Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 41 MINNINGAR ir, var falleg kona og myndarleg húsmóðir. Faðir þeirra, Guðmundur B. Kristjánsson, var gjæsilegur, dökkur á brún og brá, skipstjóri og stærðfræðikennari við Stýrimanna- skólann í Reykjavík. Dæturnar gengu allar menntaveginn. Elst var Ingibjörg, lyfjafræðingur, næst Herdís og yngst var Ragnheiður, augnlæknir. Bróðir þeirra Skúli, næstyngstur í röðinni, dó rúmlega ársgamall. Á heimilinu ólst einnig upp Erna, bróðurdóttir ömmu minnar. Herdís hóf nám í læknis- fræði en varð frá að hverfa vegna veikinda. Á þessu fallega heimili var alltaf verið að iesa og læra, húsmóð- irin vel heima í bókmenntum og þjóðmálum og heimilisfaðirinn sinnti áfram kennslu heima eftir að skóla- starfinu lauk á daginn. Herdís stofnaði eigið heimili ásamt manni sínum, Valtý Alberts- syni, iækni. Þau bjuggu alla tíð á Túngötu 3. Þetta reisulega hús í miðbænum hefur verið fastur punktur í tilveru okkar allra. Þar var hjartslátturinn öðruvísi. Hús- bóndinn sinnti sjúklingum sínum á neðri hæðinni. Á efri hæðinni var heimil þeirra hjóna. Um miðjan dag kom húsbóndinn upp í te eftir að hafa tekið á móti sjúklingum og áður en lagt var af stað í vitjanir eins og læknar gerðu í þá daga. Á þeim tíma var öruggt að Herdís var heima. Herdís var gestrisin og skemmti- leg. Allt ungviðið í fjölskyldunni dvaldi um lengri eða skemmri tíma á heimili Herdísar og Valtýs og voru þau hjón bæði ötul við að miðla af fróðleik sínum. Heimilið var sann- kallað menningarheimili. Á jóladag- inn kom öll fjölskyldan saman á Túngötunni. Þar var veisla að hætti Herdísar. Við spiluðum og skröfuð- um langt fram á nótt. Herdís var ævinlega hrókur alls fagnaðar og kímnigáfu hennar var við brugðið. Herdís var mikill náttúruunnandi, var snjall laxveiðimaður og marg- faldur verðlaunahafi í golfi. Öll ræktun gróðurs og grænmetis var henni hugleikin. í öllu þessu voru hjónin samhent. Aldrei gleymist sá andi sem ríkti á Túngötu 3. Húsið er í minninguni sem höll. Staður til að deyja á. Herdís var sterk kona, skemmtileg og fróð. Ég fyllist ein- lægum söknuði, tómarúmið verður ekki fyllt, Ég þakka fyrir það upp- eldi sem kynnin af henni veittu mér og börnunum mínum. Geirlaug Þorvaldsdóttir. V á vaktiorii til 22.00 öil kvild vikunnar í1 LYFJA Lágmúla 5 Sími 533 2300 Erfídrykkjur Glæsileg kafíi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta. UpplV singar í sínuim 5050 925 og 562 7575 HÖTEL LOFTLEIÐIR t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR KRISTINN HALLGRÍMSSON frá Felli í Mýrdal, til heimilis í Lönguhlíð 3, Reykjavik, sem lést þriðjudaginn 28. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 7. febrúar kl. 10.30. Ragnhildur Auður Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Þór Pálsson, Árni Stefánsson Vilhjálmsson, Helga Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA ÞORSTEINSDÓTTIR, Dalbæ, Dalvik, sem andaðist laugardaginn 1. febrúar, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 8. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Upsakirkjugarði. Skafti Hannesson, Elín Antonsdóttir, Hanna Marfa Skaftadóttir, Baldvin Birgisson, Sigurlaug Ásgerður Skaftadóttir, Ármann Þór Sigurvinsson, Hannes Jarl Skaftason, Aldís Einarsdóttir, Lovísa Björk Skaftadóttir og barnabarnabörn. Þ»að má segja að MITSUBISHI LANCER skutbílamir séu alsettir skrauttjöðrum, svo ríkulega eru þeir útbúnir. Þar að auki eru þeir glæsilegir, rúmgóðir og kraftmiklir (113 hö). Og verðið, það er engu líkt! LANCER framhjóladrifinn skutbíll kostar frá /.430.000 LANCER skutbíll 4x4 kostar s. ooo LANCER ► vindskeið með hemlaljósi ► hreyfiltengd þjófnaðarvöm ► rafhituð framsæti ► toppgrindarbogar ► hilla yfir farangursrými ► 18,5 cm veghæð (4X4) ► fjarstýrðar samlæsingar rj//æií//zj/£' ái//ucP ?/iL/iu!{íjj!j//ciJL-j/Uí(Ji/t/ /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.