Morgunblaðið - 11.06.1997, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.06.1997, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Seðlabankl varar stjórnina viöbelli- j| brögðum 'i 1 Þýski sefilabankinn varafii l i stjörnvölíi í Bonn vifi þvi i gær ' að beita bellibregfium tii afi ! | landið uppfylltí skilyrði fyrir | þátttöku í myntsamstarf Evr- . ðpusambandsþjððanna. 11 | Halldór J. Kristjánsson ráðuneytisstj óri iðnaðarráðuneytisins Virkjanirnar séu þjóð- hagslega hagkvæmar HEIMILD þarf frá Alþingi til að hefja virkjanaframkvæmdir í hvetju einstöku tilfelli, en að sögn Halldórs J. Kristjánssonar, ráðuneytisstjóra í iðnaðarráðuneytinu, þarf ráðu- neytið fyrst að fallast á að virkjanir séu þjóðhagslega hagkvæmar. Kristján Jónsson rafmagnsveitu- stjóri sagði á ársfundi Rafmagns- veitna ríkisins síðastliðinn föstudag að auka þyrfti samkeppni og gefa fleirum kost á orkuframleiðslu. Ra- rik hefði athugað möguleika á hag- kvæmum virkjunarkostum og helst kæmu til greina Fjarðarárvirkjun í Seyðisfirði, Gilsárvatnavirkjun í Fljótsdal og Villinganesvirkjun í Skagafirði. Að sögn Halldórs J. Kristjánsson- ar hefur Landsvirkjun samkvæmt lögum um fyrirtækið virkjunarheim- ild í Villinganesi, og Alþingi þyrfti því að gera breytingu á ef Rarik ætti að fá þann virkjunarkost, en jafnframt hefur Landsvirkjun heim- ild til virkjana á Fljótsdal og Blöndu, auk allra virkjanaframkvæmda á Þjórsársvæðinu og stækkunar Kröflu. „Það þarf að sýna fram á að þjóð- hagslega sé hagkvæmt að ráðast í virkjanafrmakvæmdir og að um ódýrasta kost sé að ræða. í augna- blikinu eru ekki líkur til þess að veitt séu virkjunarleyfi til viðbótar nema þá út af nýrri orkusölu, en það er fyrst og fremst í tengslum við nýjan markað og nýja sölu sem það opnast möguleikar til að virkja,“ sagði Halldór. Frelsi í áföngum Samkvæmt tillögum orkulaga- nefndar ber að gefa vinnsiu á raf- orku ftjálsa í áföngum, en að sögn Halldórs telur iðnaðarráðuneytið að fyrsta skrefið í þeim efnum gæti komið til framkvæmda fljótlega, og ákveðin samkeppni yrði í því að afhenda raforku til nýrrar stóriðju. „Þeir sem hefðu bestu kostina í því kæmu þá allir til álita, en þá væri það spurningin um hver væri með hagkvæmustu virkjunina. Þar komu Nesjavellir inn í og þeir eru því komnir inn í röðina vegna álvers Columbia, og sama gæti átt við bæði hjá Hitaveitu Suðurnesja og Rafmagnsveitum ríkisins, en þá er samkeppnisstaðan metin út frá því hver getur afhent orku til stóriðju- notandans. Þá er viðmiðunin svolítið önnur en kaupin á milli almenning- sveitnanna og Landsvirkjunar, og þá er það í raun og veru sala til þriðja aðila, en þar held ég að raun- veruleg samkeppni ætti að geta orð- ið,“ sagði Halldór. Morgunblaðið/PPJ Grumman flugbátur í heimsókn Engar regl- ur um notk- un sjóþotna ENGAR reglur gilda um notkun sjóþotna að sögn Hilmars Snorra- sonar hjá Slysavarnaskóla sjó- manna. hann segir hins vegar al- veg Ijóst að tæki þessi séu ekki ætluð til notkunar á hafi úti. Síðastliðinn laugardag munaði litlu að illa flæri er vél sjóþotu bilaði utan við Keflavík og var pilti á þotunni bjargað í þyrlu Landhelgisglæzlunnar. Hilmar sagði brýnt að fólk færi ekki langar vegalengdir á sjó- þotum án þess að láta vita af sér og hafa tilheyrandi öryggisbúnað. Þannig þurfi viðkomandi að vera í björgunarvesti og hafa meðferð- is neyðarblys til að geta gert vart við sig ef þörf væri á. GAMALL Grumman Goose flug- bátur átti viðdvöl á Reykja- víkurflugvelli um helgina á leið frá Bandaríkjunum til Skot- lands. Hér á landi muna sjálf- sagt margir eftir þessum flug- bátum en sjö Grumman-flugbát- ar voru í innanlandsflugi Loft- leiða og Flugfélags fslands á árunum 1944 til 1956. Vélinni var fyrst flogið árið 1937 og voru framleiddar um 345 vélar af þessari gerð á árunum fram til 1945. Islendingafélagið í Vancouver Iceland House á horni 10. og 6. strætis Erlendur Óli Leifsson að eru um fimm hundruð meðlimir skráðir í íslend- ingafélagið í Vancouver, Bresku Kólumbíu í Kanada, en ekki eru þeir allir virkir. Flestir eru bú- settir í borginni og í grennd. „Okkur skilst að þetta sé fjölmennasti fé- lagsskapur íslendinga er- lendis," segir Erlendur Óli. „Þó er ekki þar með sagt að við fáum fimm hundruð manns á allar samkomur, það er langt frá því.“ Einn_ þátturinn í starf- semi íslendingafélagsins er útgáfa fréttablaðs sem kemur út mánaðarlega, nema yfir sumartímann. „Við réðumst í að kaupa hús fyrir nokkrum árum fyrir starfsemi félagsins, og erum smám saman að eignast það. Við áttum náttúrulega ekki krónu þegar við bytjuðum," segir Er- lendur Óli. Meðal þeirra leiða sem félagið hefur notað til að afla fjár til húsbyggingarinnar og annarrar starfsemi er að njóta hluta ágóð- ans af rekstri spilavíta. „Þeir hafa hérna svona „casinos", sem þeir kalla, eða spilavíti. Það eru ein- staklingar sem reka þau, en líkn- arfélög og önnur félög sem fá að njóta helmings ágóðans af rekstr- inum eitt eða tvö kvöld á ári. Við verðum þá að leggja til fimm starfsmenn, en eigendur spilavít- isins leggja til tæki og annan mannskap. Svo þegar gert er upp að kvöldi fáum við helminginn af ágóðanum, sem getur orðið nokk- uð góður. Þannig hefur okkur tek- ist að afla nokkurs fjár til húss- ins, sem við köllum Iceland House." Það er á horni tíunda og sjötta strætis í New Westminster, sem er útborg Vancouver. „Við erum með gisitiheimili, eða „bed and breakfast", á efstu hæðinni sem við rekum til að eiga fyrir sköttum og afborgunum. Við höfum gott bókasafn, og okkur hafa áskotn- ast margar góðar bækur, allar íslenskar, jafnvel frá því snemma á nítjándu öld. Eg gæti trúað að þarna mætti finna bækur sem ekki finnast neinstaðar heima.“ Innan vébanda félagsins er einnig kvenfélag. „Það eru konur sem eru af þriðju kynslóð Vestur- íslendinga, sem koma þarna á þriðjudögum og vinna við uppsetn- ingn bókasafnsins, sem er allt tölvuskráð, og viðhald og því um líkt. Þeirra félagsskapur er kallað- ur Sólskin og þær sinna líka elli- heimilinu sem við rek- um eiginlega, þótt það sé fjármagnað gegnum kanadíska sjúkratrygg- ingakerfið." Kanadíska almannatryggingakerf- ið er um margt svipað því sem er á Norðurlöndunum, og því gerólíkt því kerfí sem er að finna sunnan landamæranna í Bandaríkjunum. Þess vegna fæst kostnaður af rekstri á borð við elliheimilið, sem íslendingafélagið stjómar, greiddur af hinu opin- bera. Þó eru nú blikur á lofti þar sem útlit er fyrir gífurlegan niður- skurð í opinberum útgjöldum í Kanada. Erlendur Óli segist oft hafa undrast það í sambandi við starf- semi íslendingafélagsins að sér virðist fólk af annarri og jafnvel þriðju kynslóð Vestur-íslendinga jafnvel vera duglegri sinna betur ► Erlendur Óli Leifsson fædd- ist í Reykjavík 1932 og fluttist til Vancouver á vesturströnd Kanada 1956. Hann sinnti þar byggingarstörfum til að byija með, en eftir þijú ár fór hann á sjóinn á lúðu-, síld- og laxveið- ar. Hann hefur verið búsettur í Vancouver alla tíð síðan og sinnt sildarflutningum og síld- armælingum á vegum kana- dísku ríkisstjórnarinnar undanfarin fjögur ár. Kona hans er Kathy Leifsson og syn- ir þeirra eru Erik Thór, sem er þrítugur, og Davíð Óðinn, 25 ára. öllum áhugamálum er varða ís- land en þeir sem eru nýkomnir frá íslandi. „Það tók mig langan tíma að skilja þetta. En ég held að þegar fólk kemur vestur þá sé auðvitað margt annað sem er áríð- andi, það þarf að læra málið, koma sér fyrir og einbeitir sér að því. Nú svo er það ef til vill líka með börn.“ Lögð hefur verið áhersla á að halda íslenskukennslu á hveijum vetri. „Kennararnir hafa yfirleitt fólk að heiman sem er fyrir vestan að læra. Meðal þeirra sem hafa verið þarna eru Hjálmar Ámason, þingmaður, einnig Óskar Sigur- björnsson, skólastjóri á Ólafsfirði, Sturla Kristjánsson fyrrum fræðslustjóri Norðurlands eystra. Svo höfum við gefíð út kennslu- segulbönd sem við bjuggum til sjálf fyrir nokkrum árum. Meira að segja sendiráðið í Washington hefur bent fólki á okkur með þetta, sem gerir mig nú eiginlega alveg hlessa því mér fínnst þeir ættu að hafa þetta hjá sér sjálfir í sendiráðinu." Mikið af Vestur- íslendingum hefur leit- að eftir íslenskunámi hjá félaginu, en einnig fólk af öðrum þjóðern- um. „Það hefur oft ver- ið ungt fólk sem hefur sýnt áhuga, langað að læra norrænt mál, og ef til vill verið að lesa einhverja fornsöguna og þá er mesta hjálpin í íslensku af norrænu málunum.“ Erlendur Óli er nú staddur á íslandi, og segist koma hingað heim öðru hvoru. „Þetta er eins og með laxinn, hann sækir alltaf á heimastöðvarnar. Ég hef komið hingað einu sinni á ári undanfar- ið.“ Hann segir þó ólíklegt að nokkurntíma verði af því að hann flytji aftur til íslands. „En ég get vel hugsað mér að vera hérna á sumrin. Ég sakna aldrei skamm- degisins á Islandi." íslensku- kennsla á hverjum vetri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.