Morgunblaðið - 05.07.1997, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 29'
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VIRÐISAUKA-
SKATTUR AF GSM-
SÍMTÖLUM
ISLENDINGUR staddur erlendis verður framvegis að
greiða íslenzka ríkinu virðisaukaskatt af símtölum sín-
um gegnum GSM-síma, þótt viskipti hans séu í raun að
stærstum hluta við erlent símafyrirtæki. GSM-simi, notað-
ur erlendis, leitar uppi næstu símstöð, og nýtur þjónustu
hennar. Það hlýtur að orka tvímælis, að ekki sé fastar
að orði kveðið, að íslenzka ríkið innheimti virðisaukaskatt
af símaþjónustu keyptri á erlendri grundu af erlendu fyrir-
tæki.
Fram til þessa hefur aðeins verið lagður virðisaukaskatt-
ur ofan á 15% þjónustugjald, sem Póstur og sími hefur
lagt á GSM-símtöl íslendinga frá útlöndum. Nú á sem
fyrr segir að leggja virðisaukaskatt á heildarsímakostnað
GSM-notandans, einnig af þeirri þjónustu, sem keypt er
af hinu erlenda símafyrirtæki. í mörgum tilfellum eru
erlendir símareikningar með virðisaukaskatti og verður
þá um tvöfalda álagningu að ræða. Það er að sjálfsögðu
fráleitt að innheimta virðisaukaskatt í tvígang af sömu
símaviðskiptunum.
Það breytir litlu í þessu sambandi þótt reynt verði, eins
fram kom í viðtali við talsmann Pósts og síma, að fá er-
lendan virðisaukaskatt endurgreiddan. Það kostar, að
þeirra sögn, samningaviðræður við skattayfirvöld í hveiju
viðkomandi landa fyrir sig. Að sjálfsögðu eiga íslenzk
skattayfirvöld að semja um þessa hluti áður en hafin verð-
ur innheimta virðisaukaskattsins með þeim hætti sem nú
er áformað. Annað er illþolandi fyrir viðskiptavininn og
skattgreiðandann. Sá tími á að vera liðinn að hægt sé
að ganga á hag hans og rétt með þessum hætti.
SKÓLAGJÖLD OG
SKATTAÍVILNUN
FYRIR nokkru vék Tryggvi Gíslason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, að því, að tímabært væri
að taka hér upp skólagjöld. Það er ekki auðvelt fyrir for-
ystumann í skólakerfinu að koma fram með slíkan boð-
skap og þeim mun virðingarverðari er viðleitni skólameist-
arans til þess að taka þetta viðkvæma mál á dagskrá og
fá um það umræður.
Skólagjöld hafa lengi verið við lýði víða á Vesturlöndum
en þó fyrst og fremst í Bandaríkjunum og Bretlandi. í
Þýzkalandi t.d. hafa háskólar verið opnir eins og hér og
aðgangur að þeim ekki kostað neitt. Afleiðingin er sú,
að algert öngþveiti ríkir nú í háskólum þar í landi. Skólarn-
ir hafa ekki efni á að reisa nauðsynlegar byggingar til
þess að hýsa starfsemi sína, þeir missa hæfustu kennar-
ana vegna þess, að þeir hafa ekki efni á að greiða þeim
viðunandi laun og svo mætti lengi telja.
Skólar hér stefna í sömu átt að óbreyttu og þessi þróun
er raunar löngu hafiiw' Háskóla íslands. Þess vegna má
gera ráð fyrir, að á næstu árum skapist smátt og smátt
samstaða um að taka upp skólagjöld, a.m.k. á háskóla-
stigi. Þeim fylgir sá kostur fyrir nemendur, að þeir geta
gert mun meiri kröfur til kennara og viðkomandi skóla
um gæði kennslu og margvíslegrar þjónustu. Hins vegar
er ljóst, að þar sem full skólagjöld eru greidd er náms-
kostnaður afar hár. Ekki er ósennilegt, að 5 ára háskóla-
nám með fullum skólagjöldum geti kostað á annan tug
milljóna króna.
í Bandaríkjunum hefur það tíðkazt í áratugi að foreldr-
ar byija að leggja fyrir fé til þess að standa straum af
námskostnaði barna sinna um leið og þau fæðast. Slíkur
langtímasparnaður er þjóðfélaginu öllu til hagsbóta. Það
er ástæða til að varpa því fram til umhugsunar og um-
ræðu, hvort saman geti farið ákvörðun um að taka upp
skólagjöld hér í áföngum og ákvörðun um að veita fólki
skattaívilnanir, sem tengjast langtímasparnaði vegna
skólagöngu barna þeirra í framtíðinni.
Skattaívilnanir myndu hvetja fólk til að taka upp slíkan
sparnað, alveg með sama hætti og skattaívilnanir hafa
orðið til þess að ýta mjög undir hlutabréfakaup almenn-
ings, sem þar með hefur orðið beinn þátttakandi í uppbygg-
ingu atvinnulífsins.
LENDINGARSTAÐUR Pathfinder í gjúfri Aresar á Mars. FALLHLÍFAR og loftpúðar voru notaðir við lendingu Pathfinder.
Discovery- áætlunarinnar er NEAR
geimfarið (Near Earth Asteroid
Rendezvous) sem skotið var upp
(reyndar á undan Pathfinder) 17.
febrúar 1996, og mun fara á braut
um smástirnið Eros 1. október 1999.
Þann 27. júní siðastliðinn fór geimf-
arið framhjá smástirninu Mathilde.
Vísindatæki um borð í
Pathfinder
Um borð í Pathfinder eru fjöl-
breytt vísindatæki sem munu afla
nánari upplýsinga um yfirborð Mars.
Ber þar fyrst að nefna svokallaðan
IMP-búnað (Imager for Mars Pat-
hfinder), sem er myndavél geimfars-
ins. Myndavélin hefur tvær linsur til
að geta tekið tvísýnimyndir þannig
að hægt sé að nota hana til að
ákvarða vegalengdir og stærð hluta
sem finnast á yfirborðinu. Útfrá tví-
sýnimyndunum er svo búið til þrívítt
tölvulíkan af umhverfi geimfarsins,
og munu stjórnendur jeppa, sem
notaður verður við rannsóknir, nota
það til að leiðbeina honum um yfir-
borð Mars.
Myndavélin hefur innbyggðar 24
ljóssíur og eru 12 þeirra notaðar til
að skoða litróf frá gijóti og ryki á
yfirborðinu. Með því fást allgóðar
upplýsingar um efnasambönd sem
er að finna á Mars. Myndavélin er
talsvert fullkomnari en sú sem notuð
var á Viking-geimförunum 1976, og
er þar aðallega fyrir að þakka stór-
stígum framförum i gerð CCD-
platna (Charged Coupled Device)
sem gegna hlutverki filmu. Næmni
CCD-plötunnar gerir mögulegt að
taka myndir á mjóum litrófsböndum.
Með litrófsljósmyndun er átt við að
teknar eru myndir í ákveðnum litum.
Litróf sýnilegs ljóss nær yfir bylgju-
lengdir rafsegulgeislunar frá um 400
nanómetrum (blátt) upp í um 700
nm (rautt). í mannsauga eru þijár
ljóssíur, ein blá sem skynjar u.þ.b.
440 nm, græn um 590 nm og rauð
um 670 nm. Myndavél Pathfinders
hefur 12 litsíur með um það bil jöfnu
millibili frá 440 nm upp í um 1000
nm, nokkuð út fyrir sýnilega sviðið.
Hluti af IMP pakkanum er segul-
eiginleikatilraunin, sem annar höf-
unda þessarar greinar hefur starfað
að, og verður gerð grein fyrir síðar
í greininni.
Soujourner-jeppinn
Sojourner Rover er jeppi (ca. 60
sm langur og 40 sm breiður) sem
mun aka um yfirborðið, taka mynd-
ir, (meðal annars af geimfarinu) og
framkvæma ýmsar mælingar. Jepp-
inn inniheldur állnokkur tæki, þar á
meðal svokallað APXS-efnagreining-
artæki.
APXS (alpha-proton-X ray spect-
rometer) er efnagreiningartæki sem
-I-
BANDARÍSKA geimfarið
Pathfinder lenti á yfirborði
Mars á föstudag, nánar
tiltekið við „ósa“ Ares
Vallies (gljúfur Aresar) sem er aflíð-
andi háslétta og gljúfrakerfi nálægt
Valles Marineris, sem eru mestu
gljúfur á Mars. Lendingarstaðurinn
er valinn með hliðsjón af að flóð
sunnan frá hálendinu kunni að hafa
borið með sér steina og jarðveg sem
vert er að rannsaka.
Pathfínder er fyrsta geimfarið
sem lendir á yfirborði Mars síðan
Viking geimförin lentu þar árið
1976. Lendingin markar upphaf
nýrra tíma í könnun Mars, því banda-
ríska geimferðastofnunin NASA ráð-
gerir hér eftir að senda tvö geimför
til Mars í hvert sinn sem afstaða
jarðar og Mars hentar. Það gerist á
rúmlega tveggja ára fresti, og er
ætlunin að þessu haldi áfram vel
fram yfir aldamót. Að lokum kemur
svo að því að geimfar snúi aftur til
jarðarinnar með jarðvegssýni frá
Mars, og er það áætlað fijótlega eft-
ir aldamót.
Pathfínder og Viking geimförin
eiga margt sameiginlegt og eru eins
konar ómannaðar rannsóknarstofur.
Það sem er óvenjulegast við Pat-
hfinder (og greinir það mest frá Vik-
ing-förunum) er aðferðin sem það
notar til lendingar.
Viking geimförin (og flest geim-
för, mönnuð og ómönnuð, sem lenda
á öðrum reikistjörnum) notuðu
bremsueldflaugar til að lenda mjúk-
lega á yfirborðinu. Lending Pat-
hfínder gerðist hins vegar í nokkrum
skrefum: í fyrstu hægði loftmótstað-
an á ferð þess, er það kom inn i
efri hluta lofthjúpsins. Hitahlífar
komu í veg fyrir að geimfarið
skemmdist, en þær áttu að brenna
upp að hluta til. Næst opnuðust fall-
hlífar með bremsueldflaugum sem
hægðu enn frekar á geimfarinu.
Fallhlífunum var sleppt meðan
geimfarið var enn nokkrum tugum
metra yfir yfirborðinu og það látið
falla niður á yfirborðið. Bremsueld-
flaugarnar báru síðan fallhlífina í
örugga fjarlægð frá geimfarinu.
Loftpúðar blésu upp á hliðum geimf-
arsins og tryggðu örugga lendingu
Pathfínder sem skoppaði nokkrum
sinnum eftir yfirborðinu. Auðvitað
er ekki hægt að ganga út frá því
sem vísu að geimfarið lendi að lokum
á réttum kili, en þegar hliðar þess
opnuðust átti það sjálft að velta sér
þannig að það stæði rétt.
Pathfinder er fyrsta geimfar
NASA sem fylgir hinni svokölluðu
Discovery-áætlun. Kröfurnar sem til
þess eru gerðar eru að það sé ódýrt,
150 milljónir dollara á gengi ársins
1992, og að áhersla sé lögð á fá
rannsóknartæki. Næsta ferð í anda
Pathfinder lendir á yfirborði Mars
geir Pétursson fjalla hér um tilgang ferðar-
innar og eðli þeirra rannsókna sem fram-
kvæmdar verða á Mars.
HÉR má sjá líkan af Pathfinder og Soujoumer á tilraunastofu NASA
í Pasadena í Bandarílyunum. Soiyoumer-jeppinn er fremst á myndinni.
Leyndar-
mál Mar s
afhjúpuð
Geimfarið Pathfínder lenti á yfírborði Mars í
gær. Haraldur Páll Gunnlaugsson og As-
SOJOURNER KANNAR YFIRBORÐ MARS
Skyrjari
greinirefni
á yfirborði
Veltivagnsfjöðrun
Með drifi á sex hjólum getur vagninn
ráðið við hindranir sem eru tvisvar
sinnum þvermál hvers hjóls.
Mótorar eru gíraðir í hlutfallinu
2000:1 til þess að skapa kraftvægi sem þarf í akstur á grófu yfirborði á 0,4 metra hraða á mínótu
REUTERS
notfærir sér geislagjafa (Curium-
244) sem sendir frá sér alfa-geislun.
Aðferðin er sú að alfa-geislarnir eru
látnir lenda á sýninu sem rannsaka
á. Sumir þeirra speglast til baka, en
aðrir leysa úr læðingi röntgengeisla
og róteindir. Allt gefur þetta góðar
upplýsingar um frumefni þyngri en
vetni sem eru í sýninu.
Veðurmælingatæki um borð nefn-
ast einu nafni ASI/MET. Hitastig,
vindhraði og yfirborðsþrýstingur á
lendingarstað verða mæld í þremur
mismunandi hæðum. Þessar mæling-
ar munu gefa betri upplýsingar um
gerð lofthjúpsins á Mars en nú eru
til, þar sem veður fylgir öðrum lög-
málum en á jörðinni.
Starfið á Mars
Eftir lendingu verður enginn frið-
ur hjá vísindamönnum því enginn
veit hvenær gögn hætta að berast
frá geimfarinu, og nauðsynlegt er
að vinna jöfnum höndum úr þeim
gögnum sem berast til að hægt sé
að skipuleggja nýjar tilraunir eða
gefa því merkilega sem sést betri
gaum.
Á undanförnum mánuðum hefur
sérhvert handbragð i gagnameð-
höndlun og stjórn geimfarsins verið
æft í viðbúnaðarprófunum (ORT).
Líkan af geimfarinu, sem komið er
fyrir í líkani af Mars umhverfi, er
notað til að gefa vísindamönnum og
stjórnendum geimfarsins tækifæri til
að prófa þær aðferðir sem þeir eiga
eftir að beita á Mars. Margt hefur
farið úrskeiðis á þessum æfingum,
og margt komið í ljós sem betur
mætti fara. Þetta er þó einmitt mark-
mið æfinganna, þegar á hólminn er
komið má gera ráð fyrir að þær
skili tilgangi sínum og að allt gangi
snurðulaust. Seinasta viðbúnaðar-
prófunin var framkvæmd dagana
9.-13. júni, og var hún lokaæfingin
fýrir lendinguna.
Fyrsta mánuðinn verður hægt að
ná um 20 megabitum (um milljón
orðum) af gögnum á dag frá geimf-
arinu. Það fer aðallega eftir því
hversu mikið rafmagn er til á geimf-
arinu, hvort ryk sest á ljósrafhlöð-
urnar og hversu kalt er. Ýmsum hlut-
um geimfarsins þarf að halda heit-
um, og fer hluti rafmagnsins í það.
Endist í átta ár
Fyrsta daginn var aðalstarfið að
ná jeppanum af geimfarinu. Það
þurfti að gerast eins fljótt og auðið
var, því annars skyggir jeppinn á
huta sólarrafhlaðnanna. Jeppinn get-
ur ekið í tvær áttir og verður sú
öruggari valin. Auk þess er strax
tekinn mikill fjöldi mynda til vonar
og vara ef myndavélin skyldi bila
og hætta að geta tekið myndir. Eft-
ir fyrsta daginn verður myndavélin
færð í sína endanlegu hæð, sem er
1,5 m yfir yfirborð Mars.
Næstu daga verða fjölmargar til-
raunir gerðar, jeppinn mun skoða
allt ryk og grjót sem virðist áhuga-
vert. Hjólför jeppans munu til dæm-
is gefa vísbendingar um jarðveginn
á Mars, og einstaka sinnum verður
jeppinn látinn spóla, til að sjá hver
áhrifin verða. Teknar verða litrófs-
myndir af öllum áhugaverðum fyrir-
bærum í nágrenni geimfarsins, svo
og af ryki sem sest á seglana. Þetta
er einungis brot af því sem hundruð
vísindamanna munu glíma við fyrstu
dagana. Reynt verður að tæma alla
hugsanlega rannsóknarmöguleika
svo ekki þurfi að naga sig í handar-
bökin og muldra: „Við hefðum átt
að gera svona!“, eftir að geimfarið
hættir að senda boð.
Ef allt heppnast eins og til stend-
ur má búast við að geimfarið endist
í allt að eitt ár. Það sem takmarkar
hvað mest endingartímann er hinar
miklu hitasveiflur á Mars, allt að 150
gráðu frost á næturnar og upp að
frostmarki á daginn, en rafeindar-
tækin um borð þola slíka meðferð
ekki endalaust.
Upplýsingar úr ryki
Seguleiginleikatilraunin (The
Magnetic Properties Experiment) er
sú tilraun sem Haraldur Páll hefur
unnið að undanfarin ár. Hún byggist
að hluta á niðurstöðum svipaðrar
tilraunar Viking-geimfaranna, en
þau fluttu nokkra segla sem söfnuðu
segulmögnuðu ryki. í ljós kom að
yfirborðsryk Mars er mjög segul-
magnað, nokkuð sem kom mjög á
óvart í ljósi þess að svipaður jarð-
neskur (rauðleitur) jarðvegur er svo
til aldrei jafn segulmagnaður. Til-
raunin mun nýta þennan seguleigin-
leika til að afla vitneskju um yfir-
borðsryk Mars, sér í lagi þátt vatns
í mótun þess.
Þegar rannsaka á jarðvegsrof á
Mars koma ljósmyndir að takmörk-
uðu gagni. Efnasambönd í jarðvegin-
um eru ótalmörg og ekki er hægt
að greina á milli þeirra á einfaldan
hátt. Hinsvegar eru segulvirk efna-
sambönd aðeins fáein, og með því
að einskorða sig við þau er mögulega
hægt að greina á milli þeirra.
Segulvirk sambönd innihalda járn,
sem er það frumefni sem gefur einna
mestar upplýsingar um veðrun og
jarðvegsrof á Mars. Allir þekkja
muninn á hreinu járni og veðruðu
(ryði) og auðvelt er að sjá hvernig
járn hefur veðrast, og hvort vatn
hafi átt þátt í veðruninni.
Seguleiginleikatilraunin er sam-
sett af þremur tækjum. Fyrst er að
telja Magnet Array, sem er röð mis-
sterkra segla, sem efnisagnir hafa
mismunandi tilhneigingu til að setj-
ast á eftir því hve sterk segulmögn-
un þeirra er.
Þá er segull staðsettur nærri öðru
auga myndavélarinnar sem mun gefa
kost á að skoða hvernig segulvirk
korn af yfirborðinu víxlverka hvert
við annað, og að auki eru seglar sem
safna segulmögnuðu ryki til efna- ^
greiningar.
Geimferðir til yfirborðs annarrar
reikistjörnu eru ekki daglegt brauð
jafnvel á bestu bæjum, og að baki
liggur margra ára þrotlaus vinna.
Stundum tekst heldur ekki vel til. í
nóvember síðastliðnum sendu Rússar
á loft geimfarið Mars-96, sem var
einhver metnaðarfyllsta geimferð til
Mars fyrr og síðar. Geimskotið mis-
tókst með þeim afleiðingum að 6
tonn rannsóknartækja (Mars Pat-
hfinder vegur ekki nema 380 kg)
enduðu á botni Kyrrahafsins. Þetta
var eitt mesta áfall í sögu könnunar-
leiðangra til Mars.
Rannsóknir hafa skilað árangri
Spyija má hvort vert sé að standa
í þessu, hvort ekki megi veija fjár-
munum til einhvers sem liklegra er
að gefi niðurstöður. Staðreyndin er
að þótt stór hluti þeirra geimfara sem
send hafa verið til Mars hafi ekki
skilað því sem ætlast var til af þeim,
hafa rannsóknir á Mars samt skilað
miklum árangri. Skilningur okkar á
jörðinni hefur t.a.m. aukist, hægt er
nú að átta sig betur á þeim ferlum
sem skapað hafa jörðina og gert
hana að því sem við þekkjum í dag.^r
í dag eru það einkum tvær brenn-
andi spumingar sem leitað er svara
við:
í fyrsta lagi hversu mikið vatn var
áður á Mars, og hvað varð um það?
Skiptar skoðanir em um það hvort
nógu mikið vatn hafi nokkm sinni
verið á Mars til að stöðuvötn, og jafn-
vel höf, mynduðust. Á yfirborðinu
má finna merki um árfarvegi og
hugsanlega stöðuvötn. Ekki er hins-
vegar vitað hvort árfarvegimir mynd-
uðust eftir að loftsteinn hafði brætt
upp hluta sífrerans, eða hvort Mars
hafi verið síblautur með rigningu og
votlendi. Þegar menn verða sendir til
Mars, verður afar mikilvægt fyrir þá
að geta nýtt sér auðlindir sem fínnast
á yfirborðinu. Aðgangur að vatni,
bæði til drykkjar og framleiðslu eld-
flaugaeldsneytis til heimferðar, er þar
efst á óskalistanum.
í öðm lagi verður reynt að svara
spumingunni um hvort líf hafí fyrir-
fundist á Mars. í september sl. var
greint frá því að ummerki hefðu
fundist um örvemr í lofsteini sem
borist hafði til jarðar frá Mars. í
framhaldi af þessu hafa kenningar
um þróun lífs verið endurskoðaðar,
sérstaklega hugmyndir um hvaða
aðstæður þurfi til að líf geti þrifist.
Nú er svo komið að örverulíf hefur
fundist á hinum ótrúlegustu stöðum
á jörðinni, í gijóti, úthafsborkjörnum
og á fleiri stöðum sem áður var tal-1--
ið óhugsandi að líf gæti þrifist. Af
þessu hefur verið dregin sú ályktun
að líf hljóti að hafa þróast á Mars.
Þó ber að taka fram að ofangreindar
niðurstöður eru enn umdeildar.
Ekki er búist við að Pathfinder
muni gefa endanlegt svar við þessum
spurningum, en enginn vafi er á að
hann mun skila okkur í áttina.
Hægt er að fylgjast með Pathfind-
er á alnetinu á slóðinni:
http://mpfwww.jpl.nasa.gov/
Haraldur P. Gunnlaugsson g
útskrifaðist með meistarapróf i
eðlisfræði fr& Háskóla íslands 1992,
og varði dok torsritgcrð sina í
eðlisfræði fyrr & þessu iri.
Haraldur starfar við
Kaupmannahafnarháskóla og
verður staðsettur hji NASA næsta
mánuðinn við móttöku og úrvinnslu
gagna frá Pathfinder geimfarinu.
Ásgeir Pétursson hefur BS-gráðu í
eðlisfræði frá Háskóla íslands 1995.