Morgunblaðið - 06.02.1997, Side 37

Morgunblaðið - 06.02.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 37' HERMANN GUÐLA UGSSON + Hermann Guð- laugsson fædd- ist í Reykjavík 30. janúar 1910. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Isafirði 28. janúar siðastliðinn. For- eldrar Hermanns voru Guðrún Þórð- ardóttir, fædd á Kjaransstöðum í Biskupstungum, og Guðlaugur Hinriks- son, fæddur í Þúfu- koti. Alsystkini Hermanns voru Þuríður Ellen, f. 1905, Unnur, f. 1907, Helgi Kristján, f. 1908, Þórður Halldór, f. 1915, Ólafur Hinrik, f. 1917, og óskírður drengur, f. 1918, sem lést skömmu eftir fæðingu. Hálf- systkini Hermanns, börn Guð- laugs og síðari konu; Ólafar Eyjólfsdóttur frá Brú á Jökul- dal: Guðrún, f. 1920, Aðalheið- ur Þórey, f. 1923, Eyjólfur Heiðar, f. 1927, og Unnur Þyri, f. 1930. Eftirlifandi eiginkona Her- manns er Guðrún Valborg Finnbogadóttir, f. í Reykjavík 11.12. 1913. Foreldrar hennar voru Þuríður Jó- hannesdóttir og Ge- org Finnsson, en kjörforeldrar Sess- ejja Snorradóttir og Finnbogi Finnboga- son. Börn Hermanns og Guðrúnar eru þrjú: 1) Finnbogi, f. 1945, eiginkona hans er Hansína Garðarsdóttir, 2) Guðlaugur, f. 1946, eiginkona hans er Ásdís Gunnarsdótt- ir, 3) Sesselja, f. 1950, maður hennar er Bene- dikt Skarphéðinsson. Barna- börnin eru sjö talsins og barna- barnabarn eitt. Hermann starf- aði lengst af sem húsgagna- smiður hjá Trésmíðavinnustofu Reykjavíkurbæjar, síðar -borg- ar og eftir það við eigin at- vinnurekstur. Hann var virkur félagi í Sveinafélagi húsgagna- smiða og í prófnefnd húsgagna- smiða um hríð. Utför Hermanns fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarð- sett verður á Görðum á Álfta- nesi. Hermann tengdafaðir minn er all- ur, 87 ára öðlingur. Við upphaf okk- ar kynna minnti hann mig á Allende forseta Chile, yfirbragðið og yfir- skeggið, hermannlegur á velli. Þegar ég lít til baka þessi tæplega þrjátíu ár síðan ég kynntist fjölskyldunni á Njálsgötu 27, sé ég hann fyrir mér sitjandi í stólnum sínum í horninu með tóbaksdósina og kötturinn Lukka ekki langt undan - eða í sumarbústaðnum við Meðalfellsvatn í sól og sumri. Hann útbjó bryggju í flæðarmálinu með áföstum hæg- indastól og gat veitt endalaust án þess að þreytast, en Guðrún tengd- amamma hljóp um fjöruna eins og unglingur kallandi: „Sástu laxinn stökkva Hemmi?" Hermann var húsgagnasmiður að mennt og starfaði við smíðar megn- ið af sinni starfsævi. Hann var að- eins átta ára þegar hann missti móður sína úr spönsku veikinni. Faðir hans neyddist til að leysa heimilið upp tímabundið og senda bömin frá sér. Hermann var mis- heppinn með heimili og var oft van- svefta, svangur og hrakinn. Sjálfur mátti hann ekkert aumt sjá og stóð vörð um minnimáttar fram í rauðan dauðann. Hann var ekkert bráðhrifinn af káupmönnum, taldi þá bölvað íhald og hló svo manna hæst þegar hann sjálfur gerðist kaupmaður á efri árum og setti upp fornsölu í bílskúm- um á Njálsgötunni. Faðir hans hafði stundað fornsölu um skeið og þegar eitt af bamabörnunum tók upp merkið gat hann státað af fomsölum í þtjá ættliði. Það átti vel við Guð- rúnu og Hermann að standa í versl- un, þau höfðu svo gaman af fólki sem kom og spjallaði um allt milli himins og jarðar. Marga góða kunn- ingja eignuðust þau á þessum árum og vinir og vandamenn áttu jafnan greiðan aðgang að þeim. 1. maí var einn mesti hátlðisdagur SIG URBJÖRG ÞÓRARINSDÓTTIR + Sigurbjörg Þór- arinsdóttir fæddist á Auðnum í Sæmundarhlíð í Skagafirði 23. ág- úst 1915. Hún lést á heimiii sínu í Reyiyavík 27. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Hallfríður Jónasdóttir og Þór- arinn Sigurjónsson. Systkini hennar eru: Sigríður, f. 1913, d. 1962; Guð- björg, f. 1914, d. 1991; Jón, f. 1917; Ragnar Örn, f. 1921; og Þórhallur, f. 1926, d.1981. 28. desember 1946 giftist Sigurbjörg eftirlifandi eigin- manni sínum, Ragnari Bjarna- syni, f. 6. júlí 1913. Þau eignuðust eng- in börn en ólu upp eina fósturdóttur, systurdóttur Sig- urbjargar, Díönu 9.10. maki Þor- steinn Kárason, f. 26.5. 1944. Þau eiga tvær dætur: Sigur- björgu Laufeyju, f. 16.10. 1960, maki Eyþór S. Guð- mundsson, f. 25.11. 1959, hún á þrjú börn; og Rögnu Huldrúnu, f. 10.9. 1966, maki Andri Lindbergsson, f. 28.6. 1961, þau eiga þijú börn. Útför Sigurbjargar fer fram frá kapellu Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar að minnast í nokkrum orðum elskulegrar ömmu minnar, eða Ebbýjar eins og ég og flestir aðrir kölluðum hana. Mér finnst svolítið erfítt að átta mig á að hún sé farin, því hún var að mér fannst óijúfanleg- ur hluti af lífi mínu þessi 36 ár sem ég hef lifað. Flestar minar bemsku- minningar tengjast Ebbý þvi ég bjó með foreldrum mínum á heimili henn- ar og Ragnars (afa) í Háagerði 31 fyrstu átta ár ævi minnar. Á þessum árum mynduðust sérstök tengsl á milli okkar Ebbýjar og eftir að við fluttum var ég heimagangur í Háa- gerðinu og var þar mikið, sérstaklega á unglingsárunum. Ég minnist Ebbýjar ekki öðruvísi en að hún væri að gera eitthvað í höndunum, hún var snillingur á saumavél og það sem mér hafði fundist druslulegur efnisbútur varð á dagatali Hermanns, sama þótt hann væri orðinn fótalúinn, um leið og hann heyrði Nallann spratt hann á fætur og tók á rás í 1. maí- gönguna. Og það var á 1. maí í fyrra sem Hermann var fluttur af Land- spítalanum á Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt, þrátt fyrir góða umönnun. Hermann var hafsjór af fróðleik og kunni ógrynni af ljóðum, þulum og sögum. Hann var ekki mikið fyr- ir breytingar, bjó allan sinn búskap á Njálsgötu 27 og var einn af þeim sem kærði sig lítið um að ferðast til útlanda, en var samt manna fróð- astur um borgir, menningu og sögu framandi landa. Það kom enginn að tómum kofunum þar sem Hermann var og hús hans stóð öllum opið. Hjarta hans var stórt og rúmaði auðveldlega andstæður, til dæmis var erkisósíalistinn jafnan einlægur aðdáandi amerískra bíla og ófáir kaggarnir sem hann keypti af Sölu- nefndinni í gegn um tíðina, dyggi- lega studdur af eiginkonu og börn- um. „Hann kemur mér jafnan í hug þegar ég heyri góðs manns getið“ var eitt sinn sagt um íslenskan mann og vist er að Hermann verður ógleymanlegur öllum sem kynntust honum. Frá minningu hans stafar birtu og yl sem eru mælskari en orð um manninn sjálfan. Ásdís Gunnarsdóttir. Fátítt er en ber þó við að menn komnir á miðjan aldur tengist vin- áttuböndum sem endast upp frá því meðan báðir lifa. Fyrir aldarþriðj- ungi þurftum við að láta breyta íbúð okkar við Bjamarstíg lítillega. Ég spurði kunningja minn margfróðan hvort hann þekkti ekki einhvem smið sem fáanlegur væri til slíkra viðvika. Taiaðu við Hermann Guð- laugsson á Njálsgötu, þú finnur hann í símaskránni, sagði hann. Ég lét ekki segja mér það tvisvar en hringdi til Hermanns strax um kvöldið, kynnti mig og bar upp erind- ið. Ég skal koma yfír til þín og líta á þetta, svaraði hann. Og fáum mín- útum síðar knúði hann dyra. Þegar ég lauk upp stóð á stiga- pallinum reffilegur maður á sextugs- aldri með ræktarlegt dökkt skegg á efrivör, suðrænn að yfirbragði og höfðinglegur álitum. Við héilsuð- umst. Handtak hans var hlýtt og þétt. Er ekki að orðlengja það að með okkur samdist og hann lauk verki sínu vel og greiðlega. Ekki var hann að dýrindis flík eftir stutta stund í höndum Ebbýjar. Öll handavinna og föndur virtist leika í höndum hennar og ég hafði það að orðatiltæki: Ef Ebbý getur það ekki þá getur það enginn. Annað áhugamál var stór þáttur í lífi Ebbýjar og það voru ferðalög um landið, útilegur, og ég held að það séu fáir staðir á landinu sem Ebbý og Ragnar hafa ekki komið á. Þegar þau hættu að komast í útilegur, var það Ebbý mjög dýr- mætt að komast áfram út í náttur- una með því að dvelja nokkra daga á sumri í sumarbústað foreldra minna og frænku í Kjósinni. Það eru margar minningar sem fara í gegnum hugann og þær minn- ingar geymi ég alltaf því Ebbý var ekki bara elskuleg amma mín, held- ur líka vinkona mín og trúnaðarvin- ur og hún var alltaf til staðar hve- nær sem var, fyrir hvað sem var. Og í dag er ég þakklát fýrir að hafa gert mitt besta til að vera til staðar fyrir hana og hjálpa til við að virða hennar hinstu ósk, sem var að fá að vera heima síðustu vikurnar á heimili sínu í Háagerðinu við hlið Ragnars, mannsins sem hún var búin að vera gift í 50 ár. Ég ætla að kveðja hana Ebbý mína með þessum orðum: Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Skáld-Rósa) Þín Sigurbjörg Laufey. dýrseldur. Ég varð að beita hörðu til að fá að borga honum verkalaun sem væru mér ekki til vansæmdar. í kaupbæti fengum við velvild hans sem fljótlega þróaðist yfir í svo náið vinfengi að fyrr en varði vorum við orðin heimagangar hjá þessum ná- granna okkar og höfum verið það síðan. Þegar við kynntumst fjölskyld- unni á Njálsgötu 27 voru þar 6 í heimili. Elstur var Finnbogi Finn- bogason tengdafaðir Hermanns, kempulegur karl með stórskorið höfuð, hafði augljóslega verið hreystimenni á sínum bestu árum en var nú kominn á níræðisaldur og tekinn að fella af. Hann var nærri tvo áratugi skipstjóri á flutn- ingaskipinu Skaftfellingi og þekkti manna best sjólagið fyrir hafnlausri suðurströnd íslands. í Verslunar- sögu Vestur-Skaftfellinga er birt mynd af síðu úr leiðarbók Skaftfell- ings sem Finnbogi færði, svo fallega rituð að aðdáun vekur. Þótt kominn væri að fótum fram þegar hér um ræðir sást hann daglega ganga fram og aftur um þilfarið utan við húsið frá stefni að skut og skyggn- ast til veðurs uns hann hvarf skyndilega af vettvangi; hafði þá fengið væga heilablæðingu og verið fluttur á sjúkrahús. Þar lá hann spakur um hríð, klappaði báðum höndum á sængina öðru hveiju og hafði orð á að þetta væri skrýtið skip. Skömmu síðar var hann allur. Húsmóðirin Guðrún Finnboga- dóttir var á æskuskeiði efriáranna, ákaflega hress og fijálsleg, Reykja- víkurdama í húð og hár, vaxin upp í miðbænum milli stríða, vissi allt um borg hinna gömlu gilda, mann- líf þeirra sem eiga sín ævispor und- ir malbikinu og handan við sögu steinkastala með tindrandi silfur- bergs- og hrafntinnumulning í pússningunni. Fulltrúi kynslóðar sem alið hefur allan aldur sinn i litlu vinalegu timburhúsunum við götur Njáls og Grettis, einörð kona og aðlaðandi með músík í blóðinu. Börnin voru þijú: strákar tveir á menntaskóiaaldri haldnir ólæknandi bíladellu sem olli ískyggilegri tog- streitu milli drungalegra kennslu- bóka og heillandi tryllitækja en kunnu þó fótum sínum forráð svo allt fór vel um síðir; yngst var litla systir innan við fermingu, auga- steinn foreldra sinna og eftirlæti bræðranna. Þetta var vel gefið og vel gert fólk sem ól ekki með sér drauma um drottnun yfir neinum en var hollt ættjörð sinni og þjóð, stéttvíst og stóð við hlið lítilmagn- ans í blíðu sem stríðu, skipaði sér í raðir þeirra sem frelsi, jafnrétti . og bræðralagi unna. Hjónin þekktu annan hvern mann í hverfinu og systkinin vinmörg svo deyfð og doði þrifust ekki innangátta í húsi Her- manns og Guðrúnar en gestir þeim mun betur. Hermann var lærður húsgagna- smiður og kom upp úr kafinu þegar við tókum að bera saman bækur okkar að meistari hans og móðir mín voru systrabörn. Hann hét Þor- steinn Sigurðsson, rak verkstæði og bjó alla sína manndómsævi að Grett- isgötu 13, einn virtasti maður í sinni iðn á landinu meðan hann var og hét. En húsgagnasmíði hefur oft reynst stopul starfsgrein og þegar kynni okkar Hermanns hófust hafði hann hallað sér meir að öðru. Hann starfaði lengi hjá Áhaldahúsi Reykjavíkurborgar en hlaut þar lit- inn frama eins og vænta mátti jafn- róttækur og hann var! Hann þráað- ist við að gera valdhöfunum það til geðs að ganga úr vistinni en þreytt- ist að lokum á ranglæti þeirra, tók sög sína, hefil og tommustokk og gerðist sjálfs sín, kom sér upp dá- litlu verkstæði í skúrbyggingu við húsið og skorti sjaldan verkefni. Ófáar voru ferðir mínar á verkstæð- ið til Hermanns, oftast án annars erindis en spyrja um hagi og heilsuf- ar eða ræða um landsins gagn og nauðsynjar. Stundum var Guðrún hjá honum með smiðssvuntu að lím- bera, bæsa, mála eða halda við, því sum verk eru einum erfið en tveimur létt. Þau voru samhent í þessu sem öðru. Maður fór alltaf auðugri af þeirra fundi og einatt bijóstbjartari, því Hermann átti til að seilast inn- undir hefilbekkinn eftir grænu gleri og rétta gesti sínum til hýrgunar í hófi. Finnbogi sonur þeirra, sem allir þekkja úr útvarpinu, var bráður til ásta eins og margur af þeirri vel öldu kynslóð og krækti sér ungur í enska brúði sem ól honum glæsi- lega og lífmikla stelpu, Guðrúnu Maríu Finnbogadóttur, sem fæddist [ með músíkgáfu ömmu sinnar í gen- unum og er að vísra dómi ein álitleg- asta söngkona sinnar kynslóðar hér á landi. Atvik höguðu því svo að Guðrún María ólst að miklu leyti upp hjá afa sínum og ömmu, var gleði þeirra á efri árum og færði þeim í fósturlaun ungan og hraust- an Hermann fyrir þrem vetrum. ) Sagt er að hver sé sinnar gæfu*"; smiður. Maður freistast til að trúa því þegar litið er til barnaláns Her- manns og Guðrúnar, því börn þeirra, tengda- og barnabörn hafa vakað yfir velferð þeirra í elli og borið þau á höndum sér. Þegar Hermann tók að þreytast á smíðum settu hjónin á stofn litla fornsölu í verkstæðisskúrnum og höfðu af því svolitla aukagetu með ellilaununum en aðalávinningurinn var þó sú til- breytni frá gráma hversdagsins að njóta umgengni við alls konar fólk sem losna vildi við gamalt dót, við- skiptavini í leit að ódýrum notuðum hlutum eða dagdrífara sem litu inn til að skoða og spjalla en keyptu aldrei neitt. Ætli þeir hafi ekki ver-1 ið flestir þegar allt kemur til alls 1 og kannski vinsælastir líka! Hermann og Guðrún voru lagin að skapa sér og sínum lífsfyllingu. Þau komu sér upp bústað við vatn , í Kjósinni og lítilli kænu, skutust • þangað þegar tóm gafst og renndu I fyrir fisk eða til þess eins að losna um stund frá skarkala borgarinnar og hlaða sig orku fuglasöngs og frið- sældar í sveitinni. En allt streymir og aldarfjórð- ungi eða svo eftir fráfall gamla^ skipstjórans var tengdasonurinn tekinn við að ganga fram og aftur < utan við húsið og gá til veðurs, orð- í inn fótafúinn en átti þann metnað , samt að mæta meðan stætt var niðri við Laugaveg til að sýna sarnstöðu { á hátíðisdegi verkalýðsins. Það hef- ur verið í hittifyrra að ég sá hann \ síðast standa á gangstéttinni og 5 styðjast fram á staf sinn meðan kröfugangan skálmaði* hjá. Ég ( undraðist hvernig hann hefði kom- ist þangað uns ég sá Guðlaug son hans að baki honum; „sumur er af sonum sæll". Við litum sem oftar inn á Njáls- götunni einhvem tíma á einmánuði í fyrra. Þá mátti greina að Her- manni var brugðið. Þó kom hanriC fram í stofu, drakk með okkur kaffi og kippti tappa úr koníaksflösku. Til enn frekari munaðar tókum við karlar fáein korn í nefið af gömlum vana og létum nokkur vel valin orð falla um valdhafana. Þetta urðu okkar hinstu fundir. Hinn 2. maí hringdi Sesselja dótt- ir þeirra og sagði okkur að pabbi sinn væri kominn á Fjórðungssjúkra- húsið á ísafirði. Mér þótti það furðu- leg frétt. Hvers vegna á ísafirði? Þá rifyaðist upp fyrir mér að ég hafði aldrei getað hent alminlega reiður á hvar Hermann óx úr grasi. Það var næstum sama hvaða staður á landinu barst í tal, alltaf skyldi Hermann kannast við hann og hafí'* dvalist þar eða í grennd lengur eða skemur á bernsku- eða æskuárum. Meira að segja á Brú á Jökuldal sem er ekki næsti bær við Njálsgötu 60 þar sem hann fæddist. Skýringin var sú að hann missti móður sína átta ára gamall í spönsku veikinni 1918, og faðir hans átti erfitt með að halda stórum bamahópi sínum saman. Þess vegna lágu spor drengsins svo víða. Er það ekki tímanna tákn og himnesk samræming réttlætisins að þegar hann á níræðisaldri er orðinn of veikur til að hægt sé að veita_ honum nauðsynlega aðhlynningu heima er enginn staður finnanlegur í fæðingarborg hans þar sem hann geti notið hjúkmnar síðustu ævi- stundirnar? Við hjónin þökkum Hermanni Guðlaugssyni einstaka tryggð og artarsemi í okkar garð. Guðrúnu, niðjum þeirra og öðrum vandamönn-%. um sendum við vinarkveðju. Einar Bragi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.