Morgunblaðið - 11.06.1997, Page 16

Morgunblaðið - 11.06.1997, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ _______________________ ERLENT Verða gyðing- ar gyðingiim verstir? Stjómmálaflokkar sem byggja á trúarleg- um kennisetningum gyðinga verða æ atkvæðameiri í ísrael, skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir. Gyðingar sem aðhyllast veraldarhyggju óttast þessi auknu ítök og þær öfgar sem sigla í kjölfarið. ÍSRAEL er eina lýðræðisríkið í heimi þar sem gyðingar njóta ekki trúfrelsis segja þeir sem gagnrýna stjórnina og vísa til þeirra vaxandi áhrifa sem róttækir bókstafstrúar- menn hafa hvað snertir trúmál í Israelsríki. Margir utan ísraels tengja trúaða gyðinga einkum við öfgasinnaða landnema en sannleik- urinn er langtum flóknari en það. Staðreyndin er að ástandið í landinu hefur hríðversnað og nú er svo komið að veraldlega sinnað- ir gyðingar (secular) eru þeir sem finnst að harðast sé að þeim sótt. Þetta kom fram í skoðanakönnun sem var gerð í síðasta mánuði. Um 51% þeirra 1.025, sem voru spurð- ir, sagðist trúa að borgarastyijöld brytist út í ísrael en 38% trúaðra gyðinga voru á þeirri skoðun. Af þeim sem óttuðust að borgarastyij- öld skylli á töldu 30% hana óhjá- kvæmilega, 40% hugsanlega og 24% að líkur væru á því. Aukin áhrif og ítök strang- trúaðra einangrunarsinna Þegar Israelsríki var stofnað árið 1948 byggði það að flestu leyti á sósíaldemókratískum og zíonísk- um kenningum. Almennt var viður- kennt að nauðsynlegt væri að taka tillit til allra trúarhópa gyðinga. Smátt og smátt hefur þróunin orð- ið á þann veg að trúarhópar þjóðfé- lagsins náðu stjórn á andlegum málum í skiptum fyrir stuðning og féllust á að landið ætti ekki að verða trúarlegt ríki. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og þetta samkomulag er löngu hrunið. Það er vert að hafa í huga að þeir sem kallast trúaðir eru mjög marglitur hópur. Skil verður að draga milli hófsamra manna sem teljast til strangtrúaðra en þeir klæðast meðal annars upp á vest- rænan máta, gegna herþjónustu og vilja ekki einangra sig frá sam- félaginu - og svo hinna öfgafullu strangtrúarmanna sem vilja vera út af fyrir sig í sérstökum hverfum, neita að gegna herþjónustu og vilja sem allra minnst samneyti og helst ekkert við „guðleysingjana“ sem þeir kalla svo. Þá skiptir engu máli hvort átt er við þá sem nefnd- ir eru „secular" eða hófsama strangtrúarmenn. Varasöm þróun meðal „hófsamra“ strangtrúarmanna Innan síðarnefnda hópsins er aragrúi hópa eða safnaða. Lítill hópur er t.d. and-síonistar og eru þeir þar af leiðandi í raun á móti búsetu gyðinga í landinu og tilveru ríkisins. Þessari afstöðu er þó hafn- að af meirihlutanum. Svokallaðir hófsamir strangtrú- armenn_ eru margir meðal land- nema. Úr þeirra hópi hafa komið glæpamenn á borð við Baruch Goldstein sem myrti 29 araba sem voru við bænagjörð í Hebron fyrir þremur árum og Yigal Amir, morð- ingi Rabins fyrrv. forsætisráð- herra. Flestir þeirra sem teljast hófsamir strangtrúarmenn eru hvorki landnemar né öfgamenn en því verður ekki neitað að allur þessi hópur hefur hallað sér æ meira til hægri í pólitísku tilliti. Það er hörmulegt hversu langt þetta hefur leitt marga og hlýtur að vekja ugg í bijósti hversu marg- ir hafa orðið til að dásama og lofa gjörðir þeirra Baruchs og Amirs. Ekki bætir úr skák að í forystu- sveit hófsamra strangtrúarmanna hefur ekki verið brugðist við þess- ari aðkenningu af hetjudýrkun og þaðan af síður snúist gegn þeirri neikvæðu þráhyggju sem þessir menn eru haldnir í sambandi við MARGIR gyðingar óttast borgarastyrjöld. hernám gyðinga á arabískum land- svæðum. Strangtrúaðir öfga- menn láta hendur skipta ef svo ber undir Þeir sem eru í söfnuðum öfga- sinnaðra strangtrúarmanna hafa sjaldnast kært sig um málefni eins og landnám eða frið. Það er tiltölu- lega skammt síðan þeir fóru að gera sig gildandi í stjórnmálum og sjá þar leið til að tryggja þeim styrki og fjármagn til að halda uppi þessum trúarsamfélögum. Vegna kosningafyrirkomulagsins sem er í ísrael hafa þeir einnig komist í ýmsar ríkisstjórnir lands- ins. En þessir hópar eru frekir til fjárins því margir öfgasinnaðir strangtrúarmenn kjósa að stunda nám fremur en vinnu og þeir gegna alls ekki herþjónustu. í síðustu kosningum hrósuðu strangtrúaðir gyðingar enn sigri og komust í áhrifastöðu í hinu pólitíska lands- lagi. Segja má að þáttaskil hafi orðið þegar þeir gerðu bandalag við Ehug Olmert sem tilheyrir hægrivæng Likud-flokksins og studdu hann til sigurs í borgar- stjórakosningum í Jerúsalem. Nokkru seinna eða í maí í fyrra unnu flokkarnir sem byggja á trú 23 sæti í 120 manna þingi og flokk- ar öfgasinnaðra fengu 14 af þess- um sætum. Þar með voru þessir flokkar end- anlega komnir á bragðið, höfðu náð þingsætum, ráðherraembættum, og valdastöðu í Jerúsalem. Avra- ham Ravitz leiðtogi Torah-flokks- ins sem telst mjög öfgafullur sagði að ekki væri ætlunin að blanda sér í daglegt líf fólks. Engu að síður hefur hann og fylgismenn hans reynt að loka ýmsum götum í Jerú- salem á hvíldardeginum, koma í veg fyrir tilnefningar manna í embætti á trúarlegum forsendum og endursemja innflytjendalöggjöf- ina þeim í hag. Þeim hefur þegar tekist að fá því framgengt að EL A1 flýgur ekki á hvíldardeginum og algert bann er við sölu svína- kjöts og gildir þá einu þó menn séu t.d._ kristnir. Ýmsir hópar trúaðra gyðinga hafa látið hendur skipta ef þannig hefur staðið á. Þeir hafa sett upp vegatálma, hent eldsprengju á skyndibitastaði MacDonalds þar sem maturinn þar er ekki „kosher" - þ.e. matreiddur samkvæmt gyð- inglegum helgisiðum. Þeir hafa einnig gert aðsúg að konum sem þeim finnst ekki klæða sig siðsam- lega. Gyðingar gyðingum verstir Það er sem stendur fátt sem bendir til annars en að trúarlegu flokkarnir færist enn í aukana. Þá hefur stórlega dregið úr stuðningi hinna hófsömu strangtrúarmanna | við friðarferlið. í tímaritinuThe j Middle East sagði nýlega frá því að þurft hefði að skipa lífvörð handa Yoel Bin-Nun rabbía þegar hann lýsti því yfir að ýmsir starfs- félagar hans hefðu reynt að afsaka eða skýra, með tilvísun í gamla testamentið, að morðið á Rabin hefði verið réttlætanlegt. Hann segir að fæstir vilji gangast við því að Yigal Amir hafi verið einn þeirra, en láti að því liggja í einka- I samtölum og lýsi ánægju sinni með j verknaðinn. Þar sem meirihluti hægrimanna er á þingi hefur Þjóðlegi trúarflokk- urinn hætt öllum tilburðum sínum til að þykjast vera miðjuflokkur og skipað sér eindregið með hægri- mönnum og segja má að trúarlegu flokkarnir hafi klárari afstöðu nú - og til hægri - eftir að Likud tók j við stjórnartaumunum í ísrael eftir kosningarnar í fyrra. Það þarf engan að undra að j meirihluti ísraela sem er ekki innan vébanda þessara flokka eða sér- safnaða finnist sér ógnað og andúð- in vex í garð hinna trúuðu bræðra. Vinstri - flokkurinn Meretz hefur orðið athvarf margra óánægðra í garð trúflokkanna. Þá finnst mönn- um það ganga þvert á alla skynsemi að þessir öfgahópar skuli fá styrki ) og endalaust fé þó svo að fólk inn- . an þeirra vilji standa að öðru leyti ’ utan við þjóðfélagið, hvorki vinna j né gegna herþjónustu. Ef marka má þá gremju sem þarna kraumar er ekki víst að það verði arabar sem verða verstir gyðingum - heldur gyðingar. Dagblöð í Þýskalandi harðorð í garð frönsku stjórnarinnar fyrir að vilja lengri frest Segja áformum um EMU stefnt í hættu Bonn. Reuter. ÞÝSK dagblöð sögðu í gær að yfír- lýsing Frakka um að þeir vildu fá lengri tíma til að endurskoða stöð- ugleikasáttmálann, sem ætlað er að halda niðri ijárlagahalla í aðild- arríkjum Evrópusambandsins (ESB), gæti stefnt áformunum um gildistöku Efnahags- og mynt- bandalags Evrópu (EMU) árið 1999 í alvarlega hættu. Stefnt hafði verið að því að sátt- málinn yrði staðfestur á leiðtoga- fundi ESB í Amsterdam 16. og 17. júní. Dominique Strauss-Kahn, fjár- málaráðherra nýju stjómarinnar í Frakklandi, lýsti því hins vegar yfir á mánudag að stjórnin þyrfti að fá ráðrúm til að íhuga sáttmálann og kvaðst telja að ekki yrði hægt að staðfesta hann á leiðtogafundinum. Dagblaðið Die Welt birt forsíðu- frétt um málið undir fyrirsögninni „Franska stjórnin frystir stöðug- Ieikasáttmálann“ og Siiddeutsche Zeitung var með fyrirsögnina „Franska stjórnin hindrar stöðug- leikasáttmálann fyrir evróið“. Fréttaskýrendur sögðu að með yfirlýsingunni vildi franska stjómin ekki aðeins tefja staðfestingu sátt- málans og ljóst væri að leiðtogar Evrópusambandsins stæðu frammi fyrir miklum vanda. „Frakkar hafa sett Evrópusambandið í alvarlega stöðu,“ sagði viðskiptablaðið Hand- elsblatt. „Ef franska stjórnin reynir að koma nýjum atriðum í stöðug- leikasáttmálann merkir það að gildistaka EMU dregst og það vek- ur ennfremur efasemdir um hvort stöðugleikasáttmálinn taki nokk- urn tíma gildi,“ bætti blaðið við. Önnur blöð töldu að með yfírlýs- ingunni væri franska stjórnin að reyna að knýja fram breytingar á áformunum um EMU. „Sannleikur- inn er sá að þetta er tilraun til að virkja peninga- og fjármálastefnuna til að draga úr atvinnuleysinu," sagði Frankfurter Allgemeine Zeit- ung í forystugrein. „Hugmyndin á bak við stöðugleikasáttmálann, sem Þjóðveijar og Frakkar áttu í miklum erfiðleikum með að þróa, var ein- mitt að koma í veg fyrir slíka mis- notkun á fjármálastefnunni,“ sagði blaðið og lýsti afstöðu frönsku stjórnarinnar sem afturhvarfi til efnahagshugmynda sjöunda áratug- arins. Dagblaðið General Anzeiger sagði að leiðtogar ESB stæðu frammi fyrir miklum vanda fyrir fundinn í Amsterdam. „Lionel Josp- in [ijármálaráðherra Frakklands] hefur sett baráttuna gegn atvinnu- leysi á oddinn. Vilji hann halda trú- verðugleika sínum hlýtur hann að krefjast þess að önnur ESB-ríki fari að dæmi hans.“ Mæðir á Waigel „Takist Theo Waigel [ijármála- ráðherra Þýskalands] ekki að bjarga stöðugleikasáttmálanum, sem hann átti mestan þátt í að knýja fram, geta borgararnir ekki lengur treyst því að sameiginlegur gjaldmiðill ESB-ríkjanna haldist stöðugur þeg- ar fram líða stundir,“ sagði General Anzeiger. Dagblaðið Frankfurter Rund- schau var hins vegar á öndverðum meiði og sagði að beiðni Frakka um að fá ráðrúm til að íhuga sáttmál- ann væri réttlætanleg og þyrfti ekki að stefna áformunum um að EMU taki gildi árið 1999 í hættu. \ I \ \ \ i i ! i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.