Morgunblaðið - 29.01.1997, Side 21

Morgunblaðið - 29.01.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 21 Fjárhirðar með fjallalömb TVÖ lömb gægjast upp úr bak- pokum fjárhirða sem tóku þátt í árlegri göngu í bænum Schwyz í Sviss. Fjárhirðar úr fjalllendinu og fjölskyldur þeira halda til bæjarins, ganga um götur hans, og kynna fjárbúskap til fjalla, þar með talið fé og göngubúnað. Enn eitt hneyksl- ismál í belgísku stjóminni Brussel. Reuter. BELGÍSKA ríkisstjórnin reynir nú að standa af sér nýtt hneykslismál sem tengist meintri spillingu Sósíali- staflokks Vallóna. Er hart lagt að flokknum að yfirgefa ríkisstjómina. Lögregla gerði í gær húsleit á skrif- stofum flokksins. Magda de Galan, félagsmálaráð- herra úr Sósíalistaflokknum, sagði flokkinn hafa fengið skýr skilaboð frá forsætisráðherranum, Jean-Luc Dehaene, um að flokkurinn gerði hreint fyrir sínum dyrum og að leitt yrði í ljós hver væri ábyrgur í nýja hneykslismálinu. Hún neitaði hins vegar að flokkurinn væri á leið úr stjóminni eins og leiðtogi fijálslyndra, sem em í stjómarandstöðu, hefur krafist. Auk sósíalista eru flæmskir sósíalistar og flæmskir og vallónskir kristilegir demókratar í stjóm. Flokkurinn er sakaður um að hafa þegið mútur af franska flug- vélaframleiðandanum Dassault. Voru tveir fyrrverandi embættis- menn Sósíalistaflokksins, Merry Hermanus og Frangois Pirot, hand- teknir í síðustu viku vegna rann- sóknar á málinu. Dassault neitar að hafa borið mútur á flokksmenn en tvímenningarnir hafa nú verið ákærðir fyrir spillingu. Segir í ákæruskjalinu að þeir hafi þegið um 30 milljónir belgískra franka, um 65 milljónir ísi. kr. greiðslu frá Dassault árið 1989 fyrir hönd flokksins. Þeir fullyrða að hátt- settir menn innan flokksins, þeirra á meðal leiðtogi hans á þessum tíma, Guy Spitaels, hafi vitað af greiðslun- um en hann neitar því. Hann neydd- ist til að segja af sér árið 1994 vegna ákæra um að flokkurinn hefði þegið mútur frá Augusta-þyrluframieið- andanum en það hneykslismál varð til þess að Willy Claes, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, varð einnig að segja af sér. Gagnrýni á ráðherra vísað Helsinki. Morgunblaðið. RÉTTARKAN SLARI Finnlands, Jorma S. Aalto, hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert sé hæft í grun- semdum um að Aija Alho íjármáia- ráðherra hafí ljóstrað upp um ríkis- leyndarmál. Nokkrir bankaráðsmenn fínnska seðlabankans höfðu krafist þess að kannaðir yrðu starfshættir ráðherrans í sambandi við tengingu finnska marksins við gengiskerfí Evr- ópuþjóða, ERM, í októbermánuði. Ný gögn hafa, að sögn réttar- kanslara, leitt í ljós að engar sann- anir séu fyrir því að að Alho hafi sagt frá markmiðum Finna varðandi gengisskráningu marksins innan ERM. Hafnar voru samningaviðræð- ur um tengingu marksins samkvæmt leynilegri ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar föstudaginn 11. október. Þá var það í verkahring Alho að láta fjár- málaráðherra Evrópusambandsins ábug og framkvæmdastjórn þess vita af áformum Finna. Þegar viðræður hófust næsta dag virtist, að mati finnsku sendinefnd- arinnar, að hinum ERM-þjóðunum væri kunnugt um markmið Finna varðandi gengisskráningu marksins innan ERM. Johnny Akerholm, deildarsjóri fjármálaráðuneytisins, segist hafa það eftir Alho að hún hafi skýrt fjármálaráðherra Frakka frá markmiðum finnsku ríkisstjórn- arinnar til þess að frönsk stjórnvöld legðust ekki gegn tengingu marks- ins. Alho neitar að hafa sagt þetta. Nokkrir bankaráðsmenn úr röðum stjórnarandstöðunnar kröfðust þess að mál þetta yrði kannað sérstak- lega. Hefur uppákoman verið túlkuð þannig að hér hafi verið um pólitíska togstreitu að ræða en ekki efnislegar ástæður. ERLENT „Við viljum aðeins gæta örvggis okkar“ * Israelar sætta sig við friðarsamkomulafflð við Palestínumenn fremur en að vera því fylgjandi, að mati Hanan Goder, sem segir ísraela ekki hafa dregið samningana um Hebron á langinn, þar sé við Palestínu- menn að sakast „VIÐ erum vissulega í erfiðri aðstöðu. Við erum umkringd þjóð- um sem hafa það á stefnuskránni að afmá okkur og við þurfum í sífellu að reyna að fá fóik til að skilja að við viljum Palestínumönnum ekki illt. Við viljum ekki ráða yfir þeim, við viljum ekki kúga þá eða niðurlægja. Við lifðum helförina af en þó að liðin sé hálf öld, mætum við Hanan enn misskilingi og Goder rangtúlkunum á okk- ar sjónarmiðum. Við leitum ekki hefnda vegna helfararinnar, við viljum aðeins gæta öryggis okk- ar.“ Svo farast Hanan Goder, sendiráðsritara í sendiráði ísraels í Noregi og á íslandi, orð en hann er staddur hérlendis til að ræða við yfirvöld auk þess sem hann hélt í gær fyrirlestur um ástandið í Mið-Austurlöndum í kjölfar Hebron-samningsins. Goder segir friðarsamkomulag- ið ekki hafa markað nein þátta- skil í friðarumleitunum í Mið- Austurlöndum en að það hafi ver- ið skref í rétta átt. „Fólk hafði áhyggjur af því að okkur miðaði ekki áfram heldur aftur á bak en samningurinn hefur fært okkur heim sanninn um að svo er ekki,“ segir Goder. En samningurinn er ekki óum- deildur, um það vitnar atkvæða- greiðslan í israelsku ríkisstjórninni um hann. Ellefu ráðherrar greiddu atkvæði með honum, sjö voru á móti. Á þinginu voru 87 þingmenn honum fylgjandi en 17 á móti og telur Goder það endurspegla frek- ar vilja þjóðarinnar, þó líklega sé of djúpt í árinni tekið að segja að almenningur sé honum fylgjandi, nær lagi sé að segja að meirihlut- inn sætti sig við hann. Drógu samninga á langinn til að ávinna sér stuðning „Jafnvel þótt ríkisstjórnin hafi átt erfitt með að kyngja samn- ingnum og þar sé að finna and- stæðinga hans, verður Netanyahu að standa við þær skuldbindingar sem fyrri ríkisstjórn gerði. Hann hefur ekki látið reka á reiðanum, ég minni á að það var Verka- mannaflokkurinn, iíokkur Shimon Peres, sem frestaði brottflutningi ísraelska hersins frá Hebron, sam- kvæmt Óslóarsamkomulaginu átti hann að verða í mars 1996.“ Er Goder er spurð- ur hvers vegna svo mikill dráttur hafi orðið á Hebron-sam- komulaginu, segir hann að því verði Palestínumenn að svara. „Þeir drógu samningana á lang- inn til að ávinna sér stuðning erlendra ríkja, bæði pólitískan og fjárhagslegan. Þeir létu líta út fyrir að við ætluðum að semja upp á nýtt, til að fá þjóðir heims á sitt band. Þetta er í raun afar skiljanlegt, líklega myndu_ flestir gera þetta ef þeir gætu. ísraels- stjórn var ekki að ganga á bak orða sinna, hún lagði fyrst og fremst áherslu á að gæta öryggis ísraela, sérstaklega landnema, og ég held að það hafi tekist.“ Israelar hafa ítrekað verið sakaðir um að bijóta friðarsam- komulagið við Palestínumenn og segir Goder það ærinn starfa að reyna að leiðrétta það. „Palest- ínumenn láta líta út fyrir að við bijótum friðarsamkomulagið en við höfum hvað eftir annað horft upp á brot af hálfu Palestínu- manna. Þeir hafa rétt til að dæma menn og stinga í fangelsi án þess að við komum þar nærri. Þeir hafa handtekið menn sem myrt hafa ísraela og dæmt í 12-15 ára fangelsi. Sýnt þegar mennirnir eru settir á bak við lás og slá en svo eru þeir sloppnir út viku seinna. Við höfum látið palest- ínsku lögreglunni vopn í té, sem hún hefur skotið á ísraelska her- menn með. Við höfum ennfremur séð palestínska lögreglumenn aka um á stolnum ísraelskum bílum og með stolin vopn. Að ógleymd- um hryðjuverkunum. Frá Óslóar- samkomulaginu 1993 og fram til 1996 voru fleiri Israelsmenn drepnir en á fimmtán árum þar á undan. Er það nema von að menn spyiji sig, hvað hafi áunn- ist. Svarið er, sem betur fer, það að menn hafa fengið von um að ástandið batni.“ Meirihluti landnema ekki heittrúaður Fullyrt hefur verið að æ breið- ara bil sé á milli heittrúaðra gyð- inga og almennings í ísrael en Goder tekur ekki undir það. Segir þetta mikla einföldun, ekki sist af því að nær ómögulegt sé að draga mörkin á milli þeirra sem séu heittrúaðir og hinna sem telji sig trúaða en fylgi þó ekki lögmál- inu í hvívetna. Rétt sé að leiðrétta þann misskilning að meirihluti landnema sé heittrúaður, sú sé ekki raunin. „Flestir eru einhvers staðar mitt á milli þess að vera heittrúaðir og trúlausir og um þessa miðju takast stóru fiokkarn- ir tveir, Verkamannaflokkurinn og Likud-bandalagið. Þessi „miðja“ færist til og frá, í síðustu kosningum færðist hún yfir til Likud.“ Landnám gyðinga nærri byggðum Palestínumanna hefur verið mörgum þjóðum þyrnir í augum og segist Goder sýknt og heilagt svara spurningum um það. „Við teljum okkur einfald- lega hafa rétt til þess að búa þar sem við viljum í landi okkar. Það er ekki rétt að þess séu ekki for- dæmi að gyðingar búi í borg á borð við Hebron, ég get tekið sem dæmi að amma mín fæddist þar. Þótt fjölskyldan sé flutt þaðan, hef ég rétt til þess að flytja þang- að ef ég vil, rétt eins og aðrar þjóðir í öðrum löndum. Mönnum hættir til að gleyma því að sjálf- stæði okkar er frábrugðið sjálf- stæði annarra landa sem öðluðust sjálfstæði um svipað leyti og við. í ísrael eru tvær þjóðir og ákvarð- anir annarrar hafa áhrif á hina. Hvar á að draga mörkin, menn búa t.d. á svæðum Palestínu- manna en sækja vinnu til Israel? í Óslóar-samningnum segir að Palestínumenn megi ekki hafa eigin her og ekki kalla til alþjóð- legt herlið til landsins. Að öðru leyti ráða þeir sér sjálfir, þeir hafa eigin stjórn, eigin fána, eig- in lögreglu, þeir keppa á Ólympíu- leikum. Þetta stríðir ekki gegn okkar hagsmunum og hættir ekki öryggi okkar. En fullt sjálfstæði er ekki á döfínni og ég sé slíkt ekki fyrir mér.“ Kvíða ekki sanmingum um Jerúsalem Goder segist ekki hafa áhyggjur af því að krafan um fullveldi verði á endanum til að skapa geysileg vandamál á milli þjóðanna, stjórn- málamenn Palestínu verði og hljóti að gera sér grein fyrir að slíkt verði ekki samþykkt og að rangt sé að vekja óraunhæfar hugmynd- ir í bijóstum manna þar sem von- brigðin þegar þær bregðist, kunni að leiða til ólgu og hermdarverka. „Það sama á við um Jerúsalem, ég held að Palestínumenn geri sér grein fyrir að við munum aldrei láta hana af hendi. í haust náðu Josef Beilin, ráðherra í ísraelsku ríkisstjóminni og Abu Mazin, einn af háttsettustu mönnum Palest- ínumanna, samkomulagi um Jerú- salem, sem var munnlegt, ekki undirritað. Þar féllust Palestínu- menn á að þeirra heilaga borg, Alkutz, yrði á svæði sem liggur að Jerúsalem en ekki innan borg- armúranna.“ DIESEL - RAFMAGNS - GAS BUROARGETA 1.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.