Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsfólk óskast
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍKUR
Verkamannafélagið
Hlíf
í hlutastörf.
Starfsreynsla í blómaverslun skilyrði.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Blómaverkstæði Binna - 4366“.
Sölumaður
Heildverslun, með heimilistæki og raf-
magnsvörur, óskar eftir að ráða sölumann
til framtíðarstarfa.
Starfið felst aðallega í sölu- og þjónustu-
störfum í verslun fyrirtækisins, en einnig í
sölu útávið og öflun nýrra viðskiptasam-
banda.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé þjón-
ustulundaður, hafi áhuga fyrir sölu- og mark-
aðsmálum og vilja sanna sig í starfi.
Reyklaus vinnustaður. Bíll skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar
nk. Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14.
Fólk og þekking
Lidsauki ehf.
Skipholt 50c, 105 Reykjavlk sími 562 1355. fax 562 1311
Leikskólar Reykjavíkurborgar
óska að ráða eftirtalið starfsfólk í neðan-
greinda leikskóla:
Ásborg/Dyngjuvegi
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Kristín Dýr-
fjörð, í síma 553 1135.
Hamraborg/Grænuhlíð
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu og 50% stöðu eftir
hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Guðríður
Guðmundsdóttir, í síma 553 6905.
Múiaborg/Ármúla
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sigríður
Pálsdóttir, í síma 568 5154.
Nóaborg/Stangarholti
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 50% stöðu eftir hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Soffía Zop-
honíasdóttir, í síma 562 9595.
Rofaborg/Skólabæ
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í skilastarf frá kl. 15.30-17.30 á
daginn.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Þórunn
Gyða Björnsdóttir, í síma 567 2290.
Suðurborg/Suðurhólum
Leikskólakennarar og annað uppeldismennt-
að starfsfólk í tvær 100% stöður.
Upplýsingar gefa leikskólastjórar, Elínborg
Þorláksdóttir og Bryndís Stefánsdóttir, í síma
557 3023.
Sunnuborg/Sólheimum
Leikskólakennara og annað uppeldismennt-
að starfsfólk í 100% stöðu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Ingibjörg
Jónsdóttir, í síma 553 6385.
Eldhús
Rofaborg/Skólabæ
Matráður í 100% stöðu frá 1. febrúar.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Þórunn
Gyða Björnsdóttir, í síma 567 2290.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277.
Dagdeild A-3
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á dag-
deild A-3 sem er opin 5 daga í viku á dagvin-
nutíma. Starfsemi deildarinnar er þrískipt;
móttökudeild, dagdeild og þvagrannsóknir.
Frekari uppiýsingar veita Kolbrún Sigurðar-
dóttir, deildarstjóri, í síma 525 1577 og
Margrét Tómasdóttir, hjúkrunarfram
kvæmdastjóri, í síma 525 1306.
Kerfisfræðingur
f notendaþjónustu
Eimskip óskar eftir starfsmanni í notenda-
þjónustu fyrirtækisins.
Notendaþjónustan svarar fyrirspurnum um
hug- og vélbúnað, greinir vandamál og af-
greiðir þjónustubeiðnir, jafnframt því að hafa
umsjón með samskiptum og almennri þjón-
ustu upplýsingavinnslu félagsins. Þjónustan
er fyrir alla tölvunotendur Eimskips, bæði
innanlands og á skrifstofum félagsins erlend-
is. Tölvuumhverfið er byggt á IBM AS/400
tölvum og umfangsmiklu neti einkatölva.
Alls eru útstöðvar um 480 í 10 löndum.
Óskað er eftir starfmanni með:
• Menntun á tölvusviði.
• Þekkingu á AS/400 tölvuumhverfi.
• Reynslu í notkun almennra hugbúnaðar-
pakka, t.d. Word, Excel.
• Góða enskukunnáttu.
• Skipulagshæfileika.
• Eiga auðvelt með mannleg samskipti.
Þjónustulipurð er nauðsynleg.
Umsóknir um starfið leggist inn í starfsþró-
unardeild Eimskips, Pósthússtræti 2,
í síðasta lagi 17. janúar 1997.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með
þær sem trúnaðarmál.
EIMSKIP
EIMSKIP leggur áherslu á aö auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum
hjá félaginu og þar með stuöla að því að jafna stöðu kynjanna á
vinnumarkaði.
Gunnlaugur Scheving
Óskum eftir myndum eftir Gunnlaug Scheving.
Hafið samband sem fyrst.
BÖRG
Málverk -
gömlu meistararnir
Fyrir fjársterka aðila leitum við að góðum
verkum gömlu meistaranna, t.d. Kjarvals,
Jóns Stefánssonar, Gunnlaugs Scheving,
Kristínar Jónsdóttur og Jóhanns Briem.
Höfum einnig kaupanda að góðri hafnarmynd
eftir Gunnlaug Blöndal, t.d. frá Reykjavíkur-
höfn eða Siglufirði.
Vinsamlegast hafi samband við Gallerí Borg
í síma 552 4211. Opið virka daga kl. 12-18.
éraélabc
BÖRG
sími 552 4211.
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kosningu stjórnar og í
aðrar trúnaðarstöður í Verkamannafélaginu
Hlíf á árinu 1997.
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs
Verkamannafélagsins Hlífar um stjórn og
aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1997
liggja frammi á skrifstofu Hlífar frá og með
þriðjudeginum 14. janúar 1997.
Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hlíf-
ar, Reykjavíkurvegi 64, fyrir kl. 16, þriðjudag-
inn 21. janúar 1997 og er þá framboðsfrest-
ur útrunninn.
Kjörstjórn
Verkamannafélagsins Hlífar.
Tilkynning til þeirra, sem eiga að
skila skattaframtali til Bandaríkjanna
Fulltrúi frá bandarísku skattayfirvöldunum
(Internal Revenue Service), David Morris,
verður til viðtals í Sendiráði Bandaríkjanna,
Laufásvegi 21, Reykjavík, 21. og 22. janúar
1997. Fulltrúinn mun veita svör við spurning-
um varðandi bandarísku skattalöggjöfina. Ef
óskað er viðtals, þá vinsamlega pantið tíma
í síma 562 9100.
Notice to U.S. citizens and
resident aliens
To provide assistance in matters relating to
U.S. Federal tax laws, the U.S. Internal Re-
venue Service will send to Reykjavík Mr.
David Morris, Taxpayer Assistance Special-
ist. Mr. Morris will be available to answer
questions regarding U.S. Federal Income
Taxes on the 21 st and 22nd of January 1997
at the American Embassy, Laufásvegur 21,
Reykjavík. Please call 562-9100 to make an
appointment for assistance.
Landsskrifstofa Leonardó
lýsir eftir umsóknum um styrki til
starfsþjálfunaráætlunar ESB
Leonardó da Vinci.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 1997.
Kynningarfundur um Leonardó,
forgangsatriði 1997 og hvernig ber að
standa að umsókn verður haldinn
fimmtudaginn 16. janúar kl. 15:30 -17:00
í Tæknigarði, Dunhaga 5, Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar á
Landsskrifstofu Leonardó í síma 525 4900
LANDSSKRIFSTOFA
LEONARDÓ
pf03»dm
LfONA ÞA