Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 18

Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Veiðar togaranna í fyrra Baldvin var með langmestan afla 8.535 tonn að verðmæti 652 milljónir FRYSTITOGARI Samhetja, Baldvin Þorsteinsson, ber höfuð og herðar yfir aðra íslenzka togara. Hann skil- aði langmestum afla allra á land í fyrra, langmestum verðmætum og var með langmestan afla á úthalds- dag. Tveir aðrir togarar Samheija koma næstir, Akureyrin EA og Víðir EA og enn einn togari sem nýlega bættist í flota fyrirtækisins, Guð- björg ÍS, var einn 6 togara til að físka fyrir meira en 500 milljónir króna. Aflahæsti ísfisktogarinn er Ásbjöm RE, en af þeim var Gullver NS með mest verðmæti. Baldvin Þorsteinsson EA fiskaði á síðasta ári 8.535 tonn samkvæmt togaraskýrslu LÍÚ. Afli á úthaldsdag var 27,4 tonn og aflaverðmæti 652 milljónir króna. Akureyrin EA fiskaði 6.913 tonn. Afli á úthaldsdag var 24,3 tonn og aflaverðmæti 574,1 milljón króna. Auk þess voru fryst 552 tonn af loðnu um borð í Akur- eyrinni að verðmæti 30,4 milljónir króna. Víðir EA fiskaði 6.660 tonn. Afli á úthaldsdag var 22 tonn og aflaverðmæti 531,3 milljónir króna. Fimra með meira en 20 tonn á dag Þetta eru einu skipin, sem fiskuðu meira en 6.000 tonn og þijú af fimm, sem voru með meira en 20 tonna afla á úthaldsdag. Vigri RE fiskaði 5.948 tonn. Afli á úthaldsdag var 20,8 tonn og aflaverðmæti 566,6 milljónir króna. Önnur skip, sem náðu meira en 500 milljónum króna í aflaverðmæti voru Höfrungur III AK með 518,6 milljónir króna og Guðbjörg ÍS með 514 milljónir. Ásbjörn með mestan afla ísfisktogara Ásbjörn RE var afkastamestur ís- fisktogara með 5.534 tonn. Afli á úthaldsdag var 25,9 tonn og afla- verðmæti 259,4 milljónir króna. Næstmestan afla var Sturiaugur H. Böðvarsson AK með, 5.192 tonn. Afli á úthaldsdag var 19,8 tonn og aflaverðmæti 238,9 milljónir króna. Engir aðrir ísfisktogarar náðu 5.000 tonna markinu, en yfir 4.000 tonn fóru þeir Ottó N. Þorláksson RE, 4.477 tonn, og Kaldbakur EA, 4.118 tonn. Nokkrir ísfisktogarar fiskuðu fyrir meira en 200 milljónir króna. Þeir eru Gullver NS 280,5 milljónir króna, en rúmlega helmingur aflaverðmætis er vegna sölu afla erlendis, Ásbjöm RE 259,4 milljónir, Páll Pálsson ÍS 253 milljónir, Klakkur SH 250,9 milljónir, Skagfirðingur SK 246 milljónir, Sturlaugur H. Böðvarsson, 238,9, Múlaberg OF 228,3, Bretting- ur NS 226, Bjartur NK 225,9, Fram- nes ÍS 223,4, Kaldbakur EA 222,1, Björgúlfur EA 221,7, Ljósafell SU 218,5, Haukur GK 206,3, Harðbakur EA 201 og Hegranes SK 200,9 milljónir króna. Aflaaukning fyrir austan Meðalafli ísfisktogara á úthalds- dag var 9,18 tonn, sem er 1,24% aukning frá árinu áður. Togarar frá Austfjörðum auka afla á úthaldsdag að meðaltali um 8% en afli togara frá Vestfjörðum dregst saman um 11% að meðaltali. Mestur meðalafli á úthaldsdag er hjá togurum af suð- vestanverðu landinu, 11,17 tonn, en minnstur á Vestfjörðum, 7,38 tonn. 24.000 úthaldsdagar Meðalskiptaverðmæti ísfísktogara á úthaldsdag var í fyrra 477.000 krónur, sem er nánast það sama og árið 1995. Verðmætin hafa alls stað- ar aukizt nema hjá togurum suðvest- anlands. Meðalafli frystitogara var 11,66 tonn á úthaldsdag, sem er innan við 1% aukningu frá árinu áður. Meðal- aflaverðmæti er 950.000 krónur, sem er örlitlu minna en 1995. Alls voru togaramir 23.924 daga á sjó í fyrra, sem er fækkun um rúmlega 2.000 daga. Aflaverðmæti flotans var 23,1 milljarður króna, sem er samdráttur um 3,2%. Ráðstefna um full- vinnslu fiskafurða MATVÆLI árið 2000 er yfírskrift námskeiðs sem haldið verður í Hol- landi dagana 19. og 20. febrúar nk. Það eru Sindra-Stál hf. og Tetra Laval Convenince Food sem bjóða til námskeiðsins, þar sem fjallað verður um fullvinnslu sjáv- arafurða. Sindra-Stál hf. er umboðsaðili Tetra Laval __ Convenince Food á íslandi og er þátttaka íslendinga á námskeiðinu liður í að styrkja samstarf fyrirtækjanna en ís- lendingar hafa ekki tekið þátt í slíkum námskeiðum áður. Tetra Laval Food hefur þegar kynnt hugmyndir sínar fyrir bæði breskum og þýskum sjáv- arútvegi á samskonar námskeiðum. Matreiðsla framtíðarinnar Á námskeiðinu í Hollandi verður stefnt saman framleiðendum sjáv- arafurða í Skandinavíu sem hafa það að markmiði að fullvinna afurðir sín- ar. Páll Bjömsson, sölu- og markaðs- stjóri Sindra-Stáls hf., segir að á námskeiðinu verði kynnt allt ferli fullvinnslu, frá því að hrávaran er formuð, matreidd, henni pakkað og komið í kæli. „Fullvinnsla er það sem sjávarút- vegurinn stefnir að. Umræðan um fullvinnslu hefur verið í gangi lengi og tími kominn til að skapa meiri verðmæti úr hráefninu. Okkar skoð- un er sú að um næstu aldamót verði matur framreiddur á þennan hátt. Á nám- skeiðinu verða settar fram hugmyndir um hvernig að þessu verður staðið. Menn hafa lengi talið að fískur sé vandmeðf- arin matvara og í matreiðslunni tapi hann oft þeim gæð- um sem hann hefur í sér í upphafí. Á námskeiðinu verður hinsvegar sýnt fram á að í gegnum þetta vinnsluferli heldur fiskurinn gæðun- um,“ segir Páll. Góð þátttaka Páll segir þátttöku íslenskra fyr- irtækja vera mjög góða. Meðal þátt- takenda verði meðal annars fulltúar Granda hf., ÚA, Vinnslustöðvarinnar hf„ SÍF, SH og ÍS. „Námskeiðið fer fram hjá Koppens í Bakel í Hollandi en þar er frábær aðstaða með tilraunaeldhúsi og fleiru. Þar verður matur borinn fyrir fulltrúa fyrirtækjanna áður en hug- myndirnar og vinnsluferlið er kynnt. Þannig má segja að sönnunargagnið sé lagt fram áður en verkið er unn- ið,“ segir Páll. FISKBLOKKIR má forma á ýmsan hátt. Sænska stjórnin klof- in í afstöðu til EMU Kaupmannahöfn. Morgunblaöiö. ÞÓTT sænska stjórnin sé tvístíg- andi um hvort og hvernig eigi að ræða hugsanlega aðild Svía að Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu, EMU, hafa einstakir ráðherr- ar lýst skoðun sinni á því undanf- arið. Ummæli þeirra sýna greini- lega að stjórnin er klofin í afstöð- unni. Jörgen Andersson innanrík- isráðherra og Annika Áhnberg landbúnaðarráðherra hafa lýst sig hlynnt aðild, en Carl Tham menntamálaráðherra og Leif Pa- grotsky viðskiptaráðherra hafa lýst sig andvíga skjótri aðild. Erik Asbrink fjármálaráðherra hefur ekki greint ótvírætt frá sjónarmið- um sínum, en segist andvígur sjón- armiðum Thams. Carl Bildt for- maður. Hægriflokksins mótmælti sjónarmiðum Thams harðlega og minnti á að Svíar hefðu þegar skuldbundið sig til EMU-aðildar við inngönguna í Evrópusamband- ið. Vangaveltur um skattlagningu í EMU vega þungt í afstöðu ráð- herranna.. Carl Tham skrifaði í síðustu viku grein í Dagens Nyheter, þar sem hann lýsir efasemdum sínum um bandalagið og gagnsemi þess og tekur ekki undir þau sjónarmið að bandalagið treysti frið og ör- yggi í Evrópu. Þvert á móti dragi það úr lýðræði í álfunni og auki atvinnuleysi. Því álítur hann að Svíar eigi þangað ekkert erindi. EVRÓPA^ Ótti við skattahlið EMU í viðtali í fréttum sænska út- varpsins einblíndi Pagrotsky á skattahlið myntbandalagsins, sem Göran Persson forsætisráðherra hefur áður vakið á athygli og sagð- ist, ekki hafa áhuga á sænskri aðild að EMU, ef hún hefti stjóm Svía á eigin skattlagningu. Ef að- ildin þvingaði Svía til að lækka skatta, væri aðeins tvennt til ráða. Annars vegar að skera velferðar- kerfið niður og hins vegar að hækka tekjuskatta. Hvort tveggja væri slæmur kostur og því vonaði hann að EMU hefði ekki áhrif á sænska skattlagningu. Jörgen Andersson hefur hins vegar rekið áróður fyrir því að Svíar verði með í EMU frá upphafí 1999. Hann gefur upp tvær ástæð- ur. EMU muni auka öryggi í Evr- ópu og aðild efla sænskt efnahags- líf. Hann segir jafnframt að hann geri sér grein fyrir andstöðu gegn EMU, svo engar líkur séu á að Svíar verði með frá byijun og spurningin sé viðkvæm, svo ekki dugi að þrýsta um of á kjósendur. Með 1.400 milljarða ríkisskulda- bagga á bakinu, segir Andersson að Svíar standi höllum fæti og EMU-aðild gæti styrkt trúna á sænskt efnahagslíf. Líkt og Pagr- otsky er hann þó efins um ágæti EMU, ef aðildin hafi áhrif á svig- rúm Svía til skattlagningar. Áhnberg hefur mælt með sænskri aðild á svipuðum forsendum og Andersson. Persson bendir á kosti og galla Göran Persson hefur tekið þá stefnu að velta vöngum yfir EMU- aðild upphátt, benda á kosti og galla, en kýs ekki að taka afstöðu, þótt hann hafi eindregið mælt með aðild meðan hann var fjármálaráð- herra. Carl Bildt formaður Hægri- flokksins hefur lýst áhyggjum sín- um yfír að Persson tali ekki fyrir EMU-aðild og freisti þess að vinna henni fylgi. Hann hefur einnig mót- mælt harðlega málflutningi Thams og minnir á að með því að undirrita Maastricht-sát.tmálann hafí Svíar þegar bundið sig til þátttöku í EMU. Búist er við að sænska stjórnin taki afstöðu í haust um aðild, en áður verður málið tekið upp á flokksþingi sænska Jafnaðar- mannaflokksins, þar sem skoðanir um aðild eru ekki síður skiptar en í ríkisstjóminni. Skoðanakönnun MTV Áætlun um að seinka EMU-aðild Ítalíu? Ungt fólk neikvætt í garð ESB Lundúnum. Reuter. MEIRIHLUTI ungs fólks í löndum Evrópusambandsins segist vera því mótfallinn, að „hópur skriffinna í Brussel ráðskist með það“ hvernig landi þeirra sé stjómað. Þetta er meðal niðurstaðna skoðanakönn- unar, sem popptónlistarstöðin MTVhefur látið gera meðal íbúa átta ESB-landa á aldrinum 16-24 ára. Könnunin, sem náði til 1.600 ungmenna vítt og breitt um álf- una, lýsir skoðunum alllangt til hægri; unga fólkið vill vopna lög- regluna og að barnaníðingar verði vanaðir. Þjóðemishyggja virðist vera n\jög útbreidd meðal þeirra; 57 af hundraði sögðust mótfallin þvi að Evrópusambandið ætti nokkur frekari afskipti af því hvemig löndum þeirra væri stjómað. Bret- ar og Svíar reyndust vera neikvæð- I astir i garð ESB. „Það vekur mann mjög til um- hugsunar, að þrátt fyrir að góður skriður sé á sammnaferlinu er fjarri því að ungt fólk óski sér eða trúi á sameinaða Evrópu," sagði Rachel Purnell, aðalframkvæmda- stjóri MTV í Evrópu. Missa meydóminn 17 ára Meðal annarra niðurstaðna könnunarinnar má nefna, að mey- eða sveindóminn missa Evrópubú- ar að meðaltali ekki fyrr en þeir em orðnir nærri 17 ára. Bretar em þar helsta undantekningin, en þeir hefja kynlíf að jafnaði er þeir eru 15 ára og sjö mánaða. ítalir em orðnir tveimur og hálfu ári eldri þegar þeir hefja leikinn. Aðspurð, hvar ungmennin nytu kynlífs bezt utan veggja heimilisins nefndu flestir Frakkar sólar- strönd, Spánverjar næturklúbb og Svíar almenningssalemi. Romano Prodi bregzt illa við Segir ítali munu uppfylla öll skilyrði um þátttöku í EMU ROMANO Prodij for- sætisráðherra Italíu, brást í gær ókvæða við fréttum þess efnis, að áætlun væri í smíð- um um að slá á frest aðild landsins að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu, EMU, og tók undir fyrri kröfur Spánveija og Portúgala um að staðið yrði við að hreinar hagtölur yrðu látnar ráða því hvaða ríki fengju að vera með frá upphafi og hver ekki. Talsmenn þýzku og frönsku ríkisstjómarinn- ar og framkvæmdastjómar Evr- ópusambandsins báru til baka, að útiloka ætti líruna frá stofnþátt- töku í hinni sameiginlegu mynt. Prodi endurtók fyrri yfirlýsing- ar um að ítalir skuldbyndu sig staðfastlega til að uppfylla tilskilin skilyrði fyrir þátttöku í EMU frá fyrsta degi, en samkvæmt Ma- astricht-samningnum á EMU að verða að veruleika 1. janúar 1999. Þau ríki, sem samkvæmt skilyrð- unum munu eiga þess kost að gerast stofnaðilar, verða að hafa uppfyllt skilyrðin um næstu ára- mót. Prodi hefur gert EMU-stofn- aðild lands síns að persónulegu pólitísku lífsspursmáli. Evrópskir bankamenn vilja sefa þýzkar efasemdir Prodi gaf út yfirlýsinguna eftir að Financial Times (FT) hafði sagt frá því, að stjórnendur seðlabanka og fjár- málastofnana í Evr- ópu væru að vinna að áætlun sem miðaði að því að hleypa Ítalíu inn í EMU á árinu 2000 eða 2001, ekki fyrr. í frétt FTer áætlun bankamannanna köll- uð málamiðlun, til þess ætluð að sefa ótta Þjóðveija um að fái Ítalía aðild frá fyrsta degi, hefði það veikjandi áhrif á hinn nýja evrópska gjaldm- iðil, evróið. Þar segir ennfremur, að hugsanlega verði áætluninni einnig beitt gegn löndum eins og Spáni og Portúgal, sem eru meðal landa sem álitið er líklegra að fái ekki aðild að EMU fyrr en í ann- arri atrennu, þar sem þau munu ekki getað uppfyllt sett skilyrði tímanlega til að komast í hóp þeirra landa sem fá að gerast stofnaðilar. Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýzkalands, og talsmenn bæði framkvæmdastjórnar ESB og frönsku ríkisstjórnarinnar báru í gær allir til baka að nokkrar áætl- anir væru í smíðum um að halda lírunni utan myntbandalagsins. Þrálátar vangaveltur hafa verið í gangi um EMU-aðildarhæfni Ítalíu í aðdraganda fundar Prodis og Kohls Þýzkalandskanzlara, en þeir ætla að hittast í Bonn á morg- un, föstudag. Prodi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.