Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 24

Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Eignarrétturinn og Morgunblaðið HINN 25. maí síðastliðinn birtist í Morgunblaðinu leiðari sem bar heitið Auðlindin og séreignarréttur. Þar er flallað um útgáfu undirrit- aðra á bæklingi sem nefnist Fiski- miðin og þjóðarheill - er auðlinda- skattur æskilegur? Undirritaðir vilja þakka Morgunblaðinu h!ý orð í sinn garð en sjá sig jafnframt knúna til að gera efnislegar athuga- semdir við umfjöllun blaðsins í leið- aranum. Leiðarahöfundur spyr þeirrar spurningar hvort eðlilegt sé að útgerðarmönnum séu gefnar aflaheimildir og í framhaldi af því hvort ekki sé rétt að greiðsla komi fyrir þessar heimildir. Verður nú vikið að þessu. Atvinnuréttindi fást ekki ókeypis Höfundar þessarar greinar geta ekki fallist á þá skoðun Morgun- blaðsins að útgerðarmönnum hafi verið gefnar aflaheimildir. Þegar aflamarkskerfi í botnfiskveiðum var komið á árið 1984 voru útgerðum festar heimildir á grundvelli veiði- reynslu þeirra undanfarin 3 ár. Það er skoðun undirritaðra að þar með hafi verið lögfest atvinnuréttindi þeirra er þá stunduðu útgerð. Þeir og forverar þeirra höfðu skapað þá þekkingu og tækni sem gerir okkur kleift að nýta auðlindir hafsins. Án þessara áhættusömu fjárfestinga væri fiskveiðiauðlindin næsta verð- laus. Tækni og þekking verða ekki til án þess að einhveiju sé til kost- að. Útgerðarmenn hættu eignum sínum til þess að geta nýtt auðlind- ina. Með þeirri starfserrii sköpuðu þeir sér atvinnuréttindi sem fella má undir eignarréttarhugtak 72. greinar stjórnarskrárinnar. Að túlka sameignarákvæði laganna frá 1990 með þeim hætti að það beri að selja eða bjóða upp veiðiheimild- ir í nafni þjóðarinnar gengur þvert gegn hugmyndum fijáls- lyndra manna um eign- arréttarskipulag og til- urð þess. Þeirri skoðun er gjarnan haldið fram m.a. af Morgunblaðinu að leggja megi að jöfnu úthlutun veiðiheimilda á grundvelli laga frá 1990 við t.d. úthlutun á olíuvinnslu- eða. út- varpsréttindum. Þessi nálgun er í besta falli misvísandi. Það er ekki hægt að bera saman eignarrétt sem mynd- ast við nýtingu á auðlind eins og fiskveiðiauðlind við úthlutun leyfa til nýtingar á auðlind sem ekki hef- ur verið nýtt áður. Á þessu tvennu er reginmunur. Hverja á að skattleggja? Morgunblaðið telur að þar sem útgerðarmenn hafi fengið veiði- heimildir sínar „gefnar“ sé rétt að þeir greiði fyrir þær til ríkissjóðs. Rökræðunnar vegna skulum við gefa okkur að þessi skoðun blaðsins sé rétt. Þá rís óneitanlega sú spum- ing hveijir eigi að greiða gjaldið. Eiga einungis þeir sem fengu „ókeypis úthlutun" 1984 að greiða gjald, eða eiga allir að greiða, þar með taldir þeir sem keypt hafa kvóta sinn fullu verði? Það að allir greiddu sama gjald væri undarleg túlkun á réttlætinu. Þar með væru þeir sem keyptu aflaheimildir sínar að bera þyngri byrðar en hinir sem fengu skv. skoðunum Morgunblaðs- Illugi Gunnarsson ins ókeypis úthlutun. Þessi spurning skiptir verulegu máli þar sem stór hluti bolfisksaflaheimilda hefur nú þegar verið keyptur frá handhöfum upphaflegra veiðiheimilda. Af þessu litla dæmi má sjá hvílíkar ógöngur það eru ef leggja skal á auðlinda- skatt á þeim forsendum að þeim sem í upphafi voru fest atvinnurétt- indi sín hafi fengið þau gefins. Réttlæti eins kann að verða að ranglæti annars. Eignarréttur fyrir þjóðina í inngangsorðum þeim sem leið- arahöfundur Morgunblaðsins vitn- ar til segir m.a.: „Undirritaðir telja að öll rök hnígi í þá átt að skipu- lag séreignarréttar tryggi þjóðum hagsæld“. Þessi skoðun er ekki sérlega nýstárleg og ætti ekki að vera leiðarahöfundi ókunn. Þrátt fyrir það dregur Morgunblaðið upp þá mynd að þegar kvótakerfið var sett á hafi einungis s.k. sægreifar hagnast; allur almenningur hafi setið eftir engu bættari. Blaðið Orri Hauksson leggur því til að sérstakt gjald verði lagt á greinina sem renni í ríkissjóð og þannig sé hægt að tryggja að þjóðin njóti arðs af fisk- veiðiauðlindinni. Hér skilja leiðir fullkomlega með leiðarahöfundi og undirrituðum. Undirritaðir eru þeirrar skoðunar að séreignarkerf- ið í sjávarútvegi tryggi þjóðinnui hagsæld. Ekki er þörf á sérstakri umframskattlagningu ríkisvalds- ins til að svo verði. Eignarréttar- kerfi var nauðsynlegt til að tryggja að auðlindin yrði nýtt með hag- kvæmum hætti. Stöðva varð sóun- ina sem fylgdi óheftum aðgangi. Hér skilja leiðir með leiðarahöfundi og undir- rituðum. Illugi Gunn- arsson og Orri Hauks- son eru þeirrar skoðun- ar að séreignarkerfið í sjávarútvegi tryggi þjóðinni allri hagsæld. Það var því eitt stærsta hagsmuna- mál þjóðarinnar að eignarrétti yrði komið á í sjávarútvegi á íslandi. Án þess hefði þjóðin verið svipt möguleikum á að nýta auðlindina sér til hagsbóta til langframa. En það er ekki nóg með að séreignar- kerfið hafi dregið úr sóun, það hefur líka skapað auð. Fijálslyndir menn eru flestir þeirrar skoðunar að þjóðfélagið allt hagnist samhliða fyrirtækjunum. Fyrirtækin nýta hagnað sinn m.a. með því að skapa ný atvinnutækifæri, þau tryggja rekstur sinn betur, laun starfs- manna hækka, byggðaþróun verð- ur öruggari o.s.frv. Einnig má nefna að íslenskur iðnaður nýtur góðs af velgengni í sjávarútvegi. Meðal athyglisverðra fyrirtækja í íslenskum iðnaði eru Marel, Sæ- plast og J. Hinriksson. Það er því mjög villandi að stilla málinu upp með þeim hætti að eigendur fyrir- tækjanna hafi einir hagnast á því að eignarrétti var komið á. Hvernig verður skattur ákveðinn? Morgunblaðið og fylgismenn þess eru þeirrar skoðunar að arðinum af fiskiauðlindinni verði ekki koiriið til þjóðarinnar nema með sérstökum skatti. Lítið hefur þó farið fyrir þeirri umræðu hvernig innheimta eigi skattinn og enn síður hvernig eigi að ákveða hversu skatturinn eigi að vera hár. Það virðist vera gengið að því vísu að stjórnmála- og embættismenn muni ákveða bæði réttlátt og skynsamlegt gjald. Að baki þessari skoðun er nokkuð einföld sýn á veröld stjórnmálanna. Stjórnmálamenn og stjórnmála- flokkar eru fulltrúar mismunandi hópa kjósenda. Þessir kjósendahópar hafa oft ólíka hagsmuni sem gjaman stangast á. Það má því sjá fyrir pólitísk átök um upphæð auðlinda- skattsins, eða hversu mikið skuli boðið upp, svo að ekki sé talað um í hvað honum verði síðan varið. Sumir kjósendahópar hafa lítil bein tengsl við sjávarútveg og gætu því hæglega krafist, t.d. í nafni réttlæt- is, að skatturinn verði hækkaður til að standa undir þjónustu sem kemur þeim vel eða þeir telja mikilvæga. Á sama tíma em kjósendahópar, sem eiga mikið undir því að sjávarútvegs- fyrirtækin skili hagnaði, s.s. íbúar landsbyggðarinnar, tilbúnir að beij- ast gegn háum skatti, einnig í nafni réttlætis. Upphæð gjaldsins og ráð- stöfun þess yrði að öllum líkindum pólitískt bitbein, háð tilheyrandi yfir- boðum í kosningum; fjárþörf ríkisins réði meira um gjaldið en greiðslu- geta sjávarútvegsins. Hætt er því við að skatturinn yrði ekki „réttlát- ur“ og þaðan af síður „skynsamleg- ur“ eins og talsmenn hans vilja láta í veðri vaka. Þvert á móti myndi skatturinn veikja sjávarútveginn og minnka samkeppnismöguleika hans við ríkisstyrktan sjávarútveg ann- arra þjóða. Höfundar eru áhugamenn um fiskveiðistjórnun. ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR ELDHÚS INNRÉTTINGAR BAÐ INNRÉTTINGAR FATASKÁPAR VÖNDUÐ VARA - HAGSTÆTT VERÐ Frí teiknivinna og tilboðsgerð HsftúLne- - fyrsta fiokks frá Æ=omx HÁTÚN16A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 - kjarni máhins! UMFERÐARORyGGISAÆTLUN 1997-2001 Kynningar: í Borgartúni 6, miðvikudasinn 11. júní kl. 13.30 Á Hótel Selfossi, fimmtudaginn 12. júní kl. 17.00 í samstarfi við Samband umferðaröryggisnefnda á Suðurlandi Allt áhugafólk um aukiö umferöaröryggi velkomiö. Dómsmálaráðuneytið 'qy/M Sm VEGAGERÐIN u UMFERÐAR RÁÐ Græni lífsseðillinn - * Kvennahlaup ISI í BYRJUN þessa árs gerðu Heilbrigðisráðu- neytið __ og íþróttasam- band íslands með sér samkomulag til tveggja ára, þar sem áhersla er lögð á að auka heil- brigði og vellíðan al- mennings. Heilsuefling, sem er verkefnisstjórn í ráðuneytinu, og íþróttir fyrir alla, sem sér um __ almennings- íþróttir ÍSÍ, sjá um framkvæmd verkefnis- ins. Markmið Áhersla er lögð á að efla þátttöku almenn- ings í hollri hreyfingu og ástundun íþrótta. Að gera fólk meðvitaðra um áhrif hreyfingar og fæðuvals á heils- una og spoma gegn notkun lyfja, TUJBOÐ QjósmynJasiofa Qumiart úhgÍHtamonar Suðurveri, sími 553 4852 tóbaks, áfengis, og fíkniefna. Gefinn hefur verið út „grænn lífsseð- ill“ sem annars vegar býður upp á æfingaá- ætlun í 8 vikur þar sem viðkomandi einstakling- ur er hvattur til að setja sér raunhæft markmið varðandi þjálfun. Hins vegar ráðleggingar um hvað ber að hafa í huga í daglegu lífi varðandi heilsuna. Verkefni sumarsins Þegar verkefnið fór formlega af stað var þingmönnum boðið upp á blóðþrýstings- og ko- lesterolsmælingar í Alþingishúsinu og í mörgum sundlaugum hafa verið haldnir fjördagar þar sem boðið hefur verið upp á samskonar mælingar og leiðbeiningar við sundlag og sund- þjálfun. I sumar tengist verkefnið hjólreiðum á ýmsan hátt, en eins og allir vita era hjólreiðar kjörið útivist- arverkefni fyrir fjölskyldur. Græni lífsseðillinn mun tengjast „kynslóða- hlaupinu 1-2-3 “, sem haldið verður í lok Smáþjóðaleikanna í júní, þar sem áhersla er lögð á að ein, tvær eða þrjár kynslóðir taki þátt í sama hlaup- inu. Einnig mun verða gefið út póst- kort til dreifingar með vinsamlegum ábendingum til vina og kunningja um að njóta lífsins betur með heil- brigði og vellíðan að leiðarljósi. Kvennahlaup ÍSÍ Það sem skiptir megin máli er að allir finni eitthvað við sitt hæfi til Það sem máli skiptir, segir Unnur Stefáns- dóttir, er að allir finni eitthvað við sitt hæfi til að rækta líkama og sál. þess að rækta líkama og sál. Áreiti í umhverfi okkar hafa aukist á seinni árum, þannig að fólk er farið að leita meira og meira til kyrrðar- stunda. Það er ýmislegt sem hægt er að gera til þess að öðlast slíka kyrrð og leita margir til útivistar af ýmsu tagi í því skyni. Allur sá fjöldi fólks sem vinnur innanhúss við einhverskonar vélar eða hávaða hefur meiri þörf fyrir kyrrð að afloknum vinnudegi en aðrir. „Græni lífsseðillinn“ er hugsaður sem hvati til fólks á öllum aldri til þess að láta sér annt um eigin líkama og heilsu. Það er aldrei of seint að byija og þeir sem hafa líkamsrækt sem lífs- stíl uppskera árangur erfiðisins. Kvennahlaup ÍSÍ sem nú fer fram 15. júní í 8. sinn er mjög góður vett- vangur fyrir konur og stelpur að koma saman og njóta útivistar og hreyfingar. Græni lífsseðillinn hvet- ur þátttakendur í Kvennahlaupinu til að halda áfram líkamsþjálfun að hlaupi loknu og þar með að bæta lífsstíl sinn. Höfundur er formaður verkefnisins um „Græna lífsseðilinn". Unnur Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.