Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 29
AÐSENDAR GREIIMARA
Hefjum móðurhlut-
verkið til vegs á ný
Það er ekki
seinna vænna
ÉG LAS það í DV 20. janúar
að ung hjón í Reykjavík hefðu
eignast þijú börn á nýliðnu ári,
telpu í febrúar og telpu og dreng
á gamlársdag. Fæddust þau 7 vik-
um fyrir tímann. Fyrir áttu þau
tíu ára telpu. Óska ég fjölskyld-
unni alls velfarnaðar.
Mér er það í fersku minni er
fjölburamæður gengu á fund Sig-
hvats Björgvinssonar þáverandi
heilbrigðisráðherra í júlíbyijun
1992 og afhentu honum bréf, und-
irritað af 21 fjölburamóður, til að
knýja á um leiðréttingar á fæðing-
arorlofsgreiðslum. (Ur blaðagrein
9.7. 1992.)
í bréfinu er getið núverandi
reglna: „Greiðslur fæðingarstyrks
og eftir atvikum fæðingarpeninga
framlengjast um einn mánuð fyrir
hvert barn umfram eitt ef fæðast
fleiri í einu.“ Ennfremur segja þær
það eindregna ósk sína að fæðing-
arstyrkur greiðist í tólf mánuði til
tvíburaforeldra, 18 mánuði til þrí-
buraforeldra o.s.frv. Segir og að
í Svíþjóð séu greiddir 9 mánuðir
til móður og 6 mánuðir fyrir hvert
barn, þ.e. 15 mánuðir fyrir móður
og eitt barn, 15 mánuðir plús 6
mánuðir fyrir móður og 2 börn
o.s.frv. Fjölburamóðirin 21 fór
bónleið til búðar.
Tveimur mánuðum
fyrr, í maíbyijun
1992, sendu aðstand-
endur málþings um
ungbarnageðlæknis-
fræði áskorun til
stjórnvalda um að
horfast í augu við þá
þekkingu sem komið
hefði fram um þau
sterku tengsl sem
væru milli fjölskyldu-
aðstæðna barna í upp-
vextinum og farnaðar
þeirra síðar meir í líf-
inu, bæði þegar um
væri að ræða persónu-
leika og félagsþroska. Gæði til-
finningatengsla milli foreldra og
barns á fyrstu þremur æviárunum
væru afgerandi hvað þennan
þroska varðaði. Engin sérhæfð
fjölskyldu- eða mæðraráðgjöf væri
til hér á landi sem gæti tekið á
og meðhöndlað ófullnægjandi
tengslamyndun milli foreldra og
barns á fyrstu æviárunum. (Úr
blaðagrein 10.5. 1992.)
Grunnurlagður að
gamalmennaþj óðf élagi
Vorið 1975 samþykkti meiri-
hluti alþingismanna rýmkun fóst-
ureyðingalaga að áeggjan upp-
hlaupshópsins Rauðsokka. Hvílík-
ar lyddur. Að mati mæts fæðinga-
læknis voru lögin al-
veg nógu rúm fyrir.
Síðan hefur hátt í 14
þúsund fóstrum verið
éytt.
Hefðu þingmenn
kunnað að skammast
sín hefðu þeir flýtt sér
að bæta hag ungra
heimila til að vega upp
á móti mannfórnun-
um. Núna, nær 22
árum síðar, hafa þeir
langt í frá rétt hlut
þeirra kvenna sem
vilja hlýða eðli sínu og
sjá þjóðinni fyrir nýrri
kynslóð. Yfirmaður á
Hagstofu sagði mér fyrir mörgum
árum að um miðjan tíunda áratug-
inn myndi þjóðinni hætta að fjölga
vegna þess að mæðraefnin vant-
aði.
Ung kona í langskólanámi fær
fjárhagsstuðning frá ríkinu en ails
ekki unga barnakonan sem oft
þráir ekkert heitar en að fá að
vera heima hjá barni sínu eða
börnum. Hve margir hafa hugsað
út í það að sú sem heima er eign-
ast fleiri börn en sú útivinnandi
eða námskona í fullu og oft
margra ára námi? Það er ekkert
sniðugt fyrir konu að fara í langt
nám áður en hún eignast börnin
sín. Af þeim um 800 fóstureyðing-
um sem gerðar eru hér árlega eru
Rannveig
Tryggvadóttir
um 200 hjá konum í námi eða
fjórðu hverri.
Enginn er ungbarni sem móðir
í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins 19. þ.m. er greinin Bijósta-
mjólk eftir Magnús Jóhannsson
lækni. Þar stendur m.a.: „Lengi
hefur verið vitað að börn sem eru
á bijósti fá færri sýkingar en börn
sem fá uppleyst mjólkurduft eða
þynnta kúamjólk í pela. Þetta gild-
ir m.a. um kvef, inflúensu, eyrna-
bólgu, heila- himnubólgu og melt-
ingarfærasýkingar... Nú hafa
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
og Alþjóða heilbrigðisstofnunin
mælt með bijóstagjöf upp að
tveggja ára aldri eða lengur. Sam-
tök bandarískra lækna mæla með
bijóstagjöf í 6-12 mánuði.
Ætla þingmenn að
lengja fæðingarorlofið,
spyr Rannveig
Tryggvadóttir mæðr-
um, hvítvoðungum og
þjóðinni til ómældrar
blessunar?
Við fæðingu er ónæmiskerfið
vanþroskað og það nær ekki full-
um þroska fyrr en við 4-5 ára
aldur. Þetta er ein af ástæðunum
fyrir tíðum sýkingum barna. Mót-
efni gegn ýmsum sýklum berast
úr blóði móðurinnar yfír í blóð
barnsins sem við fæðingu er þann-
ig með forða af mótefnum sem
endist í nokkrar vikur eða mán-
uði. Mótefni gegn sýklum eru af
fimm mismunandi gerðum (IgG,
IgA, IgM, IgD og IgE) og er allar
þessar gerðir að finna í móður-
mjólk en langmest er þó af IgA
sem hafa sérstaka þýðingu fyrir
slímhúðir og veija þær fyrir árás-
um sýkla. Ymislegt bendir til þess
að bamið fái hreinlega mótefni
af þessari gerð eftir pöntun. Þessi
mótefni ráðast einungis á sýkla
en láta meinlausar og gagnlegar
bakteríur í meltingarfærum barns-
ins í friði.“
Grein Magnúsar er mun lengri
en þetta en ég lýk tilvitnun í hana
með eftirfarandi: „Af öllu þessu
ætti að vera ljóst að ekkert er
hollara smábörnum en bijósta-
mjólk og ætti því að búa þannig
í haginn að sem flestar mæður sem
geta heilsu sinnar vegna og vilja
hafa börn sín á brjósti eigi auð-
velt með það sem lengst.“
Vitið þér enn eða hvað, alþingis-
menn? Ætlið þið að lengja fæðing-
arorlof svo um munar, mæðrum,
hvítvoðungum og þjóðinni til
ómældrar blessunar? Þið hafið
skuld að gjalda.
21. janúar 1997.
Höfundur er þýðandi.
Fallegar og
vandaðar
gjafavörur á
frábæru verði
Listhúsinu (gegnt Hótel Esju), sími 568 3750.
|
j
j
' % j
Laugavegi 53
Laugavegi 67