Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 38

Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 38
 38 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1108 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Tommi og Jenni l Ljóska Ferdinand Smáfólk Nei, þetta er ekki stjarna Hvernig veit ég það? Hann trúir aldrei neinu ... þetta er halastjarna ... Það stendur á henni... sem ég segi honum ... Leiðbeiningar við kaup listaverka Frá Svavari Guðna Svavarssyni: ÍSLENDINGUM hefur frá upphafi verið kappsmál að prýða heimili sín með listaverkum og segja má þjóð- inni til hróss að hjá henni séu lista- verkakaup almenningsíþrótt. Hér- lendis fer áhugi á góðri list ekki eftir stétt eða stöðu og á mörgum alþýðuheimilum má finna „original" listaverk, ýmist eftir gömiu meist- arana eða bráðefnilega unga lista- menn. Málverkasala hérlendis byggist oftar en ekki á gagnkvæmu trausti kaupenda og seljenda en sérfræð- ingar eru ekki kvaddir til eins og tíðkast oft erlendis. Við slíkar að- stæður skapast ákveðin hætta á að óprúttnir aðilar misnoti sér þetta traust til að bjóða svikin málverk til sölu. Nýlegir atburðir sýna að ýmislegt ber að varast við kaup listaverka, ef vel á að fara, en reynslan sýnir að forvarnarstarfið dugir best á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum. Hér ætla ég að fjalla um nokkur frumatriði, sem fólk ætti að hafa í huga við kaup listaverks. Frumreglurnar fjórar 1. Ef keypt er af listamanninum sjáifum: Fá á blað stærð verksins, og almenna lýsingu á því. T.d. ef um málverk er að ræða, fá þá skrif- legt hvaða tegund lita var notuð við gerð listaverksins, hvaða ár það var unnið og á hvað er málað, t.d. striga, pappír, masonít o.s.frv. Oft er beðið um áritun verksins. 2. Fylgi gögn verkinu, t.d. úr dánarbúi ef það kemur beint úr listaverkum sem listamaðurinn skil- ur eftir sig, er rétt að fá skiptaráð- anda, ef það fer þá leið, til þess að árita sérprentað skjal með emb- ættisstimpli og númeri myndar við skipti. 3. Þýða þetta á erlent tungu- mál, t.d. á ensku og þá má gjarnan bæta við textann hvert verkið fór og hver erfandi er. Afrit af slíkri skráningu er ávallt hægt að fá hjá skiptaráðanda og lögmönnum, sem staðið hafa að skiptunum. 4. Nauðsynlegt er að taka fram hverjir voru starfsmenn við skiptin, listfræðingar, listasögufræðingar o.s.frv. Hérlendis er starfandi afar hæft fólk á þessu sviði, sem auð- velt er að leita til, og yrðu slík vinnubrögð án efa fljót að skila sér í auknu trausti í listaverkaviðskipt- um. Eigin reynsla Sjálfur hef ég reynt framan- greind atriði með sölu málverka eftir föður minn, Svavar Guðnason listmálara. Eg hafði séð vísi að of- angreindum vinnubrögðum erlend- is, en mínir ágætu lögfræðingar bættu um betur. Lögfræðingarnir Ásdís Rafnar, Ingibjörg Rafnar og Kristín Briem komu að þessu máli fyrir mína hönd. Það að sýna og reyna að miðla þessu hefur alfarið verið hafnað, enda eyðileggur það fregnir sem selja blöð, því þetta gæti komið í veg fyrir ýmsar neikvæðar fregnir sem hafa verið í blöðum undanfarið. Nauðsynlegt er að kenna fólki að kaupa listaverk. Saga listaverks er nauðsyn nú á tímum. Getið þið nefnt mér eitt gallerí á íslandi sem gerir þetta? Ég væri þakklátur ef hægt væri. Nú hef ég sagt frá mín- um þrönga reynsluhring í þessu. Björn Th. Björnsson eða Aðalsteinn Ingólfsson væru áreiðanlega hæfir til þess að koma þessu á prent svo fullnægjandi væri. Sýnishorn Lesendum til frekari fróðleiks eru hér sýnishorn frá mér sem nota mætti sem fýrirmynd. Fyrst kemur handskrifuð lýsing, sem fylgir myndinni: „Þessi mynd er olíumynd frá Hafn- arfirði 1933 eins og er ritað á hana. Stærð 45x30 sm. Kom beint úr dánarbúi föður míns til mín og fer frá mér til N.N. 2. apríl 1997, Freyjugötu 34, 101 Reykjavík. Svavar Guðni Svavarsson (sign). “ Fylgi með yfiriýsing frá skipta- ráðanda er rétt að plasthúða hana og líma á viðkomandi mynd með breiðri glæru. Annað hvort á efni aftan á eða á „kartonið" að fram- an. Þannig hljóðaði yfirlýsingin í mínu tilviki: „Það staðfestist hér með að mynd þessi, sem gerð er af Svavari Guðnasyni, listmálara, kom fram við uppskrift á dánarbúi hans og er nr. XX í myndverkaskrá, sem listfræðingarnir Gunnar B. Kvaran og Hörður Ágústsson tóku saman að tilhlutan skiptaréttar Reykjavík- ur við skiptameðferð á dánarbúi listamannsins. Reykjavík, 11. nóvember 1989. Skiptaráðandinn / Reykjavík. R. Hall." Með því að fara eftir ofanrituðum reglum við listaverkakaup er með tiltölulega einföldum hætti hægt að lágmarka tortryggni og auka traust í þessum viðskiptum. Þegar svo tryggilega er frá málum gengið má einnig búast við að eigendur listaverkanna, nú og um alla fram- tíð, eigi eftir að njóta þeirra eins og best verður á kosið, sannfærðir um að þau séu „ekta“ og það skipt- ir ef til vill mestu máli. SVAVAR GUÐNI SVAVARSSON, Freyjugötu 34. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni tii birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.