Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 25 __________LISTIR Hasarskemmt- un frá Harlin KVIKMYNPIR Laugarásbíó/ Regnboginn KOSS DAUÐANS„The Long Kiss Goodnight ★ ★ ★ Vi Leikstjóri: Renny Harlin. Handrit: Shane Black. Tónlist: Alan Silvestri. Kvikmyndataka: Guillermo Navarro. Aðalhlutverk: Geena Davis, Samuel L. Jackson. Patrick Malahide, Brian Cox, Craig Bierko og G.D. Spradl- ing. New Line Cinema. 1996. FINNSKI hasarleikstjórinn Renny Harlin er kominn í banastuð aftur með þessum nýjasta spennu- trylli sínum sem hann kallar Koss dauðans eða „The Long Kiss Good- night“. Harlin er sá leikstjóri í Hollywoodborg sem hvað flinkastur er að framleiða hasar sem heldur manni límdum við hvíta tjaldið með hugmyndaríku samblandi kvik- myndatöku og klippingar og skapar raunverulega spennu með hasarn- Verðlaunaveit- ing gagnrýnd í NORSKA bókmenntaheiminum er úthlutun bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs til Dorrit Willumsen umdeild. Skáldsaga Willumsen gerir Her- man Bang meinlausan. Mótsagna- kenndar persónur úr fortíðinni eru skáldaðar inn í vinalegt sósíaldemó- kratískt umhverfi, segir Bang-sér- fræðingurinn Oystein Ziender í við- tali við Aftenposten. Willumsen vísar gagnrýninni á bug á þeim forsendum að Bang hafi verið svo margslunginn persónuleiki að vafalaust væri hægt að draga upp fimm ólíkar myndir af honum. um ólíkt minni spámönnunum. Harlin kann öðrum betur að gera spennutrylli og sýnir það eftirminni- lega í Kossi dauðans þar sem kona hans, Geena Davis, fer að auki á kostum í hlutverki minnislausrar húsmóður er kemst að því að í fyrra lífi var hún leigumorðingi á vegum hins opinbera. Með henni í leit að lífi sem var slæst Samuel L. Jack- son, og hann klikkar ekki fremur en fyrri daginn. Saman eru þau skemmtilegasta par hasarmynd- anna síðan Robert De Niro leiddi Charles Grodin yfir þvera Ameríku í „Midnight Run“. Davis er eins og hundrað manns í aðalhlutverkinu. Hún er þessi dæmigerða ameríska hasarmynda- hetja en líka svolítið meira því hún er ekki bara kvenkyns Stallone/ Schwarzenegger heldur er áhersla hennar einnig á hið kvenlega, þótt stundum sé það groddalegt, og hjálpi okkur allir heilagir, hið móð- urlega. Styrkur myndarinnar ligg- ur ekki síst í því að Geena og einn- ig Jackson, þótt fari kannski ekki eins mikið fyrir því, láta okkur finna til með persónum sínum. Tekist hefur að gera hasarmynda- persónur sem ekki eru pappafígúr- ur. Umhyggja Davis fyrir dóttur sinni virkar ekta og samstaða Jack- sons með henni er einnig eitthvað sem við kaupum auðveldlega. Hinu góða efnasambandi á milli þeirra, sem kyndir undir hasarinn, má einnig þakka talsvert skemmtileg- um og jarðbundnum húmor í bragðgóðu handriti Shane Black. Þegar við bætist leikni Harlins í að sviðsetja og tímasetja nákvæm- lega út í ystu æsar hasaratriðin og fá út úr þeim hámarksáhrif ertu kominn með skothelda skemmtun. Söguþráðurinn er kannski ekki upp á marga fiska en hann er hvorki betri né verri en í hasar- myndum yfirleitt og snýst um held- ur bilaðan hugsunarhátt CIA núna eftir að kalda stríðinu er lokið; fremur skörðótt en ekkert sem slít- ur filmuna. Harlin skilaði síðast frá sér slappri sjóræningjamynd, sem þó átti sína kafla. Hann er kominn á fullt skrið aftur með þessari. Kossi dauðans vegnaði ekki sérlega vel í miðasölunni vestra af ein- hveijum dularfullum ástæðum. Hún er besta afþreying sem komið hefur í bæinn í langan tíma og hefði með réttu átt að vera met- sölumynd. Arnaldur Indriðason Vatnslita- myndir í Safni Ásgríms UM helgina verður Safn Ásgríms Jónssonar opnað að nýju með sýningu á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím í eigu safnsins og Listasafns Islands. Flestarjieirra eru landslagsmyndir sem As- grímur málaði á árunum 1910- 1930, meðal annars í Skaftafells- sýslum, en þær myndir eru ein- stæðar í sinni röð. Sýningin verður opin um helg- ar kl. 13.30 til 16 og stendur til loka maímánaðar. Hrabal látinn Prag. Reuter. TÉKKNESKI rithöfundurinn Bohumil Hrabal lést á mánu- daginn á sjúkrahúsi í Prag, 82 ára að aldri. Hrabal skrif- aði yfir fimmtíu bækur en á meðal þeirra má nefna „Lestir undir eftirliti“ og „Ég þjónaði Englandskonungi". Var hann virtur og dáður í heimalandi sínu, Tékklandi, og minntist Vaclav Havel, forseti landsins, hans. Hrabal var gigtveikur og var lagður inn á sjúkrahús þess vegna. Hann lést hins vegar er hann féll út um glugga af fimmtu hæð en talið er að hann hafi verið að fóðra dúfur og misst jafnvægið. „Hann skrifaði óheflaðan, fallegan texta ... Ég tel hann hafa verið eitt mesta prósa- skáld okkar tíma,“ sagði Ha- vel er hann minntist Hrabals. Skrifaði forsetinn ritgerð um Hrabal í skóla og kynntist skáldinu síðar. Verk Hrabals voru stjórnmálaádeila og bönnuð á tímum kommúnista en þau voru fjölrituð og þeim dreift á meðal andófsmanna. Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir verkum Hrabals en Tékkar kynntust margir hveijir verkum hans í fyrsta sinn er þau voru leyfð eftir hrun kommúnismans 1989. dimmur í ' "s <> • - WSi I WBBUM ^ súkkulaój ... 'iJÍjg :'-em nSI- il U ) ‘ - \ \gmK fSÉÉF \ V : -v 1 F r \ * ' % m W A já á 1 & 11 i m iL,,, * j \wf w ] i / / i "I /áL w ^ mm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.