Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNl 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson. MARGRÉT Brynjólfsdóttir við verk sín. Sækir myndefnið í grjót og ryðgað drasl Vogum. Morgunblaðið. MARGRÉT Brynjólfsdóttir frá Hell- um á Vatnsleysuströnd hélt mál- verkasýningu í Glaðheimum nýlega. Þar sýndi hún 25 myndir og er myndefnið í þeim flestum sótt til æskustöðvanna á Vatnsleysu- strönd. Sýningin er fýrsta einkasýn- ing Margrétar, var aðsókn mikil og margar myndir seldust. Aðspurð sagði Margrét að gijót og ryðgað drasl, t.d. ryðgaðar tunn- ur eða gamlar ryðgaðar hjólbörur, heilluðu sig mikið sem myndefni. Það sést vel á myndunum hve umhverfið sem hún ólst upp í er henni hugleikið. Hillur og ljósmyndir MYNPLIST Ásmundarsalur, Freyjugötu 41 BLÖNDUÐ TÆKNI/ SAMSÝNING Sigríður Sigurjónsdóttir og Takashi Honuna. Opið alla daga nema mánu- daga kl. 14-18 til 15. júní. Aðgangur ókeypis. STÓRAR raunsæjar ljósmyndir af reykvísku borgarlandslagi eru staðsettar ofarlega á veggjum sýn- ingarrýmisins. Myndirnar eru hluti af ljósmyndaröð sem nefnist Hyber- ballad og verður gefin út í bókar- formi í Japan næstkomandi haust. Myndlistarmaðurinn Takashi Homma myndar úthverfí Reykja- víkur og er myndefnið íbúðarbygg- ingar og nánasta umhverfi Rima- hverfis í Grafarvogi. Gerð og stíll bygginganna og gróðurlítið um- hverfíð vekja áhuga ljósmyndarans og kom hann sérstaklega hingað til lands og vann ljósmyndaröðina á einum mánuði. Takashi hefur heillast af hinni sérstöku bjrtu sem er á íslandi og eru skærir litir íbúð- arbygginganna í mótvægi við tún- þökur og heiðbláan himininn. Yfir- bragð myndanna lýsir ekki hvað síst ákveðnu reykvísku umhverfi og gefur hversdagslega sýn á lífíð á staðnum. Hillur hannaðar af Sigríði eru staðsettar fýrir neðan Ijósmyndim- ar og einnig víðsvegar í salnum. Hillurnar eru úr áli, bæði einlitar og klæddar Ijósmyndum og vinnur Sigríður jafnframt nokkrar hillur með texta og merkjum. Sigríður er undir áhrifum frá Takashi hvað myndefni varðar sem er tekið úr borgarlandslagi. Hún þekur hillur með ljósmyndum af íbúðarblokkum sem hún endurtekur í sífellu í sam- fellda röð og notar á sama hátt mynd af túnþökum. Með einlitu hill- unum tekst betur til og hönnunin fær meira vægi. í besta verki Sig- ríðar á sýningunni raðar hún níu hillum í lóðrétta röð frá gólfi til lofts í innskoti fyrir miðju rýminu. Hillumar em rafhúðaðar bláar að lit og myndar hver hilla einingu innan heildar. Formrænt séð mynd- ar verkið sterka heild í rýminu and- stætt ósamstæðum verkum þar sem Sigríður vinnur með ólíkar hug- myndir sem eru ekki fullmótaðar. Hulda Ágústsdóttir ÓLÖF Pétursdóttir með eina af vatnslitamyndum sinum. Myndlistarsýning í Eden NÚ STENDUR yfír í Eden í Hvera- gerði sýning á verkum Ólafar Pét- ursdóttur. Á sýningunni eru 44 vatnslitamyndir, sem flestar eru unnar á síðustu tveimur ámm. í kynningu segir að Ólöf Péturs- dóttir hafí alla tíð fengist við ýmis listform. Hún stundaði nám við Dunday Valley School of Art í Dund- as, Ontario í Kanada, Myndlistarskó- lanum í Reykjavík og hefur sótt nám- skeið í Myndlistarskólanum í Hafnar- fírði, Kópavogi og í Reykjavík. Sýningunni lýkur sunnudaginn 15. júní og er opin frá kl. 10-22 alla daga. Út í óvissuna Átta leikarar braut- skráðust á dögunum frá — Leiklistarskóla Islands og eru nú að stíga sín fyrstu skref í hinum þrönga, og að sumra áliti lokaða, heimi ís- lensks leikhúss.Orri Páll Ormarsson fór að finna sjö þeirra og komst að raun um að engan bilbug er á þeim að finna. Morgunblaðið/Jón Svavarsson SAMHENT sveit: Atli Rafn, Halldór, Gunnar, Þrúður, Hildigunnur, Inga María og Katla Margrét. ÚTSKRIFTARHÓPURINN úr Leiklistarskóla Islands hefur komið sér makindalega fyrir í setustofu Hafnarfjarðarleikhússins og virðir fyrir sér gesti sína, meðan annar mundar myndavél en hinn dregur upp úr pússi sínu skrifblokk og penna. Enginn segir þó neitt fýrr en gestirnir beina máli sínu til þeirra — þá tala allir í einu. „Við erum svo samrýndur bekkur,“ segja þau og gestimir sjá enga ástæðu til að draga þá staðhæfingu í efa. En um hvað vilja þau tala? „Lífið, listina.“ Það er ef til vill ekki svo auðvelt að greina þar á milli enda hefur leiklistarnámið verið líf þeirra undanfarin fjögur ár — ekkert meira, ekkert minna. En hverjir eru þessir nýbökuðu leikarar? Hildigunnur Þráinsdóttir, segir sú sem fyrst verður fyrir svörum, svo byijað sé á nöfnunum. Katla Margrét Þorgeirsdóttir kynnir sig næst og síðan eitt af öðru, Inga María Valdimarsdóttir, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Gunnar Hansson og Halldór Gylfason. Gott og vel — en vantar ekki einhvem? Jú, mikið rétt. Áttundi bekkjarfélaginn, Baldur Trausti Hreinsson, sá sér ekki fært að mæta, þar sem hann er að æfa hlutverk sögumannsins í söng- leiknum Evítu, sem senn verður frumsýndur í íslensku óperunni. Gengur hann nú undir nafninu „hinn íslenski Banderas" innan hópsins! En hvemig skyldi lífið eftir Leik- listarskólann vera? „Gott,“ ljúka þau upp einum munni. „Leiklistar- skóli Islands er góður skóli, þannig að við erum tvímælalaust klár í slaginn," segir Halldór og Hildi- gunnur tekur upp þráðinn: „Við höfum grunninn og nú er bara að komast að því hvað við kunnum!" Að eilífu í Hafnarfirði Hópurinn hefur reyndar þegar hlotið eldskírn sína í atvinnuleik- húsi því lokaverkefni hans í Nem- endaleikhúsinu var unnið í sam- vinnu við Hafnarfjarðarleikhúsið, gamanleikurinn Að eilífu eftir Árna Ibsen. Var hann framsýndur um miðjan maí, eða um líkt leyti og hópurinn brautskráðist frá Leiklistarskólanum. „Þetta hefur verið skemmtileg og skapandi vinna enda er Hafnarfjarðarleik- húsið gott leikhús sem hefur yfir frábæru fólki að ráða,“ segir Atli Rafn og Gunnar tekur í sama streng: „Hafnarfjarðarleikhúsið er í mikilli sókn og það hefur því verið virkilega gaman að taka þátt í starfsemi þess.“ Nýútskrifaðir leikarar þurfa eðli málsins samkvæmt að vekja á sér athygli og velkist hópurinn ekki í vafa um að Hafnarfjarðarleikhúsið sé mun vænlegri vettvangur í því tilliti en Lindarbær, þar sem Nemenda- leikhúsið er til húsa. „Þetta er allt annað líf,“ segir Atli Rafn, „hér sjá okkur marg- falt fleiri. Við værum örugglega hætt að sýna ef við hefðum verið í Lindarbæ. Þetta leikrit mun hins vegar ganga þar til fólk hættir að koma á sýningar, sem verður örugglega ekki fyrr en næsta vor,“ bætir hann við og kímir. En eiga þau ekki eftir að sakna skól- ans? „Jú, örugglega," segir Hildi- gunnur. „Þetta hefur verið alveg rosalega skemmtilegur tími, bæði námið og ekki síður félagslífið, sem hefur verið mjög öflugt. Við fórum til að mynda í tvær utanlandsferð- ir, fyrst til Malmö að heimsækja vinaskóla okkar þar, og síðan til Helsinkis á norrænt leiklistar- nemamót og í framhaldi af því í námsferð til Parísar og Berlínar. Þessar ferðir voru í einu orði sagt frábærar." Lífið er leiklist Hildigunnur tekur reyndar svo djúpt í árinni að fullyrða að leiklist- arnámið hafi átt hugi þeirra og hjörtu síðustu fjögur árin — verið líf þeirra. „Eða hvað?“ „Jú, þetta er alveg rétt hjá þér,“ svara félag- ar hennar þá einum rómi, svona til að eyða efanum sem skaut upp kollinum eitt augnablik. Og senni- lega segja orðin sem Atli Rafn hefur eftir móður sinni allt sem segja þarf: „Guð, hvað ég á eftir að sakna krakkanna í bekknum!" Félagarnir fullyrða að Leiklist- arskóli íslands sé í hugum margra sveipaður dulúð — fólk hafi jafnvel ranghugmyndir um skólann. „Sumir halda að nemendurnir séu rifnir niður við komuna en síðan byggðir upp sem nýir einstaklingar og helst steyptir í sama mót,“ seg- ir Katla Margrét og Halldór heldur áfram: „Síðan hefur maður heyrt ýmsa „yfirdramatísera" námið út á við. Þannig eiga menn jafnvel að hafa dáið og endurfæðst í skól- anum. Svona dramatískt er þetta ekki, því fer víðsíjarri.“ Þegar námsskrá Nemendaleik- hússins fyrir veturinn 1996-97 er flett kennir margra grasa. Þar er meðal annars listasaga, söng- ur, quigong, líkamsþjálfun, ljóða- lestur, Alexandertækni, förðun, tónlistarsaga, framburður og hljóðmótun, gömlu dansarnir og jafnvel skylmingar. Allur er var- inn góður, þar sem samkeppnin meðal leikara er mikil í litlu sam- félagi — og þó, sennilega þjónar skylmingakennslan einhverjum öðrum tilgangi. En er einhveijum námsgreinum áfátt í skólanum. „Já, það vantar meiri kvik- myndakennslu," svar- ar hópurinn svo til samhljóða. Reyndar stendur það til bóta því Nemendaleikhús vetr- arins 1997-98 hefur gengið til samstarfs við Ríkissjónvarpið um gerð sjónvarpsmyndar sem Oskar Jónasson mun leikstýra. Þá hefðu þau að ósekju viljað kynnast starfsemi atvinnuleik- húsanna betur, fá að fylgjast reglulega með æfingum og annað af því tagi. Tímataflan í skólanum gerði það aftur á móti ókleift. Það var þó bætt upp með fjölmörgum heimsóknum atvinnumanna í fag- inu, sem tóku að sér námskeið af ýmsu tagi en fastráðnir kennarar við Leiklistarskólann eru fáir, „þótt þeir séu færir“. Sem dæmi um gestaleiðbeinendur vetrarins má nefna Hilmi Snæ Guðnason, Ingvar E. Sigurðsson, Arnar Jónsson, Vig- dísi Jakobsdóttur, Sigurþór Álbert Heimisson, Kolbrúnu Halldórsdótt- ur og Árna Pétur Guðjónsson. Árið 0 runnið upp Framtíðin leggst vel í þessa nýjustu merkisbera leiklistarinnar í landinu, þótt þeim blandist ekki hugur um að mikill galeiðuróður geti verið framundan — hinn ís- lenski leikhúsheimur er þröngur og þar eru margir um hituna. „Allt í einu blasir við okkur galopinn heimur — heimur óvissunnar," seg- ir Gunnar. „Árið 0 er rannið upp og eftirvæntingin fyrir vikið mikil. Hvernig okkur mun vegna verður tíminn aftur á móti að leiða í ljós.“ Bekkjarfélagarnir fullyrða engu að síður að þeir standi betur að vígi en margir sem áður hafa ver- ið í þeirra sporum, þar sem grósk- an í íslenskri leiklist sé meiri um þessar mundir en oftast áður. „Leikhópum er að fjölga, leikhús- um er að fjölga, aðsóknin að auk- ast og ný tækifæri að skapast,“ staðhæfir Halldór og bendir á sjón- varp og kvikmyndir máli sínu til stuðnings. Þannig hafa nokkur þeirra verið að taka þátt í upptök- um fyrir Sunnudagsleikhús Ríkis- sjónvarpsins undanfarið, auk þess sem Þrúði hefur boðist hlutverk í kvikmynd Hilmars Oddssonar, Sporlaust, sem fest verður á filmu í sumar. Stefnan hefur með öðrum orðum verið tekin upp á við og manni segist svo hugur að þessi sam- henta sveit muni ekki linna látum fyrr en takmarkinu er náð — toppnum. Baldur Trausti Hreinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.