Morgunblaðið - 29.01.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Stjórn Mjólkursamsölunnar í Reykjavík
Hefur áhyggjur
af Grundartanga
MJÓLKURSAMSALAN í Reykja-
vík skorar á stjórnvöld að hvika í
engu frá ýtrustu kröfum um meng-
unarvarnir og forðast eins og frek-
ast er unnt að velja stóriðjufram-
kvæmdum stað innan gjöfulla land-
búnaðarhéraða.
í kjölfar þeirrar umræðu sem
Sími 555-1500
Höfum kaupanda
að 200—250 fm einbhúsi á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Engin skipti.
Sumarbústaður
Til sölu góður ca 50 fm sumarbústað-
ur í landi Jarðlangsstaða ( Borgarfirði.
Eignarland hálfur hektari. Verð: Til-
boð.
Kópavogur
Digranesheiði
Gott ca 120 fm einbýli auk ca 35 fm
bilskúrs á þessum vinsaela stað. Áhv.
húsbr. ca 2,4 millj. Verð 11,5 millj.
Garðabær
Hlíðarbyggð
Til sölu ca. 200 fm endaraðhús. Verð
11,5.
Stórás
Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm bíl-
sk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv.
Skipti möguleg á 3ja herb. íb.
Reykjavík
Baughús
Glæsileg ca 90 fm 3ja herb. Ib. I tvlb.
með góðu útsýni. Áhv. ca 2,8 millj.
húsbréf. Verð 8,5 millj.
Skipholt
Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í
fjölb. Verð 2,7 millj.
Hafnarfjörður
Gunnarssund
Til sölu er góð 3ja herb. ib. á jarðh.
Breiðvangur
Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á 2.
hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið
endurn. Ath. skipti á lítilli íb.
Reykjavíkurvegur
Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítið
áhv. Verð 4,3 millj.
Atvinnuhúsnæði
Arnarnesvogur
Til sölu ca 1000 fm atv.húsn. Góð
lofthæð.
Vantar eignir á skrá
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
orðið hefur um staðsetningu og
mengunarvarnarbúnað fyrirhug-
aðrar álverksmiðju á Grundartanga
tekur Mjólkursamsalan undir
áhyggjur bænda og annarra íbúa
á nærliggjandi svæðum, „og minnir
á að hreinleiki íslenskrar náttúru
er sterkasta vopn landbúnaðar og
ferðaþjónustu landsmanna," segir
í ályktun stjórnar Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík.
Þá segir að rannsóknir staðfesti
að aðskotaefni i íslenskri mjólk séu
í algjöru lágmarki en í svipuðum
rannsóknum erlendis megi sjá bein
tengsl milli hreinleika mjólkur og
nálægðar landbúnaðarhéraða við
mengandi verksmiðjurekstur.
„Islendingar hafa sjálfdæmi í
varðveislu náttúrunnar og í þeim
efnum geta landsmenn með stöð-
ugri árvekni lagt grunn að afdrátt-
arlausri sérstöðu meðal þjóða
heims," segir ennfremur. Þá segir
að á komandi árum muni íslenskur
landbúnaður taka þátt í harðvítugri
alþjóðlegri samkeppni. „A því sviði
munu hreinleiki og gæði framleiðsl-
unnar verða helstu haldreipi okkar
og hvort heldur sem litið er til mat-
vælaútflutnings eða ferðaþjónustu
er ljóst að það eru sameiginlegir
hagsmunir þjóðarinnar allrar að
standa öflugan vörð um þá auðlind
sem óspillt náttúra landsins er.“
-----------------
Hálfs vinn-
ings forysta
Þrastar
EFTIR sjö umferðir af ellefu á
Skákþingi Reykjavíkur er Þröstur
Þórhallsson með hálfs vinnings for-
ystu á Braga Þorfinnsson. í sjöundu
umferðinni vann Þröstur sigur á
Sævari Bjarnasyni og Bragi vann
Björgvin Víglundsson. Þröstur er
með 6 'h vinning og Bragi með 6
vinninga.
í 3.-4. sæti eru Tómas Björnsson
og Jón G. Viðarsson með 5 'h vinn-
ing. Tómas vann Viktor Gunnars-
son í fyrrakvöld og Jón G. Viðars-
son vann Harald Baldursson. Átta
kepjiendur eru með 5 vinninga.
Áttunda umferðin verður tefld í
kvöld, miðvikudag, frá klukkan
19.30-24 og er teflt í félagsheimili
TR að Faxafeni 12.
FOSSVOGUR - BÍLSKÚR
Falleg 4ra herb íb. á 1 .hæð ásamt góðum
bílskúr á fallegum útsýnisstað í Fossvogi.
Stórar suðursvalir, nýlegt gler. Hús nýmálað að
utan. í toppstandi. Verð 9,5 millj.
Valhöll, fasteignasala,
sími 588 4477.
Seljaland - Fossvogi
- 4ra herb. íbúð með bílskúr
Vorum að fá í sölu góða 4ra herb. íbúð í 2ja hæða fjölbýli. íbúðin
skiptist í góða stofu mót suðri, 3 svefnherb., eldhús og bað.
Suðursvalir. Góð sameign. Rúmgóður bílskúr með geymslulofti fylgir.
Raðhús við miðborgina
Skemmtilegt hús á tveimur hæðum í næsta nágrenni við
miðborgina. Húsnæðið er alls um 133 fm og skiptist í stóra stofu, 3
svefnherb. og sjónvarpshol m.m. Parket. Nýleg eldhúsinnr.
Glæsilegt útsýni.
Eignasalan
símar: 551 9540 og 551 9191.
FRÉTTIR
Samkeppnisráð um kaup Flugleiða á hlut
í Ferðaskrifstofu Islands
Skilyrði sett við
yfirtökuimi
Flugleiðir hafa tilkynnt Samkeppnisstofn-
un að félagið hyggist kaupa allt hlutafé í
* *
Ferðaskrífstofu Islands. Aður hafði félagið
keypt þríðjung hlutafjár í fyrírtækinu.
Samkeppnisráð hefur sett Flugleiðum skil-
yrði fyrír kaupunum enda telur ráðið að
þau feli í sér yfirtöku á Ferðaskrifstofu
*
Islands.
FLUGLEIÐIR £SS
FERÐASKRi Í! IFSTOFAvl SLANDS 1 fb
ISAMKEPPNISLÖGUM segir
að telji samkeppnisráð að yf-
irtaka fyritækis á öðru fyrir-
tæki leiði til markaðsyfirráða
þess, dragi verulega úr samkeppni
og sé andstæð markmiðum sam-
keppnislaga, geti ráðið ógilt yfir-
töku eða sett henni skilyrði. Guð-
mundur Sigurðsson, yfirlögfræð-
ingur hjá Samkeppnisstofnun, segir
að ekki hafí verið talin ástæða til
þess að ógilda yfírtökuna en nauð-
synlegt að setja henni skilyrði. í
framhaldi af því hefðu hafist við-
ræður við fulltrúa Flugleiða sem
leiddi tii eftirfarandi niðurstöðu.
Níu skilyrði
Skilyrðin sem Flugleiðum eru
sett eru í níu liðum.
1. Þrátt fyrir yfirtöku Flugleiða
hf. á Ferðaskrifstofu íslands skal
Ferðaskrifstofan starfa áfram sem
sjálfstætt fyrirtæki sem verði óháð
Flugleiðum í daglegum rekstri.^
2. í stjórn Ferðaskrifstofu ís-
lands hf. skulu ekki sitja stjórnar-
menn eða starfsmenn annarra
ferðaskrifstofa sem Flugieiðir eða
dótturfélög Flugleiða eiga hlut í.
3. Flugleiðum hf. er óheimilt að
færa einstaka starfsþætti Ferða-
skrifstofu íslands til Flugleiða hf.
sjálfra, dótturfélaga Flugleiða eða
félaga sem Flugleiðir hafa virk yfir-
ráð í. Með þessu er t.d. átt við sölu
og skipulagningu á ferðum, skipu-
lagningu á ráðstefnum eða rekstur
hótela. Um skilgreiningu á hugtak-
inu virk yfirráð vísast til 4. gr.
samkeppnislaga. Skilyrði þetta má
taka til endurskoðunar komi um
það ósk frá Flugleiðum hf.
4. ÖIl viðskipti milii Flugleiða
og Ferðaskrifstofu íslands verði
eins og viðskipti miili óskyldra
aðiia.
5. Flugleiðum er óheimiit að
veita Ferðaskrifstofu íslands mik-
ilvægar viðskiptalegar upplýsingar
sem nýst geta Ferðaskrifstofunni
og keppinautum hennar í dagleg-
um rekstri nema keppninautum
standi sömu upplýsingar til boða.
Með mikilvægum viðskiptalegum
upplýsingum er t.d. átt við: Upplýs-
ingar sem Flugleiðir afla eða fá
vegna viðskipta við keppinauta
Ferðaskrifstofunnar, áform um
nýjungar í starfsemi Flugleiða, fyr-
irspurnir og/eða beiðnir til Flug-
leiða sem leitt geta til umfangsmik-
illa viðskipta í sölu og skipulagn-
ingu á ferðum og skipulagningu á
ráðstefnum eða rekstri hótela.
6. Keppinautum Ferðaskrifstofu
íslands á íslandi í sölu og skipu-
lagningu á ferðum, ráðstefnum eða
rekstri hótela skulu tryggð sam-
bærileg viðskiptakjör og dótturfé-
lög Flugleiða njóta hjá Flugleiðum
og lúta að umræddum rekstri. Öll
frávik í viðskiptakjörum verða að
byggjast á hlutlægum og málefna-
legum ástæðum, s.s. umfangi við-
skiptanna.
7. Keppinautum Ferðaskrifstofu
íslands skulu tryggð sambærileg
viðskiptakjör og hún nýtur í við-
skiptum við Edduhótelin og önnur
hótel sem kunna að vera í rekstri
Ferðaskrifstofunnar. Öll frávik
verða að byggjast á hlutlægum og
málefnalegum ástæðum, s.s. um-
fangi viðskiptanna.
8. Keppninautar Ferðaskrifstofu
Islands á hótelmarkaði hafi sam-
bærilegan aðgang að kynningar-
starfi á söluskrifstofum Flugleiða
hf. og Ferðaskrifstofan hefur. Öll
frávik verða að byggjast á hlutlæg-
um og málefnalegum ástæðum.
9. Flugleiðir hf. skulu tilkynna
Samkeppnisstofnun um kaup fé-
lagsins á hlutum í fyrirtækjum í
ferðaþjónustu á ísiandi. Ennfremur
skal tilkynna Samkeppnisstofnun
verði fyrirtæki í ferðaþjónustu á
íslandi sem Flugleiðir eða dótturfé-
lög eiga meirihluta í, sameinuð að
hluta eða öllu leyti.
Keppinautar annist sjálfir
eftirlit
Guðmundur Sigurðsson segir að
gert sé ráð fyrir því að keppinautar
Ferðaskrifstofunnar hafi sjálfir
eftirlit með því að þessum skilyrð-
um sé fulinægt. „Við ætlum ekki
að hafa nefið ofan í öllum störfum
Flugieiða. Með þessari ákvörðun
eru þessi skilyrði birt og þar með
vita keppinautarnir hvernig við-
skiptin eiga að eiga sér stað. Ef
þeir telja sig hafa rökstuddan grun
um að þeir njóti annarra kjara en
Ferðaskrifstofa íslands er það
þeirra hlutverk að kvarta undan
því við okkur. Við myndum í fram-
haldinu leita upplýsinga og rann-
saka tilefni kvörtunarinnar,“ sagði
Guðmundur.
Guðmundur segir að eignaraðild
Flugleiða að ferðaskrifstofunni
Úrval/Útsýn hafi ekki verið skoðuð
í tengslum við þessa afgreiðslu.
Sú eignaraðild hafi komið til áður
en samkeppnislög tóku gildi og
lögin nái ekki yfír það að öðru leyti
en því sem snúi að sama markaði
og Ferðaskrifstofa íslands starfar
á.
Markmiðið að styrkja
íslenska ferðaþjónustu á
alþjóðamarkaði
Einar Sigurðsson, aðstoðarmað-
ur forstjóra Fiugleiða, segir að
Flugleiðir hafi keypt þriðjung hlut-
afjár í Ferðaskrifstofu Islands og
hafi kauprétt að afgangnum og
hyggist nýta sér hann á þessu ári.
„Það er gengið út frá því í þessum
úrskurði samkeppnisráðs. Við
tryggðum okkur þriðjung í fyrir-
tækinu og tilkynntum síðan sam-
keppnisráði að við hyggðumst nýta
okkur kauprétt að afgangnum,"
sagði Einar.
Hann segir að markmið Flug-
leiða með kaupunum séu einkum
þau að styrkja Ferðaskrifstofu ís-
lands í því verkefni að standa að
uppbyggingu hótela á landsbyggð-
inni. Flugleiðir telji það mikilvægt
en jafnframt fjárfrekt verkefni sem
nauðsynlegt sé að fjársterkur aðili
komi að. Meginmarkmiðið sé hins
vegar að styrkja íslensku ferða-
þjónustuna á alþjóðamarkaði í
samkeppni um ferðamenn.
„Þau skilyrði sem sett eru af
hálfu samkeppnisráðs snerta í
raun og veru ekki þessa tvo þætti.
Þau miða aðallega að því að sam-
keppnisstaðan innanlands milli
fyrirtækja sem þjóna erlendum
ferðamönnum raskist ekki. Við
getum vel unað við þau skilyrði
og teljum að það sé síður en svo
akkur að því fyrir Flugleiðir að
dragi úr þeirri samkeppni,“ sagði
Einar.
Þau verkefni sem Flugleiðir
hyggst takast á við er bygging
fleiri heilsárshótela úti á lands-
byggðinni og að styrkja þá hótel-
aðstöðu sem hefur verið í skólum,
þ.e. Edduhótelin.
„Kröfur erlendra ferðamanna
um þjónustu eru að aukast. Á
heimavistunum er víðast hvar ekki
salernisaðstaða á herbergjum og
þarna er stórt verkefni að gera
þessa aðstöðu markaðshæfa því
hún á í vök að verjast. Við erum
að keppa við ferðaþjónustuna í
Noregi og íriandi og ef okkar upp-
bygging er ekki nógu góð förum
við halloka fyrir öðrum," sagði
Einar.
Markaðshlutdeiid Ferðaskrif-
stofu íslands í hótelstarfseminni
úti á landi mæld í gistinóttum er
16,2%. Nálægt 30 hluthafar eiga
í Ferðaskrifstofu íslands.