Morgunblaðið - 11.06.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 13
LANDIÐ
50 ár frá því að Sauðárkrókur fékk kaupstaðarréttindi
VEGLEG afmælisdagskrá verður
á Sauðárkróki í tilefni af því að
140 ár eru liðin frá því staðurinn
var gerður að löggiltum verslunar-
stað með konungsbréfí, 90 ár frá
því Sauðárkrókshreppur var stofn-
aður og 50 ár frá því bærinn fékk
kaupstaðarréttindi. Einnigeru 125
ár síðan Arni Árnason reisti fyrsta
íbúðarhúsið á Sauðárkróki, sumar-
ið 1872.
Sumardagskráin hefst á ráð-
stefnu um stjórnmálaflokka og
sveitarstjómarmál sem haldin
verður 14. júní á Sauðárkróki.
Verður þar fjallað um stöðu sveit-
arstjórna innan stjórnkerfisins,
flokkapólitík í sveitarstjórnum og
að síðustu verða pallborðsumræður
með fulltrúum allra flokka, ásamt
fulltrúa R-listans.
Skúli Þórðarson, stjórnmála-
fræðingur og bæjarstjóri á Blöndu-
ósi, mun halda erindi um sjálf-
stjórn sveitarfélaga,_ valddreifingu
og aukið lýðræði. Árni Gunnars-
son, aðstoðarmaður félagsmála-
ráðherra, fjallar um flutning verk-
efna frá ríki til sveitarfélaga og
markmið og stefnu félagsmála-
ráðuneytis. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, mun velta
upp þeirri spurningu hvort sveitar-
félög hafi burði til að taka við
auknum verkefnum.
Konur á Króknum
Sýningin Konur á Króknum
verður opnuð á kvenréttindadaginn
19. júní. Flytur Aðalheiður Orms-
dóttir erindi um upphaf kvenna-
hreyfingar í Skagafirði. Sama dag
verður afhjúpaður stuðlabergsdr-
angur við Freyjugötu sem karlafé-
lögin á Sauðárkróki gefa kvenna-
félögum staðarins. Ástæðan er sú
að þar reistu konur Frúarstíg og
var það fyrsta vegagerð í bænum.
Daginn eftir mun Helga Kress
flytja erindi um skáldkonur á
Króknum, UMFT mun frumsýna
revíuna „Glaðar tíðir - gamalt og
nýtt“ og flugeldasýning verður
haldin á vegum Skátafélagsins
Eilífsbúa.
Laugardaginn 21. júní hefst
Niðjamót á brúðkaupi aldarinnar í
Sauðárkrókskirkju. Hestamanna-
mót verður haldið í umsjá Hesta-
mannafélagsins Léttfeta og úti-
skemmtun á Faxatorgi með leik-
Afmælisnefnd Sauðárkróks, sem m.a.
var sett á laggimar í tilefni af hálfrar
aldar afmæli kaupstaðarins, kynnti
afmælisdagskrána nýlega. Pétur Blöndal
fylgdist með og sá að viðburðaríkt
sumar er framundan á Króknum.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
PÁLL Brynjarsson, starfsmaður afmælisnefndar Sauðárkróks,
Deborah Robinson, ferðamálafulltrúi Skagafjarðar, Guðbrand-
ur Guðbrandsson, tónlistarkennari, Árni Ragnarsson, formaður
afmælisnefndar og Jón Ormar Ormsson, rithöfundur, kynntu
afmælisdagskránna.
til 13. júlí. Er það m.a. í tilefni af
því að 60 ár eru liðin frá stofnun
Náttúrulækningafélags íslands.
Frumkvöðull að stofnun félags-
ins var Jónas Kristjánsson, þáver-
andi héraðslæknir á Sauðárkróki.
Jónas var ötull baráttumaður fyrir
bættri heilsu og betri lífsháttum.
Einnig var hann Skagfirðingum
dijúgur liðsmaður í flestum mál-
efnum er horfðu til framfara fyrir
byggðina.
Tilgangur ráðstefnunnar er að
fjalla um hvernig heilbrigðir lífs-
hættir geta eflt bæði andlega og
líkamlega heilsu manna. Fyrirles-
arar verða fjórtán talsins og koma
úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga,
sjúkraþjálfara, sálfræðinga, nær-
ingarfræðinga, íþróttafræðinga,
hagfræðinga, félagsfræðinga og
heimspekinga. Jón Arnar Magnús-
son setur ráðstefnuna.
Boðið verður upp á fjölþætta
dagskrá meðan á ráðstefnunni
stendur með Drangeyjarferðum,
gönguferðum, siglingum á Áshild-
arvatni, fjölskyldudegi íþróttanna
o.s.frv.
Forseti íslands
í heimsókn
Forseti íslands fer í opinbera
heimsókn á Sauðárkrók lokahelg-
ina 19. til 20. júlí og verður þá
mikið um dýrðir. Auk fastra dag-
skrárliða verður boðið upp á tón-
leika fyrir unglinga, gönguferð um
gamla bæinn, frumsýningu á
Söguleiksýningu, bryggjuball,
flugeldasýningu, hátíðarmessu og
haldið verður afmælismót Golf-
klúbbsins.
I lok afmælisins verður afmælis-
fáninn tekinn niður og færður til
varðveislu á Minjahúsið á Sauðár-
króks, sem verður opnað formlega
sömu helgi.
HÚSIÐ Árbakki, sem var járnsmiðja Ingimundar Bjarnasonar, verður opin þeim sem ferðast á
Sauðárkrók í sumar. I þessu litla húsi bjó sex manna fjölskylda og hýsti það einnig eldsmiðju,
fjós, haughús, heygeymslu og nokkrar kindur.
tækjum fyrir yngstu kynslóðina.
Einnig verða pallborðsumræður
um konur á vinnumarkaði. Um
kvöldið verður söngskemmtun og
revíusýning í Bifröst. Verður revíu-
sýningin endurtekin á sunnudegin-
um.
Hagmælska í
tali og tónum
Alþýðusönghátíð verður haldin
helgina 27. til 29. júní. Hefst hún
á revíunni „Glaðar tíðir - gamalt
og nýtt“. 28. júlí verður sönghátíð
í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans.
Þar koma m.a. fram Karlakórinn
Heimir, Kirkjukór Sauðárkróks,
Álftagerðisbræður og einsöngvar-
arnir Jóhann Már Jóhannsson,
Svana Berglind Karlsdóttir, Þuríð-
ur Þorbergsdóttir og Gerður Bolla-
dóttir.
Um kvöldið verður dagskráin
„Listaskáld bæjarins“ þar sem
fjallað verður í tali og tónum um
ýmsa hagyrðinga er sett hafa
mark sitt á bæjarlífið á Króknum.
Myndlistarsýning Ástu Pálsdótt-
ur opnar 5. júlí og stendur til 20.
júlí. Þar rifjar hún upp gamlar
minningar frá Króknum með
vatnslitamyndum af eftirminnilegu
fólki og húsum.
Sest á rökstóla
um heilsu
„Heilsa og heilbrigðir lífshættir“
er yfirskrift ráðstefnu sem haldin
verður á Sauðárkróki helgina 12.
Vegleg afmælis-
dagskrá í sumar
Glaðar tíðir í bæjarlífinu
SAMA hvar flett er upp í afmælisdag-
skrá Sauðárkróks, - alltaf verður nafn
Jóns Ormars Ormssonar fyrir manni.
Hann er höfundur fjögurra uppfærslna
sem settar verða á fjalirnar í sumar auk
þess sem hann skrifar annál Sauðár-
króks, sem kemur út í lok árs.
Revían „Glaðar tíðir - gamalt og nýtt“,
sem leikstýrt er af Eddu V. Guðmunds-
dóttur, verður frumsýnd 20. júní í upp-
færslu UMF Tindastóls og byggist á
gömlu og nýju efni gamanvísnahöfunda
á Sauðárkróki, að sögn Jóns Ormars.
„Fjallað er um einstaka þætti í bæjar-
sögunni sem menn hlógu að á sínum tíma
og ættu að geta hlegið að enn þann dag
í dag. Ekki verður um samfellu að ræða,
eins og svo oft í revíum, heldur verða
tínd til brot héðan og þaðan. Revían
byggist á söng, enda er sönghefðin rík
í Skagafirði.“
Sameinast
í sögunni
„Brúðkaup aldarinnar" verður 21. júní.
Er þá skírskotað til brúðkaupa sem voru
haldin 1902 og 1904 þegar María Claess-
en og Sigurður Thoroddsen gengu í það
heilaga og Ingibjörg Claessen og Jón
Þorláksson. „Gamlir Króksarar töluðu
alltaf um brúðkaupið, þótt þau væru tvö,“
segir Jón Ormar.
„Þeim fannst þau vera toppurinn á til-
verunni og það var alltaf mikið í þeirra
munni þegar þessar tvær dætur Sauðár-
króks giftust burtu.“ í tengslum við brúð-
kaupið verður haldið niðjamót. „Við vilj-
um fá sem flesta af þeim sem eru brott-
fluttir eða eiga hingað rætur í heim-
sókn,“ heldur Jón Ormar áfram. „Von-
andi náum við tengingu við þetta fólk
með því að rifja upp söguna sem við eig-
um sameiginlega."
Listaskáld á
léttum nótum
„Listaskáld bæjarins," nefnist dagskrá
sem frumsýnd verður 28. júní. „Við eig-
um geysimikið af skáldum," segir Jón
Ormar. „Verkið byggist annars vegar á
sungnum textum eftir þessi skáld og hins
vegar á kveðskap sem ekki hafa verið
samin lög við. Allir eiga að njóta stundar-
innar, enda er dagskráin á léttari nótun-
um.“
Söguleiksýning, sem leikstýrt er af
Eddu V. Guðmundsdóttur, verður frum-
sýnd lokahelgi afmælisdagskrárinnar,
þ.e. 19. júlí. Þá verður saga bæjarins
rakin fyrstu fjörutíu árin í myndum, tón-
um og frásögn. Jón Ormar lætur ekki
þar við sitja. Hann ætlar einnig að gefa
út annál, þar sem fjallað er um hvert ár
fyrir sig frá 1947. „Fjallað verður um
mannlífsliliðina sem gleymist svo oft,“
segir Jón Ormar.
Þá fór boltinn
að rúlla
„Ætlunin er að ná fram stemmningu
staðarins með sögubrotum, vísum, til-
svörum og fágætum myndum. Stefnt er
að því að annállinn komi út í síðasta lagi
í janúar. Það veltur á því hversu vel mér
gengur að vinna úr efninu, en ég er með
mjög góða aðstoðarmenn."
Jón Ormar fluttist í Skagafjörð 6. júní
árið 1966. „Eg ætlaði aðeins að vera yfir
sumar,“ segir hann. „Það urðu þrettán
ár.“ Hann flutti svo skamma hríð til
Reykjavíkur, en fór aftur til Sauðár-
króks. „Eg veit ekki hvort ég fer nokk-
urn tíma héðan aftur,“ segir hann.
„Eg er Strandamaður, en á mikla sam-
leið með Króksverjum hvernig sem á því
stendur. Það er eitthvað í menningunni
sem dregur mig að sér. Hér getur maður
verið frjáls og eðlilegur, nánast eins og
manni dettur í huga að vera.“
Leikritið „Sumarið fyrir stríð“ eftir
Jón Ormar í uppfærslu Leikfélags
Sauðárkróks, sem leikstýrt var af Eddu
V. Guðmundsdóttur, var valin besta
áhugamannaleiksýning ársins 1996. „Þá
fór boltinn að rúlla,“ segir hann.
„Hér er gífurlega mikill efniviður í
góð listaverk, hvort sem fengist er við
kvikmyndir, skáldsögur eða leiksvið.
Þegar afmælisárinu lýkur hef ég mikla
löngun, ef ég mögulega get, til að vinna
einstaka þætti áfram. Þótt þeir séu stað-
bundnir hafa þeir víðari skírskotun, ekki
aðeins til lítils samfélags heldur til stórr-
ar heildar."