Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 34

Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUAUGLÝ5INGAR Frá Háskóla Islands Eftirfarandi störf við Háskóla íslands eru laus til umsóknar. • Skrifstofustjóri Námsráðgjöf óskar eftir að ráða skrifstofu- stjóra frá og með 1. september 1997. Starfið felst í umsjón með skrifstofurekstri, ^ skráningu og úrvinnslu tölfræðilegra gagna, áætlanagerð, bókhaldi, bréfaskrifum og mót- töku. Krafist er góðrartölvukunnáttu, þekkingu á tþlvubókhaldi og áætlanagerð. Áhersla er lögð á góða íslenskukunnáttu, þægi- lega framkomu, skipulagshæfni og frumkvæði í starfi. Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmannafé- lags ríkisstofnana og fjármálaráðherra eða kjarasamningi Félags háskólakennara og fjár- málaráðherra. Nánari upplýsingar um starfið geturÁsta K. Ragnarsdóttir, forstöðumaður Námsráðgjafar, í síma 525 4315. 4» • Starfsmaður Rannsóknasvið óskar eftir að ráða starfsmann frá og með 1. ágúst 1997. Starfið felst í umsjón með skrifstofurekstri og gagnagrunnum Rannsóknasviðs ásamt skrán- ingu og úrvinnslu tölfræðilegra gagna. Krafist er góðrartölvukunnáttu, auk kunnáttu á helstu ritvinnslu- og töflureikniforrit er krafist mjög góðrar kunnáttu á 4th Demension og File Maker. Viðkomandi þarf að hafa mjög gott vald á ensku og einu Norðurlandamáli. Lögð •.er áhersla á góða íslenskukunnáttu, þægilega framkomu, skipulagshæfileika og frumkvæði í starfi. Þá er reynsla af stjórnsýslustörfum æskileg. Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmannafé- lags ríkisstofnana og fjármálaráðherra eða kjarasamningi Félags háskólakennara og fjár- málaráðherra. Nánari upplýsingar um starfið gefur Halldór Jónsson, deildarstjóri á Rannsóknasviði, í síma 525 4337. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 25. júní næskomandi. Umsóknum skal skilað til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Ollum umsóknum verður svarað og umsækjendum greint frá því hvort og þá hvernig störfunum var ráðstafað. Aðstoðarvarðstjóri Laustertil umsóknar embætti aðstoðarvarð- stjóra við embætti sýslumannsins Vík í Mýrdal. Staðsetning verður á Kirkjubæjarklaustri, ef þar fæst íbúðarhúsnæði, en annars í Vík. Dómsmálaráðherra skipar í starfiðtil 5 ára og þarf viðkomandi að geta byrjað sem fyrst, helst ekki seinna en 15. ágúst. Umsækjendurskulu hafa lokið námi frá Lögregluskóla ríksins og er æskilegt að þeir hafi nokkra starfsreynslu, því starfinu þarf að sinna að nokkru leyti einn. Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf og önnur atriði er skipta máli, skulu sendartil embættisins, Ránarbraut 1,870 Vík, fyrir 10. júlí nk. Laun skv. kjarasamningi Lands- sambands lögreglumanna. Allar upplýsingar um stöðuna veita Reynir Ragnarsson varðstjóri og Guðmundur Baldurs- son aðstoðarvarðstjóri. Sýslumaðurinn, Vík í Mýrdal, 9. júní 1997. Sigurður Gunnarsson. Vopnafjarðarskóli auglýsir Skólinn er einsetinn með um 135 nemendur í 1. til 10. bekk. Fjöldi nemenda í bekk erfrá 8 upp í 19. Um nokkra samkennslu er að ræða. Okkur bráðvantar nokkra kennara fyrir næsta skólaár. Ef okkur tekst ekki að ráða fólk með kennaramenntun, leitum við eftirfólki með annars konar háskólamenntun eða aðra góða menntun. Hvernig væri að breyta til og flytja í fallegt og rólegt umhverfi? Við aðstoðum þig við flutning með greiðslu flutningskostnaðar og útvegum ódýrt húsnæði. Kennslugreinareru: Sérkennsla, raungreinar, tungumál, smíðakennsla, myndmennt, tón- mennt og almenn kennsla. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 473 1256 (vs.), 473 1108 (hs.) og 899 0408. HALLDÓRU KRINGLUNNI 7 - HÚSI VERSLUNARINNAR - SÍM11990 Snyrti- og fótaaðgerðafræðingur Óska eftir að ráða snyrti- og fótaaðgerða- fræðing í hálfsdags starf. Einnig vantar snyrti- fræðinema eða snyrtifræðing allan daginn. Upplýsingar í síma 588 1990. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Lausar kennarastöður Umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður, m.a. í stærðfræði, tölvufræði, raungreinum o.fl., framlengist til 20. júní. Ennfremur eru auglýstar stöður í sögu, félags- fræði og sálfræði (hlutastaða). Umsóknir sendist undirrituðum í pósthólf 160, 902 Vestmannaeyjar. Upplýsingarfást í síma 481 1079,481 2190 eða 898 8579. Ólafur H. Sigurjónsson, skólameistari FÍV. Verkfræðistofa Wmrna Sigurðar Thoroddsen hf. Tækniteiknari Verkfræðistofa SigurðarThoroddsen hf. óskar eftirtækniteiknara til starfa. Verksviðið er ýmis teiknivinna en fyrst og fremst vinna við gerð verkteikninga. Æskilegt er að viðkomandi hafi haldgóða þekkingu og reynslu í notkun teikni- forrita t.d. Auto Cad. Þeir sem hafa áhuga sendi upplýsingar um menntun og fyrri störf til auglýsingadeildar Mbl, merktar: „T - 14280". Organisti Starf organista við Digraneskirkju í Kópavogi er laus til umsóknar. Skilyrði eru að umsækjandi hafi lokið 7. stigi í orgelleik og hafi reynslu af kórstjórn. Umsóknarfrestur er til 30. júní og ber að skila skriflegum umsóknum, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, til formanns sóknar- nefndar, Þorbjargar Daníelsdóttur, Víghóla- stíg 21, 200 Kópavogi. Sóknarnefnd Lausar stöður Nokkrar stöður lögreglumanna við embættið eru lausartil umsóknar. Umsækjendurskulu hafa lokið námi við Lögregluskóla ríkisins. Umsóknum sé skilað fyrir 20. júní nk. til starfs- mannastjóra, Guðmundar M. Guðmundssonar, lögreglustöðinni, Hverfisgötu 115, sem gefur nánari upplýsingar. Lögreglustjórinn í Reykjavík. Hjólaskófla óskast Óskum eftir að kaupa nýlega hjólaskóflu af gerðinni Caterpillar 966 eða sambærilega vél Upplýsingar í síma 462 1255 eða 896 3222. Möl og sandur hf., Akureyri. ÞJDNUSTA Glugga- og hurðasmíði Getum bætt við okkur smíði á gluggum og hurðum í gömul og ný hús. Fljót og góð afgreiðsla. Sanngjarnt verð. Trésmiðjan Eðalgluggar og hurðir, Smiðjuvegi 52, Kópavogi, rauð gata, sími 557 2270. FUIMDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Heima hf. Norræna skólasetursins Aðalfundur Heima hf. Norræna skólasetursins, verð- ur haldinn í félagsheimilinu Hlöðum, Hvalfjarðar- strönd, fimmtudaginn 19. júní kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Reikningarfélagsins liggja frammi á Heimum. Hlutabréf verða afhent á fundinum. Áríðandi að allir mæti. Stjórnin. AUGLÝSINGA StÍórn Fé,ags íslenskra hjúkrunarfræðinga boðartil félagsfundar í dag, miðvikudaginn 11. júní, kl. 16.00 á Suðurlandsbraut 22. Fundarefni: Nýir kjarasamningar hjúkrunar- fræðinga. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. TILKYNNINGAR Fangelsismálastofnun ríkisins hefur fengið nýtt símanúmer, faxnúmer og póstnúmer Frá og með 9. júní 1997 er símanúmer Fangels- ismálastofnunar ríkisins 520 5000, fax- númerið er 520 5019 og póstnúmerið er 105 Reykjavík. Fangelsismálastofnun rík- isins, 10. júní 1997. HÚSNÆÐI í BOei Til leigu Þriggja herbergja íbúð með húsgögnumtil leigu í júní og júlí. Leigist í stuttan tíma í senn eða lengur. Upplýsingar í síma 568 9486 eftir kl. 19.00 til 15. júní. SMÁAUGLÝSINGAR FERÐAFÉLAG MÖRKINNI6 - SÍMI 568-2533 Dagsferðir Ferðafélagsins: Miðvikudag ll.júníkl. 20.00: Skógræktarferð í Heiðmerkurreit F.l. (frítt). Leiðbeinandi: Sveinr Ólafsson. 13.-15. júní: Þórsmörk (helgar- ferð). Farmiðar á skrifstofu F.í. Laugardagur 14. júlí kl.10.30: Leggjabrjótur (gömul þjóðleið) Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin og Mörkinni 6. ÉSAMBAND ÍSLENZKFiA ____' KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20.30. Friðrik Hilmarsson talar. Allir velkomnir. FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00 Orð lífsins, Grensásvegi 8 Samkoma í kvöld kl. 20. Jódís Konráðsdóttir prédikar. Beðið fyrir lausn á þínum vandamálum. Hvítasunnukírkjan Fíladelfía. Lofgjörð, bæn og biblíulestur kl 20.00. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.