Morgunblaðið - 11.06.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 15
Microsoft
færir út
kvíarnar
Seattle. Reuter.
MICROSOFT hugbúnaðarfyr-
irtækið hefur samþykkt að
leggja einn milljarð dollara í
kaplafyrirtækið Comcast
Corp og segja kunnugir að
fjárfestingin sé liður í tilraun-
um til að steypa sjónvarpsvið-
tækjum og einmenningstölv-
um saman í eitt.
Með fjárfestingunni fær
Microsoft 11,5% hlut í fjórða
stærsta kapalsjónvarpi
Bandaríkjanna. Þetta er
mesta fjárfesting Microsoft til
þessa og undirstrikar þann
ásetning hugbúnaðarrisans
að móta þróun alnetsins og
stafrænnar sjónvarpstækni.
Hagvöxtur
í heiminum
3,3% 1997
MUnchen. Reuter.
HAGVÖXTUR í heiminum
verður 3,3 í ár, aðallega vegna
uppgangs í Asíu og Róm-
önsku Ameríku, að sögn
þýzku hagrannsóknastofnun-
arinnar Ifo.
Samkvæmt könnun Ifo á
skoðunum 450 alþjóðlegra
sérfræðinga er búizt við að
hagvöxtur í Rómönsku Amer-
íku verði 5,2% í ár og í Asíu
4%;
í Vestur-Evrópu verður til-
tölulega hægur hagvöxtur,
eða 2,3%, en í Norður-Amer-
íku er búizt við 2,8% hag-
vexti að sögn stofnunarinnar.
Á fyrsta ársfjórðungi 1997
furðuðu sérfræðingarnir sig á
styrk hagkerfisins í Banda-
ríkjunum og Bretlandi, en
voru „vonsviknir“ með hag-
vöxt á meginlandi Evrópu.
Ifo segir að fyrirtæki í Evr-
ópu og Asíu telji góðar horfur
í útflutningi í ár vegna sterks
dollars.
Þótt verðbólga sé enn lítil
fara vextir hækkandi í nokkr-
um iðnríkjum samkvæmt
könnuninni.
Takmarkað
nikkelmagn
í evrómynt
Lúxemborg. Reuter.
VEGNA ótta neytenda við
ofnæmi hafa fjármálaráðherr-
ar Evrópusambandsins sam-
þykkt að takmarka notkun
nikkels í evrómynt, sem í ráði
er að taka upp fyrir árið 2002.
Miðlunartillaga fram-
kvæmdastjórnar ESB um að
nikkel verði aðeins notað í
tveimur af átta evrómyntpen-
ingum hlaut „bráðabirgða-
stuðning" allra aðildarland-
anna 15 að sögn fjármálaráð-
herra Svía, Eriks Asbrinks.
Svíar hafa gagnrýnt mest
notkun nikkels í evrópskri
mynt í framtíðinni á þeirri
forsendu að nikkel valdi of-
næmi.
Asbrink fagnaði samkomu-
laginu, sem hann kvað mikil-
vægt heilbrigðis- og neyt-
endamál, þótt Svíar ætli að
standa utan við myntbanda-
lagið (EMU) þegar það tekur
til starfa 1999.
Alls verða 92% evrómynt-
peninga án nikkels samanbor-
ið við 25% núverandi mynt-
peninga aðildarlandanna.
Plastos-Umbúðir á leið á Opna tilboðsmarkaðinn
Hlutafé aukið um 25 %
Miklar breytingar standa yfir
á rekstri fyrirtækisins
HLUTABRÉF Plastos-Umbúða hf.
verða skráð á Opna tilboðsmark-
aðnum hinn 18. júní næstkom-
andi. Þann dag verður boðið út
nýtt hlutafé í fyrirtækinu að fjár-
hæð 21 milljón króna að nafn-
virði. Núverandi hlutafé er 82 millj-
ónir og nemur aukningin því rúm-
um 25%.
Innreið Plastos-Umbúða á Opna
tilboðsmarkaðinn er liður í miklum
breytingum sem standa nú yfir á
rekstri þess. Fyrir skömmu var
plastverksmiðjunni Plastos ehf.
skipt í tvö sjálfstæð fyrirtæki;
Plastos-Umbúðir hf., og Plastos-
Miðar og tæki ehf.
Plastos-Umbúðir hf. sinnir al-
hliða framleiðslu umbúða úr plasti
og er í nýreistu fimm þúsund fer-
metra stórhýsi við Suðurhraun í
Garðabæ. Plastos-Miðar og tæki
ehf. hefur nú hins vegar tekið við
límmiðaframleiðslunni auk inn-
flutnings á tölvuvogum og vélum
til strikamerkinga, pökkunar, kjöt-
vinnslu o.fl. Starfsemi þess verður
áfram í 1.300 fermetra húsnæði
við Krókháls í Reykjavík.
Eigendur beggja fyrirtækja eru
nú að stærstum hluta hinir sömu.
Sigurður Oddsson, framkvæmda-
stjóri Plastos, og fjölskylda eiga
um 95% hlutafjár en Jenný Stefan-
ía Jensdóttir stjórnarformaður á
5%.
Styrkir stöðu fyrirtækisins
Jenný segir að tilgangurinn með
útboðinu sé að fjölga í hluthafa-
hópi fýrirtækisins, m.a. til að létta
fjármögnun framleiðsluvéla og
greiða fyrir lækkun skulda. Að-
spurð segir hún að skuldir íþyngi
fyrirtækinu ekki og áætlanir varð-
andi húsbygginguna hafi staðist.
„Meginástæðan fyrir því að félagið
er opnað nú er sú að það er að
okkar mati besta leiðin til að
styrkja það í samkeppninni. Við
höfum verið á innhverfu nótunum
síðustu misserin en fyrirtækið hef-
ur nú allar forsendur til að
blómstra og springa út. Við höfum
nú þegar orðið vör við mikinn
áhuga á fyrirtækinu meðal fjár-
festa og fengið fjölmargar fyrir-
spurnir. Við erum því bjartsýn á
að hlutafjárútboðið muni ganga
vel,“ segir Jenný.
Gengisskráning-
arvogkrónunnar
endurskoðuð
Vægi norsku krónunnar eykst
SEÐLABANKINN hefur lokið
hinni árlegu endurskoðun á gengis-
skráningarvog krónunnar. Hin
nýja vog mælir gengisbreytingar
frá gengisskráningarfundi sem
haldinn var á föstudag og þar til
ný vog verður tekin upp að ári.
Þegar ný gengisskráningarvog
var tekin upp í september 1995
var ákveðið að hún yrði framvegis
endurskoðuð árlega í ljósi samsetn-
ingar utanríkisviðskipta árið áður.
Slík endurskoðun fór síðast fram
í júní 1996.
Breytingarnar að þessu sinni frá
fyrri vog eru óverulegar. Stærsta
breytingin er sú að vægi dönsku
krónunnar minnkar um 1,4,% en á
móti eykst vægi norsku krónunnar
um 1,6,%. Vægi Bandaríkjadals
eykst um 0,5% og verður 22,5%.
Vægi þýsks marks minnkar um
0,4% og verður 14,2%. Vægi jap-
ansks jens minnkar einnig, eða um
0,3% og verður 6,8%. Vægi Norð-
ur-Ameríkumynta vex í heild um
0,3% og verður 23,8% en vægi
Evrópumynta stendur nánast Istað
í 69,4%. Meðfylgjandi tafla sýnir
nýju vogina og breytingar frá þeirri
fyrri.
Seðlabankinn leggur áherslu á
að aðeins sé um tæknilega breyt-
ingu að ræða á þeirri gengisvog
sem notuð sé við daglegan útreikn-
ing á gengi krónunnar og feli hún
ekki í sér neina brej’tingu á gengis-
stefnunni. Markmið árlegra endur-
skoðana á voginni sé að tryggja
að hún endurspegli ætíð eins vel
og kostur er samsetningu utan-
ríkisviðskipta þjóðarinnar.
& Ný gengisskráningarvog
'Mvfr Byggð á viðskiptum 1996 Breyt. frá
Ríki Gjaldm. Vog fyrri vog
Bandaríkin USD 22,45 % +0,48
Bretland GBP 13,14 % +0,31
Kanada CAD 1,31 % -0,16
Danmörk DKK 9,41 % -1,43
Noregur NOK 8,54 % +1,56
Svíþjóð SEK 4,13 % -0,12
Finnland FIM 1,22% +0,16
Frakkland FRF 4,75 % -0,31
Belgía BEF 1,55% -0,10
Sviss CHF 1,66% +0,01
Holland NLG 4,51 % -0,07
Þýskaland DEM .14,15 % -0,44
Ítalía ITL 2,26 % +0,04
Portúgal PTE 1,34% +0,19
Spánn ESP 2,77 % +0,13
Japan JPY 6,81 % -0,27
Norður Ameríka 23,76 % +0,32
Evrópa 69,43 % -0,05
Japan 6,81 % -0,27
ALLS: 100,00 % 0,00
EFTA semur
við Marokkó
Hlutaíjárútboð Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað hafið
Býður út hlutafé fyrir
liðlega hálfan milljarð
SÍLDARVINNSLAN hf. í Nes-
kaupstað hefur hafið útboð á nýju
hlutafé að nafnvirði 80 milljónir
króna. Bréfin verða boðin hluthöf-
um á genginu 6,7 fram til 20. júní
og geta þeir hluthafar sem ekki
nýta sér forkaupsréttinn framselt
hann að hluta eða öllu leyti. Að
þeim tíma liðnum verður það sem
þá kann að vera óselt boðið á al-
mennum markaði. Söluandvirði
útboðsins verður því a.m.k. 536
milljónir.
Síldarvinnslan er eitt af stærstu
sjávarútvegsfyrirtækjum landsins
með frystingu, fiskimjölsverk-
smiðju, saltfiskverkun og síldar-
verkun í landi. Félagið gerir síðan
út fimm skip. Samtals ræður það
yfir 6.137 þorskígildum á yfír-
standandi fiskveiði ári og veiði-
heimildir til síld- og loðnuveiða
nema um 6.755 þorskígildum.
Það er yfirlýstur tilgangur út-
boðsins að styrkja fjárhagsstöðu
félagsins og fjármagna fyrirhugað-
ar fjárfestingar.
Heildarfjárfestingar Síldar-
vinnslunnar á árinu 1996 voru um
1.180 milljónir, en með sölu hluta-
bréfa voru nettófjárfestingar 950
milljónir. Stærstu fjárfestingar
ársins voru fiskimjölsverksmiðja
félagsins fyrir um 520 milljónir,
bygging nýs fiskvinnsluvers fyrir
um 400 milljónir og endumýjun á
Barða NK 120 fyrir um 80 milljón-
ir. Auk þess voru keyptar varan-
legar fiskveiðiheimildir fyrir 56
milljónir.
Miklar endurbætur
á Berki NK
Meginfjárfestingar félagsins á
þessu ári verða framkvæmdir við
hið nýja fiskvinnsluver félagsins
ásamt endurbótum á loðnuskipinu
Berki NK 122. Fiskvinnsluverið er
eitt hið fullkomnasta hér á landi
og sérhæft til frystingar á uppsjáv-
arfiski. Frystigeta þess er um 300
tonn á sólarhring og sjálfvirkni
mikil í framleiðsluferlinu.
Börkur verður lengdur um tæpa
15 metra í Nauta skipasmíðastöð-
inni í Póllandi í sumar, jafnframt
því sem sett verður í skipið sjókæli-
kerfi fyrir hráefnið ásamt nýrri
brú, íbúðum, perustefni og útbún-
aði til flottrollsveiða. Burðargeta
skipsins verður 1.800 tonn að lokn-
um breytingunum, en um 1.500
tonn miðað við sjókælt hráefni til
manneldisvinnslu.
Fjárfestingar fyrstu fjóra mán-
uði ársins 1997 voru 441 milljón,
en þar af er íjárfesting í nýja fisk-
vinnsluverinu 340 milljónir og
kaup á fiskveiðiheimildum um 50
milljónir.
Metár í
framleiðslu
Samkvæmt milliuppgjöri félags-
ins fyrstu fjóra mánuði ársins var
hagnaður þess 302 milljónir króna
sem er um 90 milljónum yfir áætl-
un ársins. Á síðasta ári nam hagn-
aðurinn um 494 milljónum, en það
ár var mesta aflaár í sögu Síldar-
vinnslunnar hf. Samtals öfluðu
skip félagsins 103.038 tonna sam-
anborið við 67.283 tonn árið áður.
Framleiðslan var að sama skapi
meiri en áður og nam tæpum 55
þúsund tonnum sem er um 53%
aukning.
Genf. Reuter.
EFTA, friverzlunarsamtök Erópu
hafa undirritað til bráðabirgða frí-
verzlunarsamning við Marokkó og
hann verður formlega undirritaður
í Genf í næstu viku.
í yfirlýsingu frá EFTA segir að
samningurinn sé mikið framfara-
skref í viðskiptum samtakanna við
Miðjarðarhafsríki og fleiri muni lík-
lega fylgja á eftir.
í samningnum er kveðið á um
fríverzlun með iðnvarning, unnar
landbúnaðarafurðir, fisk og aðrar
sjávarafurðir. Um verzlun með
landbúnaðarafurðir verður samið
með tvíhliða viðræðum hinna fjög-
urra aðilarlanda EFTA - íslands,
Noregs, Sviss og Liechtensteins -
og Marokkó.
EFTA-ríkin afnema alla tolla og
hömlur á innflutningi viðkomandi
afurða jafnskjótt og samningurinn
tekur gildi - líklega 1. janúar næst-
komandi í síðasta lagi.
Marokkó mun afnema eigin tolla
á EFTA innflutningi á 12 ára um-
þóttunartíma og fær að gera bráða-
birgðaráðstafanir til að vernda ung-
an iðnað sinn og atvinnugreinar,
sem verið er að endurskipuleggja
eða eiga í erfíðleikum.
Samningurinn kemur í kjölfar svip-
aðra samninga EFTA við Tyrkland
og ísrael. Viðræður um svipaðan
samning fara fram við Túnis og
viðræður við Kýpur og Möltu eiga
að hefjast síðar á þessu ári.