Morgunblaðið - 05.07.1997, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Stækkun Evrópusambandsins
Væntanleg ný aðildar
ríki dregin í dilka
Lúxemborg. Reuter.
EVRÓPUSAMBANDIÐ ætti aðeins
að hefja aðildarviðræður á næsta ári
við þau lönd Mið- og Austur-Evrópu
sem eru undir það búin að ganga í
sambandið fljótlega. Þetta kom fram
í máli Jacques Santer, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB á fundi með
nýrri forystu ráðherraráðsins í Lúx-
emborg á fimmtudag.
Þessi afstaða forsetans virðist úti-
loka aðra tillögu sem einnig hefur
verið til umræðu, en hún er sú að
strax á næsta ári verði hafnar form-
legar aðildarviðræður við 10 austur-
evrópskar þjóðir sem sækjast eftir
aðild, en þeim verði lokið miss-
nemma.
Framkvæmdastjómin hyggst hinn
16. þessa mánaðar birta sjálfstætt
mat á aðildarhæfni hvers og eins
austur-evrópsku ríkjanna tíu. Pól-
land, Tékkland, Slóvenía, Slóvakía,
Eistland, Lettland, Litháen, Rúmenía
og Búlgaría eru öll í biðröðinni eftir
aðild, en Kýpur hefur þegar verið
dæmd hæf til aðildar.
„Þessi könnun mun óhjákvæmi-
lega leiða til þess að löndin verða
dregin í dilka,“ sagði Santer eftir
viðræður framkvæmdastjórnarinnar
við rikisstjórn Lúxemborgar, sem tók
við forsæti í ráðherraráði sambands-
ins um mánaðamótin.
Jean-Claude Juncker, forsætisráð-
herra Lúxemborgar, sem mun verða
gestgjafi leiðtogafundar ESB í des-
ember þar sem til stendur að kveða
upp úr um það hvaða ríkjum verði
fyrstum boðið til aðildarviðræðna,
virðist einnig kjósa að takmarka
fjölda þeirra ríkja sem fengju að
gerast aðilar að ESB í næstu stækk-
unarlotu.
„Við verðum að hefja viðræður við
þau ríki sem eru reiðubúin," sagði
hann. „Ég útiloka ekki að formlega
verði ráðist í að hefja viðræður við
Reuter
Ekkert lát á óeirðum í Hebron
ÍSRAELSKIR hermenn skjóta
gúmmíkúlum á hóp Palestínu-
manna eftir að átök brutust út í
borginni Hebron á Vesturbakk-
anum í gær. Tugir Palestínu-
manna slösuðust, þar af særðist
ungur drengur lífshættulega, er
lögreglan reyndi að stöðva
grjótkast og bensínsprengjuvarp
þeirra. Palestínumenn hafa auk-
ið mótmæli sín í Hebron i kjölfar
þess að ísraelsk kona setti upp í
borginni ólögleg veggspjöld sem
sýndu Múhameð spámann í svíns-
líki. Veggspjöldin ollu gífurlegri
reiði meðal araba og hefur kom-
ið til átaka dag hvern í Hebron. |
Stjórnvöld í Washington sögðu í
gær, að báðir aðilar bæru jafnm-
ikla ábyrgð á ofbeldinu í Hebron
að undanförnu.
ÚR VERIIMU
Morgunblaðið/Arnaldur
LANDAÐ úr Júpíter ÞH hjá Faxamjöli í Reykjavík.
Loðnunni mokað
upp og löndun-
arbið víðast hvar
MOKVEIÐI er enn á loðnumiðun-
um norður af Langanesi og löndun-
arbið því á öllum nálægum höfn-
um. Hjá SR-mjöli verða skipin að
bíða í landi 30 til 46 tíma, en auk
þess er allt að 40 tíma sigling frá
miðunum til fjarlægustu hafnanna
við Faxaflóa. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hver heildarafli íslenzku skip-
anna er orðinn, en Fiskistofu hafa
borizt tilkynningar um 40.000
tonn.
SR-mjöl hefur tekið á
móti um 20.000 tonnum
Afli norsku skipanna var síðdeg-
is í gær orðinn ræplega 33.000
tonn. Færeyingar eru komnir með
um 5.700 og grænlenzka skipið
Ammassat hefur landað einu sinni,
780 tonnum. Norsku skipin mega
nú veiða um 80.000 tonn af loðnu
innan lögsögu okkar og Færeying-
ar 21.000.
Allar verksmiðjur SR-mjöls eru
nú keyrðar á fullum afköstum og
hefur Helguvíkurmjöl móttöku og
vinnslu í dag, en þá kemur fær-
eysku loðnubáturinn Júpíter þang-
að til löndunar. Alls hefur SR-mjöl
tekið á móti um 20.000 tonnum.
Á miðnætti í gær var búið að vinna
úr tæplega 10.000 tonnum, en
mestur er gangurinn í Siglufirði
og á Seyðisfirði.
Löndunarbið
Bræðslan gengur alls staðar vel
þrátt fyrir að mikil áta sé í loðn-
unni. Þess er gætt að vinna loðn-
una ferska og gengur þá vel að
bræða. Fyrir vikið taka verksmiðj-
umar ekki á móti miklu í þrær og
verður því löndunarbið meiri en
ella. Það er því í raun vinnslan,
sem ræður afköstunum við veið-
amar.
ERLEIMT
Lýsingii á skotsári
Kennedys breytt
Washington. The Daily Telegraph.
SKJÖL, sem nýlega komu fram í
dagsljósið, sýna fram á að Warren-
nefndin, sem rannsakaði morðið á
John F. Kennedy forseta árið 1963,
breytti lýsingu á öðru skotsári for-
setans, vegna þrýstings eins nefnd-
armans, Geralds Fords, sem síðar
varð forseti. Þetta er vatn á myllu
þeirra sem telja að Lee Harvey
Oswald hafi ekki verið einn að verki.
í dánarvottorði Kennedys segir
að banamein hans hafi verið skot
í „efri hluta baksins, nokkru fyrir
neðan hálsinn". í drögum að skýrslu
Warren-nefndarinnar segir að kúl-
an hafi komið í bak forsetanum,
„rétt fyrir neðan öxlina, hægra
megin við mænuna". Samkvæmt
handskrifuðum miða sem fylgdi
gögnum nefnarinnar, vildi Ford að
þessu yrði breytt og sagt að kúlan
hafi farið í hálsinn áKennedy, til
hægri við mænuna. í lokaskýrslu
hennar segir að kúlan hafi komið
„neðst í hálsinn, rétt til hægri við
mænuna“. Ford segir breytingar
sínar hafa verið „tilraun til að vera
aðeins nákvæmari".
Menn eru ekki á eitt sáttir um
hvort þetta smáatriði skipti máli.
Efasemdarmenn segja að með
breytingunni hafi sárið verið fært
upp um nokkra sentimetra og að
það hafi úrslitaáhrif á lokaniður-
stöðuna, sem var sú að kúlan hefði
fyrst farið í forsetann, í gegnum
hálsinn og lent í ríkisstjóra Texas,
John Connally. Því skipti stefna
kúlunnar öllu máli. Eina kvikmynd-
in sem er til af morðinu styðji ekki
þá kenningu. Connally hefur lýst
því yfir, eftir að hafa skoðað kvik-
myndina ramma fyrir ramma, að
forsetinn bregðist við því að hafa
verið skotinn í römmum 225 til
230. „Svipbrigði eru greinileg á
andliti forsetans en ekki á mínu,“
sagði Connally.
Þá hefur verið á það bent að
skot í háls forsetans hefði einnig
getað hæft Connally en skot í bak-
ið hefði ekki farið út að framan og
í næsta mann. Allt þykir þetta
styðja kenningar um að fleiri en
Oswald hafi verið að verki. Skammt
er síðan James nokkur Files, sem
afplánar nú fimmtíu ára dóm fyrir
að myrða lögregluþjón, fullyrti að
hann og Charles Nicoletti, leigu-
morðingi mafíunnar, hefðu myrt
Kennedy og að hlutverk Oswalds
hafi eingöngu verið að villa um fyr-
ir þeim sem rannsökuðu málið.
LOÐNUKVÓTINNL
úní1997
1^2 25.j Hlutdeild Tonn
Höfrunqur AK 91 4.04% 23.022
Júpiter ÞH 61 3.92% 22.316
Vi'kinqur AK 100 3.85% 21.937
Hólmaborq SU 11 3.78% 21.525
Örn KE 13 3.62% 20.638
Þorsteinn EA 810 3.60% 20.488
Sigurður VE 15 3.14% 17.854
Grindvíkingur GK 606 2.94% 16.765
Háberq GK 299 2.87% 16.323
Elliði GK 445 2.79% 15.876
Guðmundur VE 29 2.61% 14.877
Hákon ÞH 250 2.57% 14.656
Blængur NK 117 2.57% 14.626
Beitir NK 123 2.56% 14.589
Þórshamar GK 75 2.50% 142.30
Ísleifur.v a VE 63 2.49% 14.171
Gíqja »^lVE340 2.42% 13.804
Börkur " l\IK 122 2.37% 13.496
Bjarni Ólafsson AK 70 2.34% 13.348
Jón Kjartansson SU 111 2.34% 13.298
Jón Siqurðsson GK 62 2.33% 13.277
Gullberg VE 292 2.22% 12.622
Sighvatur Bjarnason VE 81 2.18% I 12.416
Súlan EA 300 2A07% 11.808
Faxi RE 241 2.07% 11.769
Húnaröst SF 550 2.03% 11.554
Berqur VE 44 2.02% 11.523
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 2.02% 11.510
Björg Jónsdóttir ÞH 321 2.01% 11.471
Svanur RE 45 1.97% 11.212
KaD II VE 444 197% 11.212
Oddeyrin & ' EA210 1.90% 10.815
Huqinn V-— VE 55 1,90% 10.815
VE 4 1.90% 10.815
Guðmundur Olafur OF 91 188% 10.716
Víkurberg GK 1 1.84% 10.467
Dagfari GK 70 1.83% 10.419
Antares VE 18 1.83% 10.419
Þórður Jónasson EA 350 1.80% 10.269
Sunnuberg GK 199 1.00% 5.695
Jóna Eðvalds SF 20 0.97% 5.524
Venus HF 519 0,50% 2.847
lyvindur Vopni l\IS 70 0.35% 1.993
Pétur Jónsson RE 69 0.08% 469
SAMTALS 569.475