Morgunblaðið - 05.07.1997, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMKOMULAGIÐ, sem náðst
hefur ura afmörkun hafsvæðisins
milli íslands og Grænlands, tekur
bæði til fiskveiðilögsögu og land-
grunns. Hafsvæðið umdeilda
vegna Kolbeinseyjar skiptist þann-
ig að íslendingar fá 30% og Græn-
lendingar 70%. Einnig felur sam-
komulagið í sér viðurkenningu á
fullum áhrifum Grímseyjar við af-
mörkunina.
Ekki hefur náðst samkomulag
um afmörkun hafsvæðisins milli
íslands og Færeyja, en ísland hef-
ur notað Hvalbak sem viðmiðunar-
punkt á svæðinu. í samkomulag-
inu miili íslands og Grænlands er
hins vegar kveðið á um að sú af-
mörkun hafi ekki fordæmisgildi
að því er varðar afmörkunina milli
íslands og Færeyja.
Nýja markalínan virt á
yfirstandandi ioðnuvertíð
Samkomulagið náðist á fundi
samninganefnda íslands annars
vegar og Danmerkur, Grænlands
og Færeyja hins vegar. Fundurinn
fór fram í Kaupmannahöfn dagana
27. og 28. júní.
Samkomulagið milli íslands og
Grænlands var staðfest á ríkis-
stjórnarfundi síðastliðinn þriðju-
dag og hefur verið kynnt utanrík-
ismálanefnd og sjávarútvegsnefnd
Alþingis. Það er háð samþykki
danskra, grænlenskra og íslenskra
stjórnvalda og verður lagt fyrir
Alþingi í haust. Hljóti það staðfest-
ingu allra aðila verður gengið frá
formlegum samningi.
í samkomulaginu felst að hin
nýja markalína verður virt á yfir-
standandi loðnuvertíð. íslensk skip
hafa samkvæmt loðnusamningn-
um milli íslands, Danmerkur f.h.
Grænlands, og Noregs heimild til
veiða á loðnu í grænlenskri lög-
sögu og samkomulagið hefur því
engin áhrif á veiðimöguleika
þeirra.
Gert er ráð fyrir að áhrifasvæði
Grímseyjar, sem er um 1.500
km2, komi í hlut íslands, en Danir
hafa ekki viðurkennt það hingað
til. Að auki fær ísland í sinn hlut
30% af áhrifasvæði Kolbeinseyjar
eða 3.015 km2 af 10.050 km2
svæði, þ.m.t. 170 km2 úr óum-
deildri grænlenskri lögsögu vestur
af umdeilda hafsvæðinu.
Kolbeinsey í
verulegri hættu
Kolbeinseyjardeilan hefur verið
óleyst mál allt frá því íslendingar
færðu lögsöguna út í 200 mílur
árið 1975. Þá ákváðu íslendingar
að nota Kolbeinsey og Grímsey
annars vegar og Hvalbak hins
vegar sem viðmiðunarpunkta við
afmörkun miðlínu. Danir gerðu
fyrirvara við þessa ákvörðun árið
1975 og ítrekuðu hann 1979 og
1988.
Samkomulagi náð í Kolbeinseyjardeilunni
ísland fær
30% af hinu
umdeilda
hafsvæði
Fundist hefur lausn á Kolbeinseyjardeilunni,
sem staðið hefur frá því að íslendingar færðu
lögsögu sína út í 200 mílur árið 1975. Pét-
ur Blöndal kynnti sér ýmsar hliðar sam-
komulagsins og ræddi við utanríkisráðherra.
stæði enn upp úr hafi. Það liggur
í augum uppi að við hefðum ekki
talið rétt að semja ef við hefðum
haft trú á því að við gætum feng-
ið mun betri niðurstöðu í dóms-
máli.“
Að sögn Halldórs liggur Ijóst
fyrir að ef Alþingi hafnar sam-
komulaginu í haust er málið kom-
ið á byijunarreit og væntanlega
ekkert annað framundan en að
vísa því til dómstóla.
Ekki ljóst hver niðurstaðan
yrði fyrir dómstólum
Erfitt er að vega og meta áhrif
einstakra þátta ef málinu yrði vís-
að til dómstóla, að mati sérfræð-
inga, samkvæmt heimildum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér.
Kolbeinsey yrði líklega metin sem
klettur í skilningi hafréttarsamn-
ingsins og gæti því ekki haft efna-
hagslögsögu né landgrunn. Þess
vegna yrði að teljast ólíklegt að
Kolbeinsey fengist metin nema að
takmörkuðu leyti, en svo gæti allt
eins farið að dómstóllinn hunsaði
alfarið tilvist eyjarinnar.
Aðrir þættir gætu einnig haft
áhrif á dómsniðurstöðuna, s.s. að
viðeigandi strandlengja Græn-
lands er u.þ.b. þrisvar sinnum
Iengri en strandlengja íslands að
svæðinu. Færa megi rök fyrir því
að ísland sem sjálfstætt ríki sé
háðara fiskveiðum en Grænland.
Ágreiningur landanna kom aft-
ur upp á yfirborðið þegar dönsk
skip hófu loðnuveiðar á umdeilda
svæðinu síðastliðið sumar. Frá
þeim tíma hafa átt sér stað viðræð-
ur um lausn málsins.
„Einstaka sinnum hefur komið
til árekstra á þessu svæði og hefur
það á margan hátt staðið í vegi
fyrir vinsamlegum samskiptum
milli íslendinga og _ Grænlend-
inga,“ segir Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra. „Þegar Lars
Emil Johansen, formaður græn-
lensku landstjórnarinnar, kom til
landsins í vetur lagði hann mikla
áherslu á að við reyndum að ná
niðurstöðu í þessu máli,“ heldur
hann áfram.
„Hér er að sjálfsögðu um mjög
viðkvæmt mál að ræða, því það
varðar okkar lögsögu. Áftur á
móti er ljóst að Kolbeinsey er í
verulegri hættu. Eyjan hefur
minnkað á síðastliðnum tíu árum
úr 1.520 m2 niður í 370 m2 í fyrra
og talið er að enn gangi á eyjuna.
Eftir að hafa metið málið vandlega
og leitað álits sérfræðinga á þessu
sviði, ekki eingöngu innlendra
heldur jafnframt erlendra, teljum
við hagstætt að semja á þessum
grundvelli fremur en að vísa mál-
inu til dómstóla með miklum til-
kostnaði.
Það tæki alllangan tíma og við
vitum ekki hver staða málsins yrði
á þeim tíma, t.d. hvort Kolbeinsey
Loðnustofninn er íslenskur og ís-
land á 78% loðnukvótans en Græn-
land aðeins 11%.
Á móti komi að væntanlega
yrði tekið tillit til þess að Græn-
land ætti að njóta sanngjarns að-
gangs að miðunum. Alþjóðadóm-
stóllinn lagði einmitt áherslu á
sams konar sjónarmið í Jan May-
en-málinu milli Noregs og Græn-
lands.
Samanburður á ýmsum félags-
Iegum og efnahagslegum aðstæð-
um, s.s. búsetu á ströndum við-
komandi landa og efnahagslegri
þýðingu sjósóknar, yrði væntan-
lega Islandi í hag. Þó beri að hafa
í huga að dómstólar hafa almennt
litið fram hjá slíkum þáttum.
Lítil loðnuveiði á
svæðinu
Ekki er vitað um neinar nýtan-
legar auðlindir nema loðnu og
hval á hinu umdeilda hafsvæði
milli íslands og Grænlands. Sam-
skipti Islendinga og Grænlendinga
á þessu svæði hafa verið góð að
sögn utanríkisráðherra, enda
samningur í gildi milli þeirra um
gagnkvæmar loðnuveiðar. Vanda-
málið hefur fyrst og fremst legið
Fegursta Islandsbókin
Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson
jarðfræðing og formáli eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Fæst á íslenste, ensku.
þýste, {tönsfeí og sænsku.
mk '
mk
FORLAGIÐ
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
í því að Grænlendingar hafa yfir-
fært hluta af sínum veiðiheimild-
um til annarra þjóða, þá sérstak-
lega Evrópusambandsins, og hafa
dönsk skip verið að veiðum á þessu
hafsvæði.
„Það heyrir þó til undantekn-
inga, sem sýnir hvað lítið hefur
verið um loðnuveiði á þessu
svæði,“ segir Halldór Ásgrímsson.
Hann nefnir sem dæmi að loðnu-
veiðin um þessar mundir sé aust-
ar. Halldór leggur áherslu á að
fiskistofninn skipti meginmáli, en
ekki afmörkunin sem slík. Verð-
mætin liggi í auðlindunum á svæð-
inu.
{ máli hans kemur ennfremur
fram að erlend skip geti hafið
veiðar í grænlenskri lögsögu og
þeim hluta hafsvæðisins sem kom
í hlut Grænlendinga, þótt Alþingi
hafi ekki fengið málið til formlegr-
ar meðferðar. Hefð sé fyrir því í
samningum um afmörkun haf-
svæða að aðilar virði umsamda
markalínu þar til gengið hefur
verið frá endanlegum samningi.
Deila Færeyinga og Breta setti
strik í reikninginn
í þeim viðræðum sem hafa farið
fram um afmörkun hafsvæðisins
milli íslands og Færeyja hefur
ekki náðst samkomulag. Svo virð-
ist, samkvæmt heimildum blaðs-
ins, sem Færeyingar séu ekki
reiðubúnir að ganga til raunhæfra
samninga að svo stöddu af ótta
við hugsanleg fordæmisáhrif á
deilu þeirra við Breta um afmörk-
un hafsvæðisins milli landanna.
Bretar hafa viljað nota eyjar á því
svæði sem viðmiðunarpunkta og
kunna miklir hagsmunir að vera
í húfi ef olía finnst á svæðinu.
Halldór Ásgrímsson tekur undir
að það hafi sett strik í reikninginn
að Færeyingar eigi í svipuðum
deilum við Breta þar sem meiri
hagsmunir séu í húfi. „Það hefur
óneitanlega áhrif í sambandi við
lausn á deilu sem þessari, þótt það
ætti ekki að þurfa að standa í
vegi fýrir samkomulagi,“ segir
hann. „Samkomulag þar myndi
óneitanlega greiða fyrir lausn milli
íslands og Færeyja."
Staða Islendinga er talin sterk-
ari í því máli en í Kolbeinseyjar-
deilunni. í fyrsta lagi er strand-
lengja íslands, sem snýr að haf-
svæðinu, þrisvar sinnum stærri en
strandlengja Færeyja. í öðru Iagi
er Hvalbakur mun stærri en Kol-
beinsey eða um 14.000 m2 að
stærð og ekkert sem bendir tii
þess að hann sé að minnka. Síðast
en ekki síst er Hvalbakur mun nær
strönd íslands en Kolbeinsey.
Samningaviðræðum um af-
mörkun hafsvæðisins milli íslands
og Færeyja verður haldið áfram
að sögn Halldórs. „Við munum
leggja áherslu á að ljúka því sem
fyrst,“ segir hann. „Við teljum
okkar stöðu sterka og munum
halda áfram að leita lausna og
leitast við að halda viðræðum
áfram í þeim góða anda sem ríkt
hefur.“
Engu skiptir hvort Kolbeinsey
hverfur í hafið
„Ljóst er að gríðarlegur til-
kostnaður hefði fylgt því að verja
Kolbeinsey," segir Halldór As-
grímsson. „Ekki er heldur víst að
það hefði verið hægt. Þarna eru
miklir náttúrukraftar á ferð, ekki
eingöngu öldubrot heldur einnig j
hafís. Þar að auki er alls ekki víst I
að það hefði breytt nokkru, t.d. j
fyrir dómstóli, þótt menn hefðu
lagt í slíkan tilkostnað.“ Sam-
kvæmt hafréttarsamningnum
hafa tilbúnar eyjar ekki áhrif á
afmörkun landsvæða efnahagslög-
sögu né landgrunns.
Halldór segir að eftir þetta sam-
komulag skipti engu máli hvað
verði um eyjuna. „Ef hún hverfur
hefur það engin áhrif á þetta sam- ;
komulag. Þar af leiðandi þjónar
það engum tilgangi að leiða hug- ;
ann að því hvað verður um eyj- j
una.“ \