Morgunblaðið - 05.07.1997, Síða 2
2 LÁUGARDÁGUR 5. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Áburðarverksmiðjan
Eimskipafélag íslands kaupir tvö gámaskip fyrir einn milljarð króna
hSréf- Fvrirhujarað að kaupa eða
ulfrrateð*s leigja þriðja gámaskipið
EIMSKIP hefur fest kaup á rúmlega átta þúsund tonna
gámaskipi, Hammonia
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu hefur lagt til við land-
búnaðarráðherra að sölu hlutabréfa
í Áburðarverksmiðjunni verði frestað
um sinn. Landbúnaðarráðherra hef-
ur fallist á þá tillögu.
Fyrir rúmum mánuði bárust tvö
gild tilboð í útboði ríkisins á hluta-
bréfum þess í Áburðarverksmiðjunni
hf. Ákveðið var að hafna báðum til-
boðum. Landbúnaðarráðherra ákvað
þó að nefndin skyldi áfram skoða
möguleika á því að selja hlutabréfin.
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu hefur að undanförnu farið
vandlega í gegnum málið ásamt
verðbréfafyrirtækinu Handsali hf.
og öðrum ráðgjöfum sínum. M.a.
hefur verið farið í gegnum fjárhags-
stöðu Áburðarverksmiðjunnar og
framtíðarhorfur í rekstri hennar.
Að því er.fram kemur í frétt frá
nefndinni telur hún ekki ástæðu til
að efna til viðræðna við þá bjóðendur
sem gerðu tilboðin sem hafnað var.
Ef breyta eigi skilmálum vegna sölu
hlutabréfanna sé óhjákvæmilegt að
gefa öðrum kost á að taka þátt í
breyttu söluferli. Rétt sé að auglýsa
bréfin að nýju með skýrari reglum.
Þar verði m.a. kveðið á um lág-
marksijárhæð tilboða og áframhald-
andi atvinnustarfsemi í Gufunesi.
EIMSKIP hefur gengið frá kaup-
um á tveimur gámaskipum og er
kaupverð þeirra um einn milljarður
króna. Annað skipið er rúmlega
átta þúsund tonna gámaskip og
er fyrirhugað að kaupa eða leigja
annað skip af sambærilegri stærð
innan tveggja mánaða.
Þessi skip munu koma í stað
Dettifoss og Bakkafoss sem eru í
reglubundnum áætlunarsiglingum
á suðurleið frá Reykjavík og
Straumsvík til Immingham í Bret-
landi og Rotterdam í Hollandi. Auk
þess sem Eimskip hefur gengið frá
kaupum á Goðafossi sem félagið
hefur haft á leigu síðastliðin þrjú
ár.
í frétt frá Eimskip kemur fram
að markmiðið með þessum breyt-
ingum á skipakosti er fyrst og
fremst að auka flutningsgetu skipa
félagsins á suðurleið um 30%
vegna stækkunar álversins í
Straumsvík en félagið hefur ann-
ast flutninga fyrir íslenska álfélag-
ið frá því að framleiðsla hófst í
Straumsvík fyrir tæpum 30 árum.
Álflutningar fóru lengst af fram
með stórflutningaskipinu Lagar-
fossi sem var selt á síðasta ári, en
í fyrra hóf Eimskip að flytja vörur
fyrir ÍSAL í áætlunarsiglingum.
Að sögn Harðar Sigurgestsson-
ar, forstjóra Eimskips, eru nýju
skipin kærkomin viðbót við skipa-
flota félagsins enda mun stærri en
þau skip sem annast þessa flutn-
inga í dag. „Öll efling á iðnaðar-
starfsemi í stóriðju er mjög áhuga-
verð fyrir félagið og eykur okkar
umsvif ef við fáum að taka þátt í
henni. Við gerum ráð fyrir því að
eigendur Norðuráls muni bjóða út
sína flutninga fljótlega og mun
Eimskip taka þátt í því útboði.“
Skógafoss leigður til útlanda
Aðspurður segir Hörður að líkur
séu á því að Eimskip muni selja
eitt af sínum minni skipum til þess
að mæta þessari nýju fjárfestingu.
„Um 65% af kaupverðinu verða
fjármögnuð með erlendum lánum
til sjö ára en að öðru leyti kemur
fjármagnið úr rekstri Eimskips."
Skipið sem félagið hefur nú
keypt getur flutt allt að 543 gáma-
einingar og fær Eimskip það af-
hent þann 5. ágúst næstkomandi.
Skipið sem heitir Hammonia í dag
var smíðað árið 1993 og kaupir
Eimskip það af þýsku skipafélagi.
Dettifoss og Bakkafoss verða
áfram í rekstri hjá Eimskip og
munu taka við af Skógafossi og
leiguskipinu St. Pauli á strandleið,
þ.e. siglingaleiðinni frá Reykjavík
til ísafjarðar, Akureyrar og Eski-
fjarðar áleiðis til Þórshafnar í
Færeyjum, Immingham og Rott-
erdam. Gert er ráð fyrir því að
Skógafoss verði leigður til annarra
verkefna erlendis eða seldur og
St. Pauli verði skilað úr leigu.
Goðafoss er systurskip Dettifoss
og Bakkafoss. Félagið hefur haft
skipið á þurrleigu, en þá er skipið
leigt án áhafnar, frá því árið 1994.
Goðafoss hefur að undanförnu ver-
ið í siglingum milli íslands og
Norður-Ameríku. Skipið var smíð-
að árið 1982 og er burðargeta
þess 413 gámaeiningar. Eimskip
hafði kauprétt á skipinu meðan
félagið hafði það á leigu og þótti
hagkvæmt að ganga frá kaupum
á skipinu nú.
Morgunblaðið/Júlíus
KEPPENDUR heilsuðu forseta og öðrum heiðursgestum með virktum þegar þeir gengu fylktu liði inn á völlinn.
Landsmót
sett í
Borgamesi
Borgarnesi. Morgunblaðið.
LANDSMÓT Ungmennafélags ís-
lands, það 22. í röðinni, var sett
við hátíðlega athöfn á Skalla-
grímsvelli f gærkvöldi að viðstödd-
um um 4.500 manns.
Meðal gesta voru forseti ís-
lands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, Björn Bjarnason
menntamálaráðherra og heiðurs-
gesturinn, Vilhjálmur Einarsson
silfurverðlaunahafi frá Ólympíu-
leikunum í Melbourne. Veðrið lék
við gesti meðan á setningarat-
höfninni stóð en skömmu áður
hellirigndi. Þetta er í þriðja sinn
sem landsmót UMFÍ er haldið á
félagssvæði UMSB, það var haldið
á Akranesi árið 1975 og fimmta
landsmótið var haldið á Hvanneyri
1943. Landsmót var fyrst haldið á
Akureyri árið 1909. Nú er það
haldið í Borgarnesi og einnig er
keppt á Hvanneyri og á Akranesi.
„Er það dæmi um að umfang
landsmótanna verður sffellt
meira,“ sagði Þórir Jónsson, for-
maður UMFÍ, í ræðu sem hann
hélt við setningu mótsins.
Foringjar í norska hernum í samtali við Morgunblaðið
Engir norskir kaf-
bátar á miðunum
KAFBÁTURINN sem Landhelg-
isgæslan tók mynd af á loðnu-
miðunum austur af landinu á
miðvikudag var ekki norskur,
samkvæmt upplýsingum frá
stjórnstöðvum norska sjóhersins
í Stavanger og Bodo.
Foringjar á vakt í stjórnstöð
norska hersins í Ósló, svo og
stjómstöðvum flotans í Stav-
anger og Bode, sögðu í samtali
við Morgunblaðið í gær að sam-
kvæmt gögnum þeirra hefðu
engir norskir kafbátar verið á
hafsvæðinu milli íslands og Nor-
egs í vikunni.
Skv. heimildum Morgunblaðs-
ins telja sérfræðingar innan ís-
lenska stjómkerfisins, eftir at-
Islenskir sér-
fræðingar telja
líklegast að
kafbáturinn
sé norskur
hugun málsins, sterkar líkur á
að um norskan kafbát hafi verið
að ræða, af tegundinni ULA, en
Norðmenn keyptu sex slíka báta
frá Þýskalandi á ámnum 1989-
1992. Talið er fullljóst að um
diesel-kafbát hafi verið að ræða
en þeir þurfa að koma upp á
yfirborðið öðru hveiju til að end-
umýja rafgeyma og súrefni.
Athugun á möstmm og tumi
kafbátsins þykir benda sterklega
til að um ULA-kafbát hafí verið
að ræða og fleiri atriði munu
ennfremur renna stoðum undir
þetta mat. Getgátur eru uppi um
að erindi hans hafi verið að taka
myndir, fylgjast með fjarskiptum
og vera til staðar ef til árekstra
kemur á loðnumiðunum. Ekki er
talið með öllu útilokað að þarna
hafí verið um að ræða hollenskan
kafbát af Walrus-gerð, sem er
mjög líkur ULA-kafbátum. Skv.
upplýsingum blaðsins verður
ekkert frekar aðhafst í stjórn-
kerfinu vegna þessa máls, enda
kafbáturinn á frjálsri siglingu í
efnahagslögsögunni.
Múrarar og
píparar
semja
MÚRARAFÉLAG Reykjavíkur og
Sveinafélag pípulagningamanna
undirrituðu nýja kjarasamninga
fyrir hönd félaganna við viðsemj-
endur hjá ríkissáttasemjara í gær.
í gær voru haldnir sáttafundir
i kjaradeilum sjúkraliða, náttúru-
fræðinga, röntgentækna, iðju-
þjálfa, sálfræðinga og félagsráð-
gjafa við samninganefnd ríkisins
og viðræður héldu áfram á milli
VMSÍ, Dagsbrúnar og Framsóknar
og samninganefndar Pósts og
síma.
-----» ♦ ♦----
Síma- og póstmenn
85,2% sam-
þykktu kjara-
samning
NÝGERÐUR kjarasamningur Fé-
lags íslenskra símamanna og Póst-
mannafélags íslands við Póst og
síma hf. hefur verið samþykktur.
Samþykkir samningnum voru
1.013 félagsmenn eða 85,2% þeirra
sem atkvæði greiddu. 164 eða
13,8% sögðu nei. Samningurinn var
undirritaður 18. júni. A kjörskrá
voru 1.876 oggreiddu 1.189 félags-
menn atkvæði.
Bílvelta í
Rauðadal
BÍLVELTA várð síðdegis á Austur-
eyjavegi í Rauðadal. Farþegi í bíln-
um var fluttur á sjúkrahúsið á Sel-
fossi en meiðsl hans voru talin
minniháttar. Bíllinn var fluttur burt
með kranabíl.
Árekstur varð við einbreiða brú
yfír Víðidalsá í Vestur-Húnavatns-
sýslu í gær. Engin slys urðu á fólki.