Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Frumformin undirstaða alls í sýningarsalnum Önnur hæð við Laugaveg, hefur verið opnuð sýning á verkum eftir myndlistarkonuna Eyborgu Guðmundsdóttur, en hún lést árið 1977, 52 ára að aldri. Á þeim sýningum sem Eyborg tók þátt í á árunum frá 1961 til dauðadags markaði hún sér sérstöðu sem einn helsti fulltrúi íslendinga í geómet- ríska málverkinu og „optískri“ myndlist. Einar Falur Ingólfsson kynnti sér feril Eyborgar. AÐSTANDENDUR sýningarsalarins Önnur hæð, Pétur Arason og Ingólfur Amarson, hafa stefnt að þessari sýn- ingu um skeið. „Eyborg var merkilegur lista- maður sem fólk þekkir ekki lengur,“ segja þeir og benda á að það sé ákaflega erfitt fyr- ir almenning að nálgast íslenska list. „Fólk getur hvergi gengið að verkum eftir marga látna listamenn; þau eru hvergi uppi við og sjást ekki.“ Þeir segja sýningunni fýrst og fremst ætlað að minna á Eyborgu. „Hún var verðugur full- trúi listhreyfinga sem voru mjög í deiglunni þegar hún var að fást við þessa hluti, einskon- ar sambland af „op“ og konstrúktífri list sem hún hafði góðan skilning á og þróaði persónu- lega.“ Eyborg Guðmundsdóttir fæddist árið 1924. Fyrstu tvö árin ólst hún upp þjá foreldrum sínum á Isafirði, en þá lést móðir hennar og Eyborgu var komið í fóstur hjá ömmu sinni í Ingólfsfirði í Strandasýslu. Sextán ára göm- ul fór hún að heiman til að afla sér menntun- ar, settist I Laugarvatnsskóla en greindist eftir örfáa daga með berkla og var flutt á berklahælið á Vífilstöðum. Þar dvaldist hún í fjögur erfíð ár, en tókst engu að síður að mennta sig ágætlega, ekki síst lágu tungumál vel fyrir henni. Eftir að hún var komin út í atvinnulífíð fylgdist Eyborg vel með listalífí borgarinnar, hreifst af nýjum stefnum og ekki síst í mynd- listinni, en það átti þó eftir að líða hálfur annar áratugur þar til hún fór sjálf að máia. Það var árið 1959 sem Eyborg hélt til Parísar til að leggja stund á myndlist. Hún innritaðist í skóla en leist illa á hann og hætti, og ákvað að takast á við verkefnin utan skóla; að mála mikið, sækja sér tilsögn til listamanna, skoða myndlist og fylgjast með því sem var að gerast. Fljótlega eftir komuna til Parísar kynntist Eyborg einum af kunnari málurum borgarinn- ar á þeim tíma, Victor Vasarely, en hann bauð henni aðstoð sína og veitti henni tilsögn allan þann tíma sem hún var í borginni. Ey- borg vann af kappi og var fljótlega boðin þátttaka í starfshópi um 30 myndlistarmanna sem unnu út frá abstraktinu; „Group Mes- ure“, en margir sýnendanna voru orðnir kunn- ir á þeim tíma. Á árunum 1961 til 1965 sýndi Eyborg víða með hópnum, einkum í Þýska- landi og Frakklandi, og hlutu myndir hennar viðurkenningar og lofsamleg ummæli gagn- rýnenda. í janúar 1965 flutti hún heim til íslands og sagði um það leyti i viðtali, að einfaldleik- inn í listum ætti best við hugarfar hennar. Hún einsetti sér „að koma á reglu í eigin hugarheimi" og því væri stíll hennar þessi. „Ég hef lengi aðhyllst geometriska abstrakti- on, þar eru óendanlegir möguleikar og engin hætta á stöðnun meðan líkami og sál eru heilbrigð og innri þörf knýr ekki til breytinga." Eyborg opnaði um þetta leyti sína fyrstu einkasýningu í Bogasalnum, og sýndi 35 málverk auk klippimynda og teikninga. Til þess var tekið hve vönduð sýningarskrá lista- konunnar væri, með greinum franskra fræð- inga um list hennar. Dómar voru að mestu jákvæðir og Valtýr Pétursson skrifaði að nokk- uð langt væri „síðan sézt hefur jafn heilleg sýning á geometrískri list“. Hún hélt áfram að sýna með félögunum í Evrópu en opnaði aðra einkasýningu sína á Mokka haustið 1966. Hún tók þátt í félags- störfum og samsýningum, tók að sér verkefni við bókaskreytingar, og hélt áfram að þroska myndstíl sinn. Árið 1968 giftist Eyborg Reyni Þórðarsyni, þau eignuðust dótturina Gunn- hildi, og í kjölfarið hvíldi Eyborg sig á mynd- list í þtjú, fjögur ár. Þá stóð hún að listsýning- um á landsbyggðinni, fyrst með Sambandi austurhúnvetnskra kvenna, og fór sýningin víðar undir heitinu „List um landið". málverk, glermyndir og hlutir. í mörgum verk- anna kvað við nýjan tón í íslenskri myndlist, þar sem voru áhrif frá „optískri" - eða sjón- hverfulist. Bragi Ásgeirsson sagði m.a. í dómi sínum: „Eyborg hefur staðfest það með þess- ari sýningu, að hún er vandvirkur málari, sem gædd er miklu hugrekki og einurð og vinnur því umtalsverðan sigur með þessari sýningu." Þessi sýning Eyborgar, sem haldin var þeg- ar hún var fímmtug, varð hennar síðasta. Heilsuleysi ágerðist og hún lést í júní 1977, fimmtíu og tveggja ára að aldri, og átti þá fímmtán ára listamannsferil að baki. Hún náði á þeim tíma að marka sér sérstöðu innan geómetrísku listarinnar, en um list sína sagði Eyborg sjálf: „Myndir mínar eiga sjaldnast að tákna neitt sérstakt. Myndin er tilbúin í huganum áður en ég byija að mála og ég mála aldrei yfir, annaðhvort tekst mér strax að fá myndina eins og ég ætla í upphafi eða þá að ég byija á nýjan leik... Ég held því ekki fram að geometrían - eða konstrukti- visminn - sé öðrum stefnum fremri eða rétt- ari. Það vill aðeins svo til, að hún hentar mér. Mér finnst hún spennandi viðfangsefni. Frumform hennar, hringur, ferhyrningur og lína, eru undirstaða alls umhverfís okkur og í öllu áþreifanlegu lífi og það er hægt að bijóta þessi form upp í óendanlegum tilbrigðum." Sýningarsalurinn Önnur hæð er opinn á miðvikudögum frá 14 til 18 og samkvæmt samkomulagi. Eyborg tók þá eftir að vinna að myndsköp- uninni af kappi og afraksturinn var sýndur á stórri einkasýningu sem opnaði í Norræna húsinu í mars 1975. Þar voru 55 myndir; Morgunblaðiö/Sveinn Þormóðsson. EYBORG Guðmundsdóttir á vinnu- stofu sinni. Klerkurinn, konan hans og engillinn þeirra KVIKMYNDIR Bíóhöllin/ Kringlubíó KONA KLERKSINS,, The Preacher’s Wife“ ★ Leikstjóri: Penny Marshall. Handrit: Nat Mauldin og Alian Scott Aðal- hlutverk: Denzel Washington, Whitn- ey Houston, Courtney B. Vance og Gregory Hines. The Samuel Gold- wyn Company. 1996. FJÖLSKYLDUMYNDIN Kona klerksins mun að einhveiju leyti vera endurgerð á Konu biskupsins frá árinu 1947 og víst er að hún hefði getað verið gerð fyrir fímmtíu árum. Allt í henni er hollywoodlegt á gamal- dags og úr sér genginn máta í leik- stjóm Penny Marshalls. Tilfinninga- semin og væmnin hefði kannski gengið fyrr á öldinni en heimurinn er talsvert breyttur frá því á fyrstu lýðveldisárum íslendinga, eða það skyldi maður ætla. Söngkonan Whitney Houston fer með hlutverk eiginkonu sérstaklega upptekins prests í fátækrahverfi svertingja en Denzel Washington leikur engil sem guð hefur sent prestinum til aðstoð- ar. Það eina sem maður sér að hand- ritshöfundamir Nat Mauldin og Allan Scott hafa lagt sig fram um að vanda sig við er að koma fyrir söngatriðum í myndinni svo hin fallega og einstak- lega hæfíleikaríka söngkona Whitney Houston geti heillað áhorfendur. Ekki gerir hún það með viðvanings- legum leik sínum. Eiga söngatriðin erindi í myndina? Ekki nokkurt. Selja þau hana? Hundrað prósent. Houston á í nokkrum erfíðleikum með að leika konu klerksins, ekki aðeins af því hana skortir leikreynslu heldur af því hlutverkið eins og önn- ur stór hlutverk í myndinni er ekki upp á marga físka. Handritshöfund- amir velkjast fram og aftur með litla sögu og einfalda persónusköpun og Marshall gerir ekki meira en að fílma það sem fyrir hann er lagt. Myndin er ákaflega fjölskylduvæn á furðu- lega ódýran máta þar sem lausnir á vandamálum í lífí fólks fínnast á undraverðan hátt og Houston ýmist brosir sínu breiðasta eða setur fýlu- stút á munninn á milli þess sem hún syngur fyrir son sinn, í kirkjunni eða á djassbar í nágrenninu og svo í kirkj- unni aftur; eftir allt á þetta að heita hennar bíómynd. Washington hefur ekki mikið bitastæðara hlutverk því engillinn kemst aldrei almennilega fyrir í sögunni; hann virkar eins og aukapersóna. Stærsta og bitastæð- asta rullan er í höndum Courtney B. Vance en hann leikur prestinn upptekna og hnoðar meira úr honum en hin tvö geta kreist úr hlutverkum sínum til samans. Gregory Hines fer með lítið hlutverk milljónamærings sem maður veit ekki hvort á að vera góður, vondur eða bara leiðinlegur. Að auki er hér allt svo ofur smekk- legt og stílhreint að maður getur næstum séð aðstoðarfólkið sækja klæðnaðinn í búningadeildir kvik- myndafélagsins og hárgreiðsludöm- urnar hamast á söngkonunni. Það er ekki alvöru líf í þessari mynd frem- ur en tjaldinu sem hún er sýnd á. Arnaldur Indriðason Að sjá með eyranum og heyra með augunum FYRSTA Sjónþing ársins í Gerðubergi er helgað hljóðskúlptúr- istanum Finnboga Péturssyni og hefst það sunnudaginn 9. febrúar kl. 14. Þá mun Finnbogi ræða vítt og breitt um myndlist sina fyrir opnu húsi og sýna litskyggnur og myndbandsbrot af verkum sínum. Hon- um til aðstoðar verða spyrlamir Halldór Bjöm Runólfsson list- fræðingur og mynd- listarmennimir Hulda Hákon og Jón Óskar. Eins og endranær er úrval verka til sýnis í Gerðubergi en á Sjónar- hóli, Hverfisgötu 12, hefur Finn- bogi komið fyrir nýjasta verki sínu, Spor. Verkið samanstendur af fjölda hljóðkorta sem láta uppi hinar margvíslegustu danshreyf- ingar þegar stutt er á hnappana. Þetta eru færanlegar „teikningar" sem áheyrandinn getur snúið sér eftir eða dregið upp í huganum og tekið með sér heim í anda „Aktu-taktu“. í kynningu segir: „Finnbogi Pétursson hefur markað sér óvanalegt svið á inn- lendum myndlistar- vettvangi. Um árabil hefur hann fengist við að búa til svokallaða hljóðskúlptúra eða hljóðteikningar, þá töfralist að gera hið ósýnilega sýnilegt. Segja má að Finnbogi hafi hausavíxl á skyn- færunum þannig að við sjáum með eyrun- um og heyrum með augunum. Skúlptúrar hans draga dám af hljóðfærum þar sem hljóði og mynd er tvinnað saman með að- stoð nýjustu tækni og vísinda." Sýningin í Gerðubergi stendur frá 9. febrúar - 30. mars en þeirri á Sjónarhóli lýkur 2. mars. Sjónar- hóll er sjálfstæður sýningarsalur sem starfar í samvinnu við Gerðu- berg og nýtur velvijja atvinnulífs- ins. Hann er opinn fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. Aðgang- ur á Sjónþingið í Gerðubergi er kr. 300. Finnbogi Pétursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.