Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 37 i' ; ) Tæknifræðinga- I félag íslands Tækniskóla- nemum veitt , viðurkenning ) TÆKNIFRÆÐINGAFÉLAG fs- | lands hefur undanfarin ár veitt viðurkenningu fyrir þau loka- verkefni tæknifræðinema sem þykja skara fram úr fræðilega og í framsetningu. Dómnefndin er skipuð formanni og vara- formanni TFÍ, einum fulltrúa frá Samtökum iðnaðarins og einum frá Tækniskóla íslands. Á I síðastaskólaárihafal8nemar 1 1 byggingatæknifræði og 4 í Iðn- I aðartæknifræði lokið námi frá * Tækniskóla íslands. „Það var samdóma álit dóm- nefndar að veita skyldi eftirtöld- um nemendum viðurkenningu. Heiðar Jónsson fjallaði um vatns- tjón í húsum. í verkefninu grein- ir Heiðar meðal annars helstu skemmdir í pípulögnumog hvað veldur tæringu þeirra. Áætla má að árlegur kostnaður vegna | vatnstjóna hérlendis sé um einn | miHjarður króna. Heiðar er pípu- lagningameistari auk þess sem hann er iðnfræðingur að mennt. Páll Kjartansson gerði tillögu að skipulagi og ferðaþjónustu í Heiðardal og svæðinu upp að Mýrdalsjökli. Niðurstaða Páls í verkefninu var að grundvöllur væri fyrir smáhúsabyggð fyrir ferðamenn á svæðinu. JC ísland heldur Evrópuþing hreyfingar- innar í Reykjavík Búast má við hátt í 1100 þing- gestum 35. EVRÓPUÞING Junior Cham- ber hefst í dag, 11. júní, og hefur Reykjavík orðið fyrir valinu sem þingstaður. Þing á vegum Junior Chamber hreyfingarinnar eru ætíð mjög fjölmenn og stefnir í það að allt að um 1100 gestir heimsæki land og þjóð á meðan á þinginu stendur. Fjölmargir íslenskir JC félagar standa þessa dagana að undirbúningi fyrir þingið en undir- búningur hófst fyrir 6 árum síðan. Áætlaðar gjaldeyristekjur af þessu þingi eru um 150 milljónir ís- lenskra^ króna. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson er vemdari þingsins og verður jafn- framt heiðurgestur á opnunarhátíð- inni sem_ fer fram í Hallgríms- kirkju. Á þinginu verður m.a. heimsmeistarakeppni í ræðu- mennsku á vegum JC og eru Islend- ingar með einn fulltrúa, Hrönn Petereen. Til gamans má geta að fulltrúi íslands var sigurvegari keppninnar fyrir ári síðan. Keppnin mun fara fram í hátíðarsal Mennta- skólans við Hamrahlíð þann 12. júní kl. 15.30. Á þinginu gefst einn- ig hinum ýmsu þjóðum tækifæri til að kynna land og þjóð með veiting- um og ýmsum varningi. T.d. verður Junior Chamber í Danmörku með Internetskaffi og Þjóðveijarnir kyna sína þjóð á nýstárlegan hátt. Alls verða um 15-20 þjóðir með bás. Fjölmörg námskeið verða í boði á þinginu, námskeið fyrir leiðbein- endur, námskeið í ræðumennsku, mannlegum samskiptum o.fl. Á meðan þinginu stendur verða hald- in þjóðarkvöld þar sem hver þjóð fær tækifæri til að kynna menn- ingu sína. I I I I i FRÉTTIR Á MYNDINNI eru talið frá vinstri: Jóhannes Benediktsson form. TFÍ, Runólfur Þ. Sigmarsson, Guðmundur Hjálmars- son deildarstjóri byggingadeildar, Páll Kjartansson, Heiðar Jónsson, Henry Þór Granz varaform. TFÍ. Ásberg Konráð Ingólfsson var fjarverandi. Páll er stúdent frá MS, hefur sveinspróf í húsasmiði og með iðnfræðimenntun. Ásberg Kon- ráð Ingólfsson fjallaði um veg- tengingu milli Kleppsvíkur og Gufunesshöfða svokallaða Kleppsvíkurtengingu. Gerð var forhönnun á svokölluðum botn- göngum. Auk þess var gerð kostnaðaráætlun vegna verks- ins. Niðustaða Ásbergs var að framkvæmdin kostaði 2,6 millj- arða og framkvæmdatími 2 ár. Ásberg er stúdent frá MS, og hafði unnið í tvö ár til undirbún- ings námi í Tækniskólanum. Runólfur Þ. Sigmarsson. Verkefni Runólfs heitir „Lausn fráveitumála á Akranesi". Gerð er forhönnun á fráveitukerfi á bænum. Áætlaður fram- kvæmdatími verksins er tæp tvö ár. Framkvæmdakostnað vegna hreinsunar frárennslis frá bæn- um áætlar Runólfur vera um 120 m.kr. Runólfur hefur meistara- réttindi í húsasmíði auk þess að vera með iðnfræðimenntun. Jóhannes Benediktsson for- maður TFI sem afhenti viður- kenningarnar sagði það mikið gleðiefni að svona stór og öflug- ur hópur tæknifræðinga skuli vera að koma út á vinnumarkað- inn,“ segir í fréttatilkynningu frá TFÍ. Kvöldvaka í Hafnarfjarð- arkirkju ÖNNUR kvöldvaka sumarsins í Hafnarfjarðarkirkju verður haldin í kvöid, miðvikudagskvöld. Sem fyrr verður ákveðið efni kynnt og rætt yfir kaffíbolla og gefst öllum tækifæri til að leggja orð í belg, segir í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarkirkju. Ennfremur segir: „í kvöld verð- ur þemað „óvinurinn" eða „Djöfull- inn“ hvernig hann birtist í Bibl- íunni og hvaða hugmyndir honum tengdar eru komnar inn í okkar menningarheim. Við munu velta fyrir okkur uppruna hins illa í heiminum og hlutverki okkar í baráttunni við það. í dag rekumst við oft á hugmyndir tengdar djöfl- inum í sambandi við unglinga- menninguna svokölluðu. Að þekkja þessar hugmundir og hvernig þær eru notaðar og misnotaðar, hjálpar foreldrum og uppalendum til að ræða um þessi mál við börn sín. Kvöldvaka hefst kl. 20.30 og stendur til kl. 22. Sr. Þórhallur Heimisson annast kynningu og stýrir umræðum." Fræðslu- og Fé- lagsstarf fyrir hreyfihamlaða unglinga SJÁLFSBJÖRG, landssamband fatlaðra er að fara af stað með átak fyrir hreyfihamlaða unglinga á aldrinum 13-15 ára (fæddir ’82-’84) og bjóða þeim upp á fé- lags- og fræðslustarf. Markmiðið er að unglingarnir kynnist og vinni saman að ýmsum málum. Átakið er unnið í samstarfi við íþróttasamband fatlaðra, URKÍ (Ungmennahreyfingu Rauða kross Islands) og Ný-ung, unglinga- hreyfing Sjálfsbjargar. í fréttatilkynningu segir: „Hald- inn verður kynningarfundur fyrir unglingana fimmtudagskvöldið 19. júní nk. kl. 20 í Sjálfsbjargarhús- inu, Hátúni 12,1. hæð, vestanmeg- in. Heiðar úr Botnleðju og Elíza úr Kolrössu krókríðandi mæta á fundinn og verða á persónulegu nótunum. Unglingahreyfíng Sjálfsbjargar mun sjá um kynning- una ásamt fulltrúa frá Sjálfsbjörg og URKI. Markmiðið er að leggja drög að starfi í sumar sem gæti falið í sér kynningu á einhveiju fróðlegu eða hvað annað sem hug- ur unglinganna stendur til. Ef áhugi er fyrir hendi er hægt að skipuleggja áframhaldandi starf í vetur. í kjölfar kynningarfundarins verður haldinn fundur með foreldr- um og þeim kynnt hvað er í bí- gerð. Frekari kynningar fyrir for- eldra munu í framhaldinu ráðast af óskum unglinganna. Þeir sem áhuga hafa á að koma á kynningarkvöldið hafí samband við Lilju Þorgeirsdóttur eða Maríu Þorsteinsdóttur, félagsmálafull- trúa Sjálfsbjargar fyrir 12. júní.“ Gengið eftir hitaveitustokk- um í Mosfellsbæ í MIÐVIKUDAGSKVÖLDGÖNGU Hafnagönguhópsins 11. júní verð- ur gengið eftir gömlum og nýjum hitaveitustokkum í Mosfellsbæ. Farið verður frá Ilafnarhúsinu með rútu kl. 20. Gangan hefst við Lambhaga, gróðrarstöð við Vest- urlandsveg kl. 20.20 og gengið eftir nýja stokknum með Hamra- hlíð og yfír Lágafell að Dælustöð- inni og þaðan til baka eftir gamla stokknum og rúta tekin niður í Hafnarhús. Allir velkomnir. LEIÐRÉTT Rangft föðurnafn í blaðinu í gær var frétt um sýn- ingu Guðrúnar í Galtarey sem hald- in er í Norska húsinu í Stykkis- hólmi. Rangt var farið með föður- nafn Guðrúnar, en hún er Jónas- dóttir. Beðist er afsökunar á þess- ari vitleysu. Einnig varð fréttin frekar endasleppt en þar átti að standa „að allir sem skoða myndir Guðrúnar hafi gaman af“. Rafmagnsveita Reykjavíkur Kynningarfundur um Nesjavallalínu KYNNINGARFUNDUR um nýja Nesjavallalínu sem liggur frá raf- orkuverinu á Nesjavöllum að að- veitustöð Rafmagnsveitu Reykjavík- ur við Korpu verður haldinn í Hlé- garði í Mosellsbæ fimmtudaginn 12. júní nk. kl. 20.30 en þar munu tals- menn Rafmagnsveitunnar kynna línulögnina og svara fyrirspurnum. Þá verður í sama tilgangi opið hús í Nesbúð á Nesjavöllum laugardag- inn 14. júní frá kl. 14-17 en þar gefst fólki kostur á að kynna sér framkvæmdirnar. Erindi um fyrir- hugaða línulögn hefur verið sent til umhverfismats hjá Skipulagi ríkis- ins, en gert er ráð fyrir að því ljúki 25. júlí. Samkomulag hefur náðst um lagningu loftlínu og jarðstrengs á milli Rafmagnsveitu Reykjavíkur og þeirra sveitarstjórna og landeigenda sem hlut eiga að máli og stendur gerð samninga nú yfír. Um helming leiðarinnar frá raf- orkuverinu á Nesjavöllum til tengi- virkisins við Korpu mun lína liggja á jörðu og er það fyrst og fremst til þess að draga úr sjónrænum umhverfisáhrifum hennar. Áætlaður kostnaður vegna þessarar fram- kvæmdar er 481,9 milljónir króna og er línulögnin tiltölulega dýr sem stafar af því hve mikill hluti hennar liggur í jörð eða 15,5 km af 31,2 km vegalengd. Línan mun fylgja Sogslílnu 3 úr landi Nesjavalla yfir á Mosfellsheiði, vestan Sköflungs. Þaðan liggur hún til norðvesturs yfir heiðina á létt- byggðum möstrum og endar hjá eyðibýlinu Bringum. Þá tekur við jarðstrengur meðfram Vesturlands- vegi að aðalspennustöð Rafmagn- sveitunnar og Landsvirkjunar við Korpu. Að mati verkfræðistofunnar Línu- hönnunar, sem unnið hefur frum- matsskýrslu og umhverfisáhrif vegna línulagnarinnar, verður línan ekki áberandi þar sem um er að ræða efnislítil stöguð möstur sem illa sjást úr fjarlægð, sérstaklega þegar galvanhúðað stálið hefur veðr- ast og fengið mattan lit. Línan fer síðan í jörð við Bringur og hvefur þar sjónum manna. Línan verður reist á þessu og næsta ári en þegar hún verður tekin í notkun mun Landsvirkjun taka nið- ur Sogslínu 1 sem liggur yfir Mos- fellsheiði og niður Mosfellsdal. Það dregur mjög úr sjónrænum áhrifum af raflínum á þessu svæði. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist þegar umhverfismatið hefur verið staðfest af Skipulagi ríkisins. Umsagna íjölmargra aðila hefur verið leitað vegna þessa máls. Þar má nefna Náttúrufræðistofnun, Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis, Þjóðminjasafn íslands, Veiðifélag Leirvogsár, Náttúruverndarráð og Rafmagnseftirlit ríkisins. ÞÓRIR B. Kolbeinsson, heilsugæslulæknir afhenti Jóni þakkarskjal sljórnar. Gaf Heilsugæslustöðinni á Hellu 5 milljónir kr. HEILSUGÆSLUSTOÐINNI á Hellu hefur borist höfðingleg peningagjöf að upphæð fimm milljónir króna frá öldruðum Rangæing, Jóni Jónssyni frá Lælg'arbotnum í Holtum. Jón er 84 ára fyrrverandi starfsmaður Landgræðslunnar og dvelst nú- orðið i húsnæði Landgræðslunn- ar í Gunnarsholti. Jón hefur ósk- að eftir að gjöf þessi nýtist til að bæta aðstöðu og öryggi skjól- stæðinga stöðvarinnar. Jóni hef- ur verið afhent þakkarskjal frá heilsugæslustjórninni sem viður- kenning á gjöfinni og fundar- hebergi stöðvarinnar er nú nefnt Jónsstofa honum til heiðurs, seg- ir í fréttatilkynningu frá Heilsu- gæslustöðinni. „Miklar umbætur hófust við heislugæslustöðina 1992 þegar leyfi fékkst fyrir þriðja heilsu- gæslulækningum i Rangárvalla- sýslu. Tekið var í notkun ónotað húsnæði sem áður hýsti tann- læknamóttöku og útbúin aðstaða fyrir tvo iækna, ný biðstofa og móttaka. Ólokið var þó að kaupa húsgögn og hefur hluti gjafar Jons venð nýttur ásamt framlagi ríkisins til að ljúka þessu verk- efni. Framkvæmdir þessar hafa stórbætt alla aðstöðu starfsfólks og skjólstæðinga. Gjöf Jón mun einnig verða nýtt til kaupa á ýmsum búnaði sem skila mun sér í auknu öryggi og þjónustu og hefur þegar verið keyptur far- sími sem læknarnir geta haft á vöktum og í undirbúningi er þjófa- og brunavarnakerfi og vararafstöð. Jafnframt hafa kvenfélögin í Hellulæknahéraði gefið upp- hækkaða stóla á biðstofu fyrir þá sem erfitt eiga með að not- færa sér venjulega stóla og kven- félagið Unnur gefið kubbaborð til afþreyingar fyrir yngstu kyn- slóðina. Stjórn og starfsfólk heilsu- gæslustöðvarinnar vill þakka þann hlýhug sem fram kemur i gjöfum þessum sem og gjafir á liðnum árum. Nú þegar opinber framlög til heilbrigðismála eru takmörkuð er stuðningur al- mennings ómetanlegur," segir ennfremur. J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.