Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Veiðin byrjar vel
í Laxá í Aðaldal
Laxamýri. Morgunblaðið.
ÞEIR voru þungir iaxarnir sem
veiddust í Aðaldalnum í gærmorg-
un þegar veiðin hófst fyrir neðan
Æðarfossa. Fimm fiskar komu á
land og var meðalþyngdin 12
pund. Á myndinni má sjá f.v.
systkinin á Laxamýri, Jón Helga
Vigfússon og Sigríði St. Vigfús-
dóttur ásamt Viktori Haukssyni
með 15,16 og 10 punda laxa.
Everest-
fáninn á
Bessa-
stöðum
SAMKVÆMT upplýsingum
frá skrifstofu forseta liggur
íslenski fáninn, sem Everest-
faramir færðu forsetanum við
heimkomu, nú frammi á
Bessastöðum ásamt steini úr
Everest-fjalli.
Að sögn Kornelíusar Sig-
mundssonar, forsetaritara,
hefur endanleg ákvörðun um
það hvaða heiðurssess fáninn
muni hljóta ekki verið tekin
þar sem svo skammur tími sé
liðinn frá því að gjöfin barst.
„Það verður ákveðið í samráði
við þá Everest-fara hvernig
að verður staðið," segir Korn-
elíus, „en fáninn mun þó vera
á Bessastöðum um einhveija
framtíð.“
Fjölmargir hópar hafa sótt
Bessastaði heim og skoðað
húsakost og þá muni sem þar
eru, að sögn Komelíusar.
„Þetta hefur verið í því formi
að fólk hefur hringt og óskað
eftir því að fá að koma, sett
fram óskadagsetningar og síð-
an hafa þær verið samræmdar
öðm því sem fram fer á Bessa-
stöðum," segir Kornelíus.
Hann segir að fram að þessu
hafi það form ekki verið haft
á að heimsóknartími fyrir al-
menning sé auglýstur sérstak-
lega.
Stjórn Veiðifélags
Kjósarhrepps
Kærir til
Hollustu-
verndar
STJÓRN Veiðifélags Kjósarhrepps
ákvað á stjórnarfundi sl. föstudag
að kæra til Hollustuverndar ríkisins
meðferð á athugasemdum við starfs-
leyfistillögur vegna fyrirhugaðs ál-
vers á Grundartanga. Samhljóða
erindi var sent umhverfisráðherra
og úrskurðarnefndar þar sem ekki
sé ljóst hver eigi að fjalla um slíka
kæru, að því er fram kemur í bréfi
veiðifélagsins. Úrskurðarnefndin
hefur þegar vísað tveimur kærum
frá og ætlast til þess að stjórn Holl-
ustuverndar fjalli um kæruna.
Samkvæmt upplýsingum frá Her-
manni Sveinbjörnssyni, formanni
Hollustunefndar, verður málið rætt
á fundi næstkomandi föstudag en
hann býst ekki við að endanleg nið-
urstaða liggi þá fyrir. Veiðifélag
Kjósarhrepps gerir athugasemdir við
tvennt í sambandi við starfsleyfistil-
lögur álvers. í fyrsta lagi leggur
félagið til að heimiluð framleiðslu-
geta verði 60.000 tonn í stað
180.000 tonn eins og tillögur Holl-
ustuverndar gera ráð fyrir. í öðru
lagi vill félagið að vilji Norðurál
stækka verksmiðjuna verði að sækja
um sérstakt starfsleyfi fyrir til-
greinda stækkun ásamt tilheyrandi
umhverfismati. Einnig mótmælir
Veiðifélagið þeim vinnubrögðum
umhverfisráðherra að gefa út starfs-
leyfi fyrir álverið á Grundartanga
áður en kærufrestur vegna athuga-
semda rann út.
Vaknaðu þjóð
í þun^um hlekkjum!
Stund aflausnar þinnar er boðuð
föstudaginn þrettánda kl. 13.13
þegar „dagur ljómar, og morgunstjama
rennur upp í hjörtum yðar.“
(2. Pétursbréf 1:19)
SKjryArjÐi leið
SAUrÉlAG vm tRÚ
FRETTIR
Hjalta Má Brynjarssyni
bjargað úr sjávarháska
„Hættur að finna
fyrir höndunum
vegna kulda“
Keflavík. Morgunblaðid.
„Ég var hættur að finna fyrir
höndunum vegna kulda og ég hef
aldrei á ævinni verið eins feginn
og þegar ég sá þyrluna koma,“
sagði Hjalti Már Brynjarsson, 17
ára Njarðvíkingur, sem lenti í
sjávarháska á sjóþotu við Básinn
í Keflavík á laugardaginn og var
bjargað giftusamlega um borð í
TF-SIF þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar eftir að hafa velkst í sjónum í
um klukkustund við Vatnsnes-
kletta.
Hjalti Már og vinur hans höfðu
fengið sjóþotuna lánaða hjá kunn-
ingja og ætlaði Hjalti Már að sigla
frá smábátahöfninni í Gróf til
Njarðvíkur. Hann var í svokölluð-
um þurrgalla og með björgunar-
vesti. „Við gerðum okkur ekki
grein fyrir hversu veðrið var
slæmt. Það gaf stöðugt yfir sjó-
þótuna og eftir um 10 mínútur
drapst á vélinni. Mér tókst að
koma henni í gang en hún drap
fljótleg á sér aftur og þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir tókst mér ekki
að koma henni í gang á ný.“ Þá
var Hjalti Már staddur út af
Vatnsnesklettum sem skilja að
Keflavík og Vatnsnesvík og rak
hann hratt að landi. „Félagar
mínir höfðu fylgst með ferðum
mínum og þeir gerðu lögreglunni
strax viðvart þegar þeir sáu að
ég átti í erfiðleikum. Björgunar-
sveitarmenn komu fljótlega á
vettvang og reyndu þeir að skjóta
til mín línu en mér tókst ekki að
ná henni. Eins kom trilla og
reyndu mennirnir á henni að
koma línu til mín en það gekk
ekki heldur. Mig rak hratt að
landi og aðstæður voru þannig
að ég velktist um í briminu við
klettana þannig að trillan gat
ekki komist að mér.“
„Þetta var mikill barningur og
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Hjalti Már Brynjarsson, 17
ára Njarðvíkingur, sem komst
í hann krappan við Vatnsnes-
kletta á laugardaginn.
einu sinni slóst sjóþotan utan í
klettana og eins fékk ég þung
högg þegar ég slóst við þotuna.
Gallinn sem ég var í lak og í sann-
leika sagt var ég bæði hræddur
og kaldur ogþá sérstaklega á
höndunum. Ég get ekki gert mér
grein fyrir hversu lengi ég var í
sjónum en félagar mínir segja að
það hafi verið í um eina og hálfa
klukkustund. Það var því mikill
Iéttir að sjá þyrluna koma og ég
vil þakka áhöfn hennar innilega
fyrir,“ sagði Hjalti Már Brynjars-
son um björgun sína í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann hafði
tekið sér frí í vinnunni til að hvíl-
ast enda lerkaður eftir sjóferðina.
Hann var fluttur í Sjúkrahús
Reykjavíkur en var fljótur að ná
sér eftir volkið og var útskrifaður
samdægurs.
Breytingar hjá lög-
reglu í Reykiavík
Forvarnir
til almennr-
ar deildar
FORVARNADEILD lögreglunnar í
Reykjavík færist frá rannsóknar-
deild í almenna deild lögreglunnar
við þær breytingar sem verða á
löggæslumálum í iandinu 1. júlí.
Ómar Smári Ármannsson aðstoðar-
yfírlögregluþjónn sem veitt hefur
deildinni forstöðu frá upphafi, verð-
ur yfirmaður í fíkniefna- og auðg-
unarbrotadeildum.
Fjórir starfsmenn deildarinnar
af fimm fylgja honum úr deildinni
en sá sem eftir verður hefur starfað
við áfengisvarnir og þá aðallega í
tengslum við aðila er vista hefur
þurft í fangageymslum. Forvarna-
deild lögreglunnar var stofnuð í
september 1988 og hafði að megin-
hlutverki að vinna að öflugum for-
vörnum og skapa virkari tengsl við
almenning. Meðal verkefna hafa
verið almannatengsl, áfengis- og
fíkniefnavarnir, afbrotavarnir,
unglingamál og slysavarnir.
----------.......—
Rauði kross íslands
Tíu sendifull-
trúar erlendis
TÍU sendifulltrúar eru nú starfandi
á vegum Rauða kross íslands er-
lendis við hlið starfsmanna og sjálf-
boðaliða Alþjóðahreyfingar Rauða
krossins um allan heim. Tveir ís-
lenskir sendifulltrúar eru nýkomnir
heim eftir störf í Kenýa og Úg-
anda, og sendifulltrúi sem var í
Afganistan er á heimleið.
Tveir sendifulltrúar RKÍ starfa í
Norður-Kákasushéruðum fyrrum
Sovétríkjanna, einn er upplýsinga-
fulltrúi Alþjóðasambands Rauða
kross félaga í Mið-Asíu, einn full-
trúi er í Sambandslýðveldinu Júgó-
slavíu, einn í Azerbaijan, einn í
Tajíkistan, tveir eru í Sierra Leone
og tveir í Kenýa.
Sakfelldur fyrir að
kyssa konu á munninn
RUMLEGA sextugur karlmaður
var á mánudag sakfelldur í Héraðs-
dómi Vestfjarða fyrir að bijóta gegn
209. gr. almennra hegningarlaga
með því að kyssa konu á þrítugs-
aldri gegn vilja hennar. Umrædd
hegningarlagagrein er svohljóð-
andi: „Hver sem með lostugu at-
hæfi særir blygðunarsemi manna
eða er til opinbers hneykslis skal
sæta fangelsi allt að 4 árum, en
varðhaldi eða sektum ef brot er
smávægilegt." Ákvörðun refsingar
var frestað og fellur niður að tveim-
ur árum liðnum. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins hefur ekki
áður verið sakfellt fyrir koss.
Atvikið varð í nóvember sl. á
afviknum stað í geymsluhúsnæði
sem samnýtt er af frystihúsi
Hólmadrangs á Hólmavík og slátur-
húsi Kaupfélags Hólmavíkur.
Konan bar að maðurinn hafi
kysst sig og sleikt þannig að tunga
hans hafi farið inn í munn hennar
og að hann hafi haldið þéttingsfast
um mitti hennar. Hún hafi rifið sig
lausa og farið út úr geymslunni.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
skyndilega fengið þá hugdettu að
kyssa konuna. Hann hafí tekið laus-
lega í aðra hönd hennar og beðið
hana um einn koss. Í sömu andrá
hafi hann smellt einum snöggum
kossi, á munn konunnar og því
næst hafi þau gengið út úr húsinu.
Maðurinn þvertók fyrir að hafa tek-
ið utan um konuna, sleikt hana og
sett tunguna upp í hana.
Ekki annað sannað
en koss á varir
í dómsniðurstöðu segir að bæði
maðurinn og konan hafi verið trú-
verðug í frásögnum sínum um það
hvað í raun gerðist í geymsluhús-
næðinu þótt þau hafi greint á um
hversu langt maðurinn hafi gengið
er hann kyssti konuna í óþökk henn-
ar. Ekki þyki sannað að maðurinn
hafi gert annað og meira en taka
í aðra hönd konunnar og kyssa
hana á varirnar.
Við mat á því hvort um lostugt
athæfi hafi verið að ræða segir í
dómsniðurstöðu að til þess beri að
líta að maðurinn hafi kysst konuna
á afviknum stað án þess að hún
gæfi honum í skyn með orðum eða
látbragði að hún vildi kyssa hann
eða vera kysst af honum. „Hefur
ákærði enga skýringu gefið á því
hvers vegna hann fékk skyndilega
þá hugdettu að kyssa sér mun yngri
konu á munninn, sem hann þekkti
fremur lítið, en ekkert í fyrri sam-
skiptum þeirra gat gefið honum til-
efni til að ætla að hún vildi stofna
til nánari kynna,“ segir orðrétt.
Að þessu virtu varð ekki talið
unnt að álykta á annan veg en
þann að athæfí mannsins hafi verið
af kynferðislegum toga og til þess
fallið að særa blygðunarsemi kon-
unnar og bijóta gegn rétti hennar
til kynfrelsis. Því bæri að sakfella
ákærða fyrir brot gegn 209. gr.
almennra hegningarlaga.
Miskabótakröfu hafnað
Fyrir hönd konunnar var þess
krafíst að maðurinn yrði dæmdur
til að greiða henni miskabætur,
aksturskostnað, lækniskostnað og
lögfræðikostnað, samtals tæplega
700 þús. krónur. Þær kröfur voru
ekki teknar til greina. Konan hafði
verið til meðferðar hjá geðlækni
vegna þunglyndis sem m.a. mátti
rekja til kynferðislegrar misnotkun-
ar í æsku. Geðlæknir konunnar bar
fyrir dómi að andlegri heilsu hennar
hefði hrakað til muna eftir atvikið.
í dómsniðurstöðu sagði að af gögn- .
um málsins yrði ekki ráðið að mann- »
inum hafi mátt vera ljóst að konan
hafí verið haldin þunglyndi, sem
rekja mætti til kynferðislegrar mis-
notkunar í æsku. Hann hefði því
ekki getað séð fyrir þær afleiðingar
sem verknaður hans hefði á sálarlíf
konunnar.
Maðurinn var dæmdur til að
greiða allan sakarkostnað. Dóminn
kváðu upp Jónas Jóhannsson, Ingi-
björg Benediktsdóttir og Kristjana
Jónsdóttir en dómþingið var háð í
dómhúsi Héraðsdóms Reykjavíkur.