Morgunblaðið - 05.07.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 9
FRÉTTIR
••
Ollum tilboðum í byggingu yfir
skautasvellið Laugardal hafnað
Leitað verður
nýrra lausna
ÞREMUR tiiboðum sem bárust í al-
útboð íþróttabandalags Reykjavíkur
um byggingu yfir skautasvell
Reykjavíkur hefur verið hafnað á
þeim forsendum að þau séu ekki
innan þess fjárhagsramma sem lagt
var upp með þegar efnt var til út-
boðsins.
Leitað verður aftur til verktak-
anna til að athuga hvort þeir geti
boðið upp á ódýrari lausnir eða hvort
grundvöllur sé fyrir yfirbyggingu
almennt miðað við gefnar forsendur.
Verður þá einnig rætt við ístak sem
skilaði ekki tilboði á tilsettum tíma
vegna misskilnings.
Frestur tvisvar framlengdur
Misskilninginn má rekja til þess,
að sögn Reynis Ragnarssonar, for-
manns íþróttabandalags Reykjavík-
ur, að frestur til að skila tilboðum
hafði tvisvar verið framlengdur.
Fyrst vegna þess að Félag arki-
tekta hafði sent út þau tilmæli til
félagsmanna sinna að þeir tækju
ekki þátt í útboðinu, þ.e. ynnu ekki
neina hönnunarvinnu fyrir umrædda
verktaka. Ástæðan var sú að félagið
taldi að hönnuður aðstöðunnar við
skautasvellið hefði einnig rétt á að
hanna viðbygginguna, samkvæmt
samningi við Reykjavíkurborg.
Það reyndist á þeim misskilningi
byggt, að sögn Reynis, að Reykja-
víkurborg væri ábyrg fyrir fram-
kvæmdunum þegar það var í raun
íþróttabandalag Reykjavíkur.
„Þarna myndaðist óvissuástand í
smátíma og kvörtuðu verktakarnir
undan knöppum tíma til að skila til-
boðum,“ segir Reynir. „Til þess að
greiða úr þessum málum lengdum
við frestinn um hálfan mánuð eða til
4. júní.“ Upphaflega hafði sex verk-
tökum verið boðið að skila inn til-
boði. Þegar þarna var komið sögu
voru tveir búnir að draga sig í hlé.
Barst svo ósk frá einum verktaka
um að fresturinn yrði framlengdur
í nokkra daga og var fallist á að
framlengja hann til 10. júní.
„Tilboðsfresturinn hafði fram að
þessu verið til klukkan 15, en í loka-
frestinum var kveðið á um að tilboð-
um yrði skilað klukkan 10 um morg-
uninn,“ segir Reynir. „Við þá opnun
mætti ístak ekki vegna þess að þeir
höfðu misskilið tímasetninguna og
haldið að skilafrestur væri til klukk-
an 15 eins og áður. Barst þess vegna
ekki tilboð frá ístaki.“
Tilboðin ekki nógu lág
Tilboðin þijú sem bárust á réttum
tíma voru opnuð að bjóðendum við-
stöddum. „Þeim var öllum hafnað,"
segir Reynir. „Ástæðan var sú að í
alútboðsgögnum höfðum við gefið
upp ákveðinn fjárhagsramma upp á
150 milljónir, sem eru þeir fjármun-
ir sem við höfum til ráðstöfunar í
þessa viðbyggingu.
Tilboðin sem okkur bárust voru
öll langtum hærri eða frá tæplega
218 milljónum upp í rúmlega 238
milljónir. Einnig sáum við að ýmis-
legt vantaði í tilboðin og hefði raun-
kostnaður því hækkað töluvert hjá
þessum þremur aðilum.“
Hann segir að nú verði beðið þar
til tilboðsfrestur renni út, sem verði
10. júlí. „Þá munum við væntanlega
ræða við þá verktaka aftur, sem
voru búnir að lýsa því yfir að þeir
tækju þátt í útboðinu og athuga
hvort flötur sé á því yfirleitt að
byggja hús fyrir þessa fjármuni."
Hagi vinnubrögð-
um eftir aðstæðum
FULLYRÐINGAR bandaríska skip-
stjórans Jims Florents um mun á
öryggi skipa með hliðargálga og
þeim sem eru með gálga í skut og
sagt var frá í blaðinu í gær voru
bornar undir Guðmund Guðmunds-
son, forstöðumann skipaskoðunar-
sviðs Siglingastofnunar. Florent
sagði að reynsla hans væri sú að
skelbátar með gálgann í skutnum
færust miklu oftar en þeir sem
væru með hliðargálga. Nýtt skip
íslensks skelfisks, Skel, er fyrsta
skipið, sem gert er út hérlendis með
hliðargálga.
Guðmundur sagði að um væri að
ræða tvær útfærslur af veiðarfæra-
búnaði og menn yrðu að haga vinnu-
brögðum samkvæmt því. Menn
þekktu skipin kannski ekki nógu vel
og þyrftu hugsanlega að vara sig
betur á annarri tegundinni en hinni.
Aðspurður um það hvort fullyrð-
ingar Florents þættu athygliverðar
og hugsanlega tilefni til að kanna
mál nánar, sagði Guðmundur að öll
mál er tengdust þessum skipum
væru til skoðunar hjá Siglingastofn-
un.
Tómas Tómasson
„Út vil ek“
VEGFARENDUR hafa veitt því um. Reyndar eru það starfsmenn
athygli að Leifur heppni er horf- ístaks, sem eru hér að flytja
inn af stalli sínum á Skólavörðu- kappann til geymslu um sinn í
holtinu. Síðast sást til ferða Leifs Sundaskála. Leifur vék af stalli
í Sundahöfn. Er talið að honum sl. fimmtudag vegna viðgerða á
hafi ekki haldið nein bönd þegar undirstöðum og lóðafrágangs við
knerrir Eimskips blöstu við hon- Hallgrímskirkju.
ÚtS
^Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10—18.30 og laugardaga frá kl 10-15
Viltu sýnast númeri grennri yfir mjaðmir?
Töfraundirpilsin komin
TESS
VdX, Opiðvirkadaga kl.9-18,
sími 562 2230 laugardaga kl. 10-14.
Langur
laugardag-
ur í mið-
borginni
LANGUR laugardagur verð-
ur í miðborg Reykjavíkur
laugardaginn 5. júlí með til-
heyrandi tilboðum, sumar-
stemmningu og verslunar-
fjöri.
Verslanir verða opnar kl.
10-17 og fram á kvöld verð-
ur hægt að setjast á kaffi-
hús. Felstar verslanir, kaffi-
hús og veitingastaðir eru með
tilboð í tilefni dagsins.
Boðið verður upp á leik-
tæki fyrir börnin á Lækjar-
torgi og Ingólfstorgi og fría
barnagæslu í safnaðarheimili
Aðventista, Ingólfsstræti 19
kl. 13-18. Þar fá börnin einn-
ig andlitsmálun og boðið
verður upp á uppákomur,
sögustundir og fleira.
IAIAI lONNl'DUI
20% afsláttur af öllum
vörum á löngum
laugardegi
Gerið góð kaup
Opiðtilkl. 10-17
Laugavegi 58, sími 551 3311
i . m Langur laugardagur
'jU-- 15% afsláttur af öllum vörum
IL ■ cibecitcil Sgj !>•!. i V. : . H
Laugavegi 4, sími 551 4473
Fræðsludagskrá um pöddur ásamt gönguferð og
greiningu á pöddum.
Gómsætur pastaréttur í boði KÁ-verslana á Suðurlandi.
Umhverfisfræðslusetrið
ÍAiviðru, sími 482 1109
Þátttaka er ókeypis
og öllum heimil.
verslanir Suðurlandi
I