Morgunblaðið - 29.01.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
GUÐMUNDUR Gunnarsson ræsir vélar nýju verksmiðjunnar.
Ný fiskimjölsverksmiðja HB tekin í notkun
Afkastagetan 1.000
tonn á sólarhring
Akranesi. Morgunblaðið.
Hafís 5
mílur frá
Horni
HAFÍS er nú í innan við 20 sjómílna
fjarlægð frá landi á Vestíjörðum, allt
frá Barða og norður að Homi, þar
sem ísröndin var 5 sjómílur frá landi
þegar Landhelgisgæslan flaug yfir í
gær. Næstu daga er spáð óhagstæð-
um veðurskilyrðum, að sögn Þórs
Jakobssonar, hafíssérfræðings Veð-
urstofu íslands, og má því búast við
að ísinn færist nær landi.
Fram að helgi er spáð vestlægum
vindum, sem eru óhagstæðir með til-
liti til meginíssins á Grænlandssundi,
að sögn Þórs Jakobssonar. Á fimmtu-
dag er spáð norðvestlægum áttum
sem munu sennilega færa ísinn nær
landi í grennd við Hom. Um helgina
er gert ráð fyrir að lægð með suðaust-
lægum áttum þoki ísnum frá landi.
Þegar ískönnunarflugið var farið í
gær var óttast að siglingaleiðin fyrir
Hom kynni að vera lokuð vegna íss,
en svo reyndist ekki vera. Að sögn
Landhelgisgæslunnar var flutninga-
skip á ferð fyrir Hom þegar flogið
var yfir. isinn undan VestQörðum er
allþéttur, að sögn Þórs Jakobssonar,
en samkvæmt mælingum Landhelg-
isgæslunnar þakti ísbreiðan víðast
hvar frá 4-6/10 hlutum og upp í
7-9/10 hluta yfirborðs sjávar. Norð-
austur af Homi vom þéttar ísspangir
og við ísjaðarinn vestan við 25°var
um 10 sjómílna breitt belti af nýmynd-
unarís.
NY fiskimjölsverksmiðja Haraldar
Böðvarssonar hf. á Akranesi hefur
verið tekin í notkun en verksmiðjan
mun framleiða hágæðamjöl og
verður sú afkastamesta hér á landi
við slíka framleiðslu. Afkastageta
hennar er um eitt þúsund tonn á
sólarhring. Elliði GK landaði fyrsta
farminum sem unninn var í verk-
smiðjunni, alls 430 tonnum af síld.
Framkvæmdir við hina nýja verk-
smiðju hafa staðið yfir frá því í
maímánuði sl. og hafa gengið mjög
vel. Gert er ráð fyrir að kostnaður
við framkvæmdirnar verði um 850
milljónir króna. Miklar breytingar
hafa orðið á umhverfi verksmiðj-
unnar. Byggðir hafa verið geymar
undir hráefni og mjöl auk þess sem
húsakynni verksmiðjunnar hafa
verið stækkuð verulega. Þá er vél-
búnaður nýr. Þessar framkvæmdir
hafa skapað mikla vinnu fyrir iðn-
aðar- og tæknimenn og hafa allar
framkvæmdir gengið eins og í sögu.
Framleiðsla hafin
Verksmiðjan var formlega tekin
í notkun sl. íaugardag við hátíðlega
athöfn. Það kom í hlut fyrrverandi
starfsmanns verksmiðjunnar, Guð-
mundar Gunnarssonar verkstjóra,
að ræsa vélbúnaðinn og með því
hófst framleiðsla í nýju verksmiðj-
unni. Guðmundur starfaði um ára-
bil í gömlu verksmiðjunni en hefur
nú látið af störfum fyrir aldurs sak-
ir. Sr. Björn Jónsson, prófastur á
Akranesi, ávarpaði viðstadda við
þetta tækifæri og flutti blessunar-
orð.
Nú eru liðin rétt 60 ár frá því
hlutafélag um rekstur fiskimjöls-
verksmiðju var stofnað á Akranesi.
Þar tóku höndum saman aðilar
tengdir fískvinnslu svo og almenn-
ingur á Akranesi um að koma verk-
smiðjunni á fót.
íslenskur hestakaupmaður í Danmörku seldi hryssu með röngu upprunavottorði
Notfærði sér veikleika
í skráningarkerfinu
ÍSLENSKUR hestakaupmaður, búsettur í Dan-
mörku, virðist vísvitandi hafa notfært sér veik-
leika sem var í skráningarkerfi Félags hrossa-
bænda á árinu 1992 þegar hann fékk uppruna-
vottorð með röngum upplýsingum um hryssu sem
hann seldi dönskum hjónum sem reka hrossabú-
garð á Nýja-Sjálandi. Kristinn Hugason, hrossa-
ræktarráðunautur Bændasamtaka íslands, segir
hrapallegt að maðurinn skuli hafa haft svona
rangt við.
„Til þess að fulltryggja okkur þurfum við að
koma á enn meiri gæðastjórnun. Þetta mál er
áminning, en það eru alltaf að koma upp mál
þessu skyld og eins hafa verið að koma upp í
gegnum árin mál þar sem menn segja hross
vera undan hinum eða þessum hestinum og svo
hefur það verið kannað með blóðflokkun og
ekki getað staðist," sagði Kristinn í samtali við
Morgunblaðið.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að
dönsku hjónin hefðu keypt hryssu sem sam-
kvæmt hinu ranga upprunavottorði var sögð
vera undan Hrafni 802 frá Holtsmúla, en hið
rétta er að hryssan er undan Fal 82135004 frá
Syðstu-Fossum, sem reyndar er sonur Hrafns,
en þykir lakari hestur og hefur hann verið gelt-
ur. Hrossaræktandi sá sem hryssuna seldi upp-
haflega gaf Félagi hrossabænda upplýsingar um
uppruna hryssunnar um hálfu ári eftir að hún
var seld úr landi og voru þær upplýsingar skráð-
ar í gagnavörslukerfið Feng. Kristinn Hugason
sagði að misræmið hefði svo komið í ljós þegar
hann var að dæma hross í Danmörku í fyrra-
vor, og upplýsingamar sem fylgdu hryssunni
pössuðu ekki við það sem skráð var í Feng.
Ljósrit af réttu vottorði fylgdi hryssunni
Maður búsettur hér á landi keypti hryssuna
af ræktandanum og seldi íslenska hestakaup-
manninum í Danmörku hana ásamt fleiri hross-
um. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
hélt seljandinn eftir rétta upprunavottorðinu sem
útgefíð var 27. apríl 1992 og lét hann ljósrit
af vottorðinu fylgja með hryssunni, en ekki tíðk-
ast að afhenda upprunavottorð fyrr en full
greiðsla hefur borist fyrir það hross sem verið
er að selja. íslenski kaupandinn í Danmörku
hringdi skömmu síðar í starfsmann Félags
hrossabænda sem sá um útgáfu upprunavottorða
á þessum tíma og kvaðst hafa glatað uppruna-
vottorðinu, og fékk hann nýtt vottorð með þeim
röngu upplýsingum sem hann gaf upp um upp-
runa hryssunnar. Seldi hann dönsku hjónunum
svo hryssuna með því vottorði.
Lögreglurannsókn á málinu hefur staðið yfir
í Danmörku frá því í haust og hefur útflytjandi
hestsins gert þar grein fyrir sínum þætti og lagt
fram rétta upprunavottorðið. Hlé er nú á rann-
sókninni vegna vetrarleyfis þess sem hana hefur
annast, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa dönsku hjónin ekki lagt fram kæru á hend-
ur útflytjandanum þar sem þau telja hann ekki
hafa aðhafst neitt ólöglegt við sölu hryssunnar.
Örmerkja þarf öll folöld
Kristinn Hugason sagði að á sínum tíma hefði
hann margsinnis varað við því innan bændasam-
takanna að mál af þessu tagi gætu komið upp,
og því hefði hann verið andvígur þeim aðferðum
sem viðhafðar voru við útgáfu upprunavottorða
á þessum tíma. Bændasamtök Islands sjá nú
um útgáfu upprunavottorða og sagði Kristinn
að það mál væri komið í eins gott horf og kost-
ur væri, en um 80% lífhrossa eru nú skráð í
gagnavörslukerfið Feng og eru útflutningsvott-
orð borin saman við skráninguna i Feng.
„En við íslendingar getum ekki borið höfuðið
verulega hátt í sambandi við skýrsluhald í
hrossarækt fyrr en við höfum farið út í það
kerfi að örmerkja öll folöld þegar þau ganga
ennþá undir mæðrum sínum og grunnskrá hross-
ið strax með örmerkinu. Um leið þarf í mjög
mörgum tilfellum að stemma af ættfærslur með
blóðflokkun eða DNA-greiningu.
Ég er núna að reyna að vinna að því innan
stjórnkerfísins að þetta verði gert að skilyrði og
mér finnst raunverulega að það megi ekkert
hross fara úr landi öðruvísi en að það sé ör-
merkt, ættir þess samræmdar og örmerkið komi
fram á upprunavottorðinu," sagði Kristinn.
Kristján í
Metro-
politan
óperunni
KRISTJÁN Jóhannsson syng-
ur í Cavalleria Rusticana
Mascagni í Metropolitan óper-
unni í New York í kvöld.
Óperan var frumsýnd 6. jan-
úar og tekur
Kristján við
tenórhlut-
verkinu af
Fabio Armil-
iato og syng-
ur alls í fimm
sýningum,
hinar fjórar
verða 1., 5.,
8. og 13.
febrúar.
Kristján mun svo taka við
af Luciano Pavarotti í Valdi
örlaganna eftir Verdi 19. febr-
úar. I þeirri sýningunni mun
hann einnig syngja fímm sinn-
um, 22. og 27. febrúar, 4. og
7. mars.
Hópútkall vegna
snjóflóðs í Esjunni
Barst ekki
öllum
sveitum
VEGNA misskilnings barst út-
kall vegna manna sem lentu í
snjóflóði í Esjunni um fyrri helgi
of seint til nokkurra af þeim
björgunarsveitum sem kalla átti
út, meðal annars Flugbjörgun-
arsveitarinnar.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er ástæðan sú að
símboðanúmer þessara sveita
eru ekki undir stöðluðu hópút-
kalli í útkallskerfi heldur undir
sérheitinu undanfarar. Um-
ræddar sveitir fengu þó fljót-
lega vitneskju um slysið Og
björgunaraðgerðir tókust vel,
sem kunnugt er.
Þegar snjóflóðið varð, var í
fyrsta sinn kallað út alisheijar-
hópútkall með nýju útkalls-
kerfi. Með því á að vera hægt
að kallá út ailar sveitir á nokkr-
um sekúndum. Kerfíð sjálft
virkaði vel og að sögn heimild-
armanna Morgunblaðsins hefur
nú verið komist fyrir þann mis-
skilning sem varð.
Níu bílar skemmd-
ust í Akraborg
Tryggingar
bæta tjónið
NÍU bílar urðu fyrir skemmd-
um á sunnudag þegar Akra-
borgin fékk á sig hnút og tók
snaggaralega veltu þannig að
bílarnir um borð runnu til.
Að sögn Helga Ibsen, fram-
kvæmdastjóra Skallagríms
hf., sem rekur Akraborgina,
gerðist þetta á leið ferjunnar
frá Akranesi til Reykjavíkur
síðdegis, en þá var mjög vont
í sjóinn. Hann segir hins vegar
að Akraborgin hafi verið búin
að sigla í mun verra veðri fyrr
um daginn.
Sjóvá-Almennar, sem er
tryggingafélag Skallagríms
hf., er að meta tjónið á bílun-
um en eigendur þeirra munu
fá skemmdirnar að fullu bætt-
ar, að sögn Helga.