Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ SKÓLASÝNINGAR GÖMUL og þekkt diskólög eru flutt undir kröftugum dansatriðum. „Saturday Night Fever“ á 65. nemendamóti Verzlunarskólans Míkið diskóstuð segir leikstj órinn NEMENDUR Verzlunarskóla Is- lands frumsýna söngleikinn „Sat- urday Night Fever“ eða Laugar- dagsfárið, eins og það er nefnt á íslensku, sunnudaginn 9. febrúar nk. í Loftkastalanum. Nemendamót VÍ, sem er hið 65. í röðinni, verður hald- ið í kvöld, fimmtudaginn 6. febrúar, og verður söngleikurinn þá sýndur nemendum og kennurum. Söngleikurinn er byggður á kvik- myndinni „Saturday Night Fever“, þar sem John Travoita fór með aðal- hlutverkið. Fyrir það hreppti hann tilnefningu til Óskarsverðlauna og hlaut mikla frægð fyrir. Verkið fjall- ar um hinn 19 ára Tony Manero, sem leikinn er af Bjartmari Þórðar- syni. Tony vinnur sex daga vikunnar í málningarbúð í Brooklyn en á Iaug- ardögum skemmtir hann sér með félögunum og dansar á diskótekinu 2001 Oddyssey. Til að gera sig klár- an fyrir „laugardagsfárið" ber hann á sig rakspíra, klæðir sig í þrönga skyrtu, útvíðar buxur og þykkbotna skó. Um 100 manns koma fram í sýningunni Önnur helstu hlutverk eru í hönd- um Hauks Guðmundssonar, Hildar Hallgrímsdóttur og írisar Maríu Stefánsdóttur. Um 100 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Leikstjóri er Ari Matthíasson leikari og tónlistarstjóri Jón Ólafs- son, sem hefur séð um tónlistar- stjórn í átta sýningum Verzlunar- skóians, eða allt frá árinu 1983. Danshöfundar eru Selma og Birna Björnsdætur. Selma hefur áður séð um dansinn í sýningum skólans au_k þess sem hún stundaði nám við VÍ. Sömuieiðis hefur Birna komið áður að uppfærslum Verzlunarskólans. Þýðandi textans í söngleiknum er Magnea J. Matthíasdóttir og for- maður nemendamótsnefndar er Sunna Guðmundsdóttir. Ari Matthíasson segir að í eðli sínu sé leiksýning frábrugðin kvik- mynd. Þetta komi m.a. fram í því að í söngleiknum gerist atburðirnir að- eins á rúmum sólarhring. „í kvik- myndinni er tónlistin öll í bakgrunn- inum en engin persóna sést syngja lögin. Ég reyndi að leita leiða til að tengja þau beint inn í atburðarásina, auk þess sem við erum með fleiri lög frá diskótímabilinu,“ segir Ari, sem leikstýrir nemendum VI annað árið í röð. Segist Ari hafa gaman af að vinna með nemendunum, þeir séu opnir og alltaf tilbúnir að taka þeim breytingum sem hann leggur til. „Mér finnst hafa tekist vel upp og stefni að því að þessi sýning verði að minnsta kosti jafn góð söngleikn- um Cats, sem var sýndur í fyrra við mjög góða aðsókn. Að þessu sinni er mikið diskóstuð.“ Að lokum má geta þess að Bee Gees lagið „Nights on Broadway“ eða „Kvöldin í bænum“ hefur verið þýtt yfir á íslensku og er það flutt af Hauki Guðmundssyni nemanda í 6. bekk Verzlunarskólans. FERMINGARTILBOÐ Nýja myndastofan Laugavegi 18, sími 551 5125 MAMAIEL ELEGANCE llvnnpat: STÆRÐIR: 75-95 B-C-D-DD SENDUM í PÓSTKRÖFU. Laugavegi 26, sími 551 3300 — Kringlunni, sími 553 3600 Morgunblaðið/Jón Svavarsson AÐALLEIKENDURNIR Bjartmar Þórðarson (Tony) og Hildur Hallgrímsdóttir (Stephanie) í einu dansatriðanna. TONY (Bjartmar Þórðarson) nýtur mikillar hylli hjá kvenþjóð- inni, sem þyrpist í kringum hann. SJÁ MÁ mjaðmasveiflur og glansandi búninga diskótímabilsins á sviði Loftkastalans á næstunni. ra®oo Notaðu vasadiskó -ef þú æfir einn/ein. Það er mjög hvetjandi að hlusta á tónlist eða lestur góðrar bókar af hljóðsnældu á meðan maður æfir. m Faxafeni • Langarima • Skipholti Safnaóu 5 holíráóum og þú færó 1000 kr. afslátt af þriggja mánaða kortum í Mætti og Gatorade brúsa og duft frá Sól hf. BÖKHALDSHUGBÚNAÐUR fytir WIND0WS Tökum Opus-Allt og annan hugbúnað uppí www.treknet.is/throun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.