Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 30

Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FYRIR einum sextíu árum ætlaði norski guðfræðiprófessorinn Ole Hallesby, „yfírlýst- ur pietisti", að koma til íslands ásamt nokkrum trúuðum stúdentum og hrista upp í trúarskoðunum landans. Varð þá uppi fótur og fit og mikið j?' „fjör“ í trúmálaum- ræðum hérlendis. Stóðu þá tveir hópar manna í trúmálum hvor gegnt öðrum „gráir fyrir járnum" með og móti boðskap guðfræðiprófessorsins: Fijálslyndir og íhaldsamir guðfræð- ingar svo og aðrir mismiklir trú- menn. Hart var deilt og spöruðu menn ekki hin „breiðu spjótin" áður en Hallesby kom og sýndist nú auðvitað sitt hverjum og eins og jafnan fyrr og síðar voru báðir hóp- ar með sannleikann í höndunum. Þar kom rimmunni, að einn áhrifa- og valdamesti stjómmálamaður •*- þjóðarinnar á þeim tíma, Jónas Jónsson frá Hriflu, stakk niður penna og spurði menn skýrt og skorinort, hvort sæmandi væri að taka á móti þessum erlenda gesti og prófessor með grjótkasti í fjör- unni? Til skýringar hér skal ég geta þess, að í þann tíð komu nefnilega allir með skipi til íslands. Datt þá stríðshamurinn af flestum og senni- lega ekki laust við, að menn áttuðu sig á því, að þeir hefðu löðrungað sjálfa sig, farið offari, orðið sjálfír > og gert málstað sinn að gjalti með þess konar framkomu og gestrisni. Þetta atvik úr íslenzkri kristni, og kirkjusögu á þessari öld kom mér í hug, þegar ég sem íbúi í Garðabæ frétti af og heyrði yfírlýs- ingar safnaðarstjórnar míns eigin safnaðar, Garðasóknar, um að sá guðfræðingur sem hlaut kosningu í almennum prestskosningum, teld- ist ekki geta valdið embættinu. Nú er mér og vafa- lítið fleirum ekki alveg ljóst hverra hæfíleika, menntunar eða getu er þörf þeim, er sitja í safnaðarstjórn. Mér býður í grun, að þar sé „brákaður reyr“ ekki síður en annars staðar. Kristilegt hefur það ekki talizt a.m.k. fram að þessu að bijóta brákaðan reyrinn. í lengstu lög vil ég forð- ast að heimfæra háðskan tón Nóbel- skáldsins okkar stjórn Garðasóknar: „Kristilegu kærleiks- blómin spretta kringum hitt og þetta.“ En lengi skal manninn reyna, segir gamalt máltæki. Nú spyr ég sem félagi í söfnuðin- um, í barnslegri einfeldni og þó í fullri alvöru: Telja stjórnarmenn í Garðasókn sig svo vel hæfa og þess umkomna að standa við þá staðhæf- ingu og yfírlýsingu sína, að guð- fræðingur frá Háskóla Islands sé vart hæfur eða komi ekki til með að valda því starfi, sem hann hefur menntað sig til og sótt um og verið kosinn til? Nú mætti kannski líka ætla, að guðfræðideildin sem slík, allir prófessorarnir, in toto, standi varla undir því ámæli, sem í þessu felst, að útskrifa óhæft fólk til venjulegra prestsstarfa. Þarna er þá verulegur maðkur í mysunni! I því tilviki, sem hér um ræðir, er málið ekki það, að hér sé á ferð- inni kornungur, óreyndur mennta- skóla og háskóla „spjátrungur", sem aldrei hafi dýft hendi í kalt vatn, heldur fulltíða maður, guð- fræðingur með mikla félagslega reynslu að baki. Með lista yfír að- al- og varamenn í stjórn Garðasókn- ar fyrir framan mig er séra Bragi Friðriksson lét mér í té, þá tel ég mjög svo hæpið, að nokkur þeirra hafi viðlíka reynslu af mannlegum samskiptum og umræddur guð- fræðingur og verðandi prestur hér í bæ. Vafalítið er hann ekki vamm- laus frekar en við hin. En, ágæta stjórn Garðasóknar, í fullri alvöru og einurð: Farið ekki offari! Munið eftir orðunum: „Sá yðar, sem synd- laus er, kasti fyrsta steininum.“ Sé einhver í stjórninni syndlaus þá skal ég vera fyrstur til að rétta þeim hinum sama steininn. Haldi stjórn safnaðarins hinsveg- ar uppteknum hætti, að níða skóinn af þessum guðfræðingi og væntan- legum presti safnaðarins með því að þrástagast á vangetu hans, þá segi ég ekki orð sannara en að mér kemur hreint ekkert annað í hug en vísa prófessorsins í „Landsuðri": Ef allt þetta fólk fær í gullsölum himnanna gist sem gerir sér mat úr að nugga sér utan í Krist þá hlýtur sú spurning að vakna hvort mikils sé misst ef maður að síðustu lendir í annarri vist. Látum það ekki henda, segir Geir H. Þor- steinsson, að taka á móti nýjum presti með grjótkasti í fjörunni. Hins vegar og þrátt fyrir allt ætla ég að vona, að öll stjórn Garða- sóknar, 14 manns að tölu, og að því að ég bezt veit hið mætasta fólk, nái áttum eftir „heitan“ bar- dagann, vinni á mannsæmandi og kristilegan hátt með væntanlegum presti af heilum hug og gefi honum sem hveijum nýjum starfsmanni tíma og tækifæri í góðri samvinnu við alla stjórnina. Á þann veg einan geta báðir aðilar sannað drengilega manngildi sitt. Segði safnaðarstjórnin af sér, væri það enn eitt svöðusár íslenzkr- ar kirkju og ég vona til þess komi ekki. Garðabær sem slíkur ætti það ekki skilið. Eg brýni því aila stjórnarmenn Garðasóknar, karla og konur, lög- eggjan að taka nú á þeim dreng- skap, sem þetta fólk á beztan. Minnumst þess, að góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns. Yrðu það ekki gleðitíðindi, ef sagt yrði um stjórn safnaðarins hér í Garðasókn það sama og Páll postuli sagði forðum: „Mér er kunn- ugt um mann, hann tilheyrir Kristi" (2.Kor. 12,2.). Ég sem „J-J-kristinn“ maður (þ.e. jól og jarðarfara-kristinn má e.t.v. minna á þetta jákvæða boð Krists, sem flestir iðka í minna mæli en vert væri: „Allt, sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra“ (Matt.7.12). Hugsun þessara orða er raunar yfirþyrmandi, en kristin trú er í kjarna sínum jákvæð í verki, en hvorki neikvæð, hlutlaus né af- skiptalaus um náungann. „Kærleik- urinn er góðviljaður, öfundar ekki, hann hegðar sér ekki ósæmilega, hann breiðir yfír allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt,“ stendur á klassiskum stað. Ég spyr í einlægni og vænti drengilegs svars eins og það bezt getur verið: Finnst stjórn- armönnum Garðasóknar, að þeir hafí hagað sér samkvæmt þessu? Segjum nú sem svo, að aðal- og varamenn í stjórn Garðasóknar séu ekki verr kristnir en ég, þ.e. J-J- kristnir, og jafnframt, að þeim geti runnið í skap og orðið heitt í hamsi eins og öðrum í hita kosninga, þá megi þó ætla, að þeir séu allir svo „pólitiskt demókratiskir" að virða niðurstöðu kosninga. Það væri sæmandi lýðræðislega þenkjandi og unnandi fólki. Mér virðist vera kom- ið ærið nóg af illindum, úlfúð og sundurþykkju innan íslenzku kirkj- unnar, þó stjórn Garðasóknar leiddi þann asna fram hjá okkar „herbúð- um“. Það væri drengilegt og menn að meiri fyrir bragðið. Annað væri því miður reginhneisa. Ég var beðinn um að skrifa und- ir áskorun um almenna prestkosn- ingu hér um daginn. Ég neitaði því á þeirri forsendu, að stjórn Garða- sóknar hefði beinlínis sofið á verðin- um, sem sagt ekki gætt þess, að miðað við mannfjölda var kjör- mannafjöldi Garðasóknar af og frá. Stjórnin mátti vel vita fyrir langa- löngu, að árin færðust yfir okkar ágæta klerk, séra Braga Friðriks- son, sem þjónað hefur vaxandi söfn- uði með mestu prýði í 31 ár og brátt yrði hann sjötugur og léti þess vegna af embætti. Þetta átti ekki að koma stjórninni í bakið. Eðlilegan kjörmannafjölda til handa Garðasókn átti að vera búið að knýja fram með festu. Ég tel engan veginn sjálfgefið, að misréttið um vægi atkvæða eigi að gilda innan kirkjunnar eins og viðgengst til Alþingis, þó menn láti það yfir sig ganga, flestir nauðugir. Ég vona svo sannarlega, að öll stjórn Garðasóknar, 14 manns, taki ummæli og yfírlýsingu séra Árnar Bárðar Jónssonar sér til fyrirmynd- ar og í munn og standi við þau orð, er hann í sjónvarpsviðtali að kveldi 6. júní sl. bað þeim umsækj- andanum, sem meirihluta hlaut í nýafstöðnum kosningum allrar guðsblessunar og velgengni í kom- andi starfi. Þessi ummæli voru bæði drengileg og kristileg og vissu- lega verð eftirbreytni. Að lokum vona ég, þó hrikt hafí í stjórn Garðasóknar nú um stund, að hið gamla andvarp Brynjólfs biskups Sveinssonar Mala do- mestica majora lacrimis (Heimilis- bölið er þyngra en tárum taki) loði ekki við stjóm safnaðarins, heldur komi til sannur, raungóður, mann- bætandi kristilegur drengskapur í garð þess manns, sem nú tekur við embætti sóknarprests í Garðasókn innan tíðar. Látum það ekki henda, að taka á móti nýjum presti með gijótkasti í fjörunni. Láti Guð gott á vita! Höfundur er læknir. Nýr prestur í Garðasókn Geir H. Þorsteinsson Klóimm Björk! Menning 2000 FYRIR nokkrum vikum birti Morgun- blaðið bréf frá undirrit- uðum þar sem gerð var að umtalsefni stefna ríkis og borgar varð- andi undirbúning menningarársins 2000. Síðan þá hafa bæði menntamálaráðherra og borgarstjóri leyst skilmerkilega úr þeim vafaatriðum sem drep- ið var á í umræddri grein. Borgarstjóri benti á að framlög ^ borgarinnar til undir- búnings menningarársins 2000 myndu ekki skerða önnur framlög til menningarmála og menntamála- ráðherra upplýsti að unnið væri að uppsetningu menningarnets innan ráðuneytisins, nets sem eflaust mun hafa mikla þýðingu í kynningarmál- um tónlistarmanna sem og annarra listamanna. Athygli vekur að menntamálaráðherra segir í svari sínu að hagsmunum allra tónlistar- manna eigi að sinna innan íslenskr- ar tónverkamiðstöðvar. Þetta eru fréttir fyrir tónlistarflytjendur. * Þegar þetta er skrifað hefur ver- ið ráðinn framkvæmdastjóri menn- inngarárs 2000, og svo skemmti- lega vill til að til starfa við þetta fyrirbæri á vegum borgarinnar hef- ur verið ráðinn deildarsérfræðingur menningarmála úr menntamála- ráðuneyti, Þorgeir Ólafsson. Skyldi - þetta vera meðvitaður samstarfs- vilji ráðuneytis og borgar? Hvort sem svo er eða ekki er Þorgeiri Pétur Grétarsson óskað velfarnaðar í starfinu. Sóknarfæri íslenskrar tónlistar Það eru margar hugmyndir uppi um hvernig best verði staðið að eflingu tón- listar á landinu. Nokkrar þeirra er að fínna í ágætri skýrslu sem nefnd á vegum iðnaðarráðherra hefur sent frá sér og leggur m.a. til að varið verði til markaðssetningar á tónlist erlendis fjár- munum sem nema virðisaukaskatti sem greiddur er af seldum hljóm- föngum (geisladiskum o.þ.h.) um- fram bækur. Þetta er góð hugmynd og kemst hún vonandi í framkvæmd hið fyrsta. Það er ánægjulegt að fylgjast með hversu vasklega er gengið fram í röðum hljómplötuframleiðenda við kynningu hinna nýju sóknarfæra. Það ber hins vegar á því að enn vefjast fyrir mönnum skilgreiningar á tónlist. Er hún iðnaður eða list? í skýrslunni kemur fram að markmiðið er að selja jafnmikið af íslenskri tónlist erlendis og nemur heildarsölu íslenskrar og erlendrar tónlistar hér heima. Þetta er göfugt markmið þó það beri keim af bjart- sýni sem virðist vera landlæg í kjöl- fari velgengni Bjarkar Guðmunds- dóttur. Vissulega er árangur söng- konunnar góðu íslensku tónlistarlífí lyftistöng og án efa eru margir ís- lenskir tónlistarmenn teknir alvar- legar en ella fyrir hennar tilverknað. Það er hins vegar skammsýni að einblína á erlenda markaði. Skamm- sýni vegna þess að víst má telja að öll vinna sem þar verður unnin verði lengi að skila árangri. Það skýtur því skökku við að gerðar skuli „til- lögur um aðgerðir til skamms tíma“ eins og segir í inngangi að skýrsl- unni góðu. Er það ekki einmitt vand- inn, eins og skýrsluhöfundar benda reyndar ítrekað á, að stefnuna vant- ar. Enn á ný er auglýst eftir menn- ingarstefnu stjórnvalda. Ekki ber að skilja þessi orð þann- ig að verkefnið sé vonlaust. Alls ekki, en sígandi lukka er best. Það má ekki gleymast að þrátt fyrir smæð heimamarkaðarins er hann og verður vettvangur íslenskrar tónlistar og jarðvegurinn sem úr koma þær músíkölsku kartöflur sem spíra á alþjóðlegum vettvangi. Það er eins og ofbirtu slái í augu manna þegar í ljós kemur að tutt- uguogtvöföld sala allrar íslenskrar tónlistar kæmist fyrir í ársyfirliti Bjarkar einnar. Nú er lag, gerum út, klónum Björk!!! Það er einnig athyglisvert, í skýrslunni góðu, að þegar taldir eru upp þeir sem vinna vinnuna í tónlist- ariðnaðinum þá eru fyrstir á blaði starfsmenn útgáfufyrirtækja og hljómplötuverslana. í kjölfarið koma höfundar og flytjendur. Flæðirit verðmætasköpunar tónlist- ariðnaðarins er líka athyglisvert en eins og allir vita sem komið hafa að útgáfu er útgáfufyrirkomulag svo mismunandi að umrætt rit gef- ur enga mynd af raunveruleikanum. Oftar en ekki koma hin svokölluðu útgáfufyrirtæki ekki að dæminu fyrr en við sölu og dreifingu. Tónlistarmiðstöð - menningarveita Meðal tónlistarmanna hefur í all- nokkur ár blundað hugmynd um stofnun tónlistarmiðstöðvar fyrir alla tónlist í landinu. Með henni væri samþætt og hagrætt í tónlist- arlífi landsin svo um munaði. Það er nefnilega þannig að þegar unnið er af vanefnum og í sitthvoru horn- inu eru gjarnan margir að gera sama hlutinn. Sem dæmi um hvar úrbóta er þörf, má nefna að á meðan íslensk Ef gera á út á menning- armið verður að kosta einhverju til. Pétur Grétarsson telur það miklar fréttir fyrir tón- listarfólk að á þessu sé að verða skilningur. tónverkamiðstöð gefur út og sendir til kynningar um víða veröld ís- lenska tónlist er ekki unnið að kynn- ingu íslenskra flytjenda af sama kappi, þó svo að þeir séu frumfor- sendan fyrir því að hægt sé að gefa út tónlist íslenskra höfunda. Undirrituðum er kunnugt um að innan Tónverkamiðstöðvar er vilji til samstarfs við tónlistarflytjendur, en hingað til hefur sú stofnun sinnt hagsmunum höfunda og telur sig ekki geta aukið starfsemina nema til komi aukið fjármagn. Annað dæmi er að á meðan Tón- list fyrir alla, mikilvægt tæki til kynningar á tónlist og tónlistarflytj- endum er svelt fjárhagslega, er litl- um hóp tónlistarmanna veittur styrkur til að ferðast um landið til að spila fyrir miklu færri hlustendur en ef þeir tengdust Tónlist fyrir alla. Nýlegt dæmi svipaða skamm- sýni er aðstoð sem iðnaðarráðherra veitti hljómsvetinni Botnleðju fyrir skömmu til að breiða út boðskap sinn í útlöndum. Ráðherra sagði sjálfur í útvarpsviðtali að þau „nokkur hundruð þúsund“ hefðu verið alltof lítil aðstoð. Ef svo er, hefði þá ekki verið betra að spara í þetta sinn og gera betur við Botn- leðju þegar forsendur væru fyrir að styrkurinn gæti verið stærri og borið ríkulegri ávöxt. Það sér hver heilvita maður að ef gera á út á menningarmið verður að kosta einhveiju til og það eru miklar fréttir fyrir tónlistarfólk að á þessu sé að verða skilningur. Það þarf þó nánast stökkbreytingu í hugsun um menningarmál til að það skiljist að brýnast er að unnið sé í sífellu að framsæknum hugmynd- um í listinni sjálfri. Það verða ekki seldir gamlir lagerar þegar mark- aðsstarfið fer að skila árangri. Það er því miður ekki hægt að skrúfa frá menningunni þegar manni þóknast að njóta hennar. Það vita allir að þótt heita vatnið komi úr krananum hefur einhver látið sér detta í hug að bora eftir því. Það er orðið frekar þreytandi að heyra talað um að það sé réttur hvers og eins að njóta einungis þeirrar menn- ingar sem honum þóknast að borga fyrir. Það eru forréttindi okkar að geta valið úr verkum listamanna alveg eins og það eru forréttindi okkar að geta valið heitt eða kalt vatn. Til að geta valið vatnið höfum við heilu vatnsveiturnar. Til að geta valið tónlistina höfum við (enn sem komið er) veðsetta einstaklinga. Höfundur er htfómlistarmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.