Morgunblaðið - 05.07.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 13
*
Arlegt úti-
skákmót
HIÐ árlega útiskákmót Skákfé-
lags Akureyrar fór fram í göngu-
götunni í blíðviðrinu í gær. Rúm-
lega 10 skákmenn mættu til leiks
og háðu harða baráttu. Bókabúð
Jónasar gefur verðlaunin í mót-
inu og gaf einnig þann farand-
bikar sem keppt er um hverju
sinni.
Fyrstu
sumartón-
leikarnir
FYRSTU tónleikar ellefta starfsárs
„Sumartónleika á Norðurlandi"
verða í Akureyrarkirkju á sunnudag-
inn kl. 17, þar sem leika Hafliði
Hallgrímsson sellóleikari og Björn
Steinar Sólbergsson orgelleikari.
A efnisskránni eru Toccata,
adagio og fúga í C-dúr, 3 sáimfor-
leikir um sálmalag, sálmforleikur
eftir J.S. Bach, Prédikun á vatni og
Hugleiðing eftir Hafliða Hallgríms-
son.
Hafliði Hallgrímsson, sellóleikari,
myndlistarmaður og tónskáld er
fæddur á Akureyi. Hann hefur búið
og starfað í Edinborg í Skotlandi í
um tuttugu ár.
Tónsmiðar Hafliða hafa verið
fluttar víða um heim og hefur hann
unnið til margra verðlaun m.a. Tón-
listarverðlauna Norðurlandaráðs
1986.
Björn Steinar Sólbergsson er
fæddur á Akranesi. Hann tók við
stöðu organista og kórstjóra við
Akureyrarkirkju haustið 1986 og
kennir jafnframt orgelleik við Tón-
listarskólann á Akureyri.
-----»-»-♦---
Gönguferð um
Innbæinn
SUNNUDAGINN 6. júlí verður far-
in gönguferð um Innbæinn og Fjör-
una undir leiðsögn Harðar Geirs-
sonar safnvarðar á Minjasafninu á
Akureyri.
Gengið verður um gömlu kaup-
staðarlóðina, inn eftir Fjörunni og
saga byggðarinnar og húsanna rak-
in. Lagt verður upp frá Laxdals-
húsi, Hafnarstræti 11 kl. 14. Gang-
an tekur um eina og hálfa klukku-
stund og er þátttaka ókeypis.
-----» ♦ ♦---
Opin vinnustofa
UM helgina verður opin vinnustofa
hjá Jónasi Viðari myndlistarmanni.
Vinnustofan er til húsa að Glerár-
götu 32, 3. hæð og verður hún opin
í dag og á morgun frá kl. 2-19.
Jónas Viðar verður með heitt á
könnunni og eru allir velkomnir.
-----» ♦ ♦---
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11.00 sunnudaginn 6. júlí,
séra Birgir Snæbjörnsson. Flytjend-
ur á Sumartónleikum taka þátt í
athöfninni. Ferðafólk sérstaklega
velkomið.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Safn-
aðarsamkoma sunnudaginn 6. júlí
kl. 11.00, Ester K. Jacobsen predik-
ar. Almenn samkoma kl. 20.00,
Vörður L. Traustason predikar.
Andlegar þjálfunarbúðir miðviku-
daginn 9. júlí kl. 20.30. Unglinga-
samkoma föstudaginn 11. júlí kl.
20.30. Mikill og fjölbreyttur söng-
ur, allir velkomnir.
KAÞÓLSKA kirkjan: Messa
laugardaginn 5. júlí kl. 18.00 og
sunnudaginn 6. júlí kl. 11.00.
fgótt
Tskt‘4 K&&i
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Sundfólk
ekki orðið
fyrir aðkasti
GÍSLI Kristinn Lórenzson, for-
stöðumaður Sundlaugar Akur-
eyrar, hafði samband við Morgun-
blaðið vegna ummæla Margrétar
Ríkarðsdóttur, formanns Sundfé-
lagsins Óðins, í frétt í blaðinu í
vikunni.
Gísli Kristinn sagðist mótmæla
þeim ummælum Margrétar að
sundfólk í Óðni yrði fyrir aðkasti
frá almenninig við æfingar í sund-
lauginni og taldi þau í raun árás
á það fólk sem sækir laugina.
„Sundfólk í Óðni hefur fengið
að æfa hér á tveimur brautum í
ró og næði og ekki orðið fyrir aðk-
asti. Og hér hefur verið unnið í
mjög góðri sátt við þjálfara félags-
ins og því koma þessi ummæli mér
og mörgum öðrum mjög á óvart.“
Fr amkvæmdastj ór i Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar á aðalfundi
Mikil þörf á nýju stórfyrir-
tæki á Eyjafjarðarsvæðið
AÐALFUNDUR Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar hf. yar haldinn á Akur-
eyri í vikunni. í máli Bjarna Krist-
inssonar framkvæmdastjóra kom
fram að virkileg þörf væri fyrir
nýjan valkost í atvinnumálum og
að sérstaklega væri þörf á nýju
stórfyrirtæki á svæðið.
Bjarni sagði ljóst af samtölum
við atvinnurekendur á svæðinu að
þeir yrðu greinilega varir við þá
þenslu sem er sunnan heiða. „Þann
kraft sem fylgir slíkum fram-
kvæmdum er ekki að finna hér. Því
þarf að breyta.“
Bjarni sagði matvælaframleiðslu
undirstöðu atvinnulífs í Eyjafirði,
eins og á flestum öðrum stöðum á
landinu. „í þorpum og bæjum um
allt land er matvælaiðnaður undir-
staða atvinnulífsins þar sem sjávar-
útvegur og fiskvinnsla skipa stærst-
an sess. Ef grannt er skoðað er
matvælaiðnaður í heild langmikil-
vægasta atvinnugrein þjóðarinnar.“
Vinnsla sjávarafurða
stóriðnaður
Kvótastaða svæðisins er sterk og
hefur verið að styrkjast á undan-
förnum árum og að mati Bjarna
er vinnsla sjávarafurða orðin stór-
iðnaður í Eyjafirði, með sameigin-
lega veltu sem er meiri en hjá stór-
iðjufyrirtækjum á suðvesturhorn-
inu. „Myndi uppbygging stóriðju
hafa truflandi áhrif á þessa þróun,
eða myndi hún verða atvinnulífinu
til framdráttar með fjölbreyttari
störfum og þeim efnahagslegu
áhrifum sem slík uppbygging hefur
í för með sér?“ spurði Bjarni.
Bjarni sagði að viðhorfskönnun
meðal íbúa Eyjafjarðar frá síðasta
sumri hafi sýnt að flestir Eyfirðing-
ar telja matvælaframleiðslu mikil-
vægustu atvinnugreinina til upp-
byggingar atvinnulífs á næstu árum
og að álver geti skaðað ímynd Eyja-
fjarðar sem matvælaframleiðslu-
svæðis.
Iðnaður mikilvægastur
„Athyglisvert er að fyrir aðeins
þremur árum taldi meirihluti Ey-
firðinga að almennur iðnaður væri
mikilvægastur. Flestir forráðamenn
matvælafyrirtækja telja hins vegar
að stóriðjuver skapi ekki vandamál
vegna ímyndarinnar, heldur muni
efnahagsleg áhrif ef til vill verða
erfiðari, t.d. þensla á byggingar-
tíma. í raun er þetta aðeins hug-
lægt mat, engar haldgóðar rann-
sóknir liggja til grundvallar þeirri
skoðun að stórfyrirtæki á borð við
álver skaði ímynd svæðis. Ber nátt-
úra Hvalfjarðar og umhverfi skaða
af Járnblendiverksmiðjunni? Eru
matvælin sem framleidd eru á
Akranesi verri eða illseljanlegri
vegna nálægðar stóriðjufyrirtækja.
Svarið við báðum þessum spurning-
um er neikvætt. Ekkert liggur fyrir
um neikvæð áhrif stóriðju eða raf-
orkuframleiðslu á kaupendur ís-
lenskra matvæla, enda er þessi
þáttur umhverfismála í ágætu lagi
hérlendis. Hið sama verður ekki
sagt um aðra þætti sem vert er að
hafa áhyggjur af sem er umgengni
landans um landið, uppblástur og
frágangur úrgangs frá heimilum
og fyrirtækjum," sagði Bjarni.
Hlutaféí
Skinnaiðnaði selt
Stærsta einstaka verkefni á veg-
um Iðnþróunarfélagsins á síðasta
ári snéri að erlendri fjárfestingu í
matvælaiðnaði á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Það hófst í ársbyijun 1996 og
átti upphaflega að ljúka í júní í ár
en hefur nú verið framlengt um
eitt ár enn. Fyrir liggur að kynna
svæðið fyrir völdum aðilum en hér
er um að ræða tilraun til að benda
á ísland og Eyjafjarðarsvæðið sem
fjárfestingavalkost í matvælaiðnaði
vegna ýmissa aðstæðna sem hér
eru.
Iðnþróunarfélagið seldi nánast
allt sitt hlutafé í Skinnaiðnaði hf.
á síðasta ári. Bjarni sagði að ávöxt-
un þess fjár sem lagt var í fyrirtæk-
ið hafi verið mjög góð og óvíst að
slíkt endurtaki sig nokkurn tíma.
Hlutabréf félagsins í fleiri félögum
eru föl og nefndi Bjarni dæmi um
Gúmmívinnsluna og Laxá.
ÚA í hóp
hluthafa
Á síðasta ári keypti félagið hluta-
bréf fyrir um 2,3 milljónir króna, í
íslenskum laxi hf. og Sunnevu de-
sign. Bjarni sagði marga hafa leitað
eftir áhættufjármagni frá félaginu,
bæði vegna nýrra og starfandi fyrir-
tækja. Hann telur að stjórn félags-
ins þurfi að móta skýra stefnu í
fjárfestingum og starfsreglur varð-
andi aðkomu að slíkum málum.
Iðnþróunarfélagið var rekið með
einnar milljónar króna hagnaði á
síðasta ári. Sá hagnaður er að stór-
um hluta tilkominn vegna söluhagn-
aðar hlutabréfa en tap varð á reglu-
legri starfsemi. Útgerðarfélag Ak-
ureyringa hf. er komið í hóp hlut-
hafa en ÚA keypti á síðasta ári
hlut þrotabús KSÞ í IFE.
Höldur vill byggja
bensínstöð við Viðjulund
HÖLDUR ehf. á Akureyri hefur
ítrekað ósk um lóð undir bensínstöð
á horni við Viðjulund, Súluveg og
Þingvallastræti. Málið var rætt í
skipulagsnefnd í gær og sagði Gísli
Bragi Hjartarson, formaður nefnd-
arinnar, að málinu hafi verið vísað
til frekari skoðunar.
Hann sagði þetta svæði skilgreint
sem iðnaðar- og verslunarsvæði og
allt önnur leyfi þyrfti vegna bensín-
stöðva. „Það er ekki sama hvaða
starfsemi kemur þarna og vildi ég
að menn skoðuðu framtíðarnýtingu
á þessu horni.
íbúarnir hafa líka um þetta mál
að segja og einnig Mjólkursamlagið
sem er þarna í næsta nágrenni."
Steypustöð í Krossaneslandi
Möl og sandur sem rekur steypu-
stöð við Súluveg hefur sótt um lóð
undir steypustöðina í Krossanes-
landi, norðan við Krossanesverk-
smiðjuna. Gísli Bragi sagði að
skipulagsnefnd hafi tekið vel í þá
ósk og sé stefnt að því að skoða
nánari útfærslu á þeirri hugmynd.
World Class í Reykjavík hefur
keypt húsnæði slysavarnafélaganna
á Akureyri við Strandgötu og hefur
verið óskað eftir leyfi til stækkunar
á húsnæðinu.
Þarf að vera með róðrarvélar
Gísli Bragi sagði að úr því að
Slysavarnafélagið ætlaði ekki að
nýta húsnæðið væri ekki hægt að
útiloka þann möguleika að einhver
annar gerði það. Hann sagði að
þarna stæði til að setja upp stóra
og mikla líkamsræktarstöð og vildu
nýir eigendur stækka millibyggingu
hússins um 70 fermetra til austurs
og vesturs.
„Við svöruðum fyrirspurn bygg-
ingafulltrúa um málið á þá leið að
við teldum ekkert óeðlilegt við
aukna nýtingu lóðarinnar og gæt-
um heldur ekki sett nein skilyrði
fyrir sérstakri nýtingu hússins. Eig-
andinn verður bara að passa að
vera með róðrarvélar í líkamsrækt-
arstöðinni, þannig að þetta geti
flokkast sem hafnsækin starfsemi,"
sagði Gísli Bragi.