Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „Eldtungumar komu æðandí á mótí mér“ Morgunblaðið/Jón Friðgeirsson SPRENGING varð í Haferninum þegar skipbrotsmenn voru komnir frá borði. TVEIR menn um borð í Hafeminum GK 142, sjö tonna bát, björguðust í gúmbjörgunarbát þegar eldur kom upp í bátnum og hann sökk nálægt Hvalseyjum út af Mýrum í fyrri- nótt. Eldurinn breiddist fljótt út og náðu mennirnir ekki að senda út neyðarkall. Sigfús Guðmundsson, annar skipbrotsmannanna, segir að eldtungurnar hafi komið æðandi á móti sér þegar hann opnaði hlerann að vélarrúminu. Skipverjar á bátn- um Unnu HF sáu neyðarblysi skotið upp og reykjarmökk bera við himin. Varðskip var skammt undan og var sent á staðinn og þyrla Landhelgis- gæslunnar var send í loftið. Klukkan 2:37 í fyrrinótt sáu skip- verjar á Unnu_ eld og reyk nálægt Hvalseyjum. Átta mínútum síðar sáu þeir björgunarbát í um þriggja mílna fjarlægð. Ekki var talin þörf á aðstoð þyrlunnar og var henni strax snúið við. Mennimir tveir náð- ust ómeiddir um borð í Unnu og var Haförninn þá alelda. Vom þeir síðan fluttir yfir í varðskipið sem kom með þá til Akraness í nótt. Sigfús Guðmundsson, skipverji og eigandi Hafarnarins, kveðst ekki vita hvemig eldurinn kom upp í bátnum. „Það kom strax mikill eldur upp niðri í vél. Við voram að draga net- in þegar þetta gerðist. Þegar ég opnaði hlerann og leit ofan í vél til þess að athuga hvað væri að gerast komu eldtungumar æðandi á móti mér. Ég náði að hörfa undan eldin- um. Matthías [félagi Sigfúsar á Haferninum] rauk strax í að koma björgunarbátnum í sjóinn og við fórum strax um borð í hann. Það var blíða og nánast sléttur sjór. Þegar við fóram frá bátnum var mikill eldur í vélarrúminu og hafði hann náði að teygja sig upp í stýris- hús. Við náðum ekki að senda út ! neyðarkall áður en við yfirgáfum | bátinn," sagði Sigfús. Sprenging um borð í Haferninum Hann og félagi hans, Matthías Hannesson, komust þurrir um borð í björgunarbátinn og telur Sigfús að þeir hafi verið um eina klukkustund í honum. Andvari var þegar slysið j varð og rak björgunarbátinn strax frá Hafeminum en þeir félagar voru f í fýrstu smeykir um að hann færi | ekki nógu fljótt frá logandi bátnum vegna hættu á sprengingum. „Við vorum komnir talsvert frá bátnum þegar sprenging varð í Haferninum og það blossaði upp mikið eldhaf,“ sagði Sigfús. Sigfús segir að þetta hafi verið gamall bátur og allt niðri í vélar- rúmi verið nánast mettað af olíu i eins og oft sé raunin í gömlum bát- , um. „Þegar við vorum að skríða um | borð í varðskipið sáum við Haförn- inn fara niður,“ sagði Sigfús. Hann segir að það sé varla hægt að lýsa þessari reynslu með orðum og kvaðst ennþá vera að ná áttum. Þetta hafi verið mikið áfall en hins vegar hafi björgunin tekist giftu- samlega. Matthías hafði farið á námskeið í björgunarskóla sjó- } manna og taldi Sigfús að tvímæla- , laust hefði sú þekking komið að ' notum þessa örlagaríku nótt. I Niðurstöður TIMSS-rannsóknarinnar í 3. og 4. bekk grunnskóla kynntar Islenskir nem- endur í 3. bekk næstneðstir í stærðfræði HEILDARFRAMMISTAÐA ís- lenskra nemenda í 3. og 4. bekk grannskóla í stærðfræði og náttúra- fræðigreinum er langt undir alþjóð- legu meðallagi, samkvæmt nið- urstöðum annars hluta TIMSS- rannsóknarinnar, sem kynntar vora í gær. Um er að ræða fjölþjóðlega rannsókn á námsárangri nemenda í stærðfræði og náttúrafræðigrein- um og vora niðurstöður úr fyrsta hlutanum kynntar á liðnum vetri. Von er á niðurstöðum þriðja og síð- asta hlutans, um frammistöðu nem- enda á síðasta ári framhaldsskóla, í kringum næstu áramót. Að sögn dr. Einars Guðmundssonar, verk- efnisstjóra TIMSS-rannsóknarinnar á íslandi, era niðurstöðumar í nátt- úrafræði í 3. og 4. bekk svipaðar og í 7. og 8. bekk en heldur lakari í stærðfræði. í næstneðsta sæti í stærðfræði Sé litið á innbyrðis röð allra þeirra þjóða sem þátt tóku í rannsókninni kemur í ljós að íslenskir nemendur í 3. bekk hafna í 23. sæti af 24 og nemendur í 4._ bekk í 24. sæti af 26 í stærðfræði. Í náttúrafræðigreinum er staðan örlítið skárri, en þar era nemendur 3. bekkjar í 20. sæti af 24 og 4. bekkur í 20. sæti af 26. Sé aftur á móti aðeins litið á þær þjóðir sem uppfylltu aðferðafræði- legar kröfur í rannsókninni lenda íslendingar í 15. sæti af 16 í 3. bekk og 16. sæti af 17 í 4. bekk í stærðfræði. í náttúrafræði er 3. bekkur í 13. sæti af 16 og 4. bekkur í 13. sæti af 17. Nemendur í Singapúr og Kóreu standa sig best í stærðfræði, bæði í 3. og 4. bekk. Nemendur í Japan og Hong Kong era einnig mjög ofar- lega og það sama má segja um nemendur í Hollandi, Tékklandi og Austurríki. í náttúrafræði standa nemendur í Kóreu sig best og nem- endur í Japan, Bandaríkjunum, Austurríki og Ástralíu standa sig einnig mjög vel, bæði í 3. og 4. bekk. Flest löndin sem era fyrir ofan alþjóðlegt meðaltal í báðum greinum era það einnig í 7. og 8. bekk. Neðstu sætin, ásamt íslend- ingum, skipa sem fyrr lönd á borð við íran, Kúveit, Kýpur, Portúgal, Grikkland og Tæland. Styrk staða raungreina ræður miklu um afkomu þjóða Einar bendir á að mikilvægi rann- sóknarinnar byggist meðal annars á þeirri skoðun að þekking á sviði vísinda og tækni muni skipta miklu fyrir samkeppnisstöðu þjóða á al- þjóðavettvangi í framtíðinni. Það sé skoðun margra að styrk staða raun- Stærðfræði 4. bekkur: 3. bekkur: Meðal námsárangur Meðal námsárangur Singapúr 625 Kórea 561 Kórea 611 Singapúr 552 Japan 597 Japan 538 Hong Kong 587 Hong Kong 524 Holland 577 Tékkland 497 Tékkland 567 Holland 493 Austurríki 559 Slóvenía 488 Slóvenía 552 Austurríki 487 írland 550 Ástralía 483 Ungverjaland 548 Bandaríkin 480 Ástralía 546 Ungverjaland 476 Bandaríkin 545 írland 476 Kanada 532 Alþjl. meðalt. 470 ísrael 531 Kanada 469 Alþjl. meðalt. 529 Lettland 463 Lettland 525 Skotland 458 Skotland 520 England 456 England 513 Taíland 444 Kýpur 502 Nýja Sjáland Kýpur 440 Noregur 502 430 Nýja Sjáland 499 Grikkland 428 Grikkland 492 Portúgal 425 Taíland 490 Noregur 421 Portúgal 475 ÍSLAND 410 ÍSLAND 474 íran 378 íran 429 Skáletruð rlki upplylla ekki aöteröatræðUegar krötur rannsóknarinnar Kúvelt 400 Náttúrufræðigreinar 4. bekkur: 3. bekkur: Meðal námsárangur Kórea 597 Meðal námsárangur Kórea 553 Japan 574 Japan 522 Bandaríkin Austurríki 565 565 Bandaríkin Ástralía 511 510 Áslralía 562 Austurríki 505 Holland 557 England 499 Tékkland 557 Holland 499 England Kanada 551 549 Tékkland Kanada 494 490 Singapúr Slóvenía 547 546 Singapúr Slóvenía 488 487 írland 539 Skotland 484 Skotland Hong Kong 536 533 Hong Kong írland 482 479 Ungverjaland Nýja Sjáland 532 531 Nvia Siáland 473 Alþjl. meðalt. 473 Noregur 530 Lettland 465 Alþjl. meðalt. 524 Ungverjaland 464 Leltland 512 Noregur 450 ísrael 505 Grikkland 446 ÍSLAND 505 ÍSLAND 435 Grikkland 497 Taíland 433 Portúgal Kýpur 480 475 Portúgal Kýpur 423 415 Tafland 473 íran 356 íran 416 Skálelruö ríki uppfylla ekki Kúvelt 401 aðferða/ræðilegar kröfur rannsóknarinnar greina muni eiga eftir að ráða miklu um efnahag og afkomu þjóða. Því sé í flestum vestrænum löndum lögð mikil áhersla á að menntakerfi land- anna skili nemendum með trausta kunnáttu og færni í stærðfræði og náttúrufræðigreinum. Einar segir að með þeim niður- stöðum sem nú hafí verið kynntar fáist ákveðin yfirsýn um ástand raungreinakennslu í grannskólum á Islandi og að ljóst sé að þær niður- stöður séu óviðunandi. „Þær valda auðvitað vonbrigðum og það er aug- Ijóst að ekki er hægt að sitja að- gerðalaus gagnvart þeim. Nú þarf að hefja endurreisn þessara greina í íslensku skólakerfí." íslendingar komnir inn í vítahring Þórólfur Þórlindsson, forstöðu- maður Rannsóknastofnunar uppeld- is- og menntamála, segir íslendinga komna inn í vítahring. Vegna þess að hér sé ekki öflug kennsla í raun- greinum, velji fáir þær greinar í framhaldsskólanum og enn færri á háskólastigi. Þessum vítahring sé erfítt að komast út úr svo lengi sem menn einbeiti sér ekki að grunnskól- anum. Þetta hafí raungreinakennar- ar reyndar verið að segja i mörg ár fyrir daufum eyram. Einar varar við að niðurstöður rannsóknarinnar verði teknar út úr samhengi. „Það er vert að minna á að niðurstöður úr fjölþjóðlegri sam- anburðarrannsókn á borð við TIMSS verða ekki túlkaðar með góðu móti án samhengis við sérkenni mennta- kerfanna í hveiju landi fyrir sig og að ákvarðanir um umbótastarf á r Undur og stórmerki gerast!!! Meðlimir Stjörnuakademíunnar hafa fyrir því óyggjandi sannanir að póluð alheimsorka valdi straumhvörfum í stjörnuskoðun íslendinga föstudaginn þrettánda kl. 13.13. Fylgist meö því hún mun gera ykkur frjáls. f s TJöRnunKQDEminn V. Samtök áhugamanna um stjörnuspeki grundvelli niðurstaðna TIMSS verð- ur einnig að skoða út frá samhengi sérkenna menntakerfanna í hveiju landi. Það sem skilar góðum ár- angri í einu landi þarf ekki nauðsyn- lega að gera það í öðra. Allar erlend- ar fyrirmyndir um skólastarf þarf því að ígrunda vel áður en þær era teknar upp hérlendis. Að mínu viti eiga íslendingar að líta til allra átta eftir góðum hugmyndum í skóla- starfí en taka mið af íslenskum veruleika þegar þær era teknar upp,“ segir hann. \ ) \ \ \

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.