Morgunblaðið - 29.01.1997, Side 19

Morgunblaðið - 29.01.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 19 ERLENT Reuter PETAR Stoyanov (t.h.), forseti Búlgaríu, afhendir Nikolai Dobrev, innanrikisráðherra sósíalista, umboð til stjórnarmyndunar. Fjær eru aðrir frammámenn í Sósíalistaflokknum en þeir höfnuðu tilmælum forsetans um kosningar og vilja mynda nýja stjórn. Áskoranir Búlgaríuforseta virtar að vettugi Sósíalistar mynda stjóm Sofiu. Reuter. TALSMENN sósíalista í Búlgaríu, arftaka kommúnista, tilkynntu í gær, að þeir ætluðu að mynda nýja stjórn í landinu. Með því höfnuðu þeir um leið þeirri áskorun Petars Stoyanovs forseta, að orðið yrði við kröfum stjórnarandstöðunnar um nýjar kosningar. Nikolai Dobrev, innanríkisráð- herra og forsætisráðherraefni sós- íalista, kvaðst hafa samúð með því fólki, sem daglega efndi til mót- mæla gegn stjórnvöldum, en sagði stefnt að myndun óháðrar sérfræð- ingastjórnar. Yrði það verkefni hennar að ráða bót á efnahagsöng- þveitinu. Stoyanov, sem tók við embætti í síðustu viku, reyndi að miðla málum milli stjórnarandstöðunnar og sósíalista en án árangurs. Sam- kvæmt stjórnarskránni var hann hins vegar nauðbeygður til að fela sósíalistum, stærsta þingflokknum, að mynda stjórn en í fyrradag skor- aði hann á þá að hafna umboðinu og boða til kosninga. Hóta verkföllum Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa hótað að efna til mótmæla og verkfalla um landið allt myndi sós- íalistar stjórn en hún yrði sú níunda frá því einsflokksræðið var afnum- ið 1989. Sósíalistar hafa þó lofað að efna til kosninga í desember nk., ári áður en til stóð. Dobrev verður að leggja ráð- herralistann fyrir þingið innan viku en stjómarandstaðan bindur nokkr- ar vonir við liðhlaupa úr stjórnar- flokknum, sem hefur annars 125 þingmenn af 240. Óttast átök Heita má, að efnahagslífið í Búlgaríu sé í rúst og hefur ástand- inu í landinu og stjórn sósíalista verið mótmælt daglega á götum úti að undanförnu. Nú hafa ungl- iðasamtök sósíalista ákveðið að mótmæla stjórnarandstöðunni og efna til fundar fyrir framan aðal- stöðvar Sambands lýðræðisflokka á föstudag og telja sumir, að það vaki fyrir þeim að koma af stað átökum. Banameim Bikos gefa sig fram Fara fram á sakaruppgjöf hjá sáttanefndinni Port Elizabeth. Reuter. SUÐUR-afrískir lög- reglumenn hafa játað að hafa myrt blökku- mannaleiðtogann Steve Biko fyrir 20 áram en dauði hans átti mikinn þátt í að snúa heimsbyggðinni gegn Suður-Afríku- stjóm og aðskilnaðar- stefnu hennar. Alex Boraine, vara- formaður svokallaðrar sannleiks- og sátta- nefndar, sagði, að fyrr- verandi starfsmenn ör- yggislögreglunnar hefðu viðurkennt að hafa ráðist á og myrt Stephen Bantu Biko í september 1977. Sagði hann, að lögreglumennirnir hefðu farið fram á uppgjöf saka fyrir nefndinni. Biko var frammámaður í rétt- indabaráttu blökkumanna en lést af völdum höfuðmeiðsla í fangelsi í Port Elizabeth. Hafði hann þá verið mánuð í gæsluvarðhaldi. Eft- ir það var víða litið á hann sem píslarvott í baráttunni gegn að- skilnaðarstefnunni, jafnt utanlands sem innan. Ættingjarnir ósáttir Margir hafa orðið til að gagn- rýna sakarappgjöf sáttanefndar- innar en Boraine sagði, að vegna hennar væri nú ljóst hvernig dauða Bikos bar að höndum. Ættingjar Bikos eru þó ekki sáttir við, að banamönnum hans verði gefnar upp sakir og ekkja hans höfðaði mál á hendur ríkinu í fyrra til að fá lögin um sáttanefndina ógilt. Hún tapaði því. Það eru ijórir fyrrverandi lögreglumenn, sem hafa gefið sig fram í Biko-málinu, og sá fímmti hefur haft sam- band. Fram kemur, * að Biko hafí verið mis- þyrmt við yfírheyrslu í Port Elizabeth og síð- an verið fluttur nakinn og hlekkjaður 1.200 km leið til Pretoríu þar sem hann lést síðar í fangaklefa. Þótt líkami hans bæri barsmíðunum vott, þá komst rann- sóknarnefnd að þeirri niðurstöðu, að enginn væri ábyrgur. í fyrstu var raunar sagt, að hann hefði svelt sig til bana en síðan, að hann hefði tryllst við yfírheyrslu og hlaupið með höfuðið á vegg. -kjami málsins! Steve Biko Sljörnu- spákonan Jeane Dix- on látin Washington. Reuter. STJÖRNUSPÁKONAN Jeane L. Dixon, sem varð heimsfræg fyrir að spá um örlög stjórn- málamanna og kvikmynda- stjarna, lést af hjartaáfalli á laugardag. Hún var 79 ára gömul. Dixon var dóttir þýskra inn- flytjenda. Hún varð fyrst fræg þegar hún sagði til um það að John F. Kennedy Banda- ríkjaforseti mundi deyja í embætti, þótt hún nefndi hann ekki á nafn. Árið 1956 skrifaði hún grein í tímaritið Parade að ungur maður með blá augu og þykkt og mikið hár yrði kjörinn forseti árið 1960 og mundi láta lífið í embætti árið 1963. Hún sagði síðar að í grein- inni hefði staðið að umræddur forseti yrði myrtur, en ritstjór- ar tímaritsins tóku það út úr greininni. Fleiri spár Dixon rættust. Hún spáði því að kommúnistar kæmust til valda árið 1944 og árið 1949 sagði hún að Richard M. Nixon yrði ein- hvem tíma forseti. Hún sagði árið 1977 að kjarnakona mundi setjast í valdastól á Bretlandi sem „nýr Churchill". Tveimur árum síðar varð Margaret Thatcher forsætis- ráðherra. Dálkur hennar var birtur í rúmlega 800 dagblöðum um allan heim þegar hún lést. Tveir góðir í SUZUKIVITARA JLX, 5-dyra: aðeins 1.940.000 KR. BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins IBALENO WAGON 4WD SUZUKI AFL OG ÖRYGGI Prufukeyrðu Suzuki í dag. Taktu nokkrar beygjur, finndu þcegilegan gír. Mjúkur og léttur - eins og akstur á ao vera. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf. Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.