húsið. Sagði Sigurður að það væri ósk félagsins á þessum tímamótum að það kæmist út úr þessum vítahring með hjálp opin- berra aðila. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, sagði að það væri aðeins ein og ein hjáróma rödd sem hefði heyrst um að sú von hefði ekki gengið eftir að Borgarleikhúsið yrði rammi utan um leikfélagið. Sagði Davíð að borg- aryfírvöldum bæri að sjá til þess að leikfélagið gæti haldið áfram fullri starfsemi í húsinu en án nægi- legs fjárhagslegs stuðnings myndi félagið ekki þrífast; þegar sigið væri í bjarg eftir eggjum þyrfti traustan vað; enginn vaður, ekkert sig, engin egg. Astir samlyndra hjóna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, sagði í ræðu sinni að Leikfélag Reykjavíkur hefði oft klif- Morgunblaðið/Golli FJÖLMARGIR gestir voru viðstaddir hátíðardagskrá í Borgarleikhúsinu á sunnudagskvöld í tilefni af ald- arafmæli Leikfélags Reykjavíkur. Ræðuhöld og skemmtiatriði voru lífleg eins og sjá má á viðbrögðum gesta. Gjafir voru afhentar Leikfélaginu og leikskáld og leikarar verðlaunuð. Leikskáld verðlaunuð og leikarar styrktir FYRSTU verðlaun í leikverkasam- keppni sem efnt var til í tilefni af afmæli Leikfélags Reykjavíkur hlaut Þór Rögnvaldsson fyrir Ieik- ritið Búasögu. Þór fékk 500.000 í verðlaun en auk þess er mælt svo um af dómnefnd að verkið verði frumsýnt í Borgarleikhúsinu að ári liðnu, eða þann 11. janúar árið 1998. Önnur verðlaun að upphæð krónur 300.000 féllu í hlut Ben- ónís Ægissonar fyrir leikritið Hörpusláttur daufra. Og þriðju verðlaun að upphæð krónur 200.000 hlaut Jónína Leosdóttir fyrir leikritið Sælustundir. í dómnefnd sátu Hanna María Karlsdóttir, Sigurður A. Magn- ússon og Þórhildur Þorleifsdóttir. Halldóra og Margrét styrktar Geir Borg, sonur Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu, af- henti styrk úr sjóði móður sinnar til tveggja ungra leikkvenna, Halldóru Geirharðsdóttur og Margrétar Vilhjálmsdóttur. Hlaut hvor þeirra 350.000 krónur en styrkurinn er ætlaður til að standa undir frekara námi erlendis. Lagði áherslu á menntun leikara Geir Borg sagði að sá misskiln- ingur hefði lengi verið uppi að Stefanía hefði aldrei hlotið neina menntun í leiklist og því hafi menn ekki álitið list hennar rista djúpt. Geir sagði að hið rétta væri að Stefanía hefði notið leiðsagnar í Konunglega leikhúsinu í Kaup- mannahöfn leikárið 1904 til 1905 og hefði það verið henni dýrmætur skóli. Sagði Geir að hún hefði ætíð lagt mikla áherslu á að menntun væri leikurum mikilvæg og því væri þessi styrkur afhentur nú. Morgunblaðið/Golli VERÐLAUNAHAFAR í leikverkasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur; Þór Rögnvaldsson, sem hlaut fyrstu verðlaun, Jónína Leosdóttir, sem hlaut þriðju verðlaun, og Benóní Ægisson, sem hlaut önnur verðlaun. GEIR Borg afhendir leikkonunum, Margréti Vilhjálmsdóttur og Hall- dóru Geirharðsdóttur, styrk úr sjóði Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu. ... hundr- að ár dag- ur, ei meir Efnt var til hátíðardagskrár í tilefni af aldaraf- mæli Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhús- inu á sunnudagskvöld. Vinir og velunnarar leikfélagsins tóku til máls, fluttu því kveðjur sínar með skemmtiatriðum og gáfu því gjafír. Þresti Helgasyni og fleirí gestum kom það hins vegar á óvart hvað ræðumenn eyddu miklu púðri í að senda borgaryfírvöldum tón- inn og skammast í Ríkissjónvarpinu fyrir dag- skrárstefnu þess og leiklistargagnrýni. STEFÁN Baldursson, þjóðleikhússtjóri, færði Leikfélagi Reykjavíkur málverk að gjöf en í ræðu sinni sagði hann Ríkissjónvarpið eitra fyr- ir íslenskri list með leiklistargagnrýni sinni. Morgunblaðið/Halldór ÞÓRHILDUR Þorleifsdóttir, leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, á hátíðarstund ásamt eiginmanni sínum, Arnari Jónssyni, og samstarfs- manni, Þorsteini Gunnarssyni. VIGDÍS Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti og formaður afmælisnefndar, stýrði hátíðar- dagskránni í Borgarleikhúsinu á sunnudagskvöld. INGIBJORG Sólrún Gísladóttir sagði að stundum hefðu komið brestir í hjónaband leikfélagsins og borgarinnar en það væri ekki meira en gerðist í ástum annarra samlyndra hjóna. -h DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð- herra, sagði að aðeins ein og ein hjáróma rödd hefði heyrst um að sú von hefði ekki gengið eftir að Borgarleikhúsið yrði rammi utan um leikfélagið. SVEINN Einarsson, fyrsti leik- hússtjóri Leikfélags Reykjavík- ur, sagði að leikhús stæði ævin- lega á tímamótum og þegar flæðið væri lítið í kassanum þá dygði framsýnin ein. ið þrítugan hamarinn og að framtíð þess ylti bæði á kjarki og seiglu félagsins sjálfs og á stuðningi al- mennings og hins opinbera. Sagði hún að stuðla þyrfti að því að þessi menningarhöll Reykjavíkur sem Borgarleikhúsið væri myndi rísa sem hæst. Ingibjörg Sólrún sagði að stund- um hefðu komið brestir í hjónaband leikfélagsins og borgarinnar en það væri ekki meira en gerðist í ástum annarra samlyndra hjóna. Vigdís Finnbogadóttir tók undir með Ingi- björgu Sólrúnu að lokinni ræðu hennar og sagði að margir við- staddra myndu vafalaust vilja kveða sáttarorð á milli borgarinnar og leikfélagsins því að félagið elskaði sinn maka. Sveinn Einarsson, fyrsti leikhús- stjóri Leikfélags Reykjavíkur, rakti tilurðarsögu félagsins í stuttu máli og sagði að frá byrjun hafi verið stefnt að því að það stundaði list- sköpun sem væri sambærileg við það sem gerðist best í nágranna- löndunum. Sveinn sagði að leikhús stæði ævinlega á tímamótum og þegar flæðið væri lítið í kassanum væri það framsýnin ein sem dygði. Sveinn taldi að tillögur um að önn- ur félög en Leikfélag Reykjavíkur fengju aðstöðu í Borgarleikhúsinu væru ekki gagnhugsaðar því að slíkt samstarf yrði aldrei farsælt. Affara- sælast væri að styðja frekar við starfsemi leikfélagsins; þar þyrftu umtalsverðar breytingar að verða á því að samkvæmt samanburði við leikhús í nágrannalöndum hefði Borgarleikhúsið úr langminnstu að moða. Árni Ibsen bar leikfélaginu kveðju frá leikskáldafélagi íslands og sagði að það myndi vilja eiga samleið með leikfélaginu; bað hann leikfélagið að bjalla í þau leikskáld- in ef það væri eitthvað að pæla. Dauðans hönd Stefán Baldursson, þjóðleikhús- stjóri, tók í sinni ræðu undir með þeim sem undanfarið hafa haldið því fram að án Leikfélags Reykjavíkur hefði Þjóðleikhúsið sennilega ekki orðið til. Stefán taldi að þeir erfið- leikar sem leikfélagið ætti við að etja nú væru ekki aðeins af fjárhags- legum toga heldur væru þeir einnig innri vanda um að kenna. Sagði Stefán að leikfélagið þyrfti að skoða sjálft sig og innra skipulag sitt gagn- rýnum augum ef úr ætti að rætast. Einnig vildi Stefán leiðrétta þann misskilning að opinber framlög til Þjóðleikhússins væru þrefalt meiri en til Leikfélags Reykjavíkur; rétt væri að þau væru rúmlega helmingi hærri. Auk þess væri það ekki rétt að framlögin til Þjóðleikhússins hefðu hækkað síðustu ár, þau hefðu þvert á móti farið lækkandi að raun- gildi. Stefán gerði Ríkissjónvarpið að umræðuefni sínu og sagði að það hefði ekki staðið sig sem skyldi við að auka leikið íslenskt efni í dag- skrá sinni. Stefán álasaði líka Ríkis- sjónvarpinu fyrir leiklistargagnrýni þess sem hann sagði að lægi eins og dauðans hönd á íslensku leikhús- lífi. Sagði hann að það væri sama hversu harðger gróðurinn yrði í garði íslenskra lista, hann væri allt- af hægt að drepa með því að úða yfír hann úr eiturbrúsum. Glæsiveisla á sviðinu Þjóðleikhúsið reið á vaðið með skemmtiatriði kvöldsins. Kór leik- ara söng þijú lög úr leikritinu Litla Kláusi og stóra Kláusi, sem tekið verður til sýninga í Þjóðleikhúsinu á næstunni, og úr Skilaboðaskjóð- unni eftir Þorvald Þorsteinsson. Örn Ámason, leikari, var með óvænta uppákomu þar sem hann flutti stutta óperu fyrir tenór, sópran og bassa; fór Örn með öll hlutverkin sjálfur við geysigóðar undirtektir þrátt fyrir nokkrar þagnir og handapat þegar kom að lágum nót- um bassans. Trausti Ólafsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, flutti stutt ávarp og Ingibjörg Ólafsdóttir, sópran, söng aríu Rósalindu úr Leð- urblökunni eftir Jóhann Strauss yngri sem sýnd var fyrir norðan fyrir skömmu. Katrín Hall, listdansstjóri ís- lenska dansflokksins, árnaði Leik- félagi Reykjavíkur heilla og kynnti dansflokk sinn sem flutti brot úr verki Jochens Ulrichs, La Cabina 26, sem frumflutt verður í Borgar- leikhúsinu í febrúar. María Kristjánsdóttir, leiklistar- stjóri Ríkisútvarpsins, hélt -stutta tölu og lék síðan upptökur úr safni útvarpsins með ljóðalestri Þorsteins Ö. Stephensens. Því næst flutti Garðar Cortes, óperustjóri, nokkur hlý orð til Leik- félags Reykjavíkur og stjórnaði síð- an söng kórs Islensku óperunnar á þremur lögum. í lok dagskrárinnar flutti Hljóm- skálakvintettinn þijú lög áður en slegið var upp glæsilegri veislu á sviði Borgarleikhússins. Morgunblaðið/Golli VALUR Valsson færði Leikfé- lagi Reykjavíkur 1.000.000 krónur að gjöf frá Menningar- sjóði Islandsbanka. Gjafirtil afmælis- bamsins MARGAR og veglegar gjafir bár- ust Leikfélagi Reykjavíkur í tilefni af afmælinu. Valur Valsson, bankastjóri ís- landsbanka, færði leikfélaginu 1.000.000 krónur að gjöf úr menn- ingarsjóði bankans en stjórn hans skipa ásamt Val, Brynjólfur Bjarnason og Matthías Johannes- sen. Einnig tileinkaði bankinn dagatal sitt þetta ár leikfélaginu en í því eru myndir af ýmsum brautryðjendum íslenskrar leik- listar. Við afhendingu gjafanna rifjaði Valur upp tengsl íslands- banka og Leikfélags Reykjavíkur. Sagði hann að á tímabili hefði um fjórðungur starfsmanna bankans verið á einn eða annan hátt tengd- ur starfsemi leikfélagsins. Þjóðleikhúsið færði leikfélaginu málverk að gjöf eftir Helga Þorg- ils Friðjónsson. Verkið heitir Speglun. Edda Þórarinsdóttir færði leik- félaginu styrk til útgáfu á riti um sögu þess að upphæð krónur 500.000 fyrir hönd Félags ís- lenskra leikara. Félag íslenskra leikstjóra styrkti útgáfu ritsins einnig með 100.000 króna fram- lagi. Pétur Einarsson, formaður félagsins, afhenti styrkinn og ósk- aði leikfélaginu góðs gengis í framtiðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.