Morgunblaðið - 05.07.1997, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Bónus selur áfram M&M sælgæti þrátt fyrir viðvörun
Sama matvælalöggjöf gildir
fyrir fríhöfnina og Bónus
SÆLGÆTIÐ M&M hefur verið selt
í Bónus undanfarnar vikur og for-
svarsmenn Bónus hafa fengið við-
varanir um sölu þess frá heilbrigðis-
eftirlitinu. Ekki er leyfilegt sam-
kvæmt gildandi aukefnalista að
flytja inn M&M og sama matvæla-
löggjöf gildir fyrir landið allt. Engu
að síður er M&M selt í fríhöfninni
allan ársins hring.
Bónus fær viðvörun
Að sögn Sigurborgar Daðadóttur
hjá Heilbrigðiseftirliti Kópavogs
hefur Bónus fengið senda viðvörun
þar sem kemur fram að M&M inni-
haldi litarefni sem ekki eru leyfð
samkvæmt núgildandi aukefnalista.
Farið hefur verið fram á við Bónus
að farið sé að gildandi reglum við
innflutning, dreifíngu og sölu á
sælgætinu. Sigurborg segir að nýr
aukefnalisti sé væntanlegur en hún
segir ómögulegt að Heilbrigðiseftir-
litið fari að vinna eftir aukefnalista
sem ekki hefur tekið gildi.
„Auk þess sem heilbrigðisfulltrú-
ar hafa sent bréf til forsvarsmanna
hjá Bónus sendu þeir sameiginlegt
bréf til umhverfisráðuneytisins þar
sem óskað var eftir að útgáfu nýs
aukefnalista yrði hraðað.“
- Hvað gerist ef forsvarsmenn
í Bónus fara ekki eftir þessum
ábendingum ykkar um að hætta
sölu á M&M sælgæti?
„Við getum gert vöruna upptæka
ef hún er á boðstólum en höfum
fram til þessa gripið í tómt,“ segir
Sigurborg.
Sama matvælalöggjöf gildir
um fríhöfnina
„Lögfræðingar okkar halda því
fram að sömu lög gildi fyrir allt
landið og því hlýtur ríkið að bijóta
lög með því að seija M&M i fríhöfn-
inni,“ segir Jón Ásgeir Jóhannes-
son, framkvæmdastjóri hjá Bónus.
„Markmið okkar er ekki að stoppa
sölu á þessu sælgæti í fríhöfninni
heldur erum við að sýna fram á
fáránleika þessa máls. Menn vísa
hver á annan og geta enga skýringu
gefið á því hversvegna fólk þarf
að kaupa flugmiða til að nálgast
M&M sælgæti á íslandi," segir
Jón Ásgeir.
20.000 pokar af M&M
sælgæti seldir
„Við höfum að
undanfömu selt
viðskipta-
vinum
okkar um ijj&k
tuttugu þúsund
poka af þessu sæl-
gæti og ætl- um að halda söl-
unni áfram.“ Tvö hundruð gramma
pokar af M&M kosta 229 krónur í
Bónus og Jón Ásgeir segir að þeir
sjái fram á lækkun á vörunni á
næstunni. „Við erum komnir í betri
viðskiptatengsl með þessa vöru og
getum því vonandi lækkað verð-
ið innan skamms.“
Þegar Sigurborg
Daðadóttir hjá
Heilbrigðiseftir-
liti Kópavogs
var innt eftir
því
hvort
sömu holl-
ustulög giltu
um fríhöfnina á
Keflavíkurflug-
velli og á höfuð-
borgarsvæðinu vísaði
hún spurningunni til
umhverfisráðuneyt-
isins.
Sömu lög gilda
um allt landið
Sigurbjörg Sæmundsdóttir,
deildarstjóri hjá umhverfísráðu-
neytinu, segir að í lögum um holl-
ustuhætti og heilbrigðiseftirlit sé
kveðið á um að eftirlit á varnar-
svæðum skuli vera í samræmi við
lögin. „Utanríkisráðherra fer með
forræði á vamarsvæðum. Heil-
brigðiseftirlit Suðurnesja hefur eft-
irlit með fyrirtækjum á vamarsvæð-
inu þannig að sömu lög gilda á land-
inu öllu.“
Fríhöfnin hefur ekki fengið
viðvörun
- Hefur fríhöfnin fengið við-
vömn vegna sölu á M&M sæl-
gæti?
„Ekki nýlega en við bönnuð-
um sölu á því þegar nýr aukefna-
listi komst í gagnið fyrir nokkram
árum,“ segir Magnús H. Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Suðurnesja. „Sala á þessu
sælgæti var síðan tekin upp á ný.
Ástæðan fýrir því að við höfum
ekki stöðvað hana er að um þessar
mundir stendur yfír endurskoðun á
aukefnalistanum og við teljum ekki
rétt að fara í aðgerðir á meðan á
endurskoðuninni stendur."
- Þið munuð þá ekki stöðva söl-
unaJL næstunni?
„Ég get ekkert sagt um það að
svo stöddu," segir Magnús.
- Hvenær er nýr aukefnalisti
væntanlegur?
„Á þessari stundu get ég ekki
svarað því þar sem hann hefur ekki
enn verið tekinn inn í EES-samn-
inginn," segir Sigurbjörg. „Hann
er einungis í gildi í ESB-ríkjunum.
Málið er ekki afgreitt innan EFTA,
þar hefur verið ágreiningur um
þetta mál og það verður næst tekið
upp í EFTA í september."
Spurt og svarað um neytendamál
Garðúðun með
vatni, rabarbara-
soði o g grænsápu
HVAÐA ráð eru til
varðandi lífræna
garðúðun?
Svar: Að sögn
Lára Jónsdóttur
garðyrkj ufræðings
hjá Blómavali er ráð
númer eitt að byrja
snemma vors að
sprauta vatni á trén
eða um það bil þeg-
ar tré brama sig og
á meðan þau era að
laufgast. „Garðeig-
endur ættu að fara
reglulega út með
slöngu sem er með
kraftmiklum úðara
og hreinlega
sprauta á plönturn-
ar köldu vatni.“
Tjöruefni
í öðra lagi bendir
Lára á tjöruefni
sem má úða með að
vetri og áður en bramin þrútna og
opna sig. „Þetta efni klístrast á
stofna og greinar, smýgur inn í
börkinn og á að drepa egg lúsar
sem lifa þar yfir veturinn."
Lára segir að ýmsir hafí einnig
notað grænsápulausn og úðað á
trén eins og verið væri að nota eit-
ur. „Slíka úðun þarf eflaust að end-
urtaka nokkrum sinnum.
Þörungaáburður
Þá má reyna eina aðferð í viðbót
það er að segja að nota þöranga-
áburð. Ef hann er notaður reglulega
í tvö til þrjú sk'ipti frá bramun og
fram að þessum
tíma gerir hann
nokkuð gagn. Þör-
ungaáburðurinn er
þá blandaður eins
og verið sé að gefa
áburð og það hefur
sýnt sig að slík
lausn fælir frá.“
Lára segir að
burtséð frá þessum
ráðum sé grandvall-
aratriði að hirða
gróðurinn vel,
klippa kalkvisti af
tijám, gefa þeim
áburð og þá gerir
ekkert til þó komi
ein og ein lús á
plöntuna.
Rabarbarasoð
átrén
Þá hefur Dr. Einar
Siggeirsson bent á
að ýmsir hafí notað
soð af rabarbarablöðum til að bola
þessum vágestum á tijám í burtu.
„Leggir era slitnir af blöðum og
blöðin söxuð í um 2 sentimetra
búta. Þessir blaðbútar eru síðan
soðnir í stálpotti og ágætt að nota
til þess fímm lítra pott. Þegar búið
er að sjóða rabarbarablöðin í um
klukkustund er vökvinn kældur nið-
ur og síðan era blöðin sigtuð frá
safanum. Þegar vökvinn er orðinn
kaldur er honum úðað með handsp-
rautu á trén.
Sýran í rabárbarablöðunum virð-
ist virka á þau skorkvikindi sem
setjast að á tijánum."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Afurðamarkaður Suðurlands
Sala 1. júlí 1997
Vörutegund Lægsta verð Hæsta verð
Svínahryggur 535 589
Svínalæri 315 315
Svínalundir 933 936
Svínasíða 208 208
Egg júmam 210 Æk 210
Nýr söluturn
á Dalvegi í
Kópavogi
NÝR söluturn, Smári, hefur verið
opnaður á Dalvegi 16C í Kópa-
vogi eða í næsta nágrenni við
nýtt útibú Landsbankans og nýja
útsölu ÁTVR. Þar verður á boð-
stólum sælgæti, gosdrykkir, ís frá
Kjörís, pylsur, samlokur, léttir
réttir í hádeginu, heitt kaffi, dag-
blöð, tímarit, tóbak o.fl. Settur
hefur verið upp samlokubar með
ýmsum áleggstegundum og salöt-
um. Fyrirhugað er að leigja út
myndbönd frá og með næsta
hausti. Opið verður til kl. 23.30
öll kvöld. Eigendur Smára eru
hjónin Gísli Halldórsson og Ása
Margrét Ásgeirsdóttir, en þau
ráku áður söluturninn Mekka í
Borgarkringlunni í rúm sjö ár.
♦ ♦ •»■
Hátíðardag-
skrá í Kola-
portinu
ÞAÐ verður ýmislegt um að vera í
Kolaportinu um helgina þegar það
öðlast kaupstaðarréttindi. Guð-
mundur G. Kristinsson einn for-
svarsmanna Kolaportsins segir að
með því að gera Kolaportið formlega
að bæjarfélagi sé lögð áhersla á sér-
stöðu þess og þá bæjarstemmningu
sem ríki þar allar helgar. „Þetta
hefur frá byijun verið sérstakt sam-
félag og það viljum við undirstrika.
Með því að gefa götunum okkar
heiti erum við að auðvelda fólki að
rata um svæðið.
Á morgun, sunnudag, verður há-
tíðardagskrá í Kolaportinu . „Leikar-
ar frá leikfélaginu Snúði og Snældu
verða með uppákomur og lúðrasveit
leikur.“ Af þessu tilefni verða selj-
endur í matarportinu með sérstök
tilboð .
Keypt í matinn heima
NetBónus
tekur til
starfa
EFTIR helgina geta þeir sem ekki
eiga heimangengt sest niður við
tölvuna sína og keypt inn mat-,
og hreinlætisvörur í gegnum al-
netsverslunina NetBónus.
NetBónus er í eigu Bónus og
framkvæmdastjórinn Kári
Tryggvason segir að alnetsversl-
unin verði starfrækt með Bónus-
birgðum sem er skipaverslun.
„Bónusbirgðir hafa sinnt skip-
um, mötuneytum, veitingastöðum
og jafnvel verslunum úti á landi
en ekki einstaklingum. NetBónus
á að fylla í þá eyðu og sinna ein-
staklingum hvar sem er á land-
inu.“ Kári segir að aðgerðin sé
einföld. „Viðskiptavinir fara inn
á alnetið og við erum á www.net-
bonus.is. Þar er hægt að velja um
allt að 300 vöruliði og lágmarks-
upphæð sem keypt er fyrir er
15.000 krónur. Einungis er um
mat-, og hreinlætisvörur að ræða
auk átekinna myndbandsspóla."
Kári segir að með tímanum verði
„ ,w
DAGINN eftir að búið er að panta vörur
á alnetinu kemur bíll frá NetBónus með
vörurnar heim í hlað.
vöruval síðan lagað að óskum við-
skiptavina.
Hægt að nota greiðslukort
Þegar búið er að velja þær
vörur sem vill fyrir lágmark
15.000 krónur er greiðslumáti
valinn. í þessari Bónusverslun er
hægt að nota greiðslukort. „Við
erum í samstarfi við bandarískt
fyrirtæki sem tryggir að númerin
ruglist svo aðrir geti ekki komist
yfir kortanúmerin. Það á því að
vera tryggt að nota greiðslukortið
á þennan hátt. Þá er einnig hægt
að leggja inn á reikning NetBónus
og þegar kvittun er komin frá
bankanum sendum við um hæl
vörurnar."
en ofan á þær leggst
síðan 6% þjónustu-
gjald. Innifalið í þjón-
ustugjaldi er vinnan
við að taka til vörurn-
ar og einnig greiðslu-
kortaþjónustan. Þá
þurfa viðskiptavinir
NetBónus á höfuð-
borgarsvæðinu. að
borga 500 króna flutn-
ingsgjald en á lands-
byggðinni fer flutn-
ingskostnaðurinn eft-
ir þyngdinni sem töl-
van sér um að reikna
út meðan viðskipta-
USÍ
- Er verðið það sama og í Bón-
?
„Verðið á vörunum er það sama
vinurinn bíður. Gengið er frá öll-
um kostnaði á alnetinu og því
þarf ekki að greiða flutnings-
kostnaðinn sér við afhendingu.
- Verðasérstakartilboðssíður
þjá NetBónus?
„Það er markmið okkar að
bjóða ýmis tilboð þegar fram í
sækir. Til að byija með ætlum við
að fylgjast með viðtökum og
reyna síðan smám saman að að-
laga okkur að þörfum og óskum
neytenda.“
- Fá viðskiptavinir vörurnar
samdægurs?
„Vörurnar eru pantaðar og
daginn eftir kemur bíll frá okkur
með þær heim. Það sama gildir
um vörur út á land. Þær fara með
bílum morguninn eftir og síðan
tekur það í viðbót þann tíma sem
tekur að aka á áfangastað.“