Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ V AÐSEIMDAR GREINAR Hlutverk og aukahlutverk UNGUR myndlist- armaður, Stefán Jóns- son að nafni, búsettur í Singapore, finnur hjá sér tilefni að rita lang- loku í blaðið og er ástæðan augljóslega rýni um sýningu vinar hans og/eða skoðana- bróður Helga Hjalta- líns Eyjólfssonar, í sýningarsalnum við Hamarinn í Hafnar- firði í marz á sl. ári. Greinin birtist nokkuð seint og má innihald hennar skýra það öðru fremur, þótt ekki beri rýnirinn brigður á að einhveijar tæknilegar ástæður á blaðinu valdi seinkuninni. Sjálfur lagðist rýnirinn ekki gegn birtingu hennar frekar en annarra sem beint er gegn skrifum hans. Auðvitað fjallar rýnirinn um hveija og eina sýningu eins og hún kemur honum fyrir sjónir og skilmerkilega eiga skrifin að spegla þau hughrif sem hann verður fyrir, jafnt af andrúminu í sýningarsölunum sem verkun- um. Sjálf verkin gefa svo mismik- ið tilefni til umfjöllunar, geta hvorttveggja verið í aðalhlutverki sem aukahlutverki. Fyrir kemur að rýmið yfirgnæfi þau og getur þá verið tilefni til umfjöllunar, en er aldrei stefnumark- andi, og á stundum er ris þeirra svo lítið að fæst orð bera minnsta ábyrgð, segja þó jafnvel mest, á hvorn veginn sem verða vill. Málflutningur Stefáns, er svo öfug- snúinn og vanhugsað- ur að fátt telst svara- vert. Frumleikinn felst helst í því, að ganga gegn öllum viðteknum staðreynd- um og hér helgar meðalið tilganginn, sem er að sverta og tortryggja skrif rýnisins. Vægi umbúða sýninga er þann- ig ekki uppfinning hans heldur almenn staðreynd sem ekki verður framhjá gengið, þótt stundum sé hún hunzuð af listamönnum, sem hafa það eitt að stefnumörkum að ögra og ofbjóða fólki. Einnig styrkþegum og námslánafólki sem vilja sanna sig á vettvanginum með málamyndaframkvæmdum, en virðast sjá eftir hveijum eyri sem lagður er í ytri byrði þeirra, og kveinkar sér undan öllu erfiði sem sýningarstússi fylgir. Afleitur og kæruleysislegur frágangur sí- byljusýninga er svo aðalorsök minnkandi aðsóknar og áhuga, Metnaður hvers svip- mikils listamanns hlýtur að mati Braga Asgeirs- sonar að ná til þess að sýna í rými sem hæfír verkum hans. sem því miður vill bitna á mikils- verðum framkvæmdum á vett- vanginum. Metnaður hvers svip- mikils listamanns hlýtur einnig að vera að sýna í rými sem hæfir og lagar sig að því ákveðna sköpun- arferli sem athafnir hans frambera hveiju sinni. Skrif sín endar Stefán með því að vísa til þess meinta „fárán- leika“ að ég leyfði mér einhvern- tíman að vitna í málarann fjöl- gáfaða James Abbott McNeill Whistler, er tók að sér listrýni fyrir eitt Lundúnablaðanna fyrir rúmum hundrað árum. Árásum á skrif sín svaraði hann með þeim ummælum að sér væri ekki skylt að beita köldum rökum, vegna þess að 40 ára reynsla, þ.e. yfir- sýn, þekking, dómgreind og inn- sæi, væru að baki rýninni. Þetta var auðvitað fært úr samhengi líkt og annað, en til eru þeir sem meta meir tillærð rök og listheim- Bragi Ásgeirsson RENÉ Magritte, „La tentative de l’im- possible", Tilraun með hið ómögulega, olía á léreft, 1928. þetta ef vill, og dugur er til að fletta í erlend- um blöðum og tímarit- um. Á það einnig við hvað varðar sýningar- stjóra og listfræðinga, sem liggja víða undir mikilli rýni og áfellis- dómi, auk þess sem fárviðri geisar á opin- berum vettvangi út af stjórnun listasafna og hausar fjúka. Mönn- um er nefnilega, svo sem fram kemur, afar annt um þessa hlið uppbyggingar þjóð- menningar víðast hvar, þótt hér ríki hel- köld þögn óttans og ég einn örfárra sem rýfur hana. Stefán Jónsson ómerkir öll skrif sín, er hann vísar til rýni minnar um áður- nefnda sýningu Helga Hjaltalíns Eyjólfsson- ar. Það var þannig nokkuð mikið lagt úr því af listspírunni spekilegar upptuggur en þessi atr- iði. Vel að merkja er rýnirinn ein- ungis einn af mörgum um að gagnrýna þróunina innan lista- skóla síðustu áratugi, á hann hér skoðanabræður víða um heim. Vísar sérstaklega til þess, að hug- tökin „frelsi og fijálsar athafnir“ sem menn hafa innleitt, byggjast m.a. á að ryðja burt sígildum námsfögum, yfirlegum og grunn- menntun um leið. Það hefur hann tíundað lið fyrir lið í vettvangs- skrifum sínum. Hér eru alls engar „samsæriskenningar“ á ferð, og getur Stefán Jónson kynnt sér sjálfri, að vekja athygli á að verk- in væru eitruð, ekki eingöngu í fjölmiðlum heldur einnig í rituðum textum á veggjum. Og svo á það að vera saknæmt af einum listrýni að vísa sérstaklega til þessa! Mun háskinn væntanlega hafa átt að opna fyrir flæði forvitinna á gjörninginn, sem munu hins veg- ar verið lítið og trúlegast var rýnir- inn sökudólgurinn! Skyldi ekki frekar komið dæmi um að menn skjóta sig í fótinn, jafnt suður með sjó og í Singapore. Höfundur er myndlistargagnrýnandi Morgunblaðsins Brýnt að bæta kjörin í ÞEIM kjarasamningsviðræð- um sem standa yfír er ljóst að launafólk ætlar sér sinn skerf af góðærinu. Viðhorf þess einkennast af því að nú er mælirinn fullur, fólk er búið að fá nóg. Það er búið að fá nóg af því að eiga erf- itt með að sjá fyrir sér og sínum af þeim launum sem boðið er upp á. Krafan um verulega hækkun grunnlauna er hávær, talan 100 þúsund á mánuði hefur verið nefnd sem lágmarkslaun og þykir ekki óraunhæf hjá þeim sem þurfa að lifa af launum þar undir. Hræðsluáróðurinn á fulla ferð Ef hlustað er á viðsemjendur einkennist umræðan af því að sami gamli söngurinn er viðhafður. Meginstefíð í þeim söng er nú sem fyrr að ekki megi ógna þeim „stöðugleika" sem ríkt hefur í þjóðfélaginu undanfarin ár með því að hækka laun sem nokkru nemur. Það er þráttað um prósentur og hvaða áhrif launahækkanir muni hafa á verðlag. Ekki eru menn á eitt sáttir í útreikningum og sýnist sitt hveijum eftir því BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR tyrir WINDOWS Einföld lausn á flóknum málum s\ KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 www.treknet.is/throun hvorum megin borðs er setið. Hræðsluá- róðurinn er kominn á fulla ferð og sem áður er reynt að höfða til samvisku fólks með fullyrðingum um að minnstu launahækk- anir kveiki jafnstund- is verðbólgubálið. Hagfræðingar vinnu- veitenda hafa komist að þeirri niðurstöðu að 3,5% launahækk- anir á ári séu hámark til að allt fari ekki í bál og brand. Þessu trúir launafólk ekki. Það trúir því ekki að það geti verið sanngjarnt nú á tímum hagvaxtar og batnandi afkomu fyrirtækja að einaferðina enn eigi það að sitja eftir, í öllu góðærinu. Boðskapur úr ráðuneyti og ráðhúsi Ekki má gleyma nýja boð- skapnum úr herbúðum fjármála- ráðuneytis og ráðhúss, sem í stuttu máli felur í sér að minnka miðstýringu kjarasamninga og færa þá sem mest út í stofnanir. Með öðrum orðum að reyna að draga máttinn úr stéttarfélögunum. Það læðist að manni sá grunur að með þessu eigi að fyrir- byggja að með sam- takamætti heildar- innar nái launafólk fram kjarabótum eða jafnvel að verið sé að opna leið til að geta brotið rétt launafólks án afskipta stéttarfé- laga. Rök viðsemj- enda á bak við þessar hugmyndir er, að ein- falda eigi launakerfið og gera það gagn- særra og auðskiljan- legra. Einnig að færa eigi valdið til fólksins. Valdið verður fært til yfirmanna stofnana sem ákvarða eiga „árangurstengda" launavið- bót/persónuflokka til starfs- manna. Eftir hvaða reglum það verður gert eða hvort einhveijar reglur verða yfirhöfuð hafðar til viðmiðunar er ekki til umræðu við stéttarfélögin. Þessu má líkja við að fá blauta tusku í andlitið, sérstaklega fyrir konur. Beðið hefur verið eftir að starfsmat yrði framkvæmt með þá von að það myndi leiða til Laun leikskólakennara eru of lág, segir Björg Bjarnadóttir, miðað við ábyrgð og álag og mikilvægi leikskólans. launajöfnunar, sérstaklega á milli karla- og kvennastétta. Það er til lítils að ætla að nota starfsmat við grunnlaunaákvarðanir ef ofan á það á að bæta greiðslum hvaða nafni sem þær nefnast og kippa forsendunum að baki starfsmatinu þar með í burtu. Það hefur sýnt sig að þeir sem njóta viðbótar- greiðslna í dag eru fyrst og fremst karlar og því skyldi það breytast þó greiðslurnar heiti eitthvað ann- að? Allt hefur sín takmörk Það er sagt að stéttarfélögin geri óraunhæfar kröfur, kröfur sem, ef fram næðu að ganga myndu kollvarpa þessum margum- talaða stöðugleika. Það sætir furðu að viðsemjendur skuli vera agndofa og hneykslaðir yfír því að launafólk skuli vilja verja rétt- indi sín og fara um leið fram á umtalsverðar launahækkanir. Halda menn að þolinmæði fólks sé óþijótandi? Launafólk hefur sýnt mikla þolinmæði og ábyrgð, en allt hefur sín takmörk. Stéttarfélög hafa hvert á fætur öðru lagt fram kröfugerðir sínar, m.a. Félag íslenskra leikskóla- kennara. Áðalkrafan í kröfugerð félagsins er að hækka byijunar- laun leikskólakennara í 110 þús- und á mánuði. Það er nú allt og sumt. Ekki eitt einasta andartak munu leikskólakennarar trúa því Rlðgjöf Bókhald Skattskil Skipholti 50b__sími 561 0244 / 898 0244_fax 561 0240 Öll bókhalds- og framtalsþjónusta af bestu gerð ■ Framtöl einstaklinga ■ Ársreikningar ■ Vsk-skýrslur og fyrirtækja og ráðgjöf og uppgjör RBS______________________Gunnar Haraldsson hagfræðingur Björg Bjarnadóttir að það sé óraunhæf krafa þrátt fyrir allan söng viðsemjenda. Leik- skólakennarar eins og margir aðr- ir eru búnir að fá sig fullsadda af misskiptingunni í þjóðfélaginu og stefnu stjórnvalda varðandi launamál síðustu ár. Áðurnefndar hugmyndir um breytt launakerfi fylltu þar endanlega mælinn. Krafan er hærri laun Starf Ieikskólakennara er krefjandi og ábyrgðarmikið. Kröf- urnar hafa aukist síðustu ár með breyttum þjóðfélagsháttum og þar með breyttu hlutverki leik- skólans. Samkvæmt lögum er leikskólinn skilgreindur sem fyrsta skólastigið í íslensku skóla- kerfi þó hann sé ekki skylda held- ur val foreldra. Laun leikskóla- kennara eru allt of lág miðað við þá miklu ábyrgð og álag sem fylg- ir starfinu og mikilvægi leikskól- ans fyrir yngstu þegna þessa lands. Félag íslenskra Ieikskólakenn- ara mun leggja áherslu á að fá kjör leikskólakennara bætt í þess- um kjarasamningaviðræðum. Þeg- ar á reynir stendur stéttin saman um baráttumálin. Nú eru kjaramál baráttumálin. Það ætti að vera hagur þessar- ar þjóðar að skipa skólamálum á hærri sess en hingað til hefur verið gert. Það sýnir umræðan svo ekki verður um villst. í skóla- göngu barnsins er leikskólastigið fyrsti hlekkurinn í keðjunni og því þarf að hlúa vel að leikskólan- um hvað varðar alla þætti ekki síður en að öðrum skólastigum. Ef sveitarfélög vilja geta státað af góðu skólastarfi, eins og gjarn- an er gert á hátíðisdögum, þarf að vinna þar faglært fólk með mannsæmandi laun. Fólk sem finnur að það og starf þess er metið. Höfundur er formaður Félags íslenskra leikskólakennara. h|
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.