Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 48

Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 48
- 48 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND/KVIKMYIMDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP MYNDBÖND Frækinn faðir Vondir menn í vígahug (Marshall Law)___________ Spcnnumynd kVl Framleiðandi: David Peters. Leik- stjóri: Stephen Cornwell. Handrits- höfundar: Nick Gregory og Steph- en Cornwell. Kvikmyndataka: Levic Isaacks. Tónlist: Tim Tru- man. Aðalhlutverk: Jimmy Smits, James LeGros, Kristy Swanson. 92 mín. Bandarikin. Warner myndir 1997. Útgáfudagur: 26. maí. Mynd- in er bönnuð börnum innan 16 ára. MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU Vélrænir böðlar (Cyber Trackers) k 'h Hann heitir Hatur (ABoyCalledHate)-k'h Þrumurnar (Rolling Thunder)'k'h Glæpastundin (Crime Time)k k'h Aftökulistinn (The Assassination File)k k Þytur í laufi (Wind in the WilIows)k k JACK Coleman er tveggja barna faðir, sem nýlokið hefur við að reisa átta lúxus einbýlishús, fyrir nýríkan viðskiptamann, í útjaðri Los Ange- les. En stuttu áður en Jack leggur af stað heim til sín eftir vígsluathöfn húsanna ráðast nokkrir miður góðir einstakling- ar inn á heimili hins nýríka, myrða hann og taka konu hans gíslingu. Jack nær að komast undan og fela börnin sín en allar leiðir í burtu virðast von- lausar þar sem jarðskjálfti hefur lok- að þeim flestum. Jack þarf að notast við sína fyrri starfsreynslu úr lög- gæslunni til þess að ráða niðurlögum illmennanna. „Vondir menn í vígahug" er ósköp dæmigerð spennumynd, sem skilur ekkert eftir sig. Jimmy Smits er allt í lagi í hlutverki hins fyrrverandi skerfara, Jack, og James LeGros ofleikur af mikilli innlifun hinn versta af þeim vondu. Kvikmyndatakan er oft á tíðum ruglingsleg og notkun á myndbandsupptökum þegar illmenn- in eru nærri er óviðeigandi; Það er ekki mannskemmandi að horfa á þessa mynd en það er margt betra til á boðstólum. Ottó Geir Borg Moll Flanders (Moll Flanders)k k k Draugurinn Susie (Susie Q)k'h Jólin koma (Jingle AIl the Way)k k Leyndarmál Roan Inish (The Secret ofRoan Inis- h)kk'h Eigi skal skaða (First Do No Harm)k k k Ótti (Fear)k k'h Oj Jack (Jack)k k A LAWN-BOY Garðsláttuvélar Margreyndar við íslenskar aðstæður, nú með nýjum 4,5 HP tvígengismótor, einfaldri og öruggri hæðarstillingu, 48 cm sláttubreidd, styrktum hjólabúnaði, 60 I. grassafnari fylgir ÞÓR HF Raykjavtk - Akureyrl Reykjavík: Ármúla 11 - Sími 56B-1500 - Akureyri: Lónsbakka - Simi 461-1070 Sumarsæla Helgi í sveitinni (Weekend in the Country)_ Rómantísk gamanmynd kkk Framleiðandi: Martin Bergman. Leikstjóri: Martin Bergman. Hand- ritshöfundar: Martin Bergman og Rita Rudner. Kvikmyndataka: Roger Lanser. Tónlist: Patrick Williams. Aðalhlutverk: Faith Ford, Christine Lahti, Jack Lemmon, Richard Lewis, Dudley Moore, Betty White, Rita Rudner. 90 mín. Bandaríkin. Sam-myndbönd 1997. Útgáfudagur: 29. maí. Myndin er öllum leyfð. í BÆNUM Temeeula koma nokkrar sérviskulegar persónur saman til þess að leysa úr vanda- málum lífs síns á einn eða annan hátt. Meðal pesónanna er gaman- leikari, sem von- ast til að gamla ástin hans vilji hann aftur, höf- undur greina í ferðablað, sem er kominn sjö mán- uði á leið og nuddari sem hef- ur hæfileika sál- fræðings. Þessi marg- raddaða frásögn er afskaplega létt og þægileg áhorfs. Leikarahópurinn er feikilega góður og samanstendur hann af mörgum afbragðs gaman- leikurum, sem margir hverjir fara á kostum í hlutverkum sínum. Sen- urnar með Richard Lewis og Jack Lemmon eru yndislega leiknar og skrifaðar og Christine Lahti er óborganleg í hlutverki sínu sem nýaldarlega sinnaður hóteleigandi. Vel skrifað handrit, ágæt leikstjóm Martin Bergman, og síðast en ekki síst hinn margliti hópur leikara gæðir þessa ljúfu og mannlegu gamanmynd lífi. Ottó Geir Borg JIM Carrey hlaut tvenn MTV-verðlaun fyrir hlutverk sitt í „The Cable Guy“. Hér sést hann með mótleikara sínum, Matthew Broderick. MTV-kvikmynda- verðlaunin Ævisaga Pierce Brosnans NÚ GETA aðdáendur Pierce Brosn- ans komist að öllu um hetjuna sem fæddist 16. maí árið 1953 á írlandi. York nokkur Membery hefur skrifað æidsögu kappans án hans samþykk- is. í bókinni fá lesendur að vita allt um feril herra Bonds frá því að hann byrjaði sem sviðsleikari þar til hann hreppti hlutverk leyniþjónustu- mannsins 007. í bókinni er sagt í smáatriðum frá fyrstu smá- rullum Brosnans í kvikmyndunum „The Long Good Friday" og „The Mirror Crack’d" árið 1980. Einnig er flahað um hvernig fyrsta kona hans, Cassandra, fjármagnaði ferð fyrir Pierce til Hollywood árið 1982 sem gerði honum kleift að fá aðal- hlutverk í sjónvarpsþáttunum „Rem- ington Steele", en Brosnan lék Rem- ington í fimm ár. Brosnan reyndi fyrst að fá Bond hlutverkið árið 1986 en hann tapaði þá fyrir Timothy Dalton. Þegar Brosnan nældi loks í hlutverkið í „Goldeneye" varð sú mynd sölu- hæsta Bond-myndin. Hvort Brosnan tollir jafnlengi í hlutverkinu og Sean Connery og Roger Moore á eftir að koma í ljós en næsta myndin í serí- unni er nú í vinnslu. Ævisagan nær ekki lengra enda er Brosnan ungur að árum, hálffimmtugur maðurinn. MT V-kvikmy ndaverðlaunin voru afhent í Santa Monica í Kaliforníu síðastliðinn laugar- dag og verður upptaka frá verð- launahátíðinni sýnd á MTV-rás- unum síðar i þessari viku. Áhorfendur MTV kusu að heiðra eftirfarandi sljörnur: Besti leikari - Tom Cruise í „Jerry Maguire". Besta leikkona - Claire Danes I „William Shakespeare’s Romeo & Juliet. Besta illmennið - Jim Carrey í „The Cable Guy“. Besti gamanleikarinn - Jim Carrey í „The Cable Guy“. Besta stjörnuskapandi hlut- verkið („Best Breakthrough Performance") - Matthew McConaughey í „A Time to Kill“. Besta lagið - Bush með „Mac- hinehead" úr „Fear“. Besta parið - Nicholas Cage og Sean Connery í „The Rock“. Besti kossinn - Will Smith og Vivica A. Fox í „ID4“. Besta hasaratriðið - beljuatr- iðið úr „Twister". Bestu slagsmálin - Fairuza Balk og Robin Tunney í „The Craft“. Chewbacca úr Sljörnustríðs- myndunum var einnig heiðraður fyrir framlag sitt til kvikmynda- sögunnar. Leiður á bófum og krimmum STANLEY Tucci var orðinn leið- ur á því að einu hlutverkin sem honum voru boðin voru ítalskir glæpamenn svo hann settist nið- ur með frænda sínum, Joseph Tropiano, og skrifaði hlutverk fyrir sjálfan sig. Útkoman var „Big Night“, ljúfsár saga um tvo ítalska bræður sem reka veit- ingastað saman í New Jersey á sjötta áratugnum. Auk þess að skrifa handritið og leika annan bróðurinn leikstýrði Tucci mynd- inni í félagi við Campbell Scott. Tucci gekk svo sem ágætlega að leika illmenni. Hann var t.d. mjög skuggalegur í sjónvarps- þáttaröðinni „Murder One“, sem nú er verið að endursýna á Stöð 2, en hann var ekkert sérstak- lega ánægður með krimma- aukahlutverkin í „Kiss Of De- ath“ og „The Pelican Brief“. Tucci viðurkennir að árið áður en hann skrifaði „Big Night“ hafí ekki verið gjöfult. „Ég fékk STANLEY Tucci og Tony Shalhoub sem bræðurnir í „Big Night“. enga vinnu og var mjög „frús- treraður“. Einu hlutverkin sem voru í boði voru mafíósar. Ég hef leikið í 25 kvikmyndum og mig langaði að gera eitthvað nýtt. Hollywood hefur svo staðn- aðar hugmyndir um týpur. Bandaríkjamenn af ítölskum uppruna eiga að eingöngu að vera slæmir karakterar." „Big Night“ hefur gengið mjög vel og verið líkt við mynd- ir eins og „Babettes Gæstebud", „Tampopo", „Like Water For Chocolate" og „Eat Drink Man Woman“ vegna þess hve matur leikur stórt hlutverk í sögunni. Tucci segir matinn vera mikil- vægan en aðalviðfangsefnið sé mannleg samskipti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.